Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
Á 2. milljarð kr. vantar í dæmið
hjá Vestmannaeyjakaupstað, en
Viðlagasjóður, Rauði krossinn o.fl.
luma á 2000 millj. kr.
AÐEINS 45% BÆTUR
TIL EYJAMANNA
Senn líður að því að hið sérstæða
fyrirbæri, Viðlagasjóður, verði lagður
niður því þótt Viðlagatrygging taki við
hlutverki hans, þá byggist Viðlaga-
trygging á ákveðnu kerfi í stað þess að
starf Viðlagasjóðs hefur meira og
minna verið tilraunastarf vegna ein-
stæðra aðstæðna En nú þegar hallar í
lok á starfi sjóðsins er staðreyndin
jafnframt sú að grundvallaruppbygg-
ing Viðlagssjóðs sem ákveðin var á
fystu vikur eldgossins hefur langt frá
því staðið undir nafni Á ég þar fyrst og
fremst við þá yfirlýsingu forráðamanna
þjóðarinnar um að Eyjamönnun yrði
greitt eða bætt að fullu fyrir það tjón
sem í eldgosinu yrði, en hins vegar þá
staðreynd sem ekki verður á móti mælt
að bætur til Vestmannaeyinga vegna
eldgossins hafa numið frá 40—45% í
stað 100% eins og lofað var Þó hafa
Eyjamenn á hverju ári, og er gosárið
ekki undanskilið þar, skilað sínum
mikla hlut til þjóðarbúsins, að hlutfalli
til langt umfram flestar byggðir á ís-
landi, og hefur svo verið á þessari öld
allri Það var því drengileg og eðlileg
niðurstaða að tjón Eyjamanna yrði
bætt til fulls, því það er ekkert álitamál
að Vestmannaeyjar gera meira en
borga sig fyrir þjóðarbúskapinn
FRAMTAKIÐ
STRANDAÐI Á
PÓLITÍK
I fyrri greinum mínum vegna eld-
gossins í Eyjum, allt frá fyrstu dögum
eldgossins, hef ég tekið fyrir ýmsa
einstaka þætti í gosmálinu og undan-
tekningarlaust hef ég skrifað um þá
með hlutlausu tilliti til þess pólitíska
haugs sem kollsiglt hefur svo mörgu í
eðlilegu starfi stjórnvalda vegna þessa
máls Ég hef í þessum greinum mínum
bent á t d hvernig Vestmanneyingar
voru sniðgengnir í sambandi við með-
ferð þessa máls í upphafi, hvernig
stjórnleysi hefur viðgengizt bæði af
hálfu opinberra aðila og ekki hvað sízt
forráðamanna Eyjamanna sjálfra, sem
illu heilli hafa lagt mest kapp á vinnu-
brögð ötuð pólitísku aurkasti og lítið
hefur orðið úr framkvæmdum Það er
klént að þurfa að segja það að þeir
menn sem hafa verið kjörnir til að
stjórna þessum málum í Eyjum, nær
undantekningarlaust, hreinlega geta
það ekki Það er ólíkt Eyjamönnum því
þar er fullt af framtakssömum fyrir-
hyggjumönnum
STJORNLEYSI
ÓHAMINGJA
EYJAMANNA
Mannlff Eyjanna er samt við sig og
þar er duglegt fólk eins og víðast á
landinu og þess vegna hefur byggðin
þar hægt og sígandi náð sínum
manneskjulega blæ. en eins og staðan
er í dag fjárhagslega hjá bæjarsjóði
Vestmannaeyja er það ekki spurning
um hvort Vestmannaeyjakaupstaður
fer á hausinn, heldur hvenær Hér er
um að ræða eftirköst af eldgosinu,
annars vegar vegna þess að bætur
Viðlagasjóðs eru ekki meiri i raun en
fyrr er greint, hins vegar vegna af
skiptaleysis bæjarstjórnarmanna i Eyj-
um i sambandi við uppgjörið vegna
gossins og tjóns af völdum þess,
félagslegs og fjárhagslegs Afskipta-
leysi forráðamanna Vestmannaeyja-
bæjar eftir gos hefur kostað Vest-
mannaeyjabæ a m k um 1000
millj kr. tap í bótum og uppgjöri gagn-
vart Viðlagasjóði. Magnús Magnússon
fyrrverandi bæjarstjóri i Eyjum var t d
sambandslaus við Viðlagasjóð að öðru
leyti en þvi að vikulega, á hverjum
föstudegi fékK Vestmannaeyjabær 4
míllj kr frá Viðlagasjóði og æði mikið
hefur þetta fé farið út um hvippinn og
hvappinn, étizt upp i verðbólgu
óráðsiu. og enn er ekki búið að gera
klára reikninga bæjarsjóðs fyrír 1973
og 1 9 7 4 a m k
Þannig varð það óhamingja fólks i
Eyjum að foráðamenn bæjarins létu
fljóta sofandi að feigðarósi með stjórn-
leysi sinu Haugurinn var aldrei mok-
aður, heldur var reynt að fljóta ofan á
og bera sig vel baða sig í glansinum og
sviðsljósinu, staðreyndunum varsópað
undir teppið og reksturinn var i þægi-
legum kenndirisstil, 4 millj kr á viku
takk
Hvaða þvæla er þetta, kann einhver
að segja og ekki óeðlilegt, því vissu-
lega hefur frétzt af Eyjamönnum i
hátiðarskapi við vigslu nýrrar Sund-
hallar, móttöku nýs Eyjaskips og márgt
er jákvætt að frétta af uppbyggingu í
Eyjum, þvi þótt ástæða sé til gagnrýni
er hins einnig að geta sem vel er gert,
en það neikvæða er svo yfirþyrmandi
og alvarlegt og fjölþætt
AÐ LATA EKKI
SINN HLUT
Er þá ekki eðlilegt að um sé að ræða
mistök í meðferð máls eins og Eyjagos-
málsins? Auðvitað er það eðlilegt, en
alls ekki í eins óttalegum mæli og raun
ber vitni vegna stjórnleysis yfirvalda
heima og heiman. Ef Eyjamenn hefðu
átt forsvarsmenn á borð við Lúðvík
Jósepsson, Jón Sólnes, Sverri Her-
mannsson eða aðra þrumufleyga, þá
þyrfti ekki að skrifa um þessi mál á
þeirri forsendu sem nauðsynlegt er,
þeirri forsendu að Eyjamenn sitja eftir
með sárt ennið eftir að hafa verið
beittir miklum órétti með slælegri
frammistöðu ríkisvaldsins í að standa
við gefin loforð og slælegri frammi-
stöðu heimananna að sækja mál, svo
keyrir úr öllu hófi.
