Morgunblaðið - 12.08.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. ÁGUST 1976
13
John Stonehouse. Hann skipulagði drukknun stna vel, en komst þó ekki undan.
Hann dvaldist í fjóra eða fimm
daga á Sheraton Waikiki hótel-
inu í Honolulu, en hélt svo
áfram til Ástraliu. Þangað kom
hann svo sem Joseph Arthur
Markham 27 nóvember, og
settist að í Melbourne.
SMÁ-MISTÖK
Fram til þessa hafði allt
gengið samkvæmt áætlun, en
nú fór að síga á ógæfuhliðina.
Stonehouse lagði fljótlega leið
sína til New South Wales bahk-
ans, þar sem hann átti álitlega
upphæð í áströlskum dollurum
á reikningi á nafni Markhams.
Tók hann út sem svarar fimm
milljónum króna, og gekk með
upphæðina í New Zealand
bankann, sem er þar skammt
frá. Þar lagði hann peningana
inn' á nafn Mildoons. Svo illa
vildi til að bankagjaldkerinn í
síðari bankanum sá til ferða
Stonehouse, og þótti grunsam-
legur. Við athugun komst hann
að því að Markham í New
South Wales bankanum var
Mildoon i New Zealand bank-
anum Þar sem nokkuð hafði
verið um bankasvikamál í Mel-
bourne um þetta leyti, þótti
gjaldkeranum rétt að kanna
málið betur Var lögreglunni
gert viðvart, og eftir það var
fylgzt náið með ferðum Stone-
house, auk þess sem lögreglan
gerði bæði Interpool og Scot-
land Yard viðvart. Á aðfanga-
dag jóla 1974 var Stonehouse
svo handtekinn. í fangelsinu
heimsóttu hann bæði frú Bar-
bara Stonehouse og Sheila
Buckley, en það var ekki fyrr
en I júli í fyrra að Stonehouse
og Sheila voru send flugleiðis
til Englands þar sem mál þeirra
hefur verið í rannsókn þar til á
föstudag í fyrri viku að dómarn-
ir voru upp kvaddir.
(Heimild The Daily
Telegraph)
ÞEGAR Olympíuleikarnir voru
haldnir fyrir 40 árum í Berlín,
var það ætlun Adolfs Hitlers að
sýna umheiminum yfirburði
Aria á öllum sYiðum. Hann var
því litt hrifinn þegar bandariski
blökkumaðurinn Jesse Owens
hirti fern gullverðlaun, og varð
stjarna leikanna.
Þessa atburðar var minnzt í
Hvíta húsinu i Washington fyrir
skömmu þegar Gerald Ford for-
seti bauð til sín bandarískum
verðlaunahöfum frá leikunum i
Montreal. Áður en sú veizla
hófst tók forsetinn á móti Jesse
Owens og konu hans, og
sæmdi Jesse Frelsisorðunni
bandarisku Var mynd þessi
tekin við það tækifæri.
Námskeið í mannasið-
um á vegum Flugleiða
blönduð sjó, auk þess að vera
mjög átumikil og leystist fljótt
upp af völdum átunnar og sjálfs-
meltingar á leiðinni í land og I
þróm verksmiðjanna. Sumirfarm-
arnir, sem fyrst bárust, voru nán-
ast einn fljótandi grautur. Þegar
svo er komið, verður soðið svo
mikið að vöxtum, að þrátt fyrir að
soðkjarnatækin anni að vinna
kjarnann úr soðinu, er það tak-
mörkunum háð hversu mikhi
magni af kjarna er hægt að
blanda í pressukökuna. Af þess-
um ástæðum fór nokkuð af soði til
spillis fyrst í stað.
Til þess að bæta úr þessum erf-
iðleikum var óskað eftir því við
skipstjórnarmenn að þeir dældu
loðnunni hægar úr nótinni um
borð í skip sin, en við það kemur
loðnan heillegri um borð og síu-
búnaður skipanna sfar sjóinn bet-
ur úr aflanum. Jafnframt var
samkvæmt ráðleggingu Rann-
sóknastofnunar fiskiðnaðarins
bætt formalini i loðnuna um leið
og hún rennur I lestar skipanna.
Þessar aðgerðir hafa leitt til þess,'
að loðnan kemur nú yfirleitt heiL
legri að landi, þrátt fyrir langan
flutning.
