Morgunblaðið - 19.08.1976, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976
Uppboðsskilmál-
um hefur aldrei
fyrr verið áfrýjað
— segir gjaldheimtustjóri
í FRAMHALDI af frétt Mbl. I
gær um áfrýjanir til hæstaréttar
á lögtaks- og uppboðsgerðum
vegna skulda Sigurbjarnar
Eirfkssonar veitingamanns I
Klúbbnum sneri blaðið sér til
Guðmundar Vignis Jósefssonar
gjaldheimtustjóra og spurði hann
hvort algengt væri að slfkum
gerðum væri áfrýjað til hæsta-
réttar.
Guðmundur Vignir sagði að I
réttarríki eins og íslandi hefði
hver og einn einasti þegn rétt til
þess að áfrýja dómsgerðum til
hæstaréttar. Það kæmi þó ekki oft
fyrir að gerðum gjaldheimtunnar
væri vfsað þangað. Taldi Guð-
mundur að 1—2 lögtaksgerðum
væri að jafnaði vísað til hæsta-
réttar árlega, en hann sagði að
aldrei fyrr í sögu gjaldheimtunn-
ar hefði uppboðsskilmálum verið
áfrýjað, en það hefur nú verið
gert I sambandi við upboðið á
Álfsnesi, eins og fram kom i frétt
blaðsins í gær.
Guðmundur Vignir sagði, “áð
hann gæti ekkert um það sagt
Framhald á bls. 18
Kommúnistaflokkur Islands/ML:
„SOVÉTRÍKIN FAS-
ÍSKT HEIMSVELDI”
Efnt til mótmæla-
fundar við sovézka
sendiráðið á laug-
ardaginn kemur
MORGUNBLAÐINU barst f gær
fréttatilkynning frá Kommún-
istaflokki tslands /ML, þar sem
segir:
„Þann 21. ágúst eru liðin 8 ár
frá hernámi Tekkóslóvakíu. Þá
horfði veröldin aðgerðalaus á
þegar sovéskir skriðdrekar brutu
hetjulega frelsisbaráttu tékk-
nesku alþýðunnar á bak aftur. 1
innrásinni birtist árásareðli
sovésku heimsvaldastefnunnar
ljóslega, hún var upphafið að
hertri útþenslustefnu Brésneff-
klíkunnar í öllum heimshornum.
Kommúnistaflokkur ís-
lands/ML heitir á íslenska alþýðu
að opna augu sin fyrir þeirri stað-
reynd, að bakvið hina svokölluðu
„detente" stefnu Sovétrikjanna
býr heiftarleg hervæðing og
styrjaldarundirbúningur.
Bréfsneff-klíkan talar um afvopn-
un og frið, en samtímis herðir
hún vopnaframleiðslu og eykur
hernaðrumsvif sín alls staðar í
veröldinni. Friðarorð Brésneffs
eru algerlega samkynja friðartali
Hitlers fyrir síðari heimstyrjöld-
ina. Sovétríkin eru f dag fasískt
heimsveldi og frá þeim stafar
alþýðu heimsins geigvænleg
hætta. Markmið sovésku heims-
valdasinnanna er heimsyfirráð og
til þess að ná þessu takmarki sfnu
munu þeir ekki skirrast við að
hrinda mannkyninu út í enn eina
eyðingarstyrjöldina — það sannar
innrásin í Tékkóslóvakíu 1968.
Kommúnistaflokkur ís-
lands/ML gengst fyrir mótmæla-
fundi fyrir utan sovéska sendiráð-
ið í Garðastræti á Laugardaginn
21. ágúst kl. 14.00. Tilgangur þess-
ara aðgerða er að styðja vaxandi
frelsisbaráttu alþýðunnar f A-
Evrópu og minnast innrásinnar í
Tékkóslóvakfu með því að sýna
hug fslenskrar alþýðu til kúgunar
og ofbeldis sovésku sósíalheims-
valdastefnunnar. Barátta
tékkneskrar aiþýðu er ekki
einangruð, hún á stuðningsmenn
f sérhverju landi veraldarinnar,
einnig hér á íslandi. Á fundinum
mun Gunnar Andrésson formaður
Kommúnistaflokksins flytja ræðu
og á eftir fundinum verður so-
véska sendiherranum afhent mót-
mælaorðsending frá fundarmönn-
um.
