Morgunblaðið - 19.08.1976, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976
Viöurkenningar Umhverfismálaráðs Rvk. ’76:
Fegursta einbýlishús-
iövarbyggt1922
Verrtlaunahafar <>;> fulltrúar þeirra er vlúurkenningu hlutu ásamt
hort>arsljóra Of> formanni Umhverfismálaráús.
Viúurkenningu sem fallegasta fjölbýlishúsið hlaut byggingin að
Vesturbergi 144—148. Arkitektar eru Ormar Þór Gunnarsson og
Örnólfur Hall.
Viðurkenning fvrir smekklegustu gluggaskreytinguna féll í hlut
verzlunar Helga Einarssonar Skólavörðustíg 4.
Á afmælisdegi Reykjavfkur,
18. ágúst, er venjan að veita
viðurkenningu fyrir fegurstu
götu horgarinnar, fallegar
byggingar, snyrtileg mannvirki
og fallegustu gluggaútstilling-
una. Viðurkenningin er veitt af
hálfu fegrunarnefndar, sem nú
er hluti af umhverfismálaráði
borgarinnar, en formaður þess,
Elfn Pálmadóttir, skýrði frá úr-
slitum í hófi að Höfða f gær og
borgarstjóri, Birgir tsl. Gunn-
arsson, afhenti viðurkenning-
arskjöl.
Fegursta gatan að þessu sinni
var valin Gilsárstekkur og hef-
ur merki um það nú verið sett
við götuna. Þetta er lítil gata í
neðra Breiðholti og gat Elín
þess sérstaklega, að ánægjulegt
væri að nú skuli svo falleg gata
vera komin í nýju hverfi með
vel frá gengnum húsum og fall-
egum görðum. Að tilnefningu
störfuðu fyrir umhverfismála-
ráð Pétur Hannesson, Hafliðí
Jónsson og Gunnar Helgason.
Þrjú mannvirki hlutu viður-
kenningu sem fallegustu húsin
í borginni, en það voru einbýlis-
húsið að Njarðargötu 9, eigandi
Bergljót Gunnarsdóttir, en
arkitekt þess var Guðmundur
H. Þorláksson byggingameist-
ari. Fjölbýlishúsið að Vestur-
bergi 144—148 hlaut viður
kenningu, en arkitektar þess
eru Ormar Þór Gunnarsson og
Örnólfur Hall, og auk þess var
hús Verkfræði og raunvísinda-
deildar Háskóla Islands valin
fegursta stofnunin, en höfund-
ar þess eru Ulrik S. Arthursson
og Haukur Viktorsson. Að til-
nefningu þessara þriggja húsa
störfuðu Einar Þ. Ásgeirsson,
Örn Sigurðsson og Sverrir
Norðfjörð.
Málaskóli Halldórs Þorsteins-
sonar Miðstræti 7, hlaut verð-
laun fyrir snyrtilegt hús og um-
hverfi og Verzlun Helga Ein-
arssonar Skólavörðustíg 4 hlaut
viðurkenningu fyrir smekkleg-
ustu gluggaskreytinguna. Að
tilnefningu störfuðu Gunnar
Birgisson, Ólafur Helgason og
Ragnar Þór Magnússon.
Meðfylgjandi myndir tók
ljósm. Mbl. Friðþjófur Helga-
son af verðlaunahöfunum.
Fallegasta einbýlishúsið að mati dómnefndar stendur við Njarðar-
götu 9. Eigandi er Bergljót Gunnarsdóttir en arkitekt Guðmundur
H. Þorláksson byggingameistari.
Fyrir snyrtilegt hús og umhverfi hlaut verðlaun Málaskóli Hallrt*-
Þorsteinssonar Miðstræti 7.
Hús verkfræði- og raunvísindadeildar Háskólans var valin falleg-
asta stofnunin. Höfundar hússins eru Ulrik S. Arthursson og
Haukur Viktorsson.
Ölafur Þ. Þorsteinsson
sjúkrahúslæknir - Sjötugur
Öðru hvoru erum við minnt á
það, hve tíminn er fljótur að líða I
júnímánuði s.l. vorum við
stúdentarnir frá 1926 staddir á
Þingvöllum til þess að minnast 50
ára stúdentsafmælis okkar, og ég
held, að þá hafi okkur flestum
fundizt ævintýralega stutt síðan
við fórum þangað með nýju
stúdentshúfurnar og glöddumst
þar saman, ánægð yfir því að hafa
lokið þessum áfanga og horfðum
með bjartsýni til framtíðarinnar.
Leiðir okkar hafa legið I ýmsar
áttir, og nú hafa margir farið
fram hjá því leiðarmerki á lífs-
leiðinni, sem á stendur 70 ár, og
aðrir nálgast það óðum.
í dag er Ólafur Þ. Þorsteinsson,
yfirlæknir við sjúkrahús Siglu-
fjarðar, sjötugur og staddur í
þessum áfangastað.
Hann er fæddur i Vík í Mýrdal
19. ág. 1906, sonur hjónanna Þor-
steins Þorsteinssonar, sem þá var
verzlunarmaður við Brydesverzl-
un og síðar kaupm. i Vík og
Reykjavík, og Helgu Ólafsdóttur
frá Sumarliðabæ í Holtum.