Jafnframt þessum aðgerðum
var loðnumóttöku hagað þannig,
að móttakan var takmörkuð við
2ja sólarhringa vinnslu verk-
smiðjunnar, í stað 7—8 sólar-
hringa vinnslu áður og má segja
að vinnsla i verksmiðjunni hafi
gengið eftir atvikum vel síðan.
Nokkur sjávarmengun átti sér
stað í fyrstu, einkum frá veiði-
skipum, sem lensuðu vökva frá
loðnunni áður en henni var land-
að. í vetrarloðnu er uppistaðan í
þeim vökva sjór, sem ekki hefur
verið mikill mengunarvaldur, en í
sumarloðnunni er þessi vökvi
blandaður átu, uppleystum efn-
um úr loðnunni og lýsi. Á þessu
áttuðu menn sig ekki í fyrstu, en
eftir að þetta varð ljóst, lensuðu
skipin á leið til lands og úti í
firðinum. Um lýsismengun í sjó
frá verksmiðjunni er vart að
ræóa, þar sem allt lýsi hefur verið
skilið úr því soði, sem kann að
hafa farið niður.
Um miðjan júní s.l., þegar verð
á sumarloðnu var fyrst ákveðið,
gerði Verðlagsráð að skilyrði við
verðlagningu, að loðnunni yrði
ekki dælt I land eins og tíðkazt
hefur við loðnulöndun síðustu 4
ár. Þess vegna varð timinn nokk-
uð naumur til að setja annan bún-
að upp. Þær tafir, sem orð er á
gerandi við löndunina, má rekja
til skipanna sjálfra, eins og þegar
lestarborð sem laus eru í farmin-
um fara í löndunartækin og stór-
skemma þau, svo og vegna ann-
arra óhappa, sem skýrt hefur ver-
ið frá i blöðum.
Síldarverksmiðjur ríkisins
starfrækja verksmiðjur á 6 stöð-
um álandinu, þ.e. Skagaströnd,
Siglufirði, Húsavik, Raufarhöfn,
Seyðisfirði og Reyðarfirði. Fram-
kvæmdastjóri fyrir verksmiðjurn-
ar er einn og situr hann í Reykja-
vík, en þaðan eru greiðastar sam-
göngur á alla þessa staði.
Sala afurða verksmiðjanna, svo
og innkaup til þeirra og fjármála-
fyrirgreiðsla, fer fram á skrif-
stofu S.R. i Reykjavík. Er þvi eðli-
legt að framkvæmdastjóri sitji í
Reykjavík.
Allar verksmiðjur, sem tekið
hafa á móti sumarloðnu nú i ár,
hafa átt í örðugleikum með
vinnsluna og hafa ekki náð hærri
mjölnýtingu en 12—13%, sem er
lægra en fræðilega ætti að vera og
þurrefnisinnihald loðnunnar gef-
ur tilefni til. Stafar þessi lélega
nýting mest af þvi að verksmiðj-
urnar geta ekki nýtt allt soðið
vegna þess að pressukakan er það
lin og lítil, að hún þolir ekki alla
íblöndun soðkjarnans.
Útilokað er að verksmiðjurnar
geti af eigin fé ráðizt í stórfram-
kvæmdir eða fjárfrekar endur-
bætur. Verð áloðnu og öðrum
bræðslufiski er og hefur verið það
hátt, að ekkert hefur verið eftir
til að svo mætti verða.
Fjármagni rikisins og lánsfé
hefur verið beint til annarra og
stundum umdeildra fram-
kvæmda, svo ekki hef.ur verió fyr-
irgreiðslu að vænta úr þeirri átt.
Jón R. Magnússon
framkvæmdastjóri S.R.
FLUGLEIÐIR h.f. hafa staðið fyr-
ir námskeiðum fyrir starfsfólk
sitt sem hafa þann tilgang að
veita fólki betri skilning á eigin
viðbrögðum og tilsvörum í dag-
legu starfi og auðvelda þvl þannig
samskiptin við farþega, starfs-
félaga og almenning, sem það
hefur samskipti við f starfi og
einkalífi.
Þetta kemur fram I Flugfrétt-
um, sem gefið er út af Flugleið-
um. Kennslan er byggð á rann-
sóknum tveggja bandariskra
lækna og sálfræðinga i sál-
greiningu og hefur verið gefið
nafnið „TACT“ (Transactional
Analysis in Customer Treatment,
sem þýðir nánast gagnverkandi
könnun á samksiptum við far-
þega.). Alls hafa veið haldin niu
námskeið, þar af fimm í Reykja-
vík fyrir starfsfólk á Reykjavikur-
og Keflavíkurflugvelli.
