Morgunblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976 - Meðaltalsveltan Framhald af bls. 32 Reykjavfkur og sé það sakadóms að svara og ákveða hvaða upplýs- ingar verði gefnar um þetta mál. Hann kvað þá athugun eða rann- sókn, sem fram hafi farið í Seðla- bankanum, hafa náð yfir 2 ár, 1974 og 1975. Þá var Reiknistofn- un bankanna ekki tekin til starfa, en hún á að stöðva slíkt misferli með ávfsanir á þeim svæðum, sem hún nær til. Enn sem komið er nær Reiknistofnunin aðeins til Faxaflóasvæðisins. Allt það tékkamisferli, sem komizt hefur upp um, er fyrir tilkomu stofn- unarinnar. Guðmundur Hjartarson kvaðst ekki geta skýrt frá því, hve háar upphæðir væri um að ræða, en þær væru umtalsverðar. Þá vildi Guðmundur heldur ekki segja, hve margir menn væru viðriðnir þennan ávísanahring, en hann benti á að komið hefði fram í fréttum að þeir væru á þriðja tug. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér er f raun ekki hægt að nefna ákveðnar eða endanlegar tölur i sambandi við það fjármagn, sem þeir einstaklingar, er hlut eiga að máli, hafa haft til ráðstofunar með þessum hætti. Það mun hafa verið mjög breytilegt. Hins vegar mun láta nærri, að meðaltalsvelta ávísanahringsins hafi numið um 4 milljónum króna á dag en úr- vinnsla Seðlabankans á tékka- reikningum þessara aðila náði til tveggja ára eða u.þ.b. 500 daga, sem bankastofnanir hafa verið opnar á þessu tímabili. Þessi tala gefur ekki vísbendingu um raun- verulegt ráðstöfunarfé, sem með- limir ávísanahringsins höfðu út úr iðju sinni. Morgunblaðinu hefur ekki tek- izt að fá áreiðanlegar upplýsingar um, hvaða einstaklingar eiga hér hlut að máli. Blaðinu hefur held- ur ekki tekizt að fá öruggar upp- lýsingar um f hvaða lánastofnun- um tékkareikningar þeir voru, sem notaðir voru í þessu skyni, en þar mun vera um að ræða pen- ingastofnanir bæði í Reykjavfk og utan Reykjavíkur. Benedikt Guðbjartsson, einn af lögfræðingum Landsbankans, staðfesti í viðtali við Morgunblað- ið í gær, að í marzmánuði hefði Landsbankanum borizt beiðni frá Sakadómi Reykjavfkur um upp- lýsingar um tékkaviðskipti ákveð- inna einstaklinga í Landsbankan- um. Samkvæmt dómsúrskurði væru bankar skyldugir til að veita slíkar upplýsingar og hefði það verið gert. •Eitt þeirra atriða, sem sakadóm- ur Reykjavíkur lagði mikla áherzlu á að yrði kannað f þessari rannsókn var, hvort einhver tengsl fyndust milli umræddra manna og Geirfinns Einarssonar. Hefur Morgunblaðið það eftir áreiðaniegum heimildum, að eng- in slík tengsl hafi fundizt við rannsóknina og nafn Geirfinns hafi hvergi verið að finna á ávís- unum, sem kannaðar voru. — Bankarán Framhald af bls. 1 veitingahúss í næsta húsi. Létu þeir starfsmann bankans að vfsu vita um þetta en hann skrifaði athugasemdirnar að- eins niður á blað og lét þar við sitja. Segir lögreglan að ef öryggisverðirnir hefðu hugsað um það starf sem þeir voru sérstaklega ráðnir til, hefði verið hægt að grípa ræningj- ana glóðvolga. Talið er að hér kunni að vera um að ræða mesta rán sögunnar. — Ford Framhald af bls. 1 ara. Val Schweikers var sem kunnugt er mjög umdeilt. Frétta- menn sögðu að Reagan virtist mjög þreyttur og vonsvikinn eftir atkvæðagreiðsluna í fyrrakvöld, en hann sgaðist sjálfur viss um sigur þrátt fyrir allt. Þeir menn sem helzt eru nefnd- ir sem hugsanleg varaforsetaefni Fords eru öldungadeildarþing- maðurinn Howard Baker, William Ruckelshaus fyrrum að- stoðar-dómsmálaráðherra, sem sagði af sér fremur en að hlýðnast skipun Nixons forseta um að reka Archibald Cox sérlegan