Morgunblaðið - 01.09.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1976
I Isianflsmóflð 2. delld I
REYNIR - VÖLSUNGUR 1:2
REYNIR missti endanlega von-
ina um að losna úr botnsætinu f 2.
deild á föstudag þegar liðið tap-
aði fyrir Völsungum með tveimur
mörkum gegn einu á heimavelli
sfnum að Arskógi. Það er þó ekki
þar með sagt að Reynir hafi
endanlega misst af möguleikan-
um á að halda sæti sfnu f deild-
inni, þvf félagið á rétt til að leika
um tvö laus sæti f deildinni ásamt
liðum númer tvö og þrjú f þriðju
deild.
Leikurinn að Árskógi á föstu-
dag var annars fremur jafn þó svo
að Völsungarnir væru öllu sterk-
ari. Það var kappinn kunni,
Hreinn Elliðason, sem náði foryst-
unni fyrír Völsung þegar um 15
mín. voru af leik. Magnús Torfa-
son tók þá vítaspyrnu, spyrnti í
stöng og Hreinn fylgdi vef og
skoraði. Tíu mínútum síðar jafn-
aði Jón Gunnlaugsson fyrir Reyni
með góðu skoti eftir hornspyrnu
og þannig var staðan í leikhléi. í
siðari hálfleiknum var hart barizt
og leit lengi vel út fyrir að úrslit-
in væru ráðin, en um tíu mín.
fyrir leikslok sá Magnús Torfason
um að svo fór ekki. Hann skoraði
þá af stuttu færi eftir að þvaga
hafði myndazt í teig Reynis. Völs-
ungarnir eru nú i þriðja til fjórða
sæti í deildinni ásamt Ármanni
þegar ein umferð er óleikin. Völs-
ungarnir geta vel við unað eftir
fremur slaka byrjun í mótinu i
vor. Það er greinilegt að hinn
ungi, skozki þjálfari, Joe Mckinn-
er, hefir verið þeim betri en ekki
neinn. Sigb.G.
SELFOSS—HAUKAR 4—3
SELFYSSINGAR og Haukar léku
í 2. deildar keppni Islandsmóts-
ins f knattspyrnu um helgina og
fóru leikar þannig að Selfoss
sigraði í leiknum 4—3, eftir að
staðan hafði verið 1—0 fyrir
Ilauka f hálfleik.
Leikurinn mótaðist mjög af því
að hvasst var í veðri er hann fór
fram. Léku Haukar undan
strekkingnum í fyrri hálfleik og
voru þá meira í skókn. Samt sem
áður tókst þeim aðeins að skora
eitt mark, og gerði það Sigurður
Aðalsteinsson á 12. mínútu.
Selfyssingar jöfnuðu strax á 2.
mínútu seinni hálfleiks og var
það markakóngur þeirra, Sumar-
liði Guðbjartsson, að verki. Ekki
leið þó á löngu unz Haukar náðu
aftur forystu í leiknum með
marki Sigurðar Aðalsteinssonar,
en Halldór Sigurðsson jafnaði
fyrir Selfoss og færði liði sínu
forystu með öðru marki skömmu
síðar. Undir lok leiksins jafnaði
Ölafur Torfason fyrir Hauka en
Guðjón Arngrímsson, Sel-
fyssingur, átti síðasta orðið í þess-
um mikla markaleik og skoraði
sigurmark liðs síns.
KA - ÍBV 1:5
VESTMANNEYINGAR tryggðu
sér endanlega setu í 1. deild á ári
með því að sigra KA örugglega
með fimm mörkum gegn einu á
Akureyrarvelli á sunnudag. Sigur
ÍBV f 2. deildinni 1976 er sannar-
lega glæsilegur. Þegar Vest-
mannaeyingarnir eiga einum leik
ólokið f deildinni hafa þeir ekki
lapað leik, en gert tvö jafntefli. I
þessum 15 leikjum sfnum hafa
þeir skorað 62 mörk en aðeins
fengið á sig 11. Glæsilegra getur
það vart verið.
Leikurinn á sunnudag á Akur-
eyri var annars ekki mjög ójafn
framan af. Bæði liðin áttu sin
tækifæri þó færi ÍBV hafi ef til
vill verið öllu hættulegri. Það var
þó ekki fyrr en á 30. mín sem
fyrsta markið var skorað. Það var
Örn Óskarsson, markakóngur
Eyjamanna i ár, sem skoraði með
þrumuskoti. Skömmu síðar skor-
aði Sveinn Sveinsson eftir að
Snorri Rútsson, sem var greini-
lega rangstæður, hafði gefið á
hann. Stuttu síðar var Örn aftur á
ferðinni, þegar hann skoraði úr
vítaspyrnu, sem dæmd var eftir
að Tómas Pálsson hafði verið
felldur innan vítateigs. Og þannig
var staðan í leikhléi. í sfðari hálf-
leiknum voru Vestmanneyingarn-
ir mun sterkari aðilinn á vellin-
um. Þeir bættu fjórða marki sínu
við þegar um tíu mín. voru af
hálfleiknum og var það Viðar
Eliasson. Næsta orðið átti Gunnar
Blöndal þegar hann „stal“ boltan-
um af Þórði Hallgrímssyni og
skoraði örugglega, fjögur gegn
einu. Siðasta markið skoraði siðan
Sigurlás Þorleifsson þegar um tíu
mínútur lifðu af leiknum.