í Flugfréttum er sagt frá starf-
semi Flugleiða undanfarna
mánuði. Þar segir að innanlands-
flug hafi gengið vel það sem af er
sumri. Eitt stærsta vandamálið
varðandi flug innanlands er, að
þeir, sem bóka far með flugvélum
en hætta siðan við ferðina,
gleyma að afbóka sætið. Fyrir
bragðið fljúga vélarnar stundum
með auð sæti, sem annars hefðu
verið seld öðrum og er þetta mjög
bagalegt að sögn Einars Helga-
sonar framkvæmdastjóra innan-
landsflugsins.
Af öðrum fréttum frá Flugleið-
um má nefna að nýlega hófst
áætlunarflug milli Keflavíkur og
DUsseldorf, en nú er flogið viku-
lega milli þessara staða. Þá er
einnig sagt frá Gabriel-
bókunarkerfinu svokallaða. Er
það farskrártölva, sem tengir nú
skrifstofur íslenzku flug-
félaganna I sjö borgum, þ.e. INew
York, Reykjavik Kaupmanna-
höfn, London, Frankfurt, París og
Luxemburg. Vegna breytinga á
flugstöðinni i Keflavík hefur enn
ekki verið unnt að tengja
bókunarkerfið þar syðra, en að
sögn íslaugar Aðalsteinsdóttur,
deildarstjóra í farskrárdeild,
Framhald á bls. 16
Efling Hólastaðar
Ég var að lesa grein I Morg-
unblaðinu um eflingu Hólastað-
ar eftir mætan mann, sr. Bjart-
mar Kristjánsson.'Hann víkur
þar að því opna bréfi og ábend-
ingum, er við nokkir gamlir
Hólamenn sendum frá okkur.
Ég er ekki i vafa um að sr.
Bjartmar er unnandi Hólastað-
ar eins og við, en ég sé í grein
hans að hann vill að bændaskól-
inn hverfi þaðan, en þar greinir
á milli skoðana. Þegar við Hóla-
menn hittumst I Reykjavík á
síðastliðnu vori og töluðum um
framtið staðarins höfðum við
aðallega i huga 100 ára afmæli
skólans og hver væri verðug
afmælisgjöf á þeim tímamót-
um. Við töldum ekki rétt á því
stigi málá að benda á sérstök
atriði í því tilefni sérstaklega,
þar sem ekki er ennþá kominn
skipulagsuppdráttur af staðn-
um, sem er þó væntanlegur að
sögn kunnugra. Okkar hugur
var einlægur og tillögur aðeins
gerðar til að koma framkvæmd-
um á stað með nægum fyrir-
vara.
Mér finnst að á milli lina i
grein sr. Bjartmars megi lesa
að við höfum sniðgengið að
minnast á félagsskap kirkjunn-
ar manna sem vinna að kirkju-
legum málum og uppbyggingu
þar á staðnum. Þó að samvinna
allra unnenda Hólastaðar sé
sjálfsögð þá töldum við að
vinna að undirbúningi 100 ára
afmælis skólans og framtíð
bændaskólans og þvi bæri okk-
ur síður að fara inn á starfsvett-
vang kirkjunnar manna að
þessu sinni.
Það sýnir sig nú hve mikinn
áhuga sumir prestar hafa á Hól-
um þar sem sr. Bjartmar vill
skólann í hafsauga út. Þar er-
um við Hólamenn ekki sam-
mála, við viljum efla Hólastað
bæði kirkjulega og bændaskól-
ann og taka í hendur allra er
viija vinna að uppbyggingu og
heill staðarins. Vitanlega get-
um við orðið ósammála og
meiningarmunur orðið um ým-
islegt i þessum málum sem öðr-
um, en býsna gott væri að fá
aðstöðu til að ræða persónulega
við sr. Bjartmar. Oftast nær er
slikt til heilla góðum málefn-
um.
Aðeins vil ég segja í lok þess-
ara orða að siðan ég var á
Hólum sem nemi fyrir 55 árum
þykirmér vænt um staðinn og
hugsa heim að Hólum vegna
skólans, staðarins og kirkjunn-
ar.
Og svo mun áreiðanlega vera
um fjöldann af Hólamönnum,
sem eru orðnir býsna margir.
Við skulum ekki láta misklið
skemma fyrir uppbvggingar-
starfi staðarins. Björn I Bæ.