Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 5 Handavinnukennarar: Vilja fleiri tíma í hann- yrða- og smíðanámi í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt frá Handavinnu- kennarafélagi íslands segir, aö LAUGARDAGINN 4. sept. hófst sýning í Þrastarlundi við Sog, og mun hún standa til 17. sept. Á sýningunni eru teikningar eftir Hreggvið Hermannsson, alls þrjátiu. Eru stjörnumerkin meg- inuppistaða þessarar sýningar en aðrar eru einfaldar mannlífs- myndir. félagið vilji taka það fram, að í inngangsorðum hinnar nýju nám- skrár sé gert ráð fyrir, að grein- ing nemenda eftir kynjum í hann- yrða- og smíðanámi verði úr sög- unni eins fljótt og aðstæður leyfa. Segist félagið vera hlynnt því, að samkennsla komist á, en þá með þeirri tilhögum, að kennslutímum fjölgi í samræmi við aukin nem- endafjölda og námsefni. Þá segir, að til þess að nemend- ur fái lágmarksþekkingu í þessu námi sé þeim nauðsynlegt að fá tvær kennslustundir á viku vetr- arlangt í greinunum. Njadorf tefl- ir fjöltefli STÓRMEISTARINN Miguel Naj- dorf frá Argentínu mun tefla fjöl- tefli á vegum Sambands íslenzkra bankamanna í samkomusal Ut- vegsbankans n.k. miðvikudag, 8. september, klukkan 19. Najdorf mun tefla á 30—40 borðum við bankamenn og eiga menn að hafa með sér skákborð og taflmenn. Sýning í Þrastarlundi Birgir (t.v.) og Magnús voru að koma fyrir verkunum á sýningunni, þegar Ijósmyndari blaðsins, RAX, leit þar inn. Sýna I Gallerie Súm ÞEIR Magnús Pálsson og Birgir Andrésson opna í dag sýningu í Gallerie Súm við Vatnsstíg í Reykjavík. Allmörg verk eru á sýningunni. Magnús sýnir verk unnin í gips en Birgir verk, sem ýmist eru úr tré eða samsett af ljósmyndum. Sýningin verður opnuð kl. 4 i dag og stendur til 12 september n.k. Sýnir í Hamragörðum ANTON Einarsson opnaði mál- verkasýningu að Hamragörðum laugardaginn 4. september. Sýningin verður opin frá kl. 2—10 um helgar og 4—10 virka daga. Sýningin verður opin til sunnudagsins 12. september. Alls eru 35 myndir á sýning- unni og er þetta úrklippu- og vatnslitamyndir og teikningar. Þetta er fyrsta sýning Antons, og eru myndir hans flestar unn- ar á þessu ári. Gæti orðið þurrkur á sunnudag ÞEIR dagar sumarsins, sem bændur á Suður- og Vesturlandi hafa getað unnið við heyskap, hafa verið næsta fáir vegna óþurrka. Þá sjaldan þurrkur hef- ur verið hefur hann oft verið yfir helgarnar en þá eru varahluta- verzlanir lokaðar og hafa bændur lent í erfiðleikum af þeim sökum. Hafa þessi vandræði oröið enn til að auka á vanda þeirra í þessu slæma tiðarfari. Tvö þeirra fyrirtækja, sem selja búvélavarahluti hafa nú ákveðið að hafa opið um helgina til að bændur geti nálgazt varahluti ef þörf krefur. Fyrirtækin, sem hér um ræðir, eru Véladeild SÍS, sem hefur opið í dag og á morgun milli kl. 9 og 14 og Dráttarvélar h.f., sem hafa opið báða dagana frá kl. lOtil 16. Að sögn veðurfræðinga eru ekki líkur á að þurrkur verði um sunnan og vestanvert landið í dag en nokkrar líkur eru á að þurrkur verði á sunnudag. Tvö söluskattsstig til að jama aðstöðu dreifbýlisverzlunar EMBÆTTISMANNANEFND hef- Georg Ólafsson verðlagsstjóri einum