Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 Meðalfita loðn- unnarvar16 til 17% í ágúst FITA f 104 loðnusýnum, sem Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar- ins fékk til rannsóknar I águst- mánuði reyndist að meðaltali 16—17%. Mest hefur fitan mælzt 20,8%, en minnst 12,5%. Þetta kom fram þegar Morgunblaðið ræddi við Helga Þórhallsson hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðar- ins f gær. Helgi sagði, að það væri þvf ekki alls kostar rétt, sem bæði skipstjórnarmenn og sjómenn hafðu haldið fram að undan- förnu, að fitan f loðnunni væri almennt yfir 20%. Helgi sagði í viðtalinu við Morg- unblaðið, að á tfmabilinu frá 20. ágúst til mánaðamóta hefði hann fengið 44 sýni. Sjö þeirra hefðu sýnt minna en 14% fitu, önnur sjö hefðu verið á bilinu 14—16%. Fimmtán sýni hefðu 16—18% fitu og fimmtán sýni 18—20% fitu. Þá sagði Helgi, að á ímabilinu frá 2. til 18. ágúst hefðu aðeins 4 sýni haft meiri fitu en 19% Fatapjötlur frá miðöldum finnast í Grísatungufjöllum FÉLAGAR í Rotary klúbbi Htfsa- vfkur fundu f fyrrakvöld pjötlur úr fatnaði frá miðöldum f Grfsa- tunguf jöllum á þeim stað þar sem fundust þrfr atgeirar frá miðöld- um fyrir um 11 árum. Mbl. hafði samband við Sigurjón Jóhanns- son skólastjóra og Hjört Tryggva- son bæjargjaidkera á Húsavfk f gær og spurðist fyrir um þennan fund. Þeim sagðist svo frá, að þeir Rotary menn hefðu ætlað að kanna hvort mannaleifar kynnu að finnast í gili þvji,* þar sem vopn- in fundust, en þar &r stór fönn, sem greinilega er rifjög gömul og fundust vopnin í henni á sfnum tfma. Áttu menn von á því, að minni snjór væri nú á þessum stað en vanalegt er eftir sumarið, en svo reyndist þó ekki vera. Grjótskriða hefur fallið yfir fönn- ina fyrir alllöngu og þegar byrjað var að róta til í henni komu leifar af fatnaði í ljós. Reyndust vera þrjár pjötlur, ein rauðleit og fin- leg, ein grá og ofin og ein úr skinni að því er virtist. Ekki treystu þeir Sér til að aldurs- greina þessar pjötlur né geta til um úr hvers konar flikum þær væru, en þær hafa nú verið send- ar til Reykjavíkur og verða rann- sakaðar á Þjóðminjasafninu. Tt iríæniiikstiirskqij rni BJÖRGUNARSVEITIN Stakkur heldur árlega torfæruaksturs- keppni sína sunnudaginn 12. sept- ember og verður keppnin haldin í nágrenni Grindavikur eins og undanfarin ár. Yfirnefndin fjallar um verð- lagningu á sild YFIRNEFND Verðlagsráðs sjávarútvegsins kom saman til fundar í gær og fjallaði um verðlagningu á síld. Að sögn Sveins Finnssonar fram- kvæmdastjóra Verðlagsráðsins náðist ekki samkomulag á fundinum og hefur annar fundur verið boðaður klukkan 13.30 í dag. Loðnuskipun- um fækkar í GÆR var talið að tíu til fimmtán skip væru enn eftir á loðnuveið- um. Skipunum hefur fækkað nokkuð að undanförnu fyrst og fremst vegna lítillar veiði, en sum hafa þurft að fara í slipp og önnur haldið til veiða í Norðursjó um hrið. Fjórir bátar tilkynntu um afla til Loðnunefndar í gær og voru það Harpa KE með 200 lestir, Sæberg SU með 50 lestir, Ásberg RE með 100 iestir og Árni Sigurð- ur AK með 230 lestir. Allir þessir bátar ætluðu til heimahafnar með aflann eða eftir löndun. MYNDIN sýnir breiðþotur af gerðinni Douglas, Boeing og Lockheed, en hin slðastnefnda er sú, sem Flugleiðir velta nú fyrir sér að kaupa, þar eð þeir hafa ákveðið tilboð frá verksmiðjunum. r Ovíst hvort Lockheed þot- umar hafa nægilegt flugþol STJÓRN Flugleiða verður að taka ákvörðun um það á næst- unni hvort gengið verður að tilboði frá Lockheed—flugvéla- verksmiðjunum um kaup á tveimur notuðum Locheed 10—11 Tri-star breiðþotum. Flugvélar þessar hafa verið í eigu flugfélags, sem nú er gjaldþrota, og hefur vélunum lítið verið flogið, hafa um 3 þúsund flugtíma að baki. Að sögn Alfreðs Elíassonar, forstjóra verður ákvörðun Flugleiðastjórnar að liggja fyr- ir á næstu dögum, þar sem þær þurfa að vera til taks fyrir fé- lagið strax næsta vor, ef af kaupunum verður, en nauðsyn- legt er að gera nokkrar endur- bætur á þotunum, sem gera má ráð fyrir að taki nokkurn tíma eða liðlega hálft ár. Alfreð kvaðst ekki geta gefið upp heildarverðið, sem i tilboð- inu fælist, en það væri talið hagstætt. Hins