Morgunblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1976 5 Snyrtilegustu garðarnir í Firðinum Þúfubarð 4. FEGRUNARNEFND Hafnar- fjarðar veitti á þriðjudaginn sl. viðurkenningu fyrir snyrtileg- ustu garðana í bænum. Þeir sem hlutu viðurkenningu voru: Guðjón Sigurjónsson og Steib- unn Jónsdóttir, Þúfubarði 4, Ragnar Sveinsson og Erla Þórð- ardóttir Stekkjarhrauni 9, Eyjólfur Einarsson og Ásta Jónsdóttir Þrastarhrauni 6, og eigendur fjölbýlishúsanna að Álfaskeiði 102 og 104. Ennfremur var félaginu Hval- ur h.f. veitt viðurkenning fyrir snyrtilegt umhverfi. Meðfylgj- andi myndir tók Brynjólfur af verðlaunagörðunum í Hafnar- firði. Garðurinn við Stekkjarkinn 9. ■ö VrJRÉI L'' , Garðurinn við f jölbýlishúsið að Álfaskeiði 102—104. Við Þrastarhraun 6. Hvalur hf. fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt um- hverfi. Opið hús I SUMAR hefur Norræna húsið haft svokallað „Opið hús“ á fimmtudagskvöldum með dag- skrá sniðna fyrir norræna ferða- menn. 1 dag, fimmtudaginn 19. ágúst, er næst síðasta „opna húsið“. Þá mun dr. Sigurður Þórarinsson flytja erindi, sem hann kallar Eld- fjallavirkni á Islandi, og sýna skuggamyndir með. Erindið mun dr. Sigurður flytja á sænsku og hefst það kl. 20.30. Kl. 22.00 verður sýnd kvikmynd Ósvaldar Knudsens Surtur fer sunnan. í kvöld I bókasafni Norræna hússins er sýning á bókum um tsland og sænsk listakona, Dagmar Mártas sýnir þar vatnslitamyndir. I anddyri hússins er nú sýning á vatnslitamyndum eftir Færeyinginn Tránd Patursson, en hann er meðal skipverja á skinn- bátnum Brendan og hefur hann gert myndirnar um borð i bátnum á leiðinni frá Færeyjum til ís- lands. Kaffistofa Norræna hússins er opin frá kl. 20.00 til 23.00 á fimmtudagskvöldum. Varasöm naglabyssa í umferð í Kópavogi NÝLEGA var stolið 1 Kópavogi kraftmikilli naglab.vssu ásamt skotum. Þar sem hætta er talin á því að börn hafi byssuna undir höndum, hefúr rannsóknarlögreglan í Kópavogi meðið Mbl. að beina þeim tilmælum til foreldra í Kópavogi, að þeir séu á verði og láti lögregluna strax vita ef þeir verða varir við byssuna í vörzlu barna. Það þarf ekki að taka það fram, að slíkar byssur geta verið stórhættulegar í höndum þeirra, sem ekki kunna með þær að fara. NVR SENDIHERRA BANDARtKJANNA — Þessi mynd var tekin þegar nýskipaður sendiherra Randarfkjanna á tslandi, James J. Blake, hafði svarið embættiseið. A myndinni eru Blake sendiherra og kona hans, frú Ástríður og Hans G. Andersen sendiherra Islaqds 1 Banda- ríkjunum og Frederick Irving fyrrum sendiherra Ban'darfkjanna á tslandi og kona hans. Irving er nú, sem kunnugt er, einn aðstoðarutan- rfkisráðherra Bandaríkjanna. HOOVER er heimilisprýði EFTIR AÐ fraMieiðslu SÉRHVERRA TEGUNDA ER HÆTT HOOVER þvottavélar Stærð: HxBxD. 85x59x55 sm. Þvottamagn: 5 kg af þurrum þvotti. Þvottakerfi: 1 2 til 16 algjörlega sjálfvirk þvottakerfi. Vatnsinntak: Heitt og kalt (blandar), eða eingöngu kalt vatn. Vatnshæðir: Vélarnar velja á milli vatnshæða. Sápuhólf: Skúffa sem skipt er í 3 hólf, forþvottur, aðalþvottur og bætiefni. Hitastig: 30 gr. C, 40 gr. C, og 60 gr. C, og 95 C Öryggi: Öryggislæsing á hurð, vatnsöryggi á sápuskúffu. 1 3 A rafstraumsöryggi. Þvottatromla úr ryðfríu stáli. Vélarnar eru á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan. Þær falla því vel í innréttingar eða undir borð. Einnig má sameina þvottavél og tauþurrkara á þann hátt að skorða þurrkarann ofan á vélina. VARAHLUTI í 20 ÁR, FÁLKIN N* Suðurlandsbraut 8 Simi 8-46-70 HOOVER Tauþurrkarar. Stærð: Hæð 85 cm, breidd 59 cm, dýpt 55 cm. Hleðsla: 3,5 kg, af þurrum þvotti. Þurrkkerfi: Tvö, annað fyrir náttúrulegan vefnað en hitt fyrir gerfiefni. Hitastig: 55 C, 75 C Tímastillir: 0 til 110 mínútur. Öryggi: Öryggislæsing á hurð, 1 3 A rafstraumsöryggi, Taurþurrkarinn er á hjólum. Allur stjórnbúnaður er staðsettur að framan. HOOVER- VERKSMIÐJURNAR ÁBYRGJAST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.