Morgunblaðið - 26.08.1976, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1976
*
Erhúnkona
— eða karl?
tennissambandið segir, og getur
haft þær afleiðingar að færist mót-
mælin gegn þátttöku hennar I auk-
ana neiti konur að keppa I þeim
flokkum og keppnum, sem hún
kemur við sögu Þær hafa fært þau
rök fyrir máli sínu, að hún hafi bæði
styrk og úthald karlmanns og tækni
sú sem hún beiti beri þess ótvfræð
merki að hún sé enn karlmaður að
hluta
Um síðustu helgi tók Renee þátt I
tenniskeppni í New Jersey og vann
hvern keppinautinn á fætur öðrum
og það svo snaggaralega og snöfur-
mannlega að úr varð hið mesta mál
eins og af þessu má ráða
Aftur á móti eru áhorfendur ekki á
sama máli Einn þeirra lofaði útlits-
fegurð hennar og sagði að enda þótt
hún væri að vlsu óvenju hávaxin
væri hún I fyllsta máta kvenleg og
margar konur sem spiluðu tennis
væru ólfkt karlmannlegri f útliti og
leik en hún.
Vinir Renee sem þekktu hana
meðan hún var karlmaður og léku
þá gjarnan við hann tennis segja að
hún sé töluvert breytt sem karlmað-
ur ..Hún virðist ekki eins sterk og
hún er að vísu mun grennri en hún
var meðan hún var Richard Mér
sýnist hún heldur ekki eins úthalds-
góð og Richard var," sagði einn
forvinur læknisins.
Richard Raskind var kvæntur og á
fjögurra ára gamlan son Þegar sú
þörf hans ágerðist að klæðast kven-
mannsflíkum og hegða sér eins og
kona endaði það með því að þau
hjón skildu Læknirinn lét síðan gera
á sér nefnda aðgerð, tók sér nýtt
nafn og fluttist til Kaliforníu, þar
sem hún vonaði að hún gæti hafið
nýtt líf. Aftur á móti komst upp um
kynskiptin við tenniskeppnina um
helgina og er ekki séð fyrir endann á
því hver niðurstaðan verður Hún
segist vera afskaplega hnuggin yfir
þessu öllu, þar sem hún leiki tennis
af því hún hafi af því hið mesta yndi
og finnst hún órétti beitt ef hún
verður útilokuð frá kvennaflokkun-
um, þvf að f karlaflokkana fær hún
tæpast inngöngu lengur
Hér er hún á fullu
spani I keppninni.
HÚN er hávaxin. björt yfirlitum,
spengileg og með stór brún augu
Andlitsdrættir hennar eru kvenlegir
og hún þykir þokkafull í betra lagi.
Röddin er eilítið dimm Það ber sem
sagt öllum saman um að hún geisli
af kvenlegum yndisþokka
Hún heitir Renee Richards og er
læknir að starfi og frábær tenmsleik-
ari En nú er svo komið að þó svo að
hún vmni í öllum keppnum sem hún
tekur þátt í, eru hafnar heitar um-
ræður um, hvort hún eigi að fá að
taka við verðlaunum f kvennaflokki
Bandarfska tennissambandið hefur
fengið málið til meðferðar
Málið er heitt í betra lagi Ástæð
an fyrir þessu fjaðrafoki öllu f sam
bandi við Renee lækni er einfaldlega
sú að fyrir ári eða svo keppti hún í
karlaflokki og nú vilja konur ekki
una því að hún sópi til sín öllum'
verðlauoum „Ég hef leikið tennis frá
því ég man eftir mér," segir hún og
brosir afsakandi „Mig fýsir mjög að
geta haldið því áfram — og ég er
nokkurn vegmn viss um að ég get
ekki fengið að taka þátt f karla-
flokkunum héðan af Og því skyldi
mér meinað að laika í kvennaflokk-
unum?"
Fyrir ári var gerð á lækninum
aðgerð og karlmanninum Richard
Raskind breytt í kvenmann að eigin
ósk og eftir miklar þrautir sem
Richard hafði liðið í karlhlutverki
sínu, þar sem snemma bar á ólíkt
mein kveneigindum í fari hans en
venjulegt er talið
Aftur á móti er málið hið erfiðasta
viðureignar að því er bandarfska
Hér sést Renee Richards taka við verðlaunum I kvennaflokki en þar
sigraði hún með yfirburðum keppinauta stna. Eftir þá keppni komst upp
um að hún hefði verið karlmaður áður og var dregið t efa að hún hefði nú
rétt til að leika t kvennaflokkunum.
Heimir
Steinsson skólastjóri:
Skóli fyrir
æskufólk á
krossgötum
Margt er skrafað um skólamál
þessi misserin. Raunar er það
engin nýlunda. Fræðslustarf er í
sífelldri deiglu, ekki sízt i þjóðfé-
lagi, sem tekur örum breytingum.
Ekki verður heldur sagt, að um-
ræðan sé tilefnislaus þessu sinni
fremur en löngum endranær. Ný
lög um grunnskóla valda marg-
háttuðum umskiptum. Vaxandi
fjöldi menntaskólanema og stúd-
enta hefur i för með sér ýmiss
konar nýlundu á skákborði skóla-
mála. Fjölbrautaskólar líta dags-
ins ljós, og fleira mætti telja.
Ástæðulaust er að undrast það, er
menn fjölyrða um þessi efni.