Sigur ÍBV i þessum leik var í
senn öruggur og sanngjarn og
enginn efast um að þeir hafa
sterkasta liðinu á að skipa f 2.
deildinni Liðið er nokkuð jafnt
að getu, þó svo leikmenn hafi
nokkuð mismunandi hlutverkum
að gegna. Þannig má segja að
spilið byggist upp í kring um
miðjumenninga, Svein, Snorra og
Viðar að Tómasi Pálssyni, hinum
stórskemmtilega leikmanni,
ógleymdum. Örn, Sigurlás og
Tómas sjá um mörkin og vörn og
markvörður sjá um sitt eins og
markatalan ber með sér. ÍBV hef-
ir á að skipa stórgóðum leikmönn-
um sem sannarlega gætu sett
strik í reikninginn í 1. deildinni
að ári.
Það verður ekki annað sagt en
að lið KA hafi valdið mönnum
miklum vonbrigðum i ár. Margir
höfðu trú á því að liðið mundi
blanda sér í baráttuna á toppin-
um, en önnur varð raunin á. Lið
sem hefir jafn reyndum knatt-
spyrnumönnum á að skipa og KA
hefði átt að ná meira en 14 stigum
úr 16 leikjum í 2. deild.
Sigb.G.
5lff■
Atli Eðvaldsson hallar undir flatt f baráttunni við Hinrik Þórhallsson
og fleiri Blika f leiknum f gærkvöldi. (Ijósm. Friðþjófur).
Úrslit í
3. deild
íkvöld
i KVÖLD fer fram á Melavellin-
um úrslitaleikur 3. deildar is-
landsmótsins í knattspyrnu og
eigast þar við lið Aftureldingar og
Reynis. Hefst leikurinn kl. 18.30.
Það lið sem sigrar i leiknum leik-
ur í 2. deild næsta sumar, en það
lið sem tapar mun keppa um laust
sæti í 2. deild við lið Þróttar frá
Neskaupstað og Reynis frá
Árskógsströnd. Mun sú keppni
fara fram á Eskifirði dagana
10. —12. september n.k.
Þá á eftir að fara fram leikur
milli Þróttar, Reykjavik — neðsta
liðsins í 1. deild — og Þórs frá
Akureyri, sem verður I 2. sæti f
annarri deild, um laust sæti I 1.
deild að ári. En hefur ekki verið
endanlega ákveðið hvar né
hvenær sá leikur fer fram, en að
öllum líkindum verður leikurinn
11. september. Hafa Þorsarar ósk-
að eftir þvi að leikurinn færi
fram á Akureyri og verði svo er
ekki ólíklegt að nokkrar tekjur
fengjust af honum.
Talan núllvar beztviö hæfi
ÞÓTT það komi sér illa fyrir alla og
setji mótanefnd KSÍ I hin mestu
vandræði þá verður að segjast ins og
er að talan núll var bezt við hæfi f
leik Vals og Breiðabliks f undanúr
slitum bikarkeppni KSÍ f gærkvöldi.
Sennilega hefur þetta verið einn
slakasti leikurinn sem fslenzk 1.
deildar lið hafa leikið f sumar, þar
sem hugsað var um eitt að sparka
sem hæst og sem lengst allt frá
upphafi til enda Og það sem alvar
legra verður að teljast: Annað þess-
ara liða er íslandsmeistari f knatt-
spyrnu 1976.