degi, heldur yrði slíkt að ur lokið við að semja drög að nýju frumvarpi tim verðlagsmál, sem sniðin eru eftir norskri og danskri fyrirmynd. t Norcgi og Danmörku er verðlagning að mestu frjáls, en þó er haldið uppi ströngu verðlagseftirliti og gripið til verðlagsákvæða ef álagning verður óeðlilega há. Viðskiptaráðherra hefur ákveð- ið að láta fara fram á næstunni sérstaka athugun á vanda dreif- býlisverzlunar og verður að lfk- indum skipuð nefnd til að kanna það mál. Ofangreint kom fram i máli Ólafs Jóhannessonar viðskipta- ráðherra á ráðstefnu SÍS um „Vandamál smásöluverzlunar í dreifbýli", sem haldin var að Bif- röst í Borgarfirði 1. og 2. septem- ber. Sex framsöguerindi voru flutt á ráðstefnunni. Axel Gislason frkvstj. ræddi um aðstöðumun verzlunar í dreifbýli og þéttbýli. ræddi um framtíðarhlutverk verðlagsyfirvalda með sérstöku tilliti til hverfis- og dreifbýlis- verzlana. Erlendur Einarsson for- stjóri ræddi um aðgeröir annarra þjóða til þess að leysa vandamál smásöluverzlunarinnar í dreif- býli. Óiafur Sverrisson kfstj. i Borgarnesi ræddi um vandamál dreifbýlisverzlunar kaupfélag- anna. Ingi Tryggvason alþm. ræddi um álagningarákvörðun sex-mannanefndar. Ólafur Jóhannesson viðskiptaráðherra ræddi um viðskiptamál og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Þá voru einnig á ráðstefnunni al- mennar fyrirspurna- og umræðu- fímar, og vinnuhópar störfuðu. Í ræðu sinni skýrði viðskipta- ráðherra m.a. frá starfi nefndar sem frá þvi í marz s.l. hefur unnið að frumvarpsdrögum um ný verð- lagslög. Sagði ráðherrann að hann teldi að óhugsandi va>ri að gefa allt verðlag í landinu frjálst á gerast í áföngum og því aðeins að samkeppni í landinu va>ri það virk að hún tryggði sanngjarnt og eðlilegt verðlag. I almennum umræðum á ráð- stefnunni varð mönnum tíðrætt um erfiðleika smásöluverzlunar i dreifbýli og hverníg mætti við þeim bregðast. Var m.a. bent á þann möguleika að byggðasjóður hæfi að lána til verzlana og leiðir til að jafna ýmsan kostnað t.d. símagjöld, rafmagnskostnað og flutningskostnað. Einnig kom fram sú hugmynd að dreifbýlis- verzlun yrði heimilað að halda eftir hluta af þeim söluskatti sem væri innheimta, t.d. sem svaraði tveimur söluskattsstigum (þess má geta að hvert söluskattstig gefur ríkissjóði um 11 —1200 milljónir kréna). Einnig kom fram sú hugmynd að takmarkanir yrðu settar á frelsi manna til að setja á stofn verzlanir hvar sem hverjum sýndist. / LötfírOtXlutií/ rtntvttLt i.Borgárrid, 3L«'t9tfi ' fBORGAFÍÍFRKFRéoiNGÚRINN í 'œVKÍWÍiÍÍ SKiPULAGSoea.o ST;~ '•Áí//0 *-/■ írítVi . 'JVW - _ j . ^Vc«. a' i J xiu NtrméuH . li 5 ¥ J Borgar- mýrin ÞAU mistök urðu í Mbl. i gær, þar sem birt var kort yfir þrjú svæði með nýjum iðnaðar- og verzlunarlóðum, að eitt svæðanna — Borgarmýri — var merkt-inn á nýja miðbæjarsvæðið í Kringlumýri. Borgar- mýri liggur hins vegar fyrir ofan Árbæ milli Vesturlandsvegar og Bæjarháls. Á þessu korti sést nán- ar skipulagsteikning af Borgarmýrarsvæðinu, en þess ber þó að geta að byggingar eru þegar risnar á nokkrum löð- anna sem þarna sjást.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.