Morgunblaðið - 04.08.1976, Page 22

Morgunblaðið - 04.08.1976, Page 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976 Frímann Ingvars- son — Kveðja Mér er ljúft og skylt að minnast vinar míns og trúbróður, Frí- manns Ingvarssonar, með nokkr- um þakkar- og kveðjuorðum. Hann var hljóðlega kallaður heim aðfaranótt 24. þ.m. Ekki mun ég rekja æviferil Frí- manns hér enda flestum vinum hans kunnur. Aðeins einn þátt, hið andlega starf hans, langar mig lítillega að minnast á. Kynni okkar hófust fyrir um það bil tuttugu árum. Síðan hefi ég haft mörg tækifæri til að kynn- ast verkum hans, lífsstefnu og markmiði. Frímann var mikill trúmaður, hreinskilinn og hjarta- hlýr, hæglátur og ljúfur í um- gengni. Hann var boðberi Drott- ins í orði og verki. Ötalin eru þau spor, sem hann átti að baki með vitnisburð um hjálpræðis- og náð- arverk Frelsarans. Varla var prentsvertan þornuð á sfðustu játningu hans, þegar hann kvaddi þennan heim. Fyrir mörgum áratugum hlaut hann sjálfur lækningu á fæti, sem álitið var að mundi þurfa að taka af honum. En fyrir trúarbæn eins og þjónum Drottins varð hann alheill. Frá þeirri stundu leitaðist Frímann við að lofa Frelsarann og útbreiða fagnaðarboðskap Hans. Þegar ég Ift til baka sé ég skýra mynd, sem lýsir mjög vel trúar- Minning: Helga Þorsteins- dóttir frá Kirkjubœ Jarðarför Helgu Þorsteins- dóttur frá Kirkjubæ fer fram hér í Reykjavík þann 4. ágúst, — fjarri heimabyggð hennar, en auðvitað mun hún hvíla við hlið bónda sfns, Þorbjörns heitins Guðjónssonar fyrrum bónda að Kirkjubæ, en hann lézt í nóv. 1974. Þau höfðu dvalizt hér í Reykjavík eftir eldgosið í Heima- ey. • Helga fæddist 22. september 1898 I Vestmannaeyjum og var því tæplega 78 ára gömul er hún lézt. Þessarar gengnu ágætiskonu er varla hægt að minnast nema Þorbjörns sé að einhverju getið líka, því svo voru þau samrýmd og samtaka í einu og öllu, að þar sem hún er í minningunni, þar er hann líka. Saman gáfu þau og glöddu menn og málleysingja og gerðu gott, saman glöddust þau og saman syrgðu þau og studdu hvort annað eftir að þau þurftu að flýja sína kæru Heimaey, er bær þeirra brann og jörð þeirra öll lenti undir hrauni og ösku í eld- gosinu 23. jan. 1973. Þau voru trygg og góð þeim sem þau kynntust, og þeim sem unnu hjá þeim við bústörf, en sérlega þó þeim sem erfitt áttu á einn eða annan hátt. Ótaldar eru þær sendingar sem komu frá Kirkju- bæ ár eftir ár til að gleðja og hjálpa i mörgum heimilum í Vest- mannaeyjum. Fyrir hönd móður minnar og okkar systranna flyt ég hjartans þakkir fyrir allt gott sem við nut- um þaðan. Guð blessi fjölskyldu Helgu heitinnar og styrki í sorginni eftir góða móður og ömmu. Lára Þórðardóttir. + Eiginmaður minn og faðir okkar GUÐLAUGURJÓNSSON Melgerði 1 7, Kópavogi lést í Borgarspítalanum 2 ágúst Margrét Ólafsdóttir og börn Systir mín og móðursystir ÁSTDÍS BERGÞÓRSDÓTTIR lézt þann 26. júlí. Útförin fer fram frá Stokkseyrarkirkju, laugardaginn 7 ágúst kl 1 (Vegna viðgerðar á Eyrarbakkakirkju, fer athöfnin fram i Stokkseyrarkirkju). Fyrir hönd vandamanna, Sigurbjörg Bergþórsdóttir Guðmundur Lárusson t Ollum þeim, hinum fjölmörgu vmum og kunningjum, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför HARALDAR SIGUROSSONAR Hlíðarvegi 30, Siglufirði, sendum við alúðarþakkir og blessunaróskir Valgerður Guðmundsdóttir Guðmundur Haraldsson Erla Björg Evensen Svava