Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 25 fclk f fréttum Leirmyndir og lœrdómur + HANN Carl Sferrazza er 17 ára gamall og leggur stund á sögu, einkum sögu sfns heima- lands, Bandarfkjanna. Þó að Bandarfkin séu vart af barns- aldri sem sjálfstæð þjóð hafa þó 37 menn gegnt forsetaemb- ætti þar f landi og það vildi stundum vefjast fyrir Carli að henda reiður á þeim og muna hvað hver hefði gert eða sagt. Carl sá að við svo búið mátti ekki standa og tók sig þvf til og mótaði f leir alla forsetana, og ekki aðeins þá heldur konur þeirra Ifka. Nú sækist Carli námið miklu betur. Þegar hann les um ein- hvern tiltekinn forseta stillir hann forsetahjónunum upp fyrir framan sig og gýtur til þeirra hornauga öðru hverju og nú er svo komið að hann veit ekki aðeins hvað drifið hefur á daga hvers og eins heldur standa forsetarnir honum Ijós- lifandi fyrir hugskotsjónum. Þetta framtak Carls hefur vakið mikla athygli vestra og gætum við ef til vill einnig tek- ið það okkur til fyrirmyndar við sögukennslu, einkum kennslu Islandssögu. Sophia brýt- ur odd af oflœti sínu + FVRIR 34 árum hét Sophia Loren' sjálfri sér þvf að Ifta föður sinn aldrei oftar augum en fyrir nokkrum dögum ákvað hún að brjóta odd af oflæti sfnu og vitja hans deyjandi á sjúkrahúsi f Róm. Astæðan fyrir þessari heitstrengingu Sophiu er sú að faðir hennar yfirgaf þær systur, Mariu og Sophiu, og móður þeirra og tók saman við aðra konu, og átti með henni tvo syni. Seinna, þegar Sophia var orðin fræg og fjáð leitaði faðir hennar til hennar og bað um hjálp f fjárhagserfiðleikum sem hann átti við að strfða en Sophia sagði þvert nei. Það var seinni kona föður þeirra sem fékk talið Sophiu og systur hennar á að koma til sjúkrahússins og sagði hún að hann óskaði þess eins að biðja þær fyrir- gefningar á því mótlæti sem þær hefðu orðið að þola af hans völdum. + ÞÓ AÐ frægðarsól enska popparans Cliff Richards sé að ganga til viðar á Vesturlöndum er hún enn f hádegisstað fyrir austan járntjald. A hljómleik- um sem Cliff hélt I Leningrad fyrir skömmu var hrifning áhorfenda svo mikil að þeir reyndu að ryðjast upp á sviðið til hans. Rússnesk yfirvöld báðu Richard margfaldlega af- sökunar og lofuðu þvf að hans skyldi betur gætt framvegis. + EKKI fer allt sem ætlað er og hann mátti reyna það leikarinn George C. Scott sem brá sér til Englands á dögunum til að leika golf með þeim frægu mönnum Bing Crosby og Sean Connery. George fékk sér full- mikið f staupinu og lagði hótel- herbergið f rúst, neitaði að borga reikninginn og hélt heim á leið f miklu fússi. + SYLVIA Kristel, sem kunn- ari er sem Emmanuelle, segir f viðtali við franskt blað, að klámbylgjan muni fjara út á næsta ári. Kristél hefur þó sam- ið um að leika I tveimur mvnd- um til viðbótar. Ljósmæðrafélag Reykjavíkur hefur happdrætti, fatamarkað og kökubasar í félagsheimilinu í Hveragerði næsta hús við Eden, sunnudaginn 5. september kl. 1 eftir hádegi. Stjórnin. Vélaverkstæði til sölu vegna sérstakra ástæðna er smávélaverkstæði til sölu eða leigu. Verkstæðið er á góðum stað í Reykjavík og með góð þjónustusambönd. Þeir, sem hafa áhuga, leggi inn á blaðið nafn, og heimilisfang fyrir 10. sept. merkt: „trúnaðar- mál 6200". Messa í Dómkirkjunni Séra Hannes Guðmundsson, sem sækir um annað embætti í Dómkirkjuprestakalls, messar í Dómkirkjunni sunnudag 5. sept. kl. 1 1 árdegis. Guðsþjónustunni verður útvarpað á mið- bylgjum 1412 kiloherts eða 212 metrum. Sóknarnefnd Dómkirkjunnar. þusundir metra hlægilegt veró , Í þ°RUkssom Skúlagötu 30_ 5- . * MOROMAMM H.E,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.