Morgunblaðið - 12.08.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 12. AGUST 1976
27
ÚRSLIT BIKARKEPPNINNAR
Ingi Björn Albertsson felldur innan vítateigs Fram og vítaspyrna dæmd. Úr vítinu skoraði Ingi Björn
sigurmark Vals. Ljósim Mbl. Friðþjófur.
TVÖ MÖRKINGA BJÖRNS
Strax á 5. mlnútu fram-
lengingarinnar skoruðu Vals-
menn og reyndist það mark vera
sigurmark leiksins. Kom markið
með þeim hætti að Hermann
Gunnarsson átti góða sendingu
fram til Inga Bjarnar sem eins og
við fyrra mark Vals var fljótari en
varnarmenn Fram. Er inn I víta-
teiginn kom náði Simon
Kristjáhsson þó að stöðva Inga
með því að stjaka við honum og
dæmdi Eysteinn Guðmundsson,
allsæmilegur dómari þessa leiks,
umsvifalaust réttilega vfta-
spyrnu. Ingi Björn skoraði sjálfur
úr vítaspyrnunni af miklu öryggi.
Eftir þessi úrslit eiga Valsmenn
enn möguleika á sigri bæði I deild
og bikar. Væri það vissulega kær-
kominn sigur fyrir þá, én Fram-
arar hafa tæplega sagt sitt síðasta
orð í deildinni. Bæði lið stilltu
upp sínum sterkustu leikmönnum
f gærkvöldi nema hvað Hermann
Gunnarsson kom ekki inn á í Vals-
liðið fyrr en í byrjun fram-
lengingarinnar. Þó Hermann
væri ekki lengi inn á þá gerði
hann margt laglegt og varð mun
rneiri ógnun í liði Fram eftir að
*
hann bættist í hópinn. Af Vals-
mönnum átti Atli Eðvaldsson
einna beztan leik, auk þess sem
þáttur Inga Björns er að sjálf-
sögðu ómetanlegur. Af Frömur-
um stóð Ásgeir Elíasson sig bezt,
en einnig gerði Kristinn Jörunds-
son góða hluti í leiknum. Tveir
Valsmenn fengu gult spjald f
leiknum, Magnús Bergs og Vil-
hjálmur Kjartansson.
— áij
Dregið í dag
t DAG klukkan 6 verður dregið
um það hvaða lið leika saman í
undanúrslitum bikarkeppni KSt.
Valur, tA og FH hafa tryggt sér
áframhald I keppninni en fjórða
liðið verður annaðhvort KR eða
Breiðablik. Þessi tvö lið verða að
leika að nýju og er ekki heiglum
hent að koma þeim leik á þvf
segja má að deildarleikir fari
fram dag hvern á næstunni og um
aðra helgi verður svo landsleikur
við Luxemborg.
KOMU VÖLSURUM ÁFRAM
INGI Björn Albertsson er iðinn
við kolann þessa dagana og skorar
orðið f hverjum leik. t gærkvöldi
skoraði hann bæði mörk Valsara f
bikarleiknum við Fram og það
dugði Valsliðinu til að komast
áfram f keppninni, þvf Frömur-
fyrst I sfðari hálfleik, en sfóan fór
að þyngjast róðurinn fyrir Þrótt-
ara og átti FH nokkur sæmileg
tækifæri, sem þeim tókst ekki að
nýta.
Á 66. min. tókst FH loks að
skora. Magnús Brynjólfsson bak-
vörður óð upp vinstri kantinn og
gaf vel fyrir markið, þar sem
Helgi Ragnarsson var fyrir og
skallaði hann knöttinn í netið.
Var þetta ódýrt mark, þar sem
bæði markvörður og varnarmenn
áttu auðveldlega að geta bjargað.
Tveim mín. síðar bætti Helgi
við öðru marki og var það með
sama heppnisstimplinum og hið
fyrra. Viðar Halldórsson tók
aukaspyrnu skammt fyrir utan
vítateig og skaut jarðarbolta að
markinu, beint á markvörðinn, en
hann hélt ekki knettinum og náði
Helgi að pota honum i markið.
Þannig lauk þessum leik með
sigri FH, sem að þessu sinni áttu
mjög slakan leik. Það var helst
Viðar Halldórsson, sem eitthvað
sýndi.
Neskaupstaðar Þróttur kom
noþkuð á óvart með hvað þeir
stóðu f 1. deildar liði FH og sýndi
liðið oft góð tilþrif, sérstaklega f
fyrri hálfleik. Miðvörðurinn,
Magnús Magnússon, var bestur i
liði þeirra og sömuleiðis áttu þeir
Sigurður Friðjónsson og Árni
Guðjónsson góðan leik, en sá síð-
arnefndi var rekinn af leikvelli
skömmu fyrir leikslok, en hann
hafði áður fengið gula spjaldið.
Ólafur Danivalsson og Ásgeir
Sveinbjörnsson úr FH fengu
einnig að sjá gula spjaldið hjá Óla
Ólsen dómara, sem dæmdi mjög
vel.
—Hdan
um tókst aðeins að skora einu
sinni og var þar að verki Krist-
innn Jörundsson. Framlengingu
þurfti til að fá úrslit f leik þess-
ara liða, sem nú berjast á toppi 1.
deildarinnar. Hvort leikurinn I
gærkvöldi var forsmekkurinn að
þvf sem á eftir að gerast f tslands-
mótinu veit enginn, en óneitan-
lega þá lék Valsliðið betur f gær-
kvöldi, þó svo að hvorugt liðið
næði að sýna knattspyrnu eins og
þau bezt geta.