Axelsdóttir Grlmur Haraldsson. Hrefna Böðvarsdóttir — Minningarorð staðfestu Frímanns. Hann gerða nokkuð af því að fara út með blað safnaðar sfns, ,,Fagnaðarboða“. Hvar sem hann bar að garði var það venja hans að ávarpa fólk með hlýju brosi, en augun hvörfl- uðu að næstu dyrum, jafnvel þó um langan og ógreiðfæran veg væri að ræða. Hann skeytti engri hindrun, sem á vegi hans varð, en gekk ótrauður styrkum skrefum að þeirri hurð, sem hann hafði séð og knúði þar dyra. Þannig var trú hans, hann horfði aðeins á náðardyr himna- ríkis, Frelsara sinn, Drottin Jesú Krist, með það eitt í huga að bera honum ávöxt, og standa stöðugur f trúnni allt til enda. Svo að loknu dagsverki móttaka lífsins kórónu í hópi endurfæddra vina sinna. Trúsystkini hans senda eftirlif- andi konu hans, Ingibjörgu Narfadóttur, börnum þeirra, tengda- og barnabörnum og öllum þeim, er nú sjá eftir góðum vini, hugheilar samúðarkveðjur með bæn um að Drottinn gefi þeim náð til að mæta honum aftur und- ir náðarvæng Frelsarans. Kristján Kristmundsson. Fædd 26. nóvember 1906. Dáin 8. júlf 1976. Hrefna Böðvarsdóttir var dóttir Böðvars Magnússonar og Ingunn- ar Eyjólfsdóttur er bjuggu á Laugarvatni. Hún ólst upp f stór- um systkinahóp, en systurnar voru 11 er upp komust og 1 bróð- ir. Það mun því oft hafa verið glatt á hjalla á heimilinu; heimil- isfólkið margt eins og þá tfðkaðist og svo þessi stóri og lfflegi barna- hópur. Ég ólst upp hjá afa mfnum og ömmu, Böðvari og Ingunni, og kynntist þvf Hrefnu vel. Hún var glaðsinna og skemmtileg, hafði góðan frásagnarhæfileika, var fróð um menn og málefni og gat því miðlað öðrum af þekkingu sinni. Ég minnist þess sérstak- lega, þegar við stóðum við þvotta- balana, að þá sagði Hrefna mér heilu sögurnar, sem hún hafði þá verið að lesa og mundi þá svo vel söguþráðinn og sagði svo vel frá, að ég þurfti ekki að lesa þær bækur á eftir. Hrefna var góðum gáfum gædd og fjölhæf. Það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir hendur, það lék allt í höndunum á henni. Hún vann skrifstofustörf, var við sfma- og póstafgreiðslu, var einn vetur barnakennari og þar að auki var hún saumakona af Guðs náð. Margar flíkurnar saumaði hún um ævina. Skólaganga Hrefnu var ekki löng. Ung þreytti hún inntöku- próf inn í Kvennaskólann í Reykjavík og settist f 3. bekk og tók gott próf um vorið. Það nám hagnýtti hún sér vel bæði til munns og handa. Hrefna lék á orgel og var mörg á organisti við Miðdalskirkju. Það var því mikið spilað og sungið á Laugarvatnsheimilinu, þar sem systurnar skiptust á um að spila undir sönginn. Minnist ég margra ánægjustunda frá þeim tfma, er ég var þar á meðal þeirra. t júnf 1944 giftist Hrefna mikil- hæfum manni, Stefáni Ingvars- syni, bónda í Laugardalshólum, og bjuggu þau þar, þar til að hann lézt 12. nóvember 1963. Hrefna eignaðist 3 börn, þáu eru: Böðvar Ingi trésmíðameist- ari kvæntur Halldóru Guðmunds- dóttur; Friðgeir Smári bóndi Laugardalshólum, kvæntur Eífn- borgu Guðmundsdóttur; Kristfn húsmæðrakennari, gift Gunnari Kjartanssyni mjólkurfræðingi, Selfossi. Árið 1967 fluttist Hrefna til Reykjavfkur. Var hún þá orðin heilsulítil en þó alltaf hress og kát. Hún var lögð inn á Borgar- spítalann í nóvember 1975, þaðan fór hún til dóttur sinnar og tengdasonar á Selfossi og dvaldi þar, þar til hún varð að leggjast inn á sjúkrahúsið á Selfossi. Hrefna vissi vel að hverju stefndi og var búin að sætta sig við að hverfa héðan úr heimi. Hún gerði sér grein fyrir því, að nú var það aðeins náð Guðs í Jesú Kristi, sem var til bjargar, því að „sælir eru þeir, sem f Drottni deyja“. Jesús Kristur er eina hellubjargið. Hafi Hrefna þökk fyrir allt og allt. Ég bið Guð að blessa alla ástvini hennar og votta þeim samúð mfna. Áslaug Stefánsdóttir. