Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 1
32 SIÐUR OG LESBOK
204. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Eivind Bolle sjávarútvegsráðherra, Jens Evensen hafréttarmálaráðherra, Odvar
Nordli forsætisráðherra og Knut Frydenlund utanrfkisráðherra.
Símamynd AP
Noregur:
200 mílurnar fyrir
þingið á næstunni
Ösló 3. september AP—NTB.
ODVAR Nordli forsætisráðherra Noregs tilkynnti á
blaðamannafundi í Óslð í dag ásamt Knut Frydenlund
utanríkisráðherra, Jens Evensen hafréttarmálaráðherra
og Eivind Bolle sjávarútvegsráðherra að norska stjðrnin
myndi leggja fram frumvarp á þingi um 200 mílna
efnahagslögsögu.
Zurichfundurinn:
Ekki kom fram á fundinum
hvenær Stórþingið myndi ræða
frumvarpið, en Nordli sagði, að
það yrði í náinni framtíð. Nordli
sagði á fundinum, að þetta frum-
varp væri mikilvægasta skrefið,
sem Norðmenn hefðu til þessa
stigið í átt að setningu 200 mílna
efnahagslögsögu. Nordli sagði, að
stjórnin myndi taka ákvörðun um
frumvarpið mjög fljótlega eftir að
fundi hafréttarráðstefnunnar í
blóð-
New York lyki. Forsætisráðherr-
ann sagði að stjórnin myndi skoða
Framhald á bls. 21
Vorster bjartsýnn
ugar óeirðir í Höfðaborg
Ziirich 3. september AP— Reuter.
# ÞEIR John Vorster, forsætisráðherra S-Afrfku, og Henry Kissinger,
utanrfkisráðherra Bandarikjanna, heldu f dag frá heimalöndum sfn-
um áleiðis til Ziirich f Sviss, þar sem þeir munu ræðast við f þrjá daga
um vandamál suðurhluta Afrfku. Vorster sagði við brottförina frá
Jóhannesarborg, að hann væri bjartsýnn á að árangur yrði af viðræð-
unum. Á sama tfma og Vorster hélt úr landi beittu lögreglumenn f
Höfðaborg haglabyssum, táragasi og kylfum til að dreifa hundruðum
unglinga, sem efndu til óeirða f hjarta borgarinnar til að mótmæla
kynþáttamisrétti. Óstaðfestar fregnir herma að einn unglingur hafi
fallið fyrir haglabyssuskoti. Þetta er annar dagurinn f röð, sem
blóðugar óeirðir brjótast út f Höfðaborg, en f gær féllu þar tveir menn
f átökum við lögreglu og tugir særðust. 280 manns hafa nú fallið f
óeirðunum f S' Afrfku á sl. 11 mánuðum.
Stjórnmálafréttaritarar benda
á að Kissinger hafi í síðustu viku
fordæmt aðskilnaðarstefnuna og
sagt að hún samræmdist í engu
skilningi manna á mannlegri virð-
ingu og því hljóti brottför Vorster
með blóðugar óeirðir að baki hon-
um að hafa orðið honum erfið.
Vorster minntist ekki einu orði á
óeirðirnar er hann ræddi við
fréttamenn við brottförina frá S-
Afríku.
Aðstoðarmenn Kissingers sögðu
við fréttamenn á leiðinni yfir haf-
ið, að ráðherrann myndi ræða
óeirðirnar í S-Afríku við Vorster,
en lögðu áherzlu á að helztu við-
ræðuefnin myndu verða framtíð
Namibíu og Rhodesíu.
Carter—Ford:
52%:37%
New York 3. september — NTB
NÝ skoðanakönnun sýnir að for-
setaefni demókrata i Bandarfkj-
unum, Jimmy Carter, hefur aukið
forskot sitt yfir keppinaut sinn,
Gerald Ford, forseta. Carter nýt-
ur nú stuðnings 52% kjósenda á
móti 37%, sem styðja Ford. Fyrir
aðeins viku var bilið á milli þeirra
minna og fylgdu 49% þá Carter
en 39% Ford.
