Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Handavinnukennarar:
Vilja fleiri tíma í hann-
yrða- og smíðanámi
I fréttatilkynningu, sem Mbl.
hefur borizt frá Handavinnu-
kennarafélagi íslands segir, aö
Sýning í
Þrastarlundi
félagið vilji taka það fram, að í
inngangsorðum hinnar nýju nám-
skrár sé gert ráð fyrir, að grein-
ing nemenda eftir kynjum í hann-
yrða- og smiðanámi verði úr sög-
unni eins fljótt og aðstæður leyfa.
Segist félagið vera hlynnt því, að
samkennsla komist á, en þá með
þeirri tilhögum, að kennslutímum
fjölgi í samræmi við aukin nem-
endafjölda og námsefni.
Þá segir, að til þess að nemend-
ur fái lágmarksþekkingu í þessu
námi sé þeim nauðsynlegt að fá
tvær kennslustundir á viku vetr-
arlangt ígreinunum.
LAUGARDAGINN 4. sept. hófst
sýning í Þrastarlundi við Sog, og
mun hún standa til 17. sept.
Á sýningunni eru teikningar
eftir Hreggvið Hermannsson, alls
þrjátíu. Eru stjörnumerkin meg-
inuppistaða þessarar sýningar en
aðrar eru einfaldar mannlífs-
myndir.
Njadorf tefl-
ir f jöltefli
STÖRMEISTARINN Miguel Naj-
dorf frá Argentínu mun tefla fjöl-
tefli á vegum Sambands íslenzkra
bankamanna í samkomusal Út-
vegsbankans n.k. miðvikudag, 8.
september, klukkan 19. Najdorf
mun tefla á 30—40 borðum við
bankamenn og eiga menn að hafa
með sér skákborð og taflmenn.
; ¦' ;
Sýnir í Hamragörðum
ANTON Einarsson opnaði mál-
verkasýningu að Hamragörðum
laugardaginn 4. september.
Sýningin verður opin frá kl.
2—10 um helgar og 4—10 virka
daga. Sýningin verður opin til
sunnudagsins 12. september.
Alls eru 35 myndir á sýning-
unni og er þetta úrklippu- og
vatnslitamyndir og teikningar.
Þetta er fyrsta sýning Antons,
og eru myndir hans flestar unn-
ar á þessu ári.
Gæti orðið
þurrkur á
sunnudag
ÞEIR dagar sumarsins, sem
bændur á Suður- og Vesturlandi
hafa getað unnið við heyskap,
hafa verið næsta fáir vegna
óþurrka. Þá sjaldan þurrkur hef-
ur verið hefur hann oft verið yfi?
helgarnar en þá eru varahluta-
verzlanir lokaðar og hafa bændur
lent í erfiðleikum af þeim sökum.
Hafa þessr vandræði orðið enn til
að auka á vanda þeirra í þessu
slæma tiðarfari.
Tvö þeirra fyrirtækja, sem selja
búvélavarahluti hafa nú ákveðið
að hafa opið um helgina til að
bændur geti nálgazt varahluti ef
þórf krefur. Fyrirtækin, sem hér
um ræðir, eru Véladeild SÍS, sem
hefur opið í dag og á morgun milli
kl. 9 og 14 og Dráttarvélar h.f.,
sem hafa opið báða dagana frá kl.
lOtil 16.
Að sögn veðurfræðinga eru
ekki likur á að þurrkur verði um
sunnan og vestanvert landið i dag
en nokkrar líkur eru á að þurrkur
verði á sunnudag.
Tvö söluskattsstig til að jafna
aðstöðu dreifbýlisverzlunar
Birgir (t.v.) og Magnús voru að koma fvrir verkunum á sýningunni,
þegar ljósmyndari blaðsins, RAX, leit þar inn.
Sýna í Gallerie Súm
ÞEIR Magnús Pálsson og Birgir
Andrésson opna í dag sýningu í
Gallerie Súm við Vatnsstíg í
Reykjavík. Allmörg verk eru á
sýningunni. Magnús sýnir verk
unnin í gips en Birgir verk, sem
ýmist eru úr tré eða samsett af
ljósmyndum. Sýningin verður
opnuð kl. 4 í dag og stendur til 12
september n.k.