Anægjulegt er að verða þess
var, að jafnframt því sem ofan-
greind mál eru rædd, ber enn
annað á góma. Á ég þar við hlut
þeirra nemenda, sem af einhverj-
um ástæðum fengu naumlega un-
að hinu almenna skólakerfi, varð
jafnvel skreipt á skeiðvelli þess.
Tilvist þessara nemenda er engin
nýjung. Hitt kynni að teljast
nokkurt nýmæli, að hag þeirra er
vaxandi gaumur gefinn.
Nú er það alkunna, að allstór
hópur ungmenna hefur um langt
skeið numið staðar á námsbraut
að loknu skyldunámi, gagnfræða-
prófi eða stúdentsprófi. Á stund-
um er það takmarkaður námsár-
angur, sem veldur þessu tiltæki.
Ef til vill er þó oftar um að ræða
eitthvað annað: Skólaleiða,
óánægju með námstilhögun og
síðast en ekki sfzt efasemdir um
það, hvern kostinn hlutaðeigandi
skuli upp taka. Þessar efasemdir
eiga oft og einatt rætur að rekja
til öryggisleysis og jafnvel van-
mats á eigin getu, samfara þvi, að
nemandinn gerir margt það að
álitamáli, sem öðrum virðist ein-
sætt.
Hér er ekki ætlunin að veitast
að ,,kerfi“ þvi, sem hverjum þykir
hægast að hafa að skotspæni. Má
vera, að „kerfið" sé gallað. Hugs-
anlegt er og, að aldrei verði upp-
fundið kerfi, sem öllum hentar.
Staðreyndin er sú, að drjúgur
hluti íslenzkra æskumanna unir
kerfinu og rennur skeið^sitt á
enda, snurðulítið. Hitt er einnig
óhaggað, að þeir eru margir, sem
ekki fylla síðast greindan flokk.
Spurning vaknar: Hvað er unnt
að gera fyrir þetta fólk?
Eins og gefið var í skyn framar
í þessu máli hefur slik spurning
lítt verið rædd þar til hin siðustu
ár, a.m.k. ef borið er saman við
aðra þætti skólamála. En nú er
svo komið, að æ fleiri taka til máls
af þessu tilefni. Vandinn er dreg-
inn fram af umtalsverðri einurð:
Hvernig skal brugðizt við þörfum
þess æskufólks á öllum aldri, sem
stendur á krossgötum af einu eða
öðru tilefni og fær ekki nýtt
námsbrautir skólakerfisins mis-
kviðalaust?
Eiginlega kveikju þessa grein-
arkorns er að finna í þætti þeim,
sem fluttur var i sjónvarpi „að
kvöldi dags“ sunnudaginn 15. ág-
úst. Þar var fram borin raunsæ
lýsing á nauðsynjum nokkurra
þeirra æskumanna, sem ég hér
hef gert að umtalsefni, ásamt
undanbragðalausri kröfu til
þeirra, er að uppeldis- og fræðslu-
málum starfa. Þessi þáttur var
hinn þarfasti, og skylt er að
þiggja hann þakksamlega.
Heimir Steinsson.
Önnur orsök þess, að ég er setzt-
ur við skriftir, er sú, að í fram-
haldi af nefndum sjónvarpsþætti
þykir mér við hæfi að benda
nokkrum orðum á starfsemi þá,
sem fram fer innan veggja Lýðhá-
skólans í Skálholti. Þar hefur nú
um fjögurra vetra skeið verið
haidið uppi skólastarfi, er að því
miðar að létta róðurinn æskufólki
á krossgötum. Raunar sniður hús-
næði stofnun þessari svo tak-
markaðan stakk, að hennar sér
lítinn staðinn I hópi fjölmargra
framhaldsskóla, sem flestir eru
mun stærri en Skálholtsskóli. En
sé eitthvað hæft í því, sem sagt er,
að afdrif hvers einstaklings skipti
nokkru og það jafnvel þótt heild-
inni ekki verði áleiðis snúið í svip,
má ætla, að starf þetta hafi ekki
með öllu verið unnið fyrir gýg.
Lýðháskólinn í Skálholti hefur
eftir föngum starfað í anda norr-
ænna lýðháskóla. Hann er lýð-
skóli, þ.e. opinn öllum, er þangað
leita og náð hafa tilskildum aldri,
— án tillits til prófa eða fyrri
skólagöngu. En hann er jafnframt
háskóli í skandinavískri og jafn-
vel engilsaxneskri merkingu þess
orðs. Hann er m.ö.o. ætlaður nem-
endum, sem komnir eru af barns-
aldri. Kennsluaðferðir eru svo
sem framast má verða miðaðar
við sjálfstæð vinnubrögð þrosk-
aðra karla og kvenna. Valfrelsi er
ríkjandi á skólanum og það svo
mjög, að á að gizka fjórir fimmtu
hlutar vikulegra kennslustunda
eru undirorpnir úrskurði nem-
enda hvers um sig. I lok skólaárs
eru ekki’ tekin próf, heldur út-
skrifast nemendur með námsfer-
ilsvottorði og umsögn, sé um hana
beðið. Rikuleg áherzla er lögð á
samfélag allra þeirra, er skólan-
um tengjast. Reynt er að beita
persónulegri leiðsögn varðandi
nám, starfsval og undirbúning
undir frekari skólagöngu.
Tilhögun þessari er likt og er-
lendis ætlað að verða þeim að
gagni, er telja sig þarfnast ein-
hverrar þeirrar þjónustu, sem hið
almenna skólakerfi ekki fær látið
þeim í té. Þegar vel tekst til um