Morgunblaðið - 26.08.1976, Blaðsíða 29
MORC.UNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. AGUST 1976
29
fclk í
fréttum
Popp og
póiitík
+ Paul McCartney og hljóm-
sveitin Wings fá nú tækifæri til
að komast á vinsældalistann f
Sovétrfkjunum. Samið hefur
verið um að platan „Band on
the Run“ verði gefin út þar
austur frá en hún hefur selzt f
milljónum eintaka vfða um
lönd. Sagt er að þessi atburður
marki þáttaskil f sambúð aust-
urs og vesturs og eigi, ef fram-
hald verður á, eftir að hafa
meiri áhrif en allir aðrir samn-
ingar stjórnmálamanna saman-
lagðir.
+ Danir stunda mikið sólböð
og sjóböð en nú er hætt við að
heldur fari að draga úr bað-
stranarferðum þar f landi. Svo
mikil mengun er nú orðin við
strendur Danmerkur, einkum
við Ausfur-Jótland, að það get-
ur beinlfnis verið Iffshættulegt
að baða sig upp úr skolpinu.
Það er þó einkum sérstök þör-
ungategund sem er hvað hættu-
legust og svo eitruð er hún að
fiskur sem kemst f tæri við
hana drepst unnvörpum. Af
þessum sökum hafa yfirvöld
sett upp þetta nýja bannmerki
sem sést hér á myndinni og ef
ekkert verður að gert á það
eftir að skjóta upp kollinum á
æ fleiri stöðum.
+ „Garður er granna sættir"
segir máltækið en veggur virð-
ist ekki koma að sömu notum
+ Raymond Burr, sem
þekktur er úr sjónvarp-
inu sem Ironside og
Perry Mason, hefur nú
fengið aðalhíutverkið í
nýjum sjónvarpsmynda-
flokki sem kvað vera
dæmigerður fyrir nýj-
ustu dilluna fyrir vestan.
Nú þykir ekkert gaman
að hlutunum nema þeir
gerist á ritstjórnarskrif-
stofum dagblaða og á
Burr að vera aðalrit-
stjóri.
þvf að kona ein f Danmörku
sem býr f íbúð sem liggur að
veitingahúsi hefur nú kært
starfsemi þess fyrir umhverfis-
málaráðinu.
Segir hún að svo mikið gangi
á þegar buffið sé barið að henni
komi ekki blundur á brá. 1
fyrstu var kæru kerlingar vfsað
frá en hún gafst ekki upp við
svo búið og að lokum var ákveð-
ið að gerðar yrðu hávaðamæl-
ingar f fbúðinni.
Meðan á öllu þessu stfma-
braki stóð flutti veitingamaður-
inn buffborðið frá veggnum og
vonast til að hafa með þvf leyst
málið f eitt skipti fyrir öll.
Ynl Brjnner og konnngnrinn
+ Fyrir um aldarfjórðungi lék
Yul Brynner aðalhlutverkið f
söngleiknum „Konungurinn og
ég“ sem mikilla vinsælda naut
á sfnum tfma.
Nú er verið að kvikmynda
þennan söngleik að nýju og
verður Brynner áfram f sfnu
gamla gervi sem konungurinn f
Sfam.
Við fyrri töku myndarinnar
tók það Yuf tvo tfma að fklæð-
ast gervi konungsins „en nú
t.ekur það skemmri tfma,“ segir
Yul, „nú er ég konjjltn á réttan
aldur fyrir hlutverkið."
1065
1077
1081
1090
1023
1026 1029
1029 F
1031
■Q
1039 1060
1060 A
KRANAR
FYRIR VATN, GUFU OG OLÍU
1/4"-8 JAFNAN
FYRIRLYGGJANDI
VALD. POULSENI
KLAPPARSTÍG 29 — SÍMAR: 13024 - 15235
SUÐURLANDSBRAUT 10 —: 38520-31142