Morgunblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.08.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976 33 fclk í fréttum + Það tóku margir sprettinn þegar hin nýja og glæsiiega sundhöll ( Vestmannaeyjum var vfgð fyrir skömmu og þar á meðal voru flestir fulltrúar ( bæjarstjórn Vestmannaeyja. Myndin er tekin ( grunnu laug- inni. Frá vinstri: Páll Zóphón- (asson bæjarstjóri, Jóhannes Kristinsson, Sigurgeir Kristjánsson, Sigurbjörg Axelsdóttir, Einar Haukur Eirfksson, Garðar Sigurðsson og Jóhann Friðfinnsson. Ljós- mynd Mbl. Sigurgeir (Eyjum. + Þessi mynd er einnig tekin á vígsludegi sundhallarinnar [ Eyjum og hér er það fram- kvæmdanefnd hússins sem er á dagskrá með sama svip og gilti ( störfum nefndarinnar, áræði og Iffsgleði. Frá vinstri: Páll Zóphónfasson bæjarstjóri, Stefán Runólfsson forstjóri for- maður framkvæmdanefndar og Magnús Bjarnason, en á mynd- ina vantar einn nefndarmanna, Kristján Eggertsson, sem synti ( kafi og neitaði að koma upp á yfirborðið (myndartöku. + Það er nýjast að frétta af þeim sfðhærða bítli Ringo Starr, að nú hefur hann iosað sig við lokkana og lætur sólina skfna á beran skallann. Þessi mynd var tekin af Ringo f Mónakó nýl^ga og eins og sjá má er ekki stingandi strá á höfði hans. + Greta Garbo, sem löngum hefur búið utan föðurlandsins, Svfþjóðar, ætlar þó að gera sér ferð á fornar slóðir nú f sumar, enda á hún erindi. Hún ætlar að vitja arfs eftir gamlan mál- ara sem kvæntur var hálfsystur föður hennar. Arfurinn hljóðar upp á 120.000 krónur. + Paul McCartney stóð fyrir miklu kökukasti á dögunum. 1 afmælisveizlu sem hann hélt tók hann upp á þvf að ausa kampavfni yfir gestina og fékk að launum rjómatertu framan f sig. Paul svaraði fyrir sig og þegar látunum linnti var varla þurr þráður á gestunum sem voru útataðir rjóma og kampa- vfni. — Stöðvast Framhald af bls. 40 yfir helgi eða þar til unnt væri að byrja að dreifa olíunni um landið. Jón Reynir Magnússon, fram- kvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi, að verk- smiðjan á Raufarhöfn myndi eiga nægar svartoliubirgðir þar til nýja olían kæmi, en þangað væri nú skip á leið með olíu, öðru máli gegndi með verksmiðjuna i Siglu- firði ef mikil bræðsla yrði, því þar væri til mjög lftið af svartolíu eins og á fleiri stöðum á landinu. — Karl prins Framhald af bls. 40 til Vopnafjarðar. Var farið yfir Hellisheiði f fegursta veðri, nema hvað þoka var á háheið- inni. Var prinsinn kominn að Hofsá um kl. 8.30 á mánudags- morgun og fór hann beint út að á, þar sem hann fékk 4 laxa fyrsta klukkutimann eins og fyrr sagði. Laxarnir voru allir kringum 10 pund á þyngd og þeir tveir sem hann fékk siðar um daginn voru áþekkir á þyngd. Þegar Karl prins hefur lokið veiði i Hofsá kemur hann við í Reykjavlk áður en hann heldur heim á leið á ný. Mun hann m.a. hitta að máli forseta íslands, dr. Kristján Eldjárn. — Dauðaveira Framhald af bls. 1 isráðuneytis Pennsylvaníu, kvað of snemmt að segja um hvort hinn dularfulli sjúkdómur í Phiia- delphia stafaði af New Jersey- veirunni sem bandarisk heil- brigðisyfirvöld óttast að kunni að vera sami vírus og olli spænsku veikinni sem varð 20 milljónum manna að bana eftir fyrri heims- styrjöldina. — Níutíu særðir Framhald af bls. 1 un og honum lyki ekki fyrr en öllum særðum hefði verið bjargað úr búðunum. Hann kvaðst hafa fengið þær upplýsingar í Tel Al- Zaatar að um 1.000 manns i búð- unum væri illa særðir. Alls hafast þar við 30.000 manns. Hann sagði að alvarlegasta vandamál fólksins í flóttamanna- búðunum væri skortur á vatni. Að sögn Hoefligers verða 16 vöru- flutningabílar notaðir til að flytja fólk úr búðunum á morgun miðað við niu í dag og tveir sjúkrabílar hafa einnig verið teknir i notkun. Hoefliger sagði að meðal þeirra sem bjargað var í dag hefði verið sænsk hjúkrunarkona, Eva Stahl. Eiginmaður hennar var palestinskur skæruliðaforingu er dó