Morgunblaðið - 04.09.1976, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. SEPTEMBER 1976
31
Tapa bændur
130 millj. kr.?
50 kr. vantar upp á verð hvers kílós af gærum
ALLAR horfur eru nú á að sauð-
fjárbændur f landinu tapi um 130
millljónum krðna þar sem um 50
krónur vantar upp á verð hvers
kflós af innlögðum gærum frá
haustinu 1975. Við verðákvörðun
landbúnaðarafurða, sem fram fór
1. september 1975, var verð hvers
kflós af gærum ákveðið 192,50
krónur og að viðbættum slátur-
kostnaði og sjóðagjöldum hefði
verð hvers kflós orðið 290 krónur.
Búvörudeild Sambands fsl. sam-
vinnufélaga, sem sér um að selja
mest af þeitn gærum, er til falla f
landinu, seldi þær ýmist til Pól-
lands eða til innlendra sútungar-
verksmiðja og var verðið er
fékkst fyrir hvert kfló, um 240
krónur.
Agnar Tryggvason hjá Búvöru-
deild SÍS sagði að áður en ákvörð-
un um verð á gærunum 1. septem-
ber 1975 hafði verið tekin, hefði
sexmannanefnd óskað eftir upp-
lýsingum frá þeim um það verð,
er þeir teldu að mögulegt væri að
fá fyrir gærurnar á erlendum
markaði en ekki hefði verið tekið
mark á þeim upplýsingum og
verðið ákveðið hærra en þeirra
tillaga hljóðaði.
HjáAgnari kom fram, að hingað
til hefði gilt sú hefð að selja inn-
lendum sútunarverksmiðjum
gærur á sambærilegu verði og er-
lendar verksmiðjur fengju hrá-
efni sitt. Verðið, sem fengizt hefði
fyrir fslenzkar gærur, er seldar
voru til Póllands var eins og áður
sagði um 240 krónur fyrir kílóið,
þegar búið varað draga frá
flutningskostnað en að frádregn-
um sláturkostnaði og sjóðagjöld-
um var verðið um 140 krónur.
Það, sem upp á vantaði að skráð
verð næðist, var bætt með út-
flutningsuppbótum og var veitt
til þess 13 milljónum króna.
„íslenzku verksmiðjurnar
verða á fá sitt hráefni á sama
verði og þær erlendu, eigi þær að
verða samkeppnishæfar en það er
samt sem áður ótækt að bændur
fái ekki rétt verð fyrir sina vöru.
Upphafið að þessu er að gæru-
verðið var skráð of hátt í fyrra-
haust og því hefur ekki verið
breytt. Það liggur ekki enn ljóst
fyrir hvað mikið vantar upp á
verð hvers kilós hvort gripið
verður til sérstakra ráðstafana til
að brúa þetta bil,“ sagði Agnar að
lokum.
„Með sínu nefi”
Ný plata Vilhjálms með ljóðum Kristjáns frá Djúpalæk
FALKINN hefur nú gefið út nýja
hljómplötu með Vilhjálmi
Vilhjálmssyni söngvara en á plöt-
unni syngur hann Ijóð og texta
eftir Kristján frá Djúpalæk. Plat-
an heitir „Með sínu nefi“, en alls
eru 11 lög á henni.
Mjög hefur verið vandað til
plötunnar og fór mikill tími i upp-
töku hjá Hljóðrita í Hafnarfirði,
en upptökustjóri var Jónas R.
Jónsson. Lögin á plötunni eru
Kristján frá Djúpalæk.
bæði gömul og ný og eru þau
gömlu færð í nýjan búning. Fjög-
ur lög eru eftir Gunnar Þórðar-
son, 2 eftir Svavar Benediktsson,
eitt eftir Magnús Kjartansson, tvö
eftir Ágúst Pétursson, eitt eftir
Pálma Gunnarsson og eitt eftir
Magnús Eiríksson.
Textarnir á plötunni fylgja með
sérprentaðir. Vilhjálmur hefur
fengið marga beztu hljómlistar-
menn landsins til liðs við sig á
plötunni og má þar nefna Gunnar
Þórðarson, Jón Sigurðsson,
Magnús Ingimarsson, Magnús
Kjartansson, Ragnar Sigurjóns-
son, Þorvald Steingrimsson,
Pálma Gunnarsson, Engilbert
Jenssen, Halldór Pálsson, Viðar
Alfreðsson, Björn R. Einarsson,
Björgvin Halldórsson, Rúnar
Georgsson, Gunnar Ormslev og
Vilhjálm Guðjónsson.
Á fundi með blaðamönnum
kynntu Vilhjálmur Vilhjálmsson
og Ölafur Haraldsson forstjóri
Fálkans plötuna en einn huldu-
maður er á plötunni, Njudni, sem
bæði hefur útsett nokkur lög og
lagt víðar hönd á plóginn, en rétt
nafn hans fékkst ekki uppgefið.
Hönnun og gerð umslags annaðist
Anna Consetta Fugaró.
ílMmtVSSOU
i.
A-
H. ‘h wtuwsoir
,____
KWWt> 4.VÓSW50N
> 5áOXKX A.?éTUK#W
a. ÍUIiMK
t 41f>A5tA\AOtyRt?vTR.4.tT3JU
<ár.
Bakhlið plötuumslagsins.
