Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.09.1976, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri hf. Arvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, simi 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Askriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Fyrir nokkrum dögum birtist í Alþýöublað- inu forystugrein eftir Benedikt Gröndal, for- mann Alþýduflokksins þar sem hann gagnrýndi ríkis- stjórnina mjög fyrir aö ekki heföi veriö dregiö nægilega mikiö úr verö- bólgunni á þeim tveimur árum, sem hún hefur setiö aö völdum. Skuldasöfnun þjóðarinnar heföi veriö mjög mikil á þessu tímabili og skuldir ríkissjóðs viö Seölabankann heföu aklrei veriö meiri. Þessi forystu- grein formanns Alþýöu- flokksins vakti athygli fyr- ir margra hluta sakir. Þaö er alkunna aö hagfræöing- ar nútímans kunna tiltölu- lega einföld ráö til þess aö hægja á veröbólgu og draga úr erlendri skulda- söfnun og halda fjárlögum ríkis greiðsluhallalausum. Ilins vegar hlíta stjórn- málamenn ekki alltaf þess- um einföldu ráðum, vegna þess að afleiðingarnar fyr- ir allan almenning eru oft mjög þungbærar. Þannig markaöi rikis- stjórn Geirs Hallgrímsson- ar þá stefnu þegar í upp- hafi, aö hún mundi leggja alla áherzlu á aö tryggja fulla atvinnu og taka á sig margvísleg óþægindi til þess að svo mætti verða. Aö tveimur árum liönum liggur nú ljóst fyrir, að rík- isstjórninni hefur tekizt aö stýra þjóöarskútunni í gegnum mikla efiðleika án þess aö til atvinnuleysis kæmi. En eins og Geir Hall- grímsson forsætirráöherra sagði í viötali viö Morgun- blaóiö fyrir viku, þá hefur þessi atvinna veriö keypt því verði, aó ekki hefur náöst sá árangur sem skyldi í baráttunni viö veröbólguna, og viðskipta- hallinn við útlönd hefur verið meiri en æskilegt heföi verið. Nú má að sjálf- sögöu ræða þaö, hvort sú stefna ríkisstjórnarinnar að halda fullri atvinnu á kostnaö meiri árangurs í baráttu viö verðbólguna, hafi verið rétt, en vissu- lega kemur þó á óvart, að gagnrýni á þá stefnu skuli heyrast frá formanni Al- þýöuflokksins. Aö vísu er það svo, að ríkisstjórnir jafnaðar- manna, t.d. í Danmörku, Þýzkalandi og Bretlandi, hafa markað þá stefnu, sem Benedikt Gröndal virðist gefa í skyn, aö hann heföi kosið, aö ná verðbólg- unni skjótar niður, jafnvel þótt afleiðingin yröi sú, aö atvinnuleysi skylli á. í þessum þremur löndum hefur tekizt aö draga stór- lega úr verðbólgunni, þótt enn sé hún allmikil, en at- vinnuleysið hefur jafn- framt veriö gífurlegt. Vit- anlega kemur þaö á óvart, að formaður Alþýðuflokks- ins á Islandi skuli, aö því er virðist, gerast talsmaöur þeirrar stefnu, en úr því að svo er, má segja, aö þessi rödd hefði átt að heyrast fyrr, þá heföu menn haft betra tækifæri til þess að taka afstööu til þessara sjónarmiða Benedikts Gröndals. Alþýðublaðiö reynir í forystugrein í gær aö bera í bætifláka fyrir formann Alþýðuflokksins og bendir á aö stjórn jafnaðarmanna í Noregi, Svíþjóð og Aust- urríki hafi tekizt að sigla fram hjá verðbólgu án þess að stefna vísvitandi í at- vinnuleysi. En um þessi lönd öll gildir allt annað en vandamál okkar hér á ís- landi. Þau eru vel efnum búin, ekki sízt Noregur og Svíþjóö, og alkunna er, að Norðmenn hafa siglt fram hjá sínum vandamálum á síðustu árum með