Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 17

Morgunblaðið - 04.09.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976 17 Eru engar fréttir góðar fréttir? New Vork, 1. september. Nú fer að síga á seinni hluta þessa fundar hafréttarráð- stefnunar hér í New York. Honum á sem kunnugt er að ljúka 17. september. 1 upp- hafi fundarins gerðu menn sér vonir um, að einhver ár- angur kynni hér að nást. B'n fram að þessu hefur ekkert gerzt í þá áttina, sem orð sé á gerandi. Þvert á móti má heyra vonleysis- og uppgjaf- artón í flestum ræðum. Þrautþjáifaðir ráðstefnu- menn segja mér raunar, að ekki sé óalgengt að andrúms- loftið sé með þessum hætti, þegar talsvect er á fundi sem þessa liðið. Menn séu þá farn- ir að þreytast á því að reyna á þolrif hvers annars og hugs- anlegt sé enn, að eitthvað geti gerzt, sem mjaki málum áleiðis. Kissinger hvetur til sáttfýsi Henry Kissinger utanríkisráð- herra Bandaríkjanna hefur verið hér í dag og reynt að beita áhrifum sínum. Hann hóf viðræður í morgun við Amarsinghe, forseta hafrétt- arráðstefnunnar og hefur síð- an rætt við hvern á fætur öðrum þeirra manna, sem hann og hans menn telja lík- legasta til að þoka málum áfram. Nú í kvöld hélt hann síðan boð með fulltrúum frá öllum sendinefndum. Kissinger bauð fram fjárhags- lega aðstoð Bandaríkjanna við að koma á fót alþjóðlegri stofnun til vinnslu jarðefna af hafsbotni á úthafinu og hvatti mjög til þess að sátt- fýsi fengi að rikja svo að von væri til að árangur yrði af ráðstefnunni. Ræða hans fékk góðar undir- tektir, enda krydduð gaman- yrðum og frábærlega vel flutt, en í fjölmiðlum hér er þó varla á hana minnzt. Meðal fulltrúa á hafréttarráð- stefnunni mun þó talið að þetta tilboð Bandaríkja- manna sé skref í áttina og kunni eitthvað að þoka mál- um áleiðis. Árangur í öfugu hlut- falli við þjarkið Sjálfsagt spyrja einhverjir á þessa leið: Hvað gerist á svona ráðstefnum úr því að enginn árangur er sjáanleg- ur? Jú, hér er unnið aö ýms- um störfum, óteljandi hópar, ýmist sjálfskipaðir eða þá formennirnir setja saman nefndir, reyna að samræma sjónarmið hinna mismunandi rikja, eða leggja á ráðin um það hvernig þeir bezt geti komið fram hagsmunamálum sinna ríkja. Störfin i þessum hópum lenda auðvitað þyngst á þeim, sem forystuna hafa, formönnum sendinefnda, en aðrir reyna að sjáflsögðu aö hjálpa til. Mér sýnist árang- urinn vera í öfugu hlutfalli við þjarkið. Nú gera menn sér helzt vonir um, að unnt muni reynast að berja saman nýjan texta, sem muni hafa inni að halda alla fjóra meginkaflana frá því í vor og ef til vill einhverjar viðbótarklásúlur. Kannski verða bara gömlu textarnir heftir saman á ný, með ein- hverjum orðalagsbreytingum og útúrdúrum. Þó kann að vera, að einhverjar efnis- breytingar, sem máli skipta, verði innifaldar. 1 öllu falli verður um að ræða einhverja samræmingu og „endurbót". Textinn verður þá væntan- lega með nýju nafni. Þá er eftir að ákveða hvaða þýðingu hinn endurskoðaði texti hafi, eöa hvaða ,,status“. Um það eins og flest annað er allt í óvissu, en líklegast þó, að gildi hans verði eitthvað svipað og þess texta, sem af- greiddur var i vor, en síðan verði enn á ný haldinn fund- ur á næsta ári og sumir tala jafnvel um að hann verði ekki fyrr en i júlí og að því muni Afríkuþjóðirnar hallast til dæmis. Strandríki og land- luktir í Klúbb 21 Sá starfshópur, sem við af eðli- legum ástæðum höfum mest- an áhuga fyrir, er hér kallað- ur Klúbbur 21, en það er hóp- ur tíu strandríkja og tíu land- luktra og landfræðilegra af- skiptra ríkja, sem leitast við að finna samkomulagsgrund- völl auk formannsins. Þessi hópur heldur stöðuga fundi og ég spurði Hans Andersen í dag, hvað á þeim vettvangi gerðist. Hann sagði eitthvað á þessa leið. „llingað til hafa allar sam- komulagstilraunir strandað fyrst og fremst á því, að strandríkin hafa haldið fast við það, að það lengsta sem unnt væri að ganga, væri að landluktu rikin fengju for- gang að umframmagni, en þau telja það ekki nægilegt og vilja fá veiðiréttindin, þótt ekkert umframmagn sé. En hver sem niþurstaöan af þessum deilum kann aö Eyjólfur K. Jónsson skrifar frá hafréttarráðstefnunni í New York verða, .