Kommúnistaflokkur Islands
hvetur íslenska alþýðu til að sýna
hug sinn með því að mæta til
fundarins.“
Má ég ekki taka þetta með líka? Marfa litla, ársgömul, hjálpar
mömmu og pabba að pakka niður áður en þau flytjast til Afrfku.
r
Islenzkur sjúkraþjálfari
tekur til starfa á holds-
veikraspítala í Afríku
tSLENZKUR sjúkraþjálfari,
Eric Guðmundsson, hefur tekið
til starfa við holdsveikraspítal-
ann Masanga í Sierra Leone f
Vestur-Afríku. Eric er giftur
danskri konu, Lailu, og er hún
einnig sjúkraþjálfari og mun
starfa við spftalann ásamt
manni sfnum. Auk'þess að hafa
numið sjúkraþjálfun, hefur
Eric tekið námskeið í hita-
beltissjúkdómum f Hafnar-
háskóla og tekið BA-próf í guð-
fræði frá
Englandi.
Newbold College í
Holdsveikraspítalinn
Masanga er rekinn á vegum sjö-
unda dags aðventista, en faðir
Erics, Júlíus Guðmundsson, var
í mörg ár formaður samtaka
aðventista á íslandi. Á spftalan-
um starfar sænskur skurðlækn-
ir, en aðalaðstoðin er veitt frá
bílum, sem heimsækja þorpin í
frumskóginum.
A TIMABILINU 1968-
1976 jókst hlutfall rikisút-
gjalda af vergri þjóðar-
framleiðslu úr 25,1% 1968
í 28,5—29% skv. spá Þjóð-
hagsstofnunar. Á þessu
árabili varð þetta hlutfall
lægst 21,7% 1970 en fór
upp í 30,1% á sl. ári og
2254 bílar fluttir
til landsins á fyrra
helmingi þessa árs
A FYRRA helmingi þessa árs
voru fluttar til landsins alls 2254
bifreiðar af ýmsum gerðum og
stærðum, en á sama tfma ( fyrra
voru fluttar til landsins 1850 bif-
reiðar. Alls voru fluttar til lands-
ins 1926 nýjar fólksbifreiðar og
137 notaðar, en 83 sendibifreiðar
og 87 vörubifreiðar. Þá var flutt
inn 21 annars konar bifreið þ.e.
sjúkra- og lögreglubifreiðar,
kranabflar, steypubflar o.fl. þ.h.
Af nýjum fólksbílum var mest
flutt inn af gerðinni Skoda
100/110 eða alls 292 bifreiðar, en
næst mest af gerðinni Mazda 929
eða 105 bifreiðar. Af tegundinni
Ford Cortina voru fluttar 102 bif-
reiðar til landsins, en minna af
öðrum bfltegundum. Af sendibif-
reiðum var mest flutt inn af Ford
Econoline og Volkswag'en, en af
vörubílum var mest flutt inn af
GMC og Scania bflum.
virðist því frekar lækkandi
nú. Þegar framlög til al-
mannatrygginga og niður-
greiðslna eru dregin frá
kemur hins vegar í ljós, að
litlar breytingar hafa orðið
á hlutfalli annarra út-
gjalda ríkissjóðs af vergri
þjóðarframleiðslu. Á
A árinu 1968 nam þetta hlutfall
að frátöldum almannatryggingum
og niðurgreiðslum 17,5% en er
áætlað í ár 16—16,5% eða heldur
minna en 1968. Aukning ríkisút-
gjalda sem hlutfall af vergri þjóð-
arframleiðslu hefur því fyrst og
fremst gengið til aukinna fram-
laga til almannatrygginga og nið-
urgreiðslna. Framlög til þessara
tveggja málaflokka námu 7,6%
1968 en 12,3% sl. ár og eru áætluð
12,5% íár.
Skattheimta ríkisins, sem hlut-
fall af vergri þjóðarframleiðslu,
nam 24,1% á árinu 1968, en er
áætluð 28—29% á þessu ári.
Skattheimta sveitarfélaga nam
7,7% 1968 en er áætluð 7—7,4 á
þessu ári en varð lægst 5,7% árið
1973.
