Morgunblaðið - 28.09.1976, Síða 3

Morgunblaðið - 28.09.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 3 „Við gerum svo margt,“ sögðu þær þegar við spurðum þær við hvað þær ynnu. „Núna erum við að velta tunnum, en stundum erum við að spyrða eða rífa upp saltfisk, en þetta er svo ofsalega fjölbreytt að það er ómögulegt að telja það upp.“ Þetta þótti okkur duglegir kvenmenn og við spurðum hvort þær ætluðu að vinna í allan vetur? „Nei, ætli það,“ sagði Hjördís. „Við verðum svona eftir þvi sem við nenn- um.“ En langar ykkur ekki til að salta síld? ,Jú,“ svöruðu þær einum rómi, „en það er ekki pláss fyrir fleiri, og svo er þetta svo sem alveg stórfint hér.“ „Blessaö kvenfólkið bjargar þessu vel“ Á leiðinni út hittum við verk- stjórann, Matthías Guðmunds- son, sem var í þann veginn að kalla fólkið i kaffi. „Þetta er bókstaflega eins og heimsstyrj- öld sé að skella á,“ sagði hann. „Blessað kvenfólkið bjargar þessu vel. Við vinnum hér eitt- hvað fram á kvöld og förum heim þegar nátthrafnarnir fara að safnast saman á Hótel- íslands-planinu. Það þýðir ekki að halda áfram i alla nótt, þá mætir enginn á morgunn." Helga Steinarsdóttir. „Eins og heimsstyrjöld sé að skella á” Guðbjörg Þorsteinsdóttir. snert vió þessu í 11 ár,“ sagði Helga, „þannig að það tekur smátima að komast í fullan gang. En það var alla vega gott upp úr þessu að hafa i gamla daga. Það er líka timafrekt að þurfa að flokka sildina. Við get- um náð upp nokkuð miklum hraða við að raða, en það tefur mikið að flokka og skera. Það er líka dálítið þröngt hér, en við vonum að það verði bætt um með hærra verði fyrir tunn- una.“ „Kem beint úr húsverk- unum.“ Guðbjörg Þorsteinsdóttir sagðist aldrei hafa saltað fyrr, en likaði það mjög vel. „Ég bý hérna i næsta húsi, þannig að það er þægilegt að hlaupa i þetta," sagði hún. „Maður er ekki enn kominn upp á lag með þetta, en þetta er þó þriðja tunnan siðan klukkan eitt. Ég held að það sé ekki svo ýkja slæmt. Annars er ég að hugsa um að taka dóttur mina með mér eftir kaffi. Skólafólkinu veitir víst ekki af því að vinna sér inn nokkrar krónur." „Ofsalega f jölbreytt“ Uti í sólskininu hittum við tvær kampakátar stelpur, sem voru að velta tunnum og hjálpa til á ýmsan hátt. Þær sögðust heita Arnhildur Reynisdóttir og Hjördis Guðmundsdóttir. Arnhildur og Hjördfs sögðust vera að týnast f tunnunum, þvl það væri svo mikið að gera. Ijósm. Friðþjófur. ÞAÐ rlkti sannkölluð sfldarstemmning hjá Bæjarútgerðinni við Grandaveg, þegar Morgunblaðið leit þar við 1 gær. Þar var verið að salta fyrstu sfldina, sem landað var úr Jóni Finnssyni I gærmorgun. Föngulegt lið af kvenfólki kepptist við að raða I tunnurnar og strákarnir höfðu varla undan við að færa þeim nýjar tunnur. Við hálfskömmuðumst okkar fyrir að vera að trufla þetta önnum kafna fóik, en það reyndist óþarfi, þv( við fengum góðar móttöku. „Erutn við ekki að bjarga þjóðarbúinu?“ Það var geinilegt á hand- bragðinu hjá henni Elvu Björnsdóttur að hún er þaulvön síldarsöltuninni. Við spurðum hana að því. „Jú, ég hef oft verið í söltun áður," sagði hún, „en alltaf sunnanlands. Afköstin? Ja, ætli ég klári ekki svona 8—10 tunn- ur fyrir hádegi. Það fer svolftið eftir sildinni. Þessi síld er alveg sæmileg, þannig að þetta geng- ur nokkuð vel. Nei, ég veit ekki enn hvað við fáum fyrir tunn- una. Ég er nú að vona að það verði svona 780 krónur fyrir hausskornu sildina þvi maður er nú vfst að bjarga þjóðarbú- inu, eða hvað?“ Var f síldinni á Raufar- höfn. ,Jú, ég var í síldinni á Raufarhöfn í gamla daga,“ svaraði Helga Steinarsdóttir spurningu blm. „Ég ólst upp á Melrakkasléttunni og síldin var þvf allt í kringum mann.“ Er gott upp úr þessu að hafa? spurðum við. „Ég hef nú ekki Elva Björnsdóttir. FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI Aðalstræti 9, símar 1 2940 og 11 255 Gler '76 Alþjóðleg sýning Dússeldorf 7. okt.— 10. okt. '76 SIAL '76 Alþjóðleg matvælasýning París 1 5. — 20. nóv. '76 Pantið snemma. Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu Alþjóðleg sýning á skrif- stofuvörum Köln 19. — 24. okt. '76. IMB '76 Alþjóðleg vélasýning fyrir fataiðnað IfllD Köln 3. — 7. nóv. '76 Pantið snemma Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu. Ódýrar Lundúnaferðir eru að hefjast aftur. Brottför hvern laugardag. MODE- WOCHE Alþjóðleg tískusýning Munchen 3.— 7. okt. '76 Munchenmacht MODE Mode-Woche- Munchén 14.IKA Alþjóðleg matreiðslusýning Frankfurt 21.-28. okt. '76. Pantið snemma Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu Allt fyrir barnið Alþjóðleg sýning cologne international fair for the ö child Köln 8 —10. okt. '76. Útvegum sýningarskrár, sýningarsvæði, aðgöngumiða, hótelherbergs Seljum einnig farseðla með öllum flugfélögum um allan heim á sérstaklega hagkvæmum fargjöldum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.