Morgunblaðið - 19.08.1976, Side 3

Morgunblaðið - 19.08.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976 3 Nýr yfir- maður á Keflavík- urflugvelli YFIRMANNASKIPTI verða á Keflavfkurflugvelli 24. ágúst n.k., eins og kom fram f Mbl. I gær. Við starfi yfirmanns á flugvellinum tekur Karl J. Bernstein flotafor- ingi, sem áður var yfirmaður flugstöðvar bandarfska flotans f Jacksonville f Florida. Af störf- um lætur Harold G. Fich flotafor- ingi, sem nú tekur viö öðru hátt- settu starfi hjá sjóhetnum og mun hafa aðsetur f Washington. Karl J. Bernstein flotíforingi er fæddur I Halifax, Nova Eicotia, 31. marz 1925. Hann hefur veiið i sjóernum frá árinu 1942 og var m.a. í liði bandamanna sem barð- ist í Norður-Afríku í stríðinu og gerði innrásina á Sikiley. Hann hefur gegnt störfum á vegum sjó- Karl J. Bernstein væntanlegur yf- irmaður á Keflavfkurflugvelli. hersins víða um heim og var m.a. hérlendis um tfma á árunum 1966 og 1967, er hann stjórnaði flug- sveit, sem hafði aðsetur á Kefla- víkurflugvelli. Eiginkona flotaforingjans er Jean Elizabeth Schulze og eiga þau hjón fjögur börn. Handritanefndin á fund- um í S-Þingeyjarsýslu NEFND sú sem fjallr um skipt- ingu og heimsendingu fslenzku handritanna frá Kaupmanna- höfn hefur setið á fundum hér á landi tvo undanfarna daga. Jónas Kristjánsson forstöðu- maður Stofnunar Árna Magnússonar sagði f samtali við Mbl. f gær, að nefndin fjall- aði nú um handrit þau sem væru f Konunglega bókasafn- inu f Höfn, en f sfðasta mánuði hefði hún lokið umfjöllun um þau handrit sem geymd væru f Árnasafni. Þetta er þriðji fund- ur nefndarinnar á þessu ári, en fundir hafa verið haldnir fjór- um sinnum á hverju ári frá þvf nefndin hóf störf 1972. Sagðist Jónas búast við að næsti fundur nefdarinnar yrði f Kaupmannahöfn f haust eða vetur og væri hugsanlegt að nefndin lyki starfi sinu á þeim fundi. Alls munu vera i Konunglega safninu i Kaupmannahöfn 14—1500 handrit en Jónas Kristjánsson kvaðst búast við að á fundinum nú yrði fjallað um nokkur hundruð þeirra. Merkustu handritin I safninu eru þegar komin til landsins, Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða, en um þau var sér- staklega fjallað í dönsku lögun- um um afhendingu handrit- anna. Að sögn Jónasar eru ýmis önnur merkileg handrit i safn- inu, þ.á.m. aðalhandrit Snorra- Eddu, Grágás og yngri upp- skriftir ýmissa annarra hand- rita. Nefndin heldur fundi sína í Stóru-Tjarna skóla í Suður- Þingeyjarsýslu og lýkur þeim á morgun, en þá munu nokkrir Fornt fslenzkt handrit. Þetta blað er úr Stjórnarhandritinu AM 227 fol, sem skrifað er og skreytt á 14. öld. nefndarmanna halda á fund norrænna málnefnda, sem haldinn verður að Hafralæk í Aðaldal. í skiptanefndinni eiga sæti auk Jónasar Kristjáns- sonar þeir Magnús Már Lárus- son fyrrum háskólarektor, prófessor Chr. Westergaard- Nielsen og Ole Widding rit- stjóri. Fífill fær eingöngu makríl í Norðursjó VÉLBÁTURINN Fífill GK 54 landaði í Bremerhaven nú í vikunni og seldi fyrir u.þ.b. 2V6 milljón kr. Aflinn var nær eingöngu makríll og að sögn Landssambands islenzkra útvegsmanna hefur Fífill ekki landað síld síðan 5. ágúst s.l. LltJ var ekki kunnugt um að aðrir íslenzkir bátar væru við veiðar f Norðursjó utan Fffill og Kap II frá Vestmannaeyjum. Kap II mun hafa landað f dag en LÍÚ var ekki kunnugt um aflamagn þegar Morgunblaðið spurðist fyr- ir um söluna. HVALIR UNDAN tSRÖNDINNI — Flugvél Landhelgisgæzlunnar, TF-SÝR, sem var f landhelgis- og fskönnunarflugi f fyrradag flaug þá um morguninn yfir hóp hvala, sem voru á ferð á Barðagrunni um 25—30 mílur frá landi. Dýrin voru 6—8 saman f hóp skammt frá ísröndinni, en þar voru margir togarar að veiðum, fslenzkir, brezkir og þýzkir. Myndina tók Bjarni Helgason skipherra úr landhelgisvélinni og má á henni sjá einn hvalinn. Níu vilja verða forstjórar Rarik VALGARÐ Thoroddsen, forstjóri Rafmagnsveitna rfkisins, hefur sagt starfi sfnu lausu vegna ald- urs. Nfu manns hafa sótt um stöð- una, þar af 5 starfsmenn Rarik. Umsækjendurnir eru: Aage Steinsson, Erling Garðar Jónas- son, Ingólfur Árnason, Kári Ein- arsson og Sverrir Ólafsson — allir starfsmenn Rarik, og Björn Frið- finnsson, Eggert Steinssen, Gísli Júllusson og Kristján Jónsson. „Morðsagan” frumsýnd 1 október KVIKMYNDIN „Morðsaga", sem Reynir Oddsson og félagar hafa unnið við að taka f sumar, verður væntanlega frumsýnd f október næstkomandi. Innitökum