EMBÆTTISMANNANEFND hef-
ur lokið við að semja drög að nýju
frumvarpi um verðlagsmál, sem
sniðin eru eftir norskri og
danskri fyrirmynd. I Noregi og
Danmörku er verðlagning að
mestu frjáls, en þó er haldið uppi
ströngu verðlagseftirliti og gripið
til verðlagsákvæða ef álagning
verður óeðlilega há.
Viðskiptaráðherra hefur ákveð-
ið að láta fara fram á næstunni
sérstaka athugun á vanda dreif-
býlisverzlunar og verður að lik-
indum skipuð nefnd til að kanna
það mál.
Ofangreint kom fram í máli
Ölafs Jóhannessonar viðskipta-
ráðherra á ráðstefnu SÍS um
„Vandamál smásöluverzlunar í
dreifbýli", sem haldin var að Bif-
röst í Borgarfirði 1. og 2. septem-
ber.
Sex framsöguerindi voru flutt á
ráðstefnunni. Axel Gíslason
frkvstj. ræddi um aðstöðumun
verzlunar í dreifbýli og þéttbýli.
Georg Olafsson verðlagsstjöri
ræddi um framtíðarhlutverk
verðlagsyfirvalda með sérstöku
tilliti til hverfis- og dreifbýlis-
verzlana. Erlendur Einarsson for-
stjóri ræddi um aðgerðir annarra
þjóða til þess að leysa vandamál
smásöluverzlunarinnar í dreif-
býli. Ólafur Sverrisson kfstj. i
Borgarnesi ræddi um vandamál
dreifbýlisverzlunar kaupfélag-
anna. Ingi Tryggvason alþm.
ræddi um álagningarákvörðun
sex-mannanefndar. Ölafur
Jóhannesson viðskiptaráðherra
ræddi um viðskiptamál og svaraði
fyrirspurnum fundarmanna. Þá
voru einnig á ráðstefnunni al-
mennar fyrirspurna- og umræðu-
fímar, og vinnuhópar störfuðu.
Í ræðu sinni skýrði viðskipta-
ráðherra m.a. frá starfi nefndar
sem frá því í marz s.l. hefur unnið
að frumvarpsdrögum um ný verð-
lagslög. Sagði ráðherrann að hann
teldi að óhugsandi væri að gefa
allt verðlag í landinu frjálst á
einum degi, heldur yrði slíkt að
gerast í áföngum og því aðeins að
samkeppni í landinu væri það
virk að hún tryggði sanngjarnt og
eðlilegt verðlag.
Í almennum umræðum á ráð-
stefnunni varð mönnum tíðrætt
um erfiðleika smásöluverzlunar i
dreifbýli og hvernig mætti við
þeim bregðast. Var m.a. bent á
þann móguleika að byggðasjóöur
hæfi að lána til verzlana og leiðir
til að jafna ýmsan kostnað t.d.
símagjöld, rafmagnskostnað og
flutningskostnað. Einnig kom
fram sú hugmynd að dreifbýlis-
verzlun yrði heimilað að halda
eftir hluta af þeim söluskatti sem
væri innheimta, t.d. sem svaraði
tveimur söluskattsstigum (þess
má geta að hvert sóluskattstig
gefur ríkissjóði um 11 —1200
milljónir kréna). Einnig kom
fram sú hugmynd að takmarkanir
yrðu settar á frelsi manna til að
setja á stofn verzlanir hvar sem
hverjum sýndist.
Borgar-
mýrin
ÞAU mistök urðu í Mbl. i
gær, þar sem birt var
kort yfir þrjú svæöi með
nýjum iðnaðar- og
verzlunarlóðum, að eitt
svæðanna — Borgarmýri
— var merkt,inn á nýja
miðbæjarsvæðið í
Kringlumýri. Borgar-
mýri liggur hins vegar
fyrir ofan Árbæ milli
Vesturlandsvegar og
Bæjarháls.
Á þessu korti sést nán-
ar skipulagsteikning af
Borgarmýrarsvæðinu, en
þess ber þó að geta að
byggingar eru þegar
risnar á nokkrum lóð-
anna sem þarna sjást.