Standa að Ólafi traustir ættstofn-
ar í báðar ættir. Föðurættin úr
Rangárvallasýslu frá Sumarliða-
bæ í Holtum, Víkingalækjaætt.
Ólafur ólst upp í Vík og hóf þar
undirbúningsnám sitt, en lauk
stúdentsprófi 1926 og árið eftir
1927 fluttust foreldrar hans frá
Vík til Reykjavíkur og settust
fljótlega að á Laugaveg 52, og þar
stofnaði Þorsteinn Verzlunina
Vík, og bendir nafnið á tryggð
hans og þeirra hjóna við litla
þorpið undir Víkurbökkum, og
minntu þau stöðugt á hin góðu ár,
sem f jölskyldan átti þar eystra.
Ólafur lauk kandídatsprófi við
Háskóla íslands 1932 og dvaldist
slðan við framhaldsnám I hand-
lækningum við sjúkrahús í Berg-
en, Kaupmannahöfn og Vínar-
borg. Hann kom heim 1936 og
varð fyrst aðstoðarlæknir á hand-
lækningadeild Landspítalans og
stundaði einnig almennar
laékningar í Reykjavík.
Árið 1942 var Ólafur ráðinn
sjúkrahúslæknir við sjúkrahús
Siglufjarðar og tók við því starfi
eftir fráfall hins vinsæla og vel-
metna læknis Steingríms Einars-
sonar.
Ólafur vann sér fljótt traust og
vinsældir í Siglufirði sem sjúkra-
húslæknir, enda var hann óvenju-
lega vel undir starfið búið, bæði
vel menntaður, traustur og
ábyggilegur i hvívetna. Þá hefur
hann farið nokkrum sinnum utan
til þess að kynna sér nýjungar í
handlækningum og sjúkrahús-
rekstri. Hann hefur verið mjög
farsæll í starfi og hefur það ekki
komið okkur á óvart, sem höfum
þekkt hann frá barnæsku. Það
var mikið happ fyrir Siglufjörð að
fá að njóta starfskrafta hans svo
lengi og vonandi fá Sigfirðingar
nú góðan sjúkrahúslækni, þegar
Ólafur lætur af störfum.
Þegar hann hafði starfað um
skeið í Siglufirði, var honum það
ljóst, að byggja þyrfti þar nýtt
sjúkrahús, og að því vann hann
með ráðum og dáð í nokkur ár og
nú er i Siglufirði ágætt sjúkrahús,
vel búið að lækningatækjum og
þar er því hin bezta aðstaða tii
allrar læknaþjónustu.
Þó að Ólafur hafi helgað sig
læknisstarfinu, fyrst og fremst,
og rækt það af árvekni og
dugnaði, hefur hann einnig verið
góður félagsmaður þar sem hann
hefur komið við sögu. Hann var
lengi formaður Rauða kross deild-
ar Siglufjarðar, og hefur starfað
lengi í Norrænafélaginu og
Rótarýklúbbnum. Þótt hann sé
ekki mikið fyrir ræðuhöld og mál-
skraf yfirleitt, getur hann verið
fyndinn og skemmtilegur ræðu-
maður I samkvæmum, þegar hann
bregður slíku fyrir sig.
Ólafur er kvæntur norskri
konu, Kristine Glatved-Prahl, frá
Alversund við Bergen og eiga þau
tvö börn, Helgu húsfreyju að
Höllustöðum í Blöndudal, gift
Páli Péturssyni alþingismanni, og
Hákon, verkfræðing í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Rögnu Sigurðar-
dóttur Ólafssonar, f. alþingis-
manns.
Frú Kristín hefur samið sig vel
að háttum Islendinga og með
sinni glöðu, alúðlegu og hlýju
framkomu hefur hún fyrir löngu
unnið hugi og hjörtu allra Sigl-
firðinga, og átt drjúgan þátt í
þeim vinsældum, sem Ólafur
maður hennar hefur notið þar öll
þessi ár. Þá hefur frú Kristin
unnið mikið fyrir sjúkrahúsið og
kirkjuna, svo að þess mun lengi
minnzt verða.
Mér þótti það alveg sérstaklega
ánægjuleg ráðstöfun, þegar
Ólafur varð sjúkrahúslæknir í
Siglufirði og leiðir okkar lágu þar
aftur saman, enda var sambandið
milli fjölskyldna okkar náið og
ánægjulegt.
Þegar ég sendi Ólafi lækni,
æskuvini mínum og félaga, konu
hans og fjölskyldu, afmæliskveðj-
ur okkar hjónanna með þakklæti
fyrir öll góð samskipti, þá veit ég,
að ég mæli fyrir munn margra, en
líklega þykir honum nú nóg kom-
ið af „prestamælgi".
Þau hjónin, Kristín og Ólafur,
dveljast um þessar mundir í
Noregi, í Alversund, á æskustöðv-
um frú Kristinar, hjá systkinum
hennar og vandafólki, en í Alver-
sund voru þau gefin saman í
hjónaband fyrir rúmum 40 árum,
og segi menn svo, að sambandið
milli íslands og Noregs sé ekki
traust og gott.
Héðan frá íslandi, bæði að
norðan og sunnan, munu þeim
berast hlýjar afmæliskveðjur með
virðingar og þakklætishug.
Óskar J. Þorláksson.