fyrir tæpum tveimur mánuð- um. Taka varð af henni annan handlegginn og hún missti fóstur f umsátrinu. Sáttasemjari Arababandalags- ins, dr. Al-Kholi, sagði að flestir þeirra sem hefðu verið fluttir úr búðunum hefðu verið konur og börn. Hoefliger gaf í skyn að flutt hefði verið burt fólk sem hefði batavon. Hann sagði að i búðun- um dæi fólk á hverjum degi og nauðsynlegt væri að halda brott- flutningunum áfram þar til öllum særðum hefði verið bjargað. Kunnugir segja að slíkt geti tek- ið langan tima þar sem hægri- menn sögðu að þeir mundu hefja aftur árásir á búðirnar um leið og starfsmenn Rauða krossins væru farnir. Samkvæmt samningum við deiluaðila getur Rauði kross- inn aðeins flutt burtu sært fólk. Dr. Kholi sagði að allsherjar- vopnahlé sem ráðgert væri að hæfist á morgun kæmi ekki til framkvæmda þar sem enn væri eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum. — Smástirni og loftsteinar Framhald af bls. 3 gaf út ritið Stjörnufræði — Rimfræði í ritasafninu Alfræði Menningarsjóðs, 1972. Þetta er hin ágætasta uppsláttarbók, sem skýrir merkingu heita í stjörnufræði og íslenzkri rim- fræði og veitir feikimiklar og auðskildar upplýsingar, bæði i tölum og orðum. Mæli ég mjög með því að menn fái sér þessa bók. — Bretar í Uganda Framhald af bls. 1 í Soroti í Austur-Uganda á mið- vikudaginn og ákærður fyrir njósnir. Skömmu siðar fór Tully til lögreglustöðvarinnar i bænum til að spyrjast fyrir um Clegg en var sjálfur handtekinn. Uganda-stjórn neitaði því í dag að hún vissi nokkuó um Tully og Clegg og sagði að fréttir um að þeir hefðu verið handteknir væru rætinn áróður. — Færa út Framhald af bls. 1 legt að færa út fiskveiðilögsög- una við Færeyjar til að vernda fiskstofna, bæta útgerðinni það sem hún missti á öðrum mið- um, tryggja fiskimönnum veiðimöguleika við Færeyjar og treysta stöðu Færeyinga f viðræðum við önnur lönd um fiskveiðar. 1 samtali við Mbl. sagði Atli Dam að frumvarpið hefði kom- ið til fyrstu umræðu f gærmorg- un og önnur umræða færi fram á föstudag. Hann kvaðst gera ráð fyrir þvf að frumvarpið yrði samþykkt einróma. Sfðan hæf- ust viðræður við dönsku stjórn- ina, en viðræður hefðu farið fram við hana f marga mánuði og danska stjórnin gerði sér grein fyrir erfiðleikum Færey- inga. Þess vegna kvaðst hann ekki gera ráð fyrir erfiðleikum f viðræðunum við Dani, enda mundu þeir taka þátt f sameig- inlegri útfærslu EBE- landanna. Atli Dam lögmaður sagði að bráðabirgðaviðræður hefðu þegar farið fram við Kanada- menn, Norðmenn og Efnahags- bandalagið, en samningur hefði verið gerður við lslend- inga. Hann kvaðst gera ráð fyr- ir að rætt yrði að nýju við Is- lendinga eftir fyrirhugaða út- færslu færeysku landhelginnar á þeim grundvelli að tslending- ar fengju að veiða sfld við Fær- eyjar sfðar. Dam sagði að um þetta væri ekkert meira hægt að segja á þessu stigi en hins vegar væru Færeyingar að reikna út um þessar mundir hvað aðrar þjóð- ir veiddu mikið við Færeyjar og hvað Færeyingar veiddu mikið við önnur lönd og þá um leið verðmæti þessa afla. 1 öðru lagi væru Færeyingar að vinna að undirbúningi reglugerðar um eigin veiðar innan 200 mflna markanna við Færeyjar og hve mikið þeir gætu veitt sjálfir af hverri fsiktegund fyr- ir sig. Hann sagði að Færeyingar hefðu við svipuð vandamál að glfma gagnvart Efnahags- bandalaginu og tslendingar. Færeyingar þyrftu að ná nýj- um samningum vað EBE en hins vegar yrði gangur þess máls engan veginn ljós fyrr en ( haust. Hann kvað Ijóst að endur- skipuleggja yrði færeyska fiskiskipaflotann og sagði að þótt hér væri um flókið vanda- mál að ræða teldi hann að unnt mundi reynast að endurskipu- leggja stóran hluta flotans. Atli Dam lögmaður sagði að lokum að fiskveiðar við Færeyjar hefðu hlutfallslega dregizt mikið saman miðað við sókn og þess vegna yrðu Færeyingar að færa út landhelgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.