saksókn- ara Watergatemálsins, Elliot Richardson viðskiptaráðherra, William Simon fjármálaráðherra og John Conolly fyrrum fjármála- ráðherra og fylkisstjóri Texas, sem var demókrati en gekk í Repúblikanaflokkinn fyrir nokkr- um árum. — Rækjumið Framhald af bls. 32 búa sig á þær. Eru það Berghildur og Stefnir frá Isafirði. Höfrungur landaði nýlega á Isa- firði 9 tonnum. Aflinn fæst þann- ig, að á fjórum togtimum fæst um það bil eitt tonn af rækju. Fyrsta svæðið sem fannst var norðaustur af Sporðagrunni. Það fann Dagný frá Siglufirði. Sólmundur sagði að þau mið væru stór og fullkomlega tímabært væri að gera út á þau. Við Kolbeinsey fann Langanes talsvert af rækju — nánar tiltekið um 47 sjómílur réttvísandi frá Skagatá. Fékkst þar svipað magn. Virðist svo sem góð og stór rækju- mið séu frá Reykjafjarðaráli og vestur undir Kolbeinsey. Norðmenn og Færeyingar hafa veitt við Grænland góða rækju, sem flokkuð hefur verið þannig, að í fyrsta flokk fer rækja, þar sem 90 rækjur eru I kílói eða færrí. Til annars flokks telst rækja, þar sem 90 til 120 rækjur eru í kílói og til þriðja flokks telst rækja, þar sem 120 til 140 rækjur eru í kílói. Er þá miðað við soðna rækju og frysta f skel. Á Langa- nesi gerði áhöfnin mælingu og kom hún mjög vel út. 80% aflans var í 2. flokki, þ.e.a.s. færri rækj- ur en 120 voru I kílói og 44% voru undir 90 f kílói, þ.e.a.s. fór f 1. flokk. Má það teljast mjög gott. Verðmunur á 1. og 2. flokki er um það bil ein sænsk króna eða um 40 íslenzkar krónur. Uppboðsaðgerðir Framhald af bls. 2 hverjar væru ástæður þess, að þessum tilteknu gerðum hefði verið áfrýjað. Margar ástæður gætu legið að baki þvf að gerðum væri áfrýjað, t.d. vegna formgalla og stundum væru ástæður ekki sýnilegar. Þá væri því ekki að leyna að menn gætu séð sér hag f slfkum áfrýjunum. Þannig fengju þeir frest og á meðan rýrnaði krafan þvf enda þótt innheimtir væru 2% dráttarvextir fyrir hvern mánuð sem liði vægi það ekki upp á móti verðbólgunni eins og hún væri nú. — Vísitalan Framhald af bls. 32 á vörugjaldi úr 10% f 18% hinn 7. maí sfðast liðinn, en hækkunar- áhrif þess voru ekki komin fram f vöruverði að fullu f júníbyrjun. Samkvæmt kjarasamningum er næsta rauða strik hinn 1. október og greiðist verðlagsuppbót , ef verðlagsþróun fer upp fyrir strik- ið, frá og með 1. nóvember. Sam- kvæmt áætlunum, sem gerðar hafa verið, er búizt við því að þróunin verði sú að farið verði yfir rauða strikið og nemi hækk- unin umfram það allt að 2%. Um- samin 6% launahækkun kemur 1. október, en hækkun f kaupi sam- kvæmt verðlagsuppbót kæmi hinn 1. nóvember. Ekki er ljóst, hvar rauða strikið verður ná- kvæmlega vegna þess að launalið- ur bóndans í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða, svo og hækk- un á áfengi og tóbaki hefur ekki áhrif til kaupgjaldshækkunar. Búizt er samt við því að rauða strikið verði einhvers staðar á bil- inu 615 til 618 stig. — 14 vilja Framhald af bls. 32 bankastjórarnir verða tveir. Alls hafa 14 manns sótt um aðstoðarbanka- stjórastöðu við Búnaðar- bankann. Stefán Valgeirsson alþingis- maður og bankaráðsformaður Búnaðarbankans sagði f viðtali við Mbl. í gær að allir umsækjend- urnir um aðstoðarbankastjóra- stöðuna eða stöðurnar, ef niður- staðan verður að tveir verði ráðn- ir, séu starfsmenn bankans, þar af tveir útibússtjórar. Ennfremur hafa tveir starfsmenn annarra banka sótt um aðstoðarbanka- stjórastöðu. — Danmörk Framhald af bls. 1 stað víða um landið í mótmæla- skyni f dag, þrátt fyrir yfirlýsing- ar danska Alþýðnsambandsins um að það væri