geysi- legri skuldasöfnun erlend- is, sem þeir þurfa hins veg- ar ekki að hafa áhyggjur af, vegna þess aö fyrirsjá- anlegt er, að þeir muni hafa gífurlegar tekjur á næstu árum af olíusölu og þannig eiga auðvelt með að greiða niöur þá erlendu skuldasöfnun, sem orðið hefur hjá þeim á undan- förnum misserum. Þaö þýöir því ekkert fyr- ir formann Alþýðuflokks- ins aö skýla sér á bak viö ríkisstjórnir jafnaðar- manna í þessum löndum, en hafi Morgunblaðið hann fyrir rangri sök, er fyllsta ástæða til að Benedikt Gröndal geri grein fyrir því, með hvaða hætti hann hefði viljað á þessu tveggja ára tímabili takmarka verðbólguna enn meir en gert hefur verið, en ljóst er nú, að á tveimur árum hef- ur tekist að minnka hana um helming, minnka við- skiptahallann um helming á sama tíma og ná fyrr greiðsluhallalausum fjár- lögum, því margt bendir til, að það muni takast á þessu ári. Það dugar ekki fyrir leið- toga stjórnmálaflokks að hafa uppi sleggjudóma í annarra garð. Þess verður krafist af honum að hann geri grein fyrir því, hvaða ráð hann hefur til þess að ná betri árangri í viður- eigninni við þau efnahags- vandamál, sem við hefur verið að etja og komi for- maður Alþýðuflokksins fram með einhverja skyn- samlega hugmynd í þeim efnum, kann vel að vera að þær geti komið að ein- hverjum notum. Hvað vill formaður Alþýðuflokksins? Málfræðigjöf GÖSTA Holm heitir kunnur málvísindamaður, sænskur. í sumar varð hann sextugur. Vegna þess tilefnis sendu vinir hans frá sér afmælisrit eitt mikið sem ber heitið Nordiska studier i filologi och Iingvistik. Umsjón með útgáfunni höfðu Lars Svensson og fleiri. Þetta er fimm hundruð síðna rit í allstóru broti. í því eru prentað- ar fimmtíu og þrjár ritgerðir jafnmargra höfunda auk for- mála og skrár yfir rit Gösta Holms. Meðal höfunda eru fjór- ir íslendingar. Þeir skrifa allir um íslensk efni. En ekki eru þeir einir um það. Margir skandínavísku málfræðinganna róa að meira eða minna leyti á sömu mið. Leynir sér ekki að íslenskan er stórveldið í hópi norrænna mála. Þangað sækja málfræðingar lykilinn að skiln- ingi á hinum málunum. En sem betur fer sinna þeir fleiri verk- efnum. Þarna er að finna hug- leiðingar úm fjölbreytilegustu svið norrænna málvísinda, þar með taldar nokkrar ritgerðir um nútímamál í hinum löndun- um. Að venju er rit þetta skrifað á þrem tungumálum (aðallega): dönsku, norsku og sænsku. Undantekningar eru tvær. Hreinn Benediktsson skrifar ritgerð sína á íslensku. Það á að vera saklaust — sá sem kemst ekki fram úr henni mun hafa lítið gagn af öðru efni ritsins hvort eð er. Þá á Halldór Hall- dórsson þarna ritgerð skrifaða á ensku. Viðfangsefni Hreins Bene- diktssonar er orðasambandið „vera að + nafnháttur: aldur og uppruni". „Meðal setningafræðilegra nýjunga í íslenzku, sem athygl- isverðastar eru,“ segir Hreinn, ,,má óefað telja orðaskipanina vera að + nafnh., hann er að lesa, hann var að lesa.“ Siðan tilfærir höfundur fjölda dæma úr fornum ritum og síðari alda Bókmenntlr efiir ERLEND JÓNSSON máli og kemst að þeirri niður- stöðu að í upphafi sé orðaskip- anin til orðin úr orðasambönd- um eins og „hann var at at hlaða skútuna" sem hann tekur upp úr Njálu máli sínu til stuðnings. Að samandregnum mörgum dæmum þykir honum sýnt að „fyrra þróunarstigið er sem sé vera at at + nafnh.