þá er enn um það sam- komulag að ákvæðin í 58. og 59. grein, sem um þessi efni fjalla, mundu ekki ná til okk- ar, þótt eitthvaö yrði látiö undan kröfum landluktu ríkjanna. Við mundum fá sér ákvæði, sem okkur nægði. Þannig horfa málin við, a.m.k. nú á þessari stundu." Auðlindalögsagan alþjóðleg lög En hvað þýðir þessi seinagang- ur þá fyrir okkur? Fáum við engin alþjóðalög, sem tryggja réttindi okkar? Von er að spurt sé. Skoöun mín er sú, að 200 mílna auðlindalögsagan sé þegar orðin að alþjóðalögum, og frá þeirri reglu verði héðan í frá ekki hvikað. Stöðugt fleiri ríki lýsa yfir 200 milna efnahagslögsögu og flest strandríki heims munu á næstunni fylgja í fótspor þeirra, sem ötulast hafa bar- izt fyrir 200 milunum. Sjálf- sagt verður fundað og þingað áfram um hafréttarmálin, en þar verður það ekki efna- hagslögsagan, sem fyrst og fremst verður þráttað um. heldur hagnýting auðæfa hafsbotnsins utan 200 míln- anna, en einmitt á því stranda málin, því að þróun- arríkin vilja að sú stofnun, sem sett verði yfir þessi mál- efni, sé fyrst og fremst á þeirra valdi, en iðnríkin vilja ríkari þátt i stjórninni. ís- lendingar hafa að vonum lít- inn áhuga á þcssum ættti málsins og skal ég því ekki ræða hann frekar. 200 mílurnar tekur engin af okkur Óhætt ætti að vera að segja, að við getum tekið öllu með ró. Það er ekkert sáluhjálparat- riði fyrir okkur að hafréttar- sáttmálinn verði gerður. Við höfum fengið okkar 200 míl- ur og þær tekur enginn af okkur aftur. Auðvitað viljum við þó stuðla að því, að lög og réttur megi ríkja á heimshöf- unum, eins og raunar um ver- öld alla, og þess vegna hljót- um við að leggja það litla, sem viðgetum, af mörkum til þess að hafréttarráðstefnan beri árangur, en fari ekki út um þúfur. Talsvert hefur hér verið rætt um fyrirkomulag á lausn deilumála, sem milli rikja kynnu að rísa út af hafréttar- málum og tillögur lögspek- inga hafa verið eins og skæðadrífa. Kkki fæ ég þó séð, að við höfum neitt að óttast í því efni, ef greinar númer 50 og 51 fá að standa óbreyttar, en þar er annars vegar ákveðið, að strandríkið fái að ákveða hve mikinn afla megi taka og hins vegar, að standrikið skuli stjórn því hvernig þessu aflamagni er náð og hverjir stundi veið- arnar. Sem sagt: full og óskoruð yfirráö strandríkis- ins yfir fiskveiðunum. EBE menn þreifa fyrir sér Siðastl. föstudag kom brezki þingmaðurinn Prescott ásamt þýzka þingmanninum Schmit og aðstoðarmanni þeirra frá Flfnahagsbanda- laginu til viðræðna viöokkur Islendinga um hafréttarmál- efni. Kvaðst hann vilja kynna sér afstöðu Islendinga til ýmssa þátta hafréttarmál- anna, þótt hann vissi raunar fyrir fram margt í því efni. Var farið vítt og breytt yfir efnið, en að u.þ.b. klukku- tima samræðum loknum kom hann að þvi sem ára'ðanlega var aðalerindið. að þreifa fyr- ir sér um það, hver afstaða okkar mundi vera til áfram- haldandi fiskveiðiréttinda Breta við ísland eftir 1. des- ember. Það er skemmst frá að segja, að við Islendingarnir, sem vor- um fulltrúar allra stjórn- málaflokkanna, ásamt Hans G. Andersen og Má Flíassyni fiskimálastjóra, gerðum augnablikshlé á viðræðun- um, gripum til móðurmálsins og komum okkur saman um að segja með þeim orðum, sem ekki yrðu misskilin, að engin frekari fiskveiðirétt- indi til handa Efnahags- bandalagsrikiunum en þau, sem þegar var um samið, gætu konnð til greina. Við teldum að aðeins væri hugs- anlegt að semja um gagn- kvæm fiskveiðiréttindi, við fengjum jafn niikinn rétt innan 200 mílna Efnahags- bandalagsríkjanna eins og þau hjá okkur, ef báðir aðilar teldu sér það hagstætt. Nú horfðu málin þannig við, að Efnahagsbandalagsríkin hefðu næsta árið rétt til að veiða sextíu þúsund tonn hjá okkur og nær væri að við spyrðum hvað við ættum að fá í staðinn fyrir það. heldur en að farið yrði fram á. að réttindi til handa Efnahags- bandalagsríkjunum yrðu aukin. Við lögðum lika áherzlu á. að tollamál og önnur viðskipta- mál yrðu af okkar hálfu ekki tengd fiskveiðiréttindum. En þeim Efnahagsbandalags- mönnum þótti við vera nokk- uð harðir í hdTn að taka og kom það glöggt í ljós í einka- viðræðum eftir þenrian fund. en þeir vita þó a.m.k. hug okkar allan, að við viljum ekki að þeir fái meira en sex- tiu þúsund tonnin á næsta ári. Svo geta þeir skipt þeim á milli sín. ef að þeim svo sýnist. Þetta er nú í stuttu máli það. sem gerzt hefur og ekki gerzt hér í New York. og má víst nærri segja, að fréttirnar seu engar. en kannski eru engar fréttir góðar fréttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.