andvígt ólögleg- um verkföllum þrátt fýrir það að það væri í andstöðu við stjórnina um þessar aðgerðir. Jafnaðarmenn hafa 54 sæti af 179 á þingi, en njóta stuðnings róttækra, miðdemókrata og Kristilega þjóðarflokksins, sem alls hafa 26. sæti. Þá styður einn- ig Jörgen Lembourn stjórnina, en hann sagði sig úr þingflokki I- haldsmanna. Gert er ráð fyrir að endanleg atvkæðagreiðsla um málið fari fram á þing á morgun. — Niðurstaða Framhald af bls. 32 Niðurstaðan skiptir miklu máli Samningurinn sem gerður var milli LÍU og FFSI hinn 1. marz var felldur í allsherjaratkvæða- greiðslu með 198 atkvæðum gegn 136. Hófust samningaviðræður að nýju og lagði FFSl þá ekki fram skriflega kröfugerð. Samningar hafa ekki tekizt. Á meðan þessu fór fram undirrituðu aðiljar máls- ins viðbótatsamning við samning- inn, sem undirritaður hafði verið 1. marz en felldur í áðurnefndri atkvæðagreiðslu og var viðbótar- samningurinn undirritaður af beggja hálfu án nokkurs fyrir- vara. Skip fóru á sjó strax eftir 1. marz s.l. og er ekki ágreiningur um það, að frá þeim degi hefur verió greitt kaup eftir þeim samn- ingum, sem undirritaðir voru 1. marz og 14. maí. I þessu sambandi skiptir mikiu máli hvort samning- urinn frá 1. marz s.l. eða samning- urinn frá 9. marz 1974 ásamt við- bótum er í gildi, því verulegar breytingar urðu samfara seinni samningnum vegna breytinga sem gerðar voru á sjóðakerfinu. Álit dómsins í áliti dómsins segir orðrétt: „Stefnandi, Farmanna- og fiski- mannasamband Íslands, sagði þann 30. október 1974 upp samn- ingum þeim, sem aðiljar máls þessa höfðu undirritað 9. marz s.á. frá 1. desember 1974 að telja. Samþykkti stjórn stefnda, Lands- sambands íslenzkra útvegsmanna, að taka þá uppsögn gilda á fundi 21. nóvember s.á. Eins og áður er rakið hefur þvi verið haldið fram :f hálfu stefn- anda, að aðiljar máls þessa hafi gert nýjan kjarasamning 30. apríl 1975. Því hefur verið einddregið mótmælt af hálfu stgfnda. Ekki hefur verið lagt fram neitt undir- ritað eintak af samningi þessum og verður að telja ósannað, að hann hafi verið gerður. Sam- kvæmt þvi sem nú hefur verið rakið verða samningarnir frá 9. marz 1974 ekki taldir gildandi kjarasamningar milli aðilja, og hefur ekki verið farið eftir þeim i skiptum þeirra frá 1. marz 1976. Aðalkrafa stefnanda verður því ekki tekin til greina. Aðiljar máls þessa undirrituðu nýja kjarasamninga 1. marz s.l. en þeir voru felldir í allsherjarat- kvæðagreiðslu innan félaga stefn- anda, og ekki samþykktir af stjórn stefnanda, svo sem áskilið hafði verið við undirskrift. Þegar af þeirri ástæðu öðluðust þeir því, ekki gildi milli aðilja. Aðal- og varakrafa stefnda verður því ekki tekin til greina. Um það er hins vegar ekki ágreiningur, að frá 1. marz 1976 hefur kaup verið greitt og önnur kjör félagsmanna stefnanda ákvarðast af samningum þeim, sem undirritaðir voru 1. marz 1976 og viðbótarsamningi sem að- iljar gerðu 14. maí s.á. Meðan þannig er unnið eftir þessum samningum, verður að leggja þá til grundvallar í skiptum aðilja um kaup og önnur kjör eins og um sé að ræða kjarasamning, sem sagt hefur verið upp (lausan samning). Samkvæmt þessu hefur enginn kjarasamningur verið formlega i gildi milli aðilja máls þessa frá og með 1. desember 1974. Þar sem varakrafa stefnanda er miðuð við 1. marz 1976, og ekki hafa verið settar fram aðrar kröfur er lengra ganga, verður við það timamark miðað og krafa hans tekin til greina með þeim takmörkunum, sem að ofan greinir, sbr. og og þrautavarakröfu stefnda. Rétt þykir að málskostnaður falli