“ . . . en „síðara þróunarstigið er svo vera að + nafnh., sem er orðinn til úrlengri orðaskipaninni." Bjarni Guðnason á þarna rit- gerðina „Saxo og Eiríksdrápa", Halldór Halldórsson nefnir rit- gerð sfna „Falling Down to a Suffix Status. A Morphose- mantic Study “ og Jón Helgason kallar sína ritgerð „Paris i Tróju, Þorsteinn á Borg og Brodd-Helgi á Hofi“. Meðal annars efnis sem koma mun íslendingi kunnuglega fyr- ir sjónir má nefna að Lennart Elmevik skrifar um orðið „for- að“, Ivar Lindquist um „tvo staði í Völundarkviðu", Jonna Louis-Jensen um „Ara og Greg- or“, Inger Haská um „íslenskt og sænskt leiðaramálfar, setn- ingafræðileg rannsókn", og er þá ekki nærri því allt upp talið. (Höfundur síðast töldu rit- gerðarinnar tók til rannsóknar sex leiðara úr Morgunblaðinu og jafnmarga úr Þjóðviljanum frá 1. til 7. sept. 1974). Meðal læsilegra ritgerða, sem fjalla um efni sem ekki varða beint íslenskt mál, nefni ég sem dæmi hugleiðingar eftir Lars Huldén um Aland, þar sem leit- að er upprunans að þessu sænska örnefni. En skemmtilegust þykir mér þó ritgerð Chr. Westergárd- Nielsens, „Nokkrar athuganir á sögu Flateyjarbokar". Wester- gárd-Nielsen er skapmikill mál- fræðingur og talar hreint út úr pokahorninu. Og man ég ekki rétt að hann væri einn þeirra sem vildu halda íslensku hand- ritunum kyrrum í Höfn? Hafa má samúð með málstað hans — hann vissi hvað hann var að láta. Westergárd-Nielsen hefur máls á að segja frá þvl er Helge Larsen, menntamálaráðherra dana, afhenti Islendingum Flat- eyjarbók í háskólabíó 21. apríl 1971 með orðunum: „Vær sá god, Flatöbogen." Þá segir hann söguna af þvf er Ameríku- menn vildu fá bókina lánaða fyrir heimssýninguna í Chicago 1893 og buðust til að senda eftir henni eitt sinna sterkustu her- skipa. Danir neituðu! Wester- gárd-Nielsen minnir á að bókin hafi verið einhver mesti dýr- gripur Konungsbókhlöðunnar, hún hafi verið afhent íslending- um á þjóðlegum hátíðisdegi þeirra — sumardaginn fyrsta — og hafi afhendingin orsakað hér almennt og pólitískt „jub- el“. Ekki hygg ég allir lesi þessar „nordiska studier" sér til skemmtunar. Eins og títt er í afmælisritum er efnið blandað, sumt alþýðlegt, annað há- visindalegt með táknum og for- múlum sem venjulegur lesandi Lars Svensson botnar lítið I; enn annað ein- hvers staðar á milli. En ég tel skylt að geta bókarinnar hér að nokkru þar sem hún varðar að talsverðu leyti íslenskt mál og málfræðirannsóknir. Tengsl ís- lendinga við hinar Norður- landaþjóðirnar eru margvísleg. Hví rækjum við þau svo þokka- Iega sem raun ber vitni? Á hverju byggist hið margfræga „norræna samstarf"? Land- fræðilegri afstöðu? Stjórnar- farslegri sameiningu fyrr á öld- um? Skyldleikatilfinningu? Ef til vill. En þá má ekki heldur gleyma samhengi því sem felst i málfarslegum uppruna. Ég býst við að flestir skandínavar, sem fást við að snúa íslenskum nútímabókmenntum á tungur sinar, hafi byrjað á „norrænu", siðan út frá henni tekið að glugga í nútímaíslensku þar til þeir höfnúðu í verkum Laxness og annarra nútímahöfunda. Frændur vorir láta okkur sem sé njóta þess á margvíslegan hátt að við erum fyrir þeirra sjónum nokkurs konar lifandi fornleifar í málfarslegum skiln- ingi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.