Morgunblaðið - 12.08.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. ÁGUST 1976
15
Ólga í bæjum
blökkumanna
En allt með kyrrum kjörum í Soweto
Jóhannesarborg, S-Afríku, 11. ágúst — AP,
Reuter.
Mikið hefur verið um óeirðir I
mörgum byggðariögum blökku-
manna I nánd við Jóhannesar-
borg, Pretoria og Durban f Suður-
Afrfku f dag, en allt var hins
vegar með kyrrum kjörum f
Soweto, þar sem óeirðaaldan
hófst fyrir tæpum tveimur mán-
Verður 1979
alþjóðlegt
barnaár?
EFNAHAGS- og félagsmálaráð
Sameinuðu þjóðanna mælti ný-
lega með þvf, að árið 1979 yrði
alþjóðlegt barnaár, og er fyrir-
hugað, að Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna skipuleggi það, sem
fram fer á barnaárinu.
Undanfarin ár hafa Sameinuðu
þjóðirnar helgað sérstökum mál-
efnum og hafa aðalatburðir í til-
efni þeirra verið alþjóðlegar ráð-
stefnur á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Á barnaári er ekki ætlunin
að halda slíka ráðstefnu, heldur
verður fyrst og fremst leitazt við
að upplýsa almenning um þarfir
barna og efla sjóði og stofnanir
sem gangast fyrir samræmdum og
víðtækum aðgerðum í því sk.vni
að bæta hag barna.
Þegar hafa ýmis ríki heitið fjár-
hagslegum stuðningi við fram-
kvæmdir f tilefni barnaársins.
Árið 1979 eru tuttugu ár síðan
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu
yfirlýsingu um réttindi barna, og
hefur tillaga þess efnis að þetta
verði alþjóðlegt barnaár legið fyr-
ir Efnahags- og félagsmálaráði SÞ
síðan 1974.
Formaður nefndar, sem 32 fé-
lagasamtök frá ýmsum löndum
eiga sæti í, er Canon Joseph
Moerman, en nefndin mun hafa
forgöngu um undirbúning vegna
alþjóðlega barnaársins.
' ■■■ 1
, ERLENT,
uðum. Þá kom til nokkurra
árekstra I úthverfum Höfðaborg-
ar, Langa og Guguletu, þegar
hundruð barna gengu út úr
kennslustundum f skólunum og
fóru hópgöngu um göturnar.
I Magiso fyrir vestan Jóhannes-
arborg handtók lögreglan 76 unga
blökkumenn eftir að þeir höfðu
tekið þátt í óeirðum og meðal ann-
ars ráðizt með grjótkasti á skóla
og aðrar opinberar byggingar. I
Kwa Thema austan Jóhannesar-
borgar fóru hundruð unglinga
með látum um götur bæjarins og
var lögreglan fengin til að tvfstra
hópnum. Og I Sebokeng fyrir
sunnan Jóhannesarborg tóku um
300 blökkumenn þátt í óeirðum og
reyndu meðal annars að bera eld
að verzlunum. Beitti lögreglan
táragasi og skaut aðvörunarskot-
um, og tókst að dreifa mannfjöld-
anum.
I Mamelodi-hverfinu I Pretoria
grýttu blökkumenn bifreiðir og
byggingar, og reyndu að kveikja í
gagnfræðaskóla hverfisins, en I
gær hafði blökkumaður frá
Mamelodi komið sér fyrir í mið-
borg Pretoria, ausið sig benzini og
brennt sig til bana.
Alvarlegustu átökin urðu í
blökkumannabæjunum I nánd við
Lichtenburg, um 200 km. fyrir
vestan Jóhannesarborg, þar sem
mikið var um íkveikjur í nótt og I
dag. Voru unnin mikil spjöll á
skrifstofum hverfisstjórnarinnar,
dómshúsi, tveimur skólum og
fjölda bifreiða.
r
Oþekktur
sjúkdómur
í Finnlandi
Helsinki, 11. ágúst — NTB
RtlMLEGA 50 starfsmenn
lyfjagerðar I Tampere f Finn-
landi og tfu aðrir borgarbúar
hafa sýkzt af áður óþekktum
sjúkdómi, og hafa yfirvöld lát-
ið loka lyf jagerðinni.