Stjórnmálafréttaritarar í
Jóhannesarborg sögðu I dag að
góðar likur væru taldar á að um-
talsverður árangur yrði af fundi
ráðherranna um Namibíu, en sem
kunnugt er hafa Sameinuðu þjóð-
irnar krafist þess að S-Afríka láti
af 60 ára yfirráðum sinum yfir
Namibiu. Meiri óvissa rikti um
Rhódesíu, þar sem Ian Smith og
stjórn hans hafa narðneitað að
láta blökkumönnum eftir stjórn
landsins þrátt fyrir vaxandí j því yfir að hann muni ekki taka
skæruliðastarfsemi og versnandi við neinum utanaðkomandi skip-
efnahagsástand. Hvað S-Afríku unum um hvernig hann stjórni
sjálfa snertir hefur Vorster lýst | landi sínu. Framhald á bls. 18
Víkingur
II lentur
á Mars
Pasadena Kaliforníu
3. september AP.
GEIMFARIÐ Vikingur II lenti
á Mars skömmu fyrir miðnætti
I nótt og segja vísindamenn í
Kaliforníu, að lendingin hafi
tekizt vel. Hins vegar sendi
geimfarið engar myndir eða
visindalegar upplýsingar, þar
sem samband við geimfarið
bilaði og varð mjög slitrótt, er
það yfirgaf móðurskipið og fór
inn til lendingar. Var algert
sambandsleysi fyrstu 45 min-
úturnar, eftir að Víkingur
lagði af stað niður á yfirborð
Mars, en slitrótt samband náð-
ist síðan. Vísindamenn sögðu,
að ekki væri jóst, hvert ásig-
komulag geimfarsins er, fyrr
en eftir 14—24 klst.
Kúbumenn í liði
Palestínumanna
Parfs 3. september Reuter.
MIXIMOS Hakim leiðtogi grísk-
kaþólskra I I.íbanon sagði í við-
tali við Franska blaðið Le Figaro
I dag, að kúbanskir hermenn,
sumir komnir beint frá Angóla,
berðust með Palestfnumönnum í
Líbanon.
Sagði Hakim að nokkrir Kúbu-
menn hefðu verið handteknir.
Hann sagði, að margir útlending-
ar berðust með Palestinumönnum
auk Kúbumannanna, m.a.
Pakistanar, Irakmenn o.fl. Hakim
sagði, að ef Sýrlendingar hefðu
ekki gripið í taumana myndu
Palestínumenn ásamt þessum út-
lenzku hermönnum hafa slátrað
50 þúsund Líbönum til viðbótar
við þá, sem þegar hafa fallið.
Elias Sarkis, kjörinn forseti
Líbanons, ræddi í dag við leiðtoga
deiluaðila í Líbanon, eftir að
heimildir hermdu að yfirvöld í
Sýrlandi hefði samþykkt áætlun
hans um endalok borgarastriðs-
Framhald á bls. 18
Flugvélakaup aldarinnar:
Bernharð reyndi að
hafa áhrif á Schmidt
Haag 3. september — Ntb.
BERNHARD prins af Hollandi, sem nú liggur undir grun um að
hafa þegið mútur frá bandarísku flugvélaverksmiðjunum
Lockheed, hafði fyrir nokkrum árum samband við Helmut
Schmidt, kanslara Vestur-Þýzkalands, til að ræða við hann um
flugvélakaup, samkvæmt upplýsingum hollenzka varnarmála-
ráðuneytisins í gær.
Bernhard reyndi að fá kaup þýzka flughersins á F-17
Schmidt, sem þá var varnar- Cobra orrustuflugvélum frá
málaráðherra, til að samþykkja Northrop-verksmiðjunum I
Bandarikjunum. Þessi flugvél
var ein þeirra, sem komu til
greina I hinum svo kölluðu
„flugvélakaupum aldarinnar“,
þegar Holland, Danmörk,
Belgía og Noregur ætluðu áð
gera sameiginleg kaup á
orrustuflugvélum sem skyldu
koma í stað F-104 Starfighter.
Framhald á bls. 21