Ef eitthvað var, þá var Breiðablik
heldur betra liðið I leiknum í gærkvöldi
og í þau sárafáu skipti sem knöttuninn
gekk nokkrum sinnum milli samherja
var það milli Breiðabliksmanna Auk
þess var svo miklu meiri barátta f
Breiðabliksliðinu en Valsliðinu og má
vera að það hafi ráðið því hvernig
leikurinn lékst — Valsmenn virðast
nefnilega þola illa mikla baráttujaxla á
móti sér, þeir þurfa drjúgan tíma til
þess að byggja upp spil sitt, og þegar
þeir fá hann ekki þá er greinilega lítið
annað í pokahorninu
Það var aldrei ástæða til þess að taka
minnisbókina úr vasanum í gærkvöldi
til þess að skrá hjá sér sérstaklega
hættuleg marktækifæri, — þau komu
aldrei i þessum 120 mínútna langa
leik Lengst af þæfðist knötturinn milli
mótherja á vallarmiðjunni eða var þá
utan vallar í þau örfáu skipti sem á
reyndi vörðu svo báðir markverðirnir,
Sigurður Dagsson og Ólafur Hákonar-
son, af öryggi
Erfitt er að nefna einn leikmann
öðrum skárri í þessum leik Hjá Vals-
mönnum sýndi Bergsveinn Alfonsson
einna helzt eitthvað af sér og reyndi í
það minnsta að berjast svolltið Og hjá
Breiðablik voru þeir Þór Hreiðarsson
og Einar Þórhallsson einna skástir
Við eigum góóa möguleika
í leiknum við Belgíumenn
- sagði Ellert B. Schram, er íslenzka landsliðið var tilkynnt
— VIÐ erum hvergi bangnir aó
þessu sinni og gerum okkur
góðar vonir um að okkar menn
gefi mótherjunum ekki
mikiðeftir, þótt við vitum auð-
vitað, að þarna er um að ræða
frábært landslið, og m.a. liðið
sem hlaut silfurverðlaun í síð-
ustu heimsmeistarakeppni,
sagði Ellert B. Schram for-
maður Knattspyrnusambands
íslands á fundi með frétta-
mönnum í gær, er .tilkynnt var
valið á fslenzka landsliðinu sem
á að leika við Belgíumenn á
Laugardalsvellinum á sunnu-
daginn í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu. — Við teljum okkur nú
tefla fram sterkara liði en
nokkru sinni fyrr. og það segir
t.d. sína sögu að Belgíumenn
óttast okkur mjög mikið og hafa
gert það sem þeim reyndist
unnt að gera til þess að búa sitt
lið undir leikinn á sunnudaginn
og aðrir mótherjar okkar í þess-
um riðli munu fylgjast með
leiknum á sunnudaginn.
Islenzka liðið
lslenzka landsliðið sem
leikur við Belgfumenn á sunnu-
daginn verður þannig skipað
(tala landsleikja viðkomandi
leikmanna f sviga):
Arni Stefánsson, Fram (9)
Sigurður Dagsson, Val (13)
Ólafur Sigurvinsson, IBV (23)
Marteinn Geirsson, Royale
Union (31)
Jóhannes Eðvaldsson, Celtic
(18)
Jón Pétursson, Fram (17)
Gfsli Torfason, IBK (21)
Halldór Björnsson, KR(8)
Guðgeir Leifsson, Charleroí
(32)
Asgeir Sigurvinsson, Standard
Liege (15)
Asgeir Elfasson, Fram (23)
Arni Sveinsson, ÍA (9)
Ingi Björn Albertsson Val (6)
Matthfas Hallgrfmsson ÍA (41)
Teitur Þórðarson, ÍA (23)
Guðmundur Þorbjörnsson, Val
(3)
Svo sem sjá má af upp-
talningu þessari koma fimm at-
vinnumenn til leiksins, þeir
Marteinn, Jóhannes, Guðgeir,
Matthías og Ásgeir Sigurvins-
son. Um tfma leit út fyrir að
þeir gætu ekki Ieikið með og
mun Jóhannes Eðvaldsson ekki
koma til leiksins fyrr en á
síðustu stundu. Hinir atvinnu-
mennirnir koma hins vegar á
fimmtudag og verða þvf með í
undirbúningi liðsins en lands-
liðið mun dvelja á Þingvöllum
við æfingar frá föstudegi og
unz leikurinn á sunnudaginn
hefst kl. 18.15.
Gífurlega mikill áhugi virðist
vera á leik þessum vfða um
lönd og má það t.d. marka af
því að hingað koma á þriðja tug
erlendra blaðamanna til þess að
fylgjast með leiknum.
Þriðja sinn f HM
Þetta er i þriðja sinn sem
íslendingar taka þátt í heims-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu. Fyrst tók ísland þátt i
undankeppninni 1957 og voru
mótherjar okkar þá Belgfu-
menn og Frakkar. Leikirnir við
Belgfu töpuðust 2—5 á Laugar-
dalsvellinum og 3—8 úti í
Belgíu, en leikirnir við Frakka
töpuðust 3—5 á Laugardals-
vellinum og'0—8 úti í Frakk-
landi.
Næst tók Island svo þátt í
undankeppninni 1972 og voru
þá með Hollendingum, Belgíu-
mönnum og Norðmönnum f
riðli. Lék ísland þá heimaleiki
sína við Holland og Belgíu ytra,
en við Norðmenn heima og
heiman. Urslit i leikjunum
urðu: Island — Holland 1—8 og
0—5. tsland — Belgía 0—4 og
0—4 og ísland — Noregur 0—4
og 1—4.
— En nú erum við ákveðnir i
að standa okkur betur en til
þessa f heimsmeistarakeppn-
inni, sagði Ellert B. Schram og
við erum þess fullvissir að
okkar lið á góða möguleika í
leiknum við Beígiumenn á
sunnudaginn.