er lok- ið, en eftir er að taka Iftilræði utanhúss og verður það gert næstu vikur. Myndin er f litum og til sýningar á breiðtjaldi. Aðalleikarar eru 10 talsins, en mun fleiri koma fram í myndinni. Aðalhlutverkin eru í höndum Guðrúnar Ásmundsdóttur, Stein- dórs Hjörleifssonar, Þóru Sigur- þórsdóttur, Róberts Arnfinnsson- ar, Péturs Einarssonar, Guðrúnar Stephensen, Sigrúnar Björnsdótt- ur og Elfu Gisladóttur. Flestir eru þessir leikarar þjóðkunnir, en Þóra Sigurþórsdóttir, sem leikur eitt af aðalhlutverkunum, hefur ekki áður leikið opinberlega. Ferðaskrifstofumenn um gjaldeyrisheimildina: „Spor í rétta átt” „ÞETTA er spor f rétta átt og við gerum okkur vonir um að fram- hald verði á þessari rýmkun gjaldeyrisyfirfærslu til skoðunar- ferða,“ sagði talsmaður einnar ferðaskrifstofunnar f Reykjavfk f gær, þegar Mbl. spurði um við- horf hans til ákvörðunar yfir- valda um að heimila 10 dollara (1850 fsl. kr.) aukayfirfærslu fyr- ir ferðamenn f hópferðum til skoðunarferða. Það var samdóma álit þeirra ferðaskrifstofumanna sem Mbl. leitaði til að þessi upphæð væri ferðamönnum til hagsbóta, en fyrir þessa upphæó mun hægt að fara í eina langa skoðunarferð eða tvær styttri. Algengt mun að ferðamenn vilji fara í þrjár til fjórar slíkar ferðir á meðan dval- ið er i sólarlöndum, en til þess að standa straum af kostnaði við svo margar ferðir, hefði aukayfir- færslan orðið að vera þrefalt hærri en heimilað var, þ.e. um 30 dollarar (um 5550 islenzkar krón- ur). Anaegjuleg samskipti í skógræktarmálum UNDANFARINN hálfan mánuS hafa dvalið hér á landi 60 Norð- menn, bæði konur og karlar, á vegum Skógræktarfélagsins. Hér er um að ræða nokkurs konar skiptiferð. þvl 60 íslendingar hafa verið vi8 gróðursetningu I Noregi á sama tlma. Að sögn Hákonar Bjarnasonar, skógræktarstjóra, var það Ander sen Ryst, fyrrverandi sendiherra hér á landi, sem var upphafsmað- urinn að þessum samskiptum. Ferðir þessar eru farnar þriðja hvert ár og hafa Norðmenn unnið við gróðursetningu vlða um land- ið, eða eftir þvl hvar það hefur komið bezt fyrir okkur hverju sinni. í þessari ferð voru sem fyrr segir 60 Norðmenn og skiptust þeir I tvo hópa og dvöldu þeir slna vikuna hvor, á Laugarvatni og Hvanneyri. Frá Hvanneyri var farið til plönt- unar I land Stóru Drageyrar I Skorra- dal, en svo skemmtilega vill til að fyrsta plöntun Skógræktar rlkisins I Skorradal var einmitt unnin af Norð- mönnum á Stálpastöðum fyrir um aldarfjórðungi I sams konar skipti- ferð milli landanna. Sú gróðursetn- ing gefur vonir um að kringum alda- mótin verði vaxinn álitlegur skógur I sunnanverðum Skorradal. Rannveig Andersen Ryst. Einar Myster, yfirmaður skóg- ræktarinnar I Troms fylki I Noregi, hafði forystu fyrir öðrum hópnum og spurði blm. Morgunblaðsins hann hvað honum væri minnisstæð- ast frá dvölinni hér og hvað honum sýndist álitlegast I skógrækt á suð- vestanverðu landinu. „Það sem mér er minnisstæðast frá þessari ferð eru hversu móttökur alls staðar hafa verið góðar og gest- risni mikil Það er eins og að hitta gamla ættingja, sem fóru að heiman fyrir 1000 árum. Allt hefur verið gert til að dvölin hér yrði sem ánægjulegust þennan tfma. Það sem mér hefur þótt athyglis- verðast og skemmtilegast er að sjá að sú vinna, sem unnin hefur verið, til að endurreisa skóga á islandi, virðist vera að bera árangur. Það hefur sýnt sig að trén, sem voru gróðursett I Haukadal og á Stálpa stöðum I Skorradal, dafna vel og þær tegundir. sem valdar hafa verið til gróðursetningar, hæfa vel Islenzk- um jarðvegi og loftslagi." Arne Kjorstad og Nils Olav Kaar- Talið frá vinstri: Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri rfkisins, Einar Myst- er, Nils Kaarsen, Arne Kjorstad og Jónas Jónsson formaður Skógræktar félags islands. Ijósm. Friðþjófur. sen, báðir framámenn I skógræktar- málum I Noregi tóku undir orð Ein ars um að dvölin hefði verið ákaf lega ánægjuleg og móttökur með eindæmum góðar „Mér fannst ákaflega gaman að sjá hve gróðursetningarnar hafa tek- izt vel og ég vona að norskar plöntur I Islenzkum jarðvegi gefi góðan ár- angur," sagði Arne Kjorstad. „Við gróðursettum núna 30.000 plöntur, greni og furu, I Skorradal og 32.000 á Laugavatni. Það er ákaf- lega gaman að koma hingað. og kynnast Islenzkri menningu, sem er svo samtengd þeirri norsku." Nils Olaf Daasen sagði að gróður- Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.