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar- greinar verða að berast blað- inu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagshlaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vél- ritaðar og með góðu línubili. eftir JÓN Þ. ÞÓR 2. umferð í Biel 1 2. umferð millisvæðamóts- ins í Biel var hart barizt. Marg- ar skemmtilegar skákir voru tefldar og ýmsir skákmeistar- anna sýndu skemmtileg tilþrif. Fyrst skulum við líta á skák Liberzons hins ísraelska, sem hér tefldi á næstliðnu hausti og Svisslendingsins Lombard. Lombard velur vafasamt af- brigði af Meranvörn. Eftir all- miklar sviftingar f byrjun kem- ur hann út með peði minna, en mislita biskupa. Smám saman eykur Liberzon yfirburði sína og eftir 53. leik gefst Svisslend- ingurinn upp. Hvítt: Liberzon Svart: A. Lombard Meranvörn l.Rf3 — d5, 2. c4 — c6, 3. d4 — Rf6, 4. Rc3 — e6, 5. Bg5 — dxc4, 6. e4 — b5, 7. e5 — h6, 8. Bh4 — g5, 9. Rxg5 — hxg5, 10. Bxg5 — Rbd7,11. g3 — Bb7, 12. Bg2 — Hg8, 13. Bxf6 — Rxf6, 14. exf6 —D(tf6, 15. a4 — b4, 16. Re4 — Df5, 17. Hcl — c5, 18. Rd6+ — Bxd6, 19. Bxb7 — Hb8, 20. Bc6 — Ke7, 21. Hxc4 — cxd4, 22.Dxd4 — Dt‘5, 23.Dxe5 — Bxe5, 24. b3 — Hgd8, 25. 0—0 — Hbc8, 26. Hel — Bc3, 27. Hle4 — Hdl, 28. Kg2 — Hdl, 29. Bb5 — Hxc4, 30. Bxc4 — Hb2, 31. g4 — Kf6, 32. Kg3 — Hd2, 33. h4 — Hd4, 34. He3 — Bd2, 35. Hf3 — Kg7, 36. a5 — Bcl, 37. a6 — Bd2, 38. g5 — Bcl, 39. Bb5 — Hd8, 40. Kg2 — Hb8, 41. Bc4 — Hd8, 42. Hg3 — Bf4, 43. Hh3 — Hdl, 44. Kf3 — Hd4, 45. Hhl — Bd2, 46. Ke2 — Bf4, 47. Bd3 — Hd5, 48. Hgl — Kf8, 49. g6 — fxg6, 50. Hxg6 — Kf7, 51. Hg4 — Bd6, 52. h5 — Bf8, 53. Bg6 og svartur gaf. Ungversku stórmeistararnir Csom og Portisch áttust við í þessari umferð og varð viður- eign þeirra snörp. Portisch not- færði sér vel slaka byrjunar- taflmennsku andstæðingsins og eftir 26 leiki gafst Csom upp, enda blasti mátið við. Hvítt: I. Csom Svart: L. Portisch Réti byrjun 1. Rf.3 — d5, 2. b3 — Bg4, 3. Bb2 — Rd7, 4. e3 — Rgf6, 5. h3 — Bh5, 6. Be2 — e6, 7. c4 — c6, 8. d3 — Bb4, 9. Rbd2 — Bxf3, 10. gxf3 — e5,11. a3 — Bd6, 12. cxd5 — cxd5, 13. d4 — 0—0, 14. Ha2 — He8, 15.Dal — Hc8, 16. 0—0 — exd4, 17. Bxd4 — Rh5, 18. Bb5 — a6, 19. Bxd7 —Ekd7, 20. Kg2 — He6, 21. Hhl — Hg6, 22. Kfl — Db5 23. Kel — Hg2, 24. Rfl — Ikb3, 25. Hb2 — Dd3, 26. Hxb7 — Hxf2 og hvftur gafst upp. Bent Larsen er I miklu stuði I Biel. Hér kemur lagleg vinn- ingsskák hans úr 2. umferð. Hvftt: B. Larsen Svart: R. Sanguinetti Colle byrjun 1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. Bg5 — Be7, 4. Rbd2 — c5, 5. e3 — b6, 6. c3 — Bb7, 7. Bd3 — cxd4, 8. exd4 — Rd5(?>, 9. Bxe7 — Dxe7, 10. 0—0 — 0—0, 11. Hel — Rf6, 12. a4 — Bxf3, 13.Dxf3 — Rc6, 14. Dh3 — g6, 15.Dh6 — Hfd8, 16. Rf3 — Hab8, 17. Bb5 — Hbc8, 18. Hadl — Df8, 19. Dh4 — Dg7, 20. Bxc6 — dxc6, 21. Re5 — Rd5, 22. Hd3 — Df6, 23. I)h6 — Dg7, 24.Dd2 — a5, 25. Hf3 — Hc7, 26. h4 — a5, 27. dxc5 — Df8, 28. h5 — Dxc5, 29. hxg6 — hxg6, 30. c4 —Db4, 31. Hc3! og svartur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.