Morgunblaðið - 04.09.1976, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
19
BLÚM
VIKUNNAR
UMSJÓN: Á.B.
MJAÐURT
(Filipendula)
, ■»
„TINDI ég blóm á túni gróanda, möðru mjallhvíta og mjaðurt,"
kveður Benedikt Gröndal er hann minnist æsku sinnar á
Álftanesi, Mjaðurt vex hér allvíða villt ! rakri jörð, einkum á
sunnanverðu landinu og er einnig talsvert ræktuð í görðum,
bæði sem skrautjurt og ilmjurt. Þrífast ágætlega í frjórri
garðmold. Flestir þekkja mjaðurtina á stórum, gulhvítum,
ilmandi blómskúfum. Blómin sitja mörg saman og er hvert
einstakt blóm mjög lítið. Fræflar eru gulhvítir eins og krónu-
blöðin og standa út úr blómunum Öll jurtin ilmar, blóm, blöð
og rót. Mjaðurt er fjölær, og fremur stórvaxin, 25 — 80 sm á
hæð eftir vaxtarkjörum, ber stór fjaðurskipt blöð, græn að ofan
en gráhvít og lóhærð á neðra borði. Stönglar eru stinnir og trén
með aldrinum. Þeir standa eftir þurrir og visnir að vetrinum.
Má þá stundum sjá fræ frá belghýðunum á þeim skoppa á
fönnunum.
Mjaðurt hefur í sér ýmis lyfjaverkandi efni, t.d. salicyl, og
var fyrrum notuð til lækninga, m.a. sem svitaörvandi lyf. Þá
voru þurrkuð blómin notuð í mjöð, öl og brennivín til
bragðbætis (sbr. nafnið mjaðurt). Loft er í fræjunum og berast
þau oft með vatni, enda vex mjaðurt oft við vötn, skurði og
læki. Búfé sneiðir hjá mjaðurt nema geitur. Þeim líkar vel
kryddbragðið.
Skyld mjaðurtinni er RISAMJAÐURT (Filipendula — eða
Spiraea gigantea) ættuð frá Norð-austurasíu. Flún verður allt
að 2 metrar á hæð með stór handflipótt blöð fagurlega byrgjuð
eða hrokkin. Blómin eru hvítleit og sitja fjölmörg í afar stórum
sveipum. Risamjaðurt er tilkomumikil og fer vel úti í miðri
grasflöt eða í horni garðsins. Fremur rakur jarðvegur á vel við
hana eins og íslenzku mjaðurtina. Fjölgað með skiptingu og
fræi.
Til eru afbrigði með breytilegum blómalit. |.D.
Styrktarfélag vangefinna
með fræðslufund eystra
FJÓRÐI fræðslu- og aðalfundur
Styrktarfélags vangefinna á Aust-
urlandi var haldinn I Heppuskóla
á Höfn I Hornafirði sunnudaginn
22. ágúst. Fundir sem þessi hafa
verið haldnir árlega frá stofnun
félagsins sem næst á miðju
félagssvæðinu. Fyrirlesarar á
fundum þessum hafa verið valdir
úr hópi þess fólks sem fremst
stendur f baráttunni fyrir aukn-
um réttindum vangefins fólks f
landinu.
Vegna þess hve félagssvæðið er
stórt hefur sókn á þessa fundi
verið lítil úr nyrztu og syðstu
hlutum Austurlands og því var að
þessu sinni haldinn fundur á
Höfn til að koma til móts við
félaga úr A-Skaftafellssýslu. I
tengslum við fund þennan var
sölusýning á vinnu heimilisfólks i
Bjarkarási. Aðalfræðari félagsins
að þessu sinni var Helga Finns-
dóttir, formaður Félags foreldra
barna með sérþarfir. Auk þess
kynnti stjórnin félagið og starf-
semi þess fram að þessum tíma.
Ber þar hæst byggingamál. Nú
hafa verið teiknuð hús fyrir starf-
semi félagsins á lóð þess á Egils-
stöðum, og er vonazt til aö hægt
verði að hefja byggingu þeirra
snemma á næsta ári. Hafa þegar
verið veittar 10 milljónir krónatil
þeirra. Meðan á fundi stóð var
fundarmönnum öllum boðið til
kaffidrykkju að Hótel Höfn i boði
Hafnarhrepps og hótelsins. Hafði
Óskar Helgason, oddviti orð fyrir
gestgjöfum og flutti þau tiðindi,
að Anna Guðný Guðmundsson,
ekkja Halldórs Ásgrímssonar,
alþingismanns, hefði ákveðið að
gefa félaginu 100 þúsund krónur.
Að fundi loknum var sett á lagg-
irnar nefnd skipuð heimamönn-
um á Höfn, sem verður tengiliður
stjórnarinnar I A-Skaftafelssýslu.
Nefnd þessa skipa Vilborg
Einarsdóttir, Arni Stefánsson og
Sævar Kr. Jónsson. Ákveðið
hefur verið að halda fræðslufund
sem þennan á Vopnafirði sunnu-
daginn 5. september.
AUGLÝsrNGASÍMINN ER:
^22480
1 •
J iRorflunbiflbib
Sérleyfisbílar á Sel-
fossi auka þjónustuna
SÉRLEYFISBlLAR á Selfossi
hyggjast auka við þjónustu sína í
vetur með því að hefja ferðir kl. 7
árdegis alla virka daga. Eru þess-
ar ferðir einkum ætlaðar skóla-
fólki frá Hveragerði og Selfossi
sem sækir skóla á höfuðborgar-
svæðinu og öðrum þeim sem
þangað sækja atvinnu en kjósa að
komast heim á degi hverjum.
Þetta fólk hefur síðan um þrjár
ferðir að velja aftur til baka sfðar
um daginn og er hin siðasta kl. 6.
Gerð var tilraun með þessa
þjónustu sl. vetur og þótti hún
takast vel. Komu tilmæli frá um
10—15 aðilum um að haldið yrði
áfram með þessar ferðir, og því
ákveðið að gera tilraun með þær í
auknum mæli i vetur. Hefur þetta
í för með sér að farnar verða 30
ferðir i viku hverri i stað 24ra
áður.
Forsvarsmenn Sérleyfisbíla
segjast binda verulegar vonir við
þessa auknu þjónustu. Þessi leið
hafi átt við sömu erfiðleika að
stríða og aðrir sérleyfishafar, að
farþegum hefur farið fækkandi.
Venjan hafi verið sú að forsvars-
menn þessara fyrirtækja hafi
dregið úr þjónustu til að fá fram
betri nýtingu en í þessu tilfelli
væri reynt að auka þjónustun i
von um aó farþegum fjölgaði.
Mildur?
Já,en ekkivið fitu og
matarleifar.
Palmolive-uppþvottalögurinn
er mjög áhrifamikilI og gerir
uppþvottinn Ijómandi hreinan og
skínandi — jafnvel þóttþér þurrkið
ekki af ílátunum.
Jafnframt er efnasamsetningin
; í Palmolive þannig, að hann
er mjög mildur fyrir hendurnar.
nm&r <yh\ ' Prófiðsjálf...
Palmolive í uppþvottínn