Ég nefni þessa menn vegna þess að
þeir eru þekktír fyrir það að láta ekki
sinn hlut þegar hagsmunir þeirra um-
bjóðenda eru í húfi og þeir hika ekki
við að hafa frumkvæði í þeim efnum.
Sem dæmi má nefna þær bætur sem
Neskaupstaður hefur fengið vegna
snjóflóðanna sem urðu þar í árslok
1976 Þangað hefur Viðgasjóður greitt
á sjöunda hundrað milljóna og er það
hlutfallslega margfalt meira en greitt
var til Vestmannaeyja vegna tjcna þar
Lúðvík og Sverrir og þeirra lið kunni á
sjóðakerfið, kunni að ganga fast og
ákveðið til verks eins og vera ber þar
sem stjórn er á hlutunum Ekki ætla ég
að segja að þeim hafi verið ofgreitt,
fjarri því, en þetta sýnir Ijóslega hver
hlutur Eyjamanna er í sambandi við
eldgosið Þar er ekkert nema fjárhags-
legt tap og aftur tap þar sem um er að
ræða milljónir króna á hverja fjöl-
skyldu Verst var þó farið með gamla
fólkið, eins og ég hef margoft bent á í
greinum mínum um þessi máí, grein-
um sem því miðúr hafa enga mögu-
leika á að vera skemmtilestur
í stuttu máli var reynt að koma
gamla fólkinu fyrir og síðan hefur það
verið þar, það hefur varla átt um neitt
að velja og er þetta reyndar í samræmi
við framkomu hins opinbera almennt
gagnvart gömlu fólki á íslandi, það
passar ekki inn í skipulag sérfræðing-
anna Eitt elliheimilið til eða frá skiptir
engu máli í þessu sambandi og er úrelt
dæmi um patentlausn
GJAFAFJÁRGRÓÐI
RÍKISSJÓÐS
Það virðist vera álit margra lands-
manna að Vestmanneyingar hafi g^ætt
eitthvað é þessu eldgosi, en þar sem
sllkt er algjör fjarstæða er nauðsynlegt
að reifa þessi mál aðeins, þvi hér er um
að ræða mál allra landsmanna, sem
þurftu að taka á sig nokkrar fjárhags-
legar skyldur vegna gossins Hins veg-
ar eru það margir sem hafa matað
krókinn í sambandi við þetta mál, en
það eru ekki Eyjamenn sjálfir, svo
mikið er vist Skal því stiklað á nokkr-
um nýjum dæmum sem sýna stað-
reyndir Áður hef ég m a fjallað um
100 millj kr. lán vegna gossins, sem
veitt var til Þorlákshafnar o.fl hafna,
en ekki til Vestmannaeyja, staðsetn-
ingu Viðlagasjóðslánanna allsstaðar
nema í Eyjum þar sem þörfin var mest
o.ft. o fl miður
Heildartekjur Viðlagasjóðs námu
tæpum 7000 millj.kr. Þar komu mest-
ar tekjur af söluskatti, 3400 millj.kr.,
101 millj af eignaskatti, 635 millj.kr.
af viðlagagjaldi, 160 millj.kr frá at-
vinnuleysistryggingasjóði, 160
millj.kr. frá rikissjóði. framlög Norður-
landa 1575 millj.kr. og gjafir ýmissa
aðila 240 millj.kr
Það furðulegasta í þessu dæmi er
þáttur ríkissjóðs, 160 millj.kr og má
þá víkja að gróða rikissjóðs og stofn-
ana hans Fyrst er skylt að nefna 500
millj kr tekjur ríkissjóðs i tollum af
innfluttum 500 Viðlagasjóðshúsum,
keyptum fyrir gjafafé Norðurlanda
Tollgróði rikissjóðs af gjafafé granna
okkar Þá er um að ræða 700 millj.kr.
vaxtabyrði Viðlagasjóðs gagnvart
Sigurjón Oskarsson aflakóng-
ur Vestmannaeyja á siðustu
vetrarvertlð. Hann og skips-
höfn hans lönduðu 1000
tonnum. Það hefur skilað sfn-
um hlut fyrir áföllin, Eyjafólk-
ið.
Guðjón Pálsson skipstjóri.—
Guðjón og skipshöfn hans
skilaði á land mesta aflaverð-
mæti Vestmannaeyjabáta á
s.l. ári. Myrtdin var tekin á
síðasta sjómannadegi.
Þannig tóku sumir á móti eignum sfnum í goslok. Þetta er hús
Lárusar Long, sem hann hefur nú að fullu endurbyggt með
glæsibrag.