Heildarskattheimta hins opin-
bera þ.e. ríkis, sveitarfélaga
ásamt viðlagasjóðgjaldi, olfu-
gjaldi og sjúkratryggingagjaldi
Enn reyting-
ur af loðnu
FREMUR rólegt var á loðnumið-
unum fyrir norðan land f gær, en
þó komu nokkrir bátar og til-
kynntu sig með afla. Súlan var
með 200 lestir og Bjarni Ólafsson
með 240 lestir, og lönduðu bæði
skipin f Siglufirði. Þá landaði
Hákon ÞH á Krossanesi 400 Iest-
um og Sæberg SU landaði f Siglu-
firði 160 lestum. Magnús NK fékk
samtals 180 lestir og ætlaði að
landa þvf f Neskaupstað. Veiði-
svæðið var I gær um 100 mflur
norð-norðvestur gf Siglunesi.
Eldur í mjöl-
skemmu SR á
Reyðarfirði
Reyðarfirði, 18. ágúst —
í NÓTT kviknaði i mjöl-
skemmu Síldarverksmiðja
ríkisins. Logaði í mjöl-
stæðu og vörubíl, sem þar
var inni. Slökkviliðið kom á
staðinn um tvöleytið í nótt
og gekk vel að slökkva eld-
inn. í eldinum skemmdust
um 10 tonn af mjöli og
vörubíll og talsverðar
skemmdir urðu af vatni og
reyk. Skemman er
óskemmd.
í dag var unnið að hreinsun f
skemmunni og könnuð eldsupp-
tök. Tryggt er hjá Samvinnu-
tryggingum og Sjóvá. Logn og
blíða var hér í nótt er þetta gerð-
ist. Hér hefur verið bezta veður í
allt sumar. Sigurður Baldursson
bóndi á Sléttu tjáði mér að hey-
skap væri að mestu lokið, spretta
á túnum mjög góð og full nýting.
Sigurður er búinn að smala fé og
rýja og voru dilkar mjög góðir. —
Gréta.
Aukning ríkisútgjalda 1968—1976:
I almannatrygging-
ar og niðurgreiðslur
mun nema um 36—37,4% af
vergri þjóðarframleiðslu f ár.
Árið 1968 nam skattheimta hins
opinbera 31,8%, en varð lægst
1970 eða 29,3%.
Mikil berja-
spretta í ár
MIKIL berjaspretta er
alls staðar á landinu, að
því er Mbl. fregnaði í
gær. Má senn fara að
búast við því að berin
verði orðin nægilega
þroskuð til þess að unnt
sé að tína þau. Eru menn
víða þegar farnir að fara
til berja.
Undir Jökli mun vera mikil
berjaspretta og talsverð f Döl-
unum. Þá er mikil berjaspretta
á Vestfjörðum. Ennfremur
hefur Mbl. haft spurnir af því
að mikil spretta sé á Austf jörð-
um.
Mörg hús í byggingu
í Hrunamannahreppi
Syðra-Langhoiti 17. ágúst.
ALLMIKLAR byggingafram-
kvæmdir eru hér f Hrunamanna-
hreppi f sumar. Eru það einkum
fbúðarhús, sem byggð eru, en þau
eru ekkl færri en ellefu, sem f
smíðum eru, þó mismunandi
langt á veg komin. Þá eru f bygg-
ingu fjárhús á þremur bæjum.
Nokkrum lóðum hefur verið út-
hlutað úr landi sveitarinnar að
Högnastöðum og hafa ung hjón úr
Reykjavfk hafið byggingu garð-
yrkjustöðvar þar.
Fyrir liggur að leiða heita vatn-
ið frá Flúðum þangað, en undan-
farið hefur verið unnið að lagfær-
ingum og endurbótum við hita-
veituna að Flúðum og var nýlega
tekin f notkun ný dælustöð.
í vor var lokið við nýja afréttar-
girðingu, en hún er milli Hvítár
og Stóru-Laxár nokkru fyrir inn-
an byggðina. Upphaflega var girt
þarna árið 1912. Gamla girðingin
var oft dýr og erfið í viðhaldi,
einkum eftir mikla snjóavetur.
Heildarkostnaður við nýju girð-
inguna er um 1.2 milljónir króna,
en búið var að kaupa efnið fyrir
nokkrum árum. Vegalengdin
milli ánna er um 10 km.
Þá var f vor sáð í um 100 hekt-
ara lands á friðuðu svæði innan
við afréttargirðinguna með stóru
landgræðsluflugvélinni, mest í
svonefnda Búðartungu. Þeir sem
skoðað hafa svæðið nýlega láta
vel af árangrinum. Fjármagn til
þessarar sáningar var fengið hjá
Landgræðslunni og hreppnum.
Slg. Sigm.