Fyrri hálfleikurinn var þóf-
kenndur en þó jafn og var aðeins
skorað eitt mark fyrstu 45 mínút-
urnar. Það gerði Ingi Björn Al-
bertsson á 22. mfnútu eftir að
Guðmundur Þorbjörnsson hafði
gefið mjög góða sendingu á Inga
þar sem hann var á auðum sjó á
miðjum vallarhelmingi Framara.
Stakk Ingi varnarmenn Fram af
með hinum mikla hraða sínum og
þó svo að Árni Stefánsson mark-
vörður Fram næði að verja skot
Inga Björns þá var það skamm-
góður vermir. Ingi Björn fékk
knöttinn aftur og ekkert var auð-
veldara fyrir hann en að renna
knettinum i netið.
Fleiri mörk voru ekki skoruð f
fyrri hálfleiknum, en í byrjun
seinni hálfleiksins áttu bæði liðin
færi sem ekki nýttust. Bezta
markskotið átti Trausti Haralds-
son af um 20 metra færi, en
Sigurður Dagsson sveif á eftir
knettinum og varði glæsilega
uppi alveg úti við stöng. Sigurði
tókst þó ekki að hindra mark á 32.
mínútu hálfleiksins. Kristinn
Jörundsson skaut þá að marki
Vals f gegnum þvögu og smaug
knötturinn á milli fóta leikmanna
alla leið í netið. Náði enginn að
koma við knöttinn fyrr en Ágúst
Guðmundsson jók aðeins ferð
hans þegar boltinn var kominn
yfir marklfnuna.
Færðist nú aukin spenna f
leikinn og skiptust liðin á um að
sækja, en Valsmenn voru öllu að-
gangsharðari. Hvorugu liðinu
tókst þó að skora og þurfti þvf að
framlengja leikinn um 2x15
minútur.
og línuverðir voru ekki vissir á
því hvort framlengja ætti eða
ekki. En eftir að hringt hafði
verið á Laugardalsvöllinn og
menn þar beðnir að fletta upp í
reglugerðinni, var byrjað að nvju.
KR-ingar sóttu sem fyrr af meiri
krafti og skoruðu á 13. mínútu
framlengingarinnar. Hálfdán
Örlygsson lék upp vinstri
kantinn, gaf síðan knöttinn vel
fyrir markið þar sem Jóhann
Torfason kom á fullri ferð og
skoraði örugglega af markteig. 1
seinni hluta framlengingarinnar
bjargaði Breiðablik á línu, eftir
að Olafur Ólafsson hafði skallað
að marki. Virtust KR-ingar hafa
öll tök á leiknum þegar Breiða-
blik fékk innkast 8 mínútum fyrir
leikslok. Ilaraldur Erlendsson tók
innkastið og henti langt inn í teig-
inn, boltinn fór í jörðina og
hoppaði upp í loftið og Haukur
Ottesen stökk hærra en aðrir og
skallaði boltann yfir' Magnús
markvörð sem var í úthlaupi og í
markið datt boltinn. Það þarf því
aukaleik til að skera úr uni hvort
liðiö heldur áfram i keppninni.
Beztu menn hjá Breiðablik voru
Ólafur Hákonarson. Einar Þór-
hallsson og Haratdur Erlendsson
en hjá KR voru beztir þeir Ólafur
Ólafsson, Ottó Guðmundsson,
Halldór Björnsson og Hálfdán
Örlygsson.
Magnús Pétursson dömari
sýndi Halldón Björnssyni gula
spjaldið.
—SS
Ottó Guðmundsson úr KR og Hinrik Þórhallsson, Breiðabliki, kljást
um boltann.
Jafnt í Kópavogi og Breiðablik
og KR þurfa að leika annan leik
KR-INGAR voru óheppnir að tryggja sér ekki sæti í 4-liða úrslitum
bikarkeppninnar þegar þeir mættu Breiðabliki f Kópavogi í gærkviildi.
KR-ingar voru sterkari allan leikinn og þeir fengu miklu fleiri
marktækifæri en andstæðingarnir. En þeim gekk illa að skora og
framlengja varð þar sem staðan var 0:0 eftir venjulegan leiktíma. í
framlengingunni skoraði Jóhann Torfason fyrir KR og menn héldu að
liðið a-llaði að fara með sigur af hólmi. En svo fór þó ekki. Haukur
Ottesen skoraði sjálfsmark í seinni hluta framlengingarinnar. Leikn-
um lauk því 1:1 og liðin verða að mætast að nýju í aukaleik í
Reykjavík.
Breiðabliksmenn léku undan
nokkrum vindi í fyrri hálfleik en
þrátt fyrir það voru KR-ingarnir
öllu sterkari úti á vellinum. Mark-
tækifæri voru fá í hálfleiknum og
það bezta félll í skaut Ólafi Frið-
rikssyni á 32. mínútu þegar hann
skaut í stöng eftir mistök Magnús-
ar markvarðar.
í seinni hálfleik léku KR-ingar
undan vindinum og sóttu mun
meira en Breiðabliksmennirnir.
Höfðu þeir algjör tök á miöjunni
og mörkin hefðu vafalaust orðið
mörg ef vörn Breiðabliks heföi
ekki verið þétt fyrir. Bezta tæki-
færi hálfleiksins fékk Haukur
Ottesen á 10. mínútu en Bjarni
Bjarnason bakvörður varði ágæt
skot Hauks á línu.
Nokkur bið var á því að fram-
lengingin hæfist, þar sem dómari