niður. Dóm þennan kváðu upp Halldór Þorbjörnsson, Bjarni Kristinn Bjarnason, Guðmundur Vignir Jósefnsson, Ragnar Olafsson og Sigurður Líndal. Dómsorð: Milli aðilja máls þessa hefur enginn kjarasamningur verið formlega i gildi frá og með 1. marz 1976. Að öðru leyti fer um skipti aðilja samkvæmt því sem segir i niðurlagi forsendna dómsins. „I samræmi við það sem tíðkast hefur“ Morgunblaðið snéri sér í gær til Jónasar Haraldssonar lögfræð- ings LlU og innti eftir áliti hans á niðurstöðu dómsins. Jónas sagði: „Þessi niðurstaða Félagsdóms er i samræmi við það sem tíðkast hefur í samskonar tilvikum hér- lendis en slíka reglu hafa t.d. Danir lögfest í sinni vinnulöggjöf þar sem segir að aðilar vinnu- markaðarins séu skyldir til að fara eftir ákvæðum kjarasamn- ings, enda þótt samningstími hans sé liðinn eða honum hafi verið sagt upp, þangað til að nýr samn- ingur sé gerður eða vinnustöðvun framkvæmd. Með þessu ákvæði er greinilega verið að tryggja að vinnufriður haldist, þrátt fyrir að ekki hafi verið formlega gengið frá nýjum kjarasamningi, en það atriði vegur þungt á metunum ivinnumálarétti. Venjan hefur verið sú undan- farin ár, að gert hafi verið upp samkvæmt felldum kjarasamn- ingi, svo framalega sem vinnu- stöðvun hafi ekki verið fram- kvæmd, en frekari samningsvið- ræðum haldið áfram unz viðbótar- samningur hafi verið gerður á grundvelli hins fellda samnings, sá samningur felldur inn i hinn fyrri og þeir þannig gefnir út. Þessi niðurstaða Félagsdóms er því staðfesting á þessari reglu, er gilt hefur lengi á þessu sviði“. „Geta farið í verkfall nú þegar“ Þá snéri Morgunblaðið sér enn- fremur til Finns Torfa Stefáns- sonar lögfræðings FFSÍ og innti eftir hans áliti á dómnum. Finnur Torfi sagði: „Eftir atvikum málsins er þetta niðurstaða, sem hægt er að sætta sig við. Ég átti allan tímann von á að úrslitin yrðu eitthvað lík þessu. Ég vek athygli á því, að varakrafa sem ég setti fram var tekin til greina, þ.e. að enginn kjarasamningur er nú i gildi milli aðiljanna. Þetta þýðir í raun að félagar í Farmanna og fiski- mannasambandi Islands geta far- ið í verkfall nú þegar ef þeim sýnist svo og án fyrirvara. Dómur- inn staðfestir að þegar svona er ástatt, geta félög farið í verkfall án fyrirvara." Góður gestur í heimsókn íslandsvinurinn Haye W. Hansen, fornleifa- fræðingur og málari, er nú staddur hér á landi en um þessar mundir stendur yfir sýning á verkum hans á Mokka. Á sýningunni eru um 45 myndir, — olíuverk, vatnslitamyndir, teikningar, steinprentun og tréskurðarmyndir sem flestar eru unnar hér á landi frá 1950 og Haye W. Han- sen sýnir 45 myndir á Mokka fram til þessa dags. Haye W. Hansen kom fyrst hingað til lands árið 1949 og ætlaði þá aðeins að vera í einn mánuð. Þessi eini mánuður varð að tveimur og hálfu ári og síðan hefur hann haft hér við- dvöl af og til og nú síðustu árin hefur hann komið hingað sem fararstjóri þýskra ferðamanna. Haye W. Hansen hefur oftlega sýnt hlýhug sinn til Iands og þjóðar í verki, m.a. með gjafa- bréfi frá árinu 1953 þar sem hann ánafnaði fslenzka rikinu eftir sinn dag, allar teikningar og málverk sem hann hafði gert af íslenzkum þjóðbúningum og bændabýlum. Þá hefur hann ritað bók um tsland sem fyrst var gefin út í Þýzkalandi árið 1965 og mun væntanlegá verða endurútgefin í desember n.k. í bókinni fjallar hann m.a. um lanúafræði og jarðfræði íslands, sögu landsins, forn- leifarannsóknir o.m.fl. Haye W. Hansen ásamt nokkrum verka sinna á Mokka. (Ljósm. Brynjólfur)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.