vegar kvað Al- freð algerlega eiga eftir að ræða um greiðsluskilmála. Flugleiðir munu einnig þurfa að sækja til yfirvalda um leyfi til kaupana vegna fyrri ríkis- ábyrgðar. Alfreð var spurður að þvi, hvort þessar þotur væru nægi- lega langfleygar í þeim tilfell- um, er fljúga þyrfti beint milli Bandarikjanna og Luxemborg- ar. Alfreð svaraði því, að þetta væri allt verið að kanna hjá flugrekstrardeild félagsins um þessar mundir og væri beðið eftir skýrslu um þetta atriði og rekstrarlega hagkvæmni þess- ara véla yfirleitt áður en endan- lega ákvörðun verður tekin. Al- freð sagði, að ef í Ijós kæmi að þessar þotur reyndust ekki hafa meira flugþol heldur en DC-8urnar, sem félagið væri nú með í notkun, þætti stjórninni slikt naumast skref fram á við. Hins vegar kvað Alfreð mjög litil brögð vera að þvi nú orðið — eftir að þverbrautin kom á Keflavikurflugvelli, — að vélar félagsins þyrftu að fljúga yfir hér. Frystihús SH: Framleiðslan jókst um 2000 tonn fyrstu 8 mán. HEILDARFRAMLEIÐSLA frystihúsa innan Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna jókst um 2000 lestir fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tfmbabil á sfðasta ári. Þetta kom fram þegar Morg- Athvarf fyrir unglinga með hegðunar- erfiðleika í Austurbæjarskólanum Albert Guðmundsson vill ekki að sálfræðingar komi þar nálægt A BORGARRÁÐSFUNDI s.l. þriðjudag var sam- þykkt, að komið yrði á fót athvarf í Austurbæjarskól- anum fyrir unglinga, sem fallnir eru Ut úr skólakerf- inu vegna hegðunarerfið- leika, og er ráð fyrir gert að þetta athvarf verði starfrækt í vetur. Ragnar Georgsson skóla- fulltrúi Reykjavíkurborg- ar sagði í gær, að þetta væri einn liður í nokkuð fjölbreyttri tillögugerð, sem sex manna nefnd Fé- lagsmálastofnunar Reykja- víkur, Æskulýðsráðs og fræðsluráðs tók saman. Sagði Ragnar að athvarf fyrir umrædda,; unglinga væri liður í úrræðum, en ekki væri búið að ákveða starfsemi þess í smáatrið- um. Hann sagöi ennfremur að erfitt væri að segja til um hve margir unglingar það væru sem dottið hefðu út úr skólakerfinu. Þeir væru ekki margir og allt frá því að vera latir skróparar upp i það að vera vandamál. Þegar borgarráð samþykkti at- hvarfið í Austurbæjarskólanum, lýsti Albert Guðmundsson sig samþykkan því, en samþykki hans var háð því, að starfsemi sú, sem lagt var til að hafin yrði til reynslu á komandi vetri, yrði ekki að neinu leyti rekin af sálfræðing- um. unhlaðið ræddi í gær við Bene- dikt Guðmundsson fulltrúa hjá SH. Að sögn Benedikts varð heildar- framleiðslan fyrstu átta mánuði þessa árs alls 49 þúsund lestir á móti 47 þúsund lestum í fyrra, og nemur því aukningin um 5%. Hér er eingöngu átt við freðfisk, t.d. er loðna ekki meðtalin. Hvað fiskbirgðir hjá Coldwater varðaði sagði Benedikt, að fram- leiðslan hér heima væri nógu mik- il til að halda þeim nokkurn eginn I horfinu. Kolmunnamarningur sá sem framleiddur var í frystihúsunum í Neskaupstað og á Seyðisfirði er Ekki griinur um smit HEILBRIGÐISYFIRVÖLDUM hefur tekizt að hafa samband við þá íslenzku ferðamenn, sem voru á þvi svæði, sem upp kom hunda- æði I Þýzkalandi og auglýst var eftir fyrir skömmu. í ljós kom að fólkið hafði samband við þýzka og íslenzka lækna og kom í ljós að það hafði ekki komið i námunda við þann stað, sem sýkingin átti sér stað. Er því enginn grunur um smit og samkvæmt mati land- læknis því ekki ástæða til frekari aðgerða. nú farinn i skip á leið til Banda- ríkjanna og ættu þvi að berast fréttir af því hernig líkar við kol- munnamarninginn, er liður á septembermánuð. Hafa áhuga á að þurrka kolmunna og spærling í þörungavinnslunni Miðhúsum 2. september. ÞÖRUNGAVINNSLAN á Reykhólum er nú að hætta störfum og es verið að vinna siðasta þangið. A stjórnar- fundi í gær kom það fram, að mikill áhugi er fyrir því að reyna að þurrka spærling og kolmunna og víkka þannig starfsvið verksmiðjunnar. Öllu lausráðnu fólki hefur verið sagt upp. í vetur mun rekstrargrundvöllur verk- smiðjunnar verða markaður og treystur, svo að hún geti gert það gagn sem hún átti að gera í upphafi. Fimm íbúðarhús eru nú í smíðum á Reykhólum. Sveinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.