Vinna hófst á ný f lyf jagerð-
inni fyrir viku að loknum
sumarleyfum starfsfólksins,
og var þá strax mikið um f jar-
vistir vegna veikinda. Allir
höfðu sjúklingarnir sömu
sjúkdómseinkennin, háan
hita, höfuðverk og niðurgang.
t fyrstu var talið að hér væri
um matareitrun að ræða, en
talsmaður eigenda lyfjagerð-
arinnar telur að hugsanlega sé
þetta veirusjúkdómur, sem
upp hafi komið þegar skólp
flæddi inn á kjallarahæð lyfja-
gerðarinnar f fyrramánuði.
Sviss greiðir
af eiturskýinu
Basel, Sviss, 11. ágúst —AP
SVISSNESKA lyfjafyrirtækið F.
Hoffmann la Roche ætlar að
greiða allt það tjón, sem hlýzt
vegna eiturgassins f ftalska bæn-
um Seveso, að þvf er Adolf Jann
aðalforstjóri svíssneska fyrir-
tækisins skýrði frá f dag.
Sprenging varð I efnaverk-
smiðju Icmesa, dótturfyrirtækis
Roche, I fyrra mánuði og breidd-
ist eiturský yfir bæinn Seveso þar
sem verksmiðjan hefur starfað
um nokkurra ára skeið. Eiturefn-
ið nefnist dioxin, og hefur það
valdið miklu tjóni. Meðal annars
hafa 30 manns þurft sjúkrahús-
vist, hundruð fugla og dýra hafa
drepizt, og rúmlega 800 manns
hefur þurft að flytja burt frá
svæðinu f nánd við verksmiðjuna.
„Við vitum ekki enn hversu
mikið tjónið er,“ sagði Jann við
fréttamenn I Basel í dag, ,,en við
ráðum yfir nægu fjármagni til að
bæta allt tjón.“
Talsmenn Roche félagsins sviss-
neska segja að greiddar verði
skaðabætur til slasaðra, tjón á
húsum og kostnaður við eyðingu
eitursins, tap Icmesa og annarra
fyrirtækja vegna rekstrarstöðv-
unar og launatap starfsmanna.
Jann kvartaði nokkuð yfir sam-
skiptum við ítölsk yfirvöld. Hann
sagði að Roche félagið hefði boðið
fjárframlag að upphæð 22 millj-
'Frá óeirðunum í Belfast á mánudag. Kveikt hefur verið í vörubifreiðum, sem liðsmenn IRA höfðu stolið.
íkveikjur og spreng-
ingar í Belfast
Skorað á brezku stjórnina að sýna meiri hörku
Belfust. N-Irlandi. 11. ágúst
— AP. Reuter
SKÆRULIÐAR, sennilega
úr Irska lýðveldishernum,
IRA, sprengdu snemma í
morgun í loft upp miðstöð
strætisvagna í Belfast, og í
hverfi kaþólskra í vestur-
borginni tókst þeim að
brenna til grunna korn-
myllu, sem reynt hafði ver-
ið að kveikja í fyrir þrem-
ur dögum. Telur lögreglan
að um 100 manns hafi tek-
ið þátt í þessum árásum, og
voru sjö þeirra handtekn-
ir.
í Shore Road-hverfinu í Belfast
reyndu vopnaðir menn að stela
vörubifreiðum, og gerði lögreglan
skothríð að þeim. Segir lögreglan
að tveir ræningjanna hafi særzt.
Einnig kom til átaka í Ardoyne-
hverfinu, og áttust þar við skæru-
liðar og brezkir hermenn. Vörp-
uðu skæruliðar eldsprengjum að
bifreiðum hermannanna og
kveiktu í aðalsamkomustað
hverfisins.
Marie Drumm, varaforseti Sinn
Fein, ieiðir mótmælagöngu í Bel-
fast s.l. sunnudag. llún var hand-
tekin daginn eftir.
Mikil ólga hefur ríkt í Belfast
frá því á sunnudag, en þá efndu
Sinn Fein-samtökin, stjórnmála-
Vopnaðir fararstjórar
handteknir 1 Svíþjóð
Norrköping, Svtþjóö, 11. ágúst — AP
ÞRÍR af fararstjórum fsraelska
knattspvrnuliðsins Hapoel
tjónið
á Italíu
ónir króna, en yfirvöldin afþakk-
að. Hér hafi þó ekki verið um
neina endanlega bótagreiðslu að
ræða, heldur aðeins aðstoð.
Italska stjórnin hefur farið
fram á fjárveitingu til aðstoðar
fbúum Seveso, sem nemur tæpum
níu milljörðum króna.