Kaffísala, skemmtiatriði og bingó
Á MORGUN, sunnudaginn 5.
sept., heldur Kvennadeild
Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra kaffisölu f Sigtúni við
Suðurlandsbraut frá kl. 2—6
síðdegis. Þar verða og skemmti-
atriði þar sem fram koma
Pónik og Einar, Omar Ragnars-
son og Magnús Ingimarsson og
tfzkusýning verður undir
stjórn Unnar Arngrfmsdóttur.
Einnig verður bingó. Spilaðar
veða sex umferðir, þar á meðal
um þriggja vikna ferð til
Kanarfeyja, veiðileyfi, mynda-
vél o.fl. Bingóið hefst kl. 4.30.
Kvennadeildin hefur á unda-
förnum áratug stutt æfinga-
stöðina við Háaleitisbraut og
starfsemina í Reykjavík í rik-
um mæli og treystir á velunn-
ara félagsins að leggja því lið
nú sem endranær.
Myndin er úr æfingastöðinni
við Háaleitisbraut.
Richard Valtingojer við eitt verka sinna, sem hann nefnir „Árið 2100“,
eða ,Jlome sweet home“.
Myndlist í Stúd-
en taki allar anum
NVLEGA opnaði Richard
Valtingojer Jóhannsson sýningu í
Stúdentakjallaranum f Gamla
garði. A sýningunni eru átta
graffkmyndir og sjö teikningar.
Myndirnar eru flestar unnar á
þessu ári og eru allar til sölu.
Richard Valtingojer er fæddur i
Austurríki en hefur búið hér á
landi síðan 1960 og hefur m.a.
stundað myndlistarkennslu i
Reykjavík. Hann hefur nokkrum
sinnum áður haldið einkasýning-
ar hér á landi.
Þetta er f fyrsta skipti, sem
sýning af þessu tagi er sett upp '
Stúdentakjallaranum en meining-
in mun vera að bjóða listamönn-
um að sýna verk sin þar. Richard
sagði að staðurinn væri ákaflega
skemmtilegur til að setja upp
svona sýningar og sagði að grafik-
in félli sérlega vel inn í umhverf-
ið.
Gert er ráð fyrir að sýningin
standi a.m.k. út september.
Kröfluboranir
sækjast vel
BORANIR við Kröflu hafa
sótzt vel sfðustu daga. Gufubor-
inn hefur verið við boranir á
svonefndu efra svæði og er þar
kominn niður f 150 metra en
stóri borinn hefur haldið áfram
borun sjöundu holunnar á
neðra svæðinu og sækist verkið
nú allvel. Er borinn kominn
niður f 500 metra dýpi en
fóðrun holunnar er lokið niður
f 300 metra, að þvf er Isleifur
Jónsson, forstöðumaður jarð-
borunardeildar Orkustofnunar
tjáði Morgunblaðinu.
ísleifur kvaðst vænta þess að
borun þessara tveggja hola yrði
lokið fyrir næstu mánaðamót,
en yfirleitt væri reiknað með að
borun hverrar holu tæki 5—6
vikur. Yrði þá strax tekið til við
borun 9undu og lOundu
holunnar.
Auk þessa hefur jarðborun-
ardeildin annazt boranir að Bæ
i Borgarfirði fyrir hitaveitu þar
um slóðir. Þar eru boraðar tvær
holur, og sú sem lengra er
komin þykir ætla að gefa góða
raun en gert er ráð fyrir að
nokkuð þurfi að dýpka hana.
Þá er einnig verið að bora í
Siglufirði en þar er ætlunin að
bora aðra holu vegna þess að sú
sem boruð var fyrr i sumar
þykir ekki gefa nóg vatn.
339 hvalir
t FYRRADAG höfðu veiðzt sam-
tals 339 hvalir. Nú hafa verið
veiddar 275 langreyðar og er þá
kvótinn fylltur og ekki leyfilegt
að veiða meira af þeirri tegund.
Þá hefur veiðzt 61 búrhveli og 3
sandreyðar.
Aðalfundur SSA:
Staða landshlutasamtaka
og Austfjarðaáætlun á dagskrá
EgilsstÖðum, 2. september.
SAMBAND sveitarfélaga í Aust-
urlandskjördæmi heldur aðal-
fund sinn f gagnfræðaskólanum f
Höfn og verður fundurinn settur
á laugardagsmorgun. Stendur
fundurinn f tvo daga. Ilelztu mál
sem rædd verða á fundinum eru:
Staða landshlutasamtakanna og
Austurlandsáætlun.
Um fyrra málefnið hafa fram-
sögu þeir Guðmundur Gunnars-
son, verkfræðingur, fram-
kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé-
laga í Suðurlandskjördæmi, og Jó-
hann Clausen, bæjarstjóri. Fram-
sögu um Austurlandsáætlun hafa
tveir sérfræðingar frá ráðgjafa-
fyrirtækinu Hagvangi, þeir Ólaf-
ur Haraldsson, sem fjallar um
gildi samgangna innan svæðisins
fyrir atvinnuuppbyggingu og
byggðaþróun á Austurlandi, og
Eggert Á. Sverrisson, sem talar
um fyrirtækjagrundvöll á Austur-
landi.
Þá leggur stjórn sambandsins
fram nokkrar tillögur um verk-
efni fyrir nýja stjórn SSA til að
sameina sveitarfélögin um að
leysa ákveðin verkefni og undir-
búa sókn til nýrra átaka i fram-
þróun fjórðungsins. Á fundinum
verða milli 70 og 80 fulltrúar.
alþingismenn og gestir.