I fregn frá Milano er það haft
eftir Vittorio Rivolta heilbrigðis-
málaráðherra Langbarðalands á
Norður-ítalíu að ef til vill verði
ekki unnt fyrir suma Ibúa Seveso
að snúa heim á ný fyrr en eftir ár
vegna áframhaldandi eitrunar, og
að óvist sé hvort svæðið næst
Icmesa verksmiðjunni verði
nokkurntíma byggilegt á ný.
Machneh, sem er f Svfþjóð um
þessar mundir, voru handteknir f
Norrköping f dag fyrir að hafa
vopn f fórum sfnum án heimildar.
Knattspyrnuliðið er frá borginni
Petah Tiqwa, skammt austan við
Tel Aviv, og kom til Norrköping
fyrir helgi. Lögreglunni bárust
spurnir af þvf að fararstjórar og
þjálfarar væru vopnaðir, og við
nánari athugun fann lögreglan
f jórar Beretta-skammbyssur f fór-
um þeirra. Hefur fsraelska sendi-
ráðið hvorki viljað staðfesta né
bera til baka orðróm um að það
hafi látið fararstjórunum vopnin
f té f varúðarskyni,
Fulltrúi lögreglunnar sagði að
dómar yrðu upp kveðnir fljótlega
þar sem knattspyrnuliðið á sam-
kvæmt áætlun að halda heimleið-
is á laugardag. Búizt er við að
mennirnir verði látnir greiða
sektir, en þeim síðan sleppt.
Tveir sænskir lögreglumenn
hafa gætt knattspyrnumannanna
allt frá þvi þeir komu til Svíþjóð-
ar til að koma í veg fyrir að á þá
yrði ráðizt.
armur IRA, til mikilla útifunda i
Belfast gegn Bretum og brezkri
stjórn á Norður-írlandi. Við það
tækifæri hótaði frú Marie
Drumm, varafprseti Sinn Fein,
því að ef dæmdir skæruliðar IRA
fengju ekki sömu meðferð og
pólitískir fangar, yrði Belfastborg
lögð í eyði. Var hún handtekin á
mánudag, og er mál hennar í
rannsókn. Samkvæmt lögum geta
yfirvöld haft frú Drumm í haldi í
eina viku án þess að birt verði
formleg ákæra á hendur henni.
Verið er að yfirheyra vitni, sem
hlýddu á ræðu Marie Drumm, og
er eftir þeim haft að hún hafi
hótað því að Belfast yrði rifin til
grunna, stein fyrir stein.
Marie Drumm hefur um margra
ára skeið ausið úr skálum reiði
sinnar vegna dvalar Englendinga
á Norður-Irlandi, og eitt sinn
sagði hún á útifundi að ekki ætti
að leyfa neinum Englendingi að
fara heim til Englands öðruvísi
en i líkkistu. Marie er fimm barna
móðir. Sjálf hefur hún setið hálft
ár í fangelsi á Norður-írlandi og
mánuð í Irska Iýðveldinu. Eigin-
maður hennar, James Drumm,
hefur setió 13 ár í fangelsi, og ein
dóttirin var dæmd til átta ára
fangelsisvistar í nóvember í
fyrra.
Vegna atburðanna i Belfast
undanfarna fjóra daga hafa þing-
menn brezka Íhaldsflokksins
skorað á stjórnina í London að
beita brezka hernum af meiri
hörku gegn írskum hryðjuverka-
mönnum.
Ríkið tekur
ábyrgðina
Washington, 11. ágúst — NTB.
BANDARÍSKA þingið varð i
dag við eindregnum óskum
Geralds Fords forseta og veitti
honum heimild til að láta hefja
allsherjar ónæmisaðgerðir
gegn svonefndri svínainflú-
enzu.
Þessi heimild þingsins leiðir
til þess að ríkisstjórnin tekur á
sig ábyrgðina ef einhver fer
fram á skaðabætur vegna hlið-
arverkana frá bólusetningar-
efninu. Áður höfðu framleið-
endur neitað að halda fram-
leiðslunni áfram nema yfir-
völdin gengju í ábyrgð og
tækju á sig allar skaðabóta-
greiðslur. Bentu sérfræðingar
á að jafnvel þótt eingöngu
væri bólusett með sótthreins-
uðu vatni, gætu alltaf komið
upp hliðarverkanir, og þær
kallað á skaðabótakröfur.