Morgunblaðið - 28.09.1976, Page 5

Morgunblaðið - 28.09.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 5 Beskytteren I Reykjavtkurhöfn (Ljósm. RAX) FuUkomið danskt varð- skip í Reykjavíkurhöfn sérstöku stjórnrúmi eru siðan Ijósatöfl- ur sem sýna starfsemi hinna einstöku hluta og einnig hvar og hvers konar bilun er um að ræða. komi slikt upp. Vélarrúmið er tviskipt til að starfsemi þar þurfi ekki að stöðvast þótt leki komi í vélarrúm. Auk þessa er skipið mjög vel búið öllum öðrum tækjum, svo sem rödurum. kafbátaleitartækjum og fjarskiptatækjum Þá fylgir þyril- vængja varðskipinu einnig, og getur hún flutt allt að 6 manns, allt eftir hversu lengi og langt á að fljúga Skipið er um 1900 lestir og 75 metra langt, og mjög vel útbúið til gæslu— og björgunarstarfa. Að sögn skipherra er það likt m.a. varðskipinu Ingolf, en þó öllu fullkomnara „Þetta skip er eiginlega beint framhald af hinum varðskipunum Hinir ýmsu hlut- jr sem mönnum hefur þótt mættu vera fullkomnari hafa verið betrumbættir. og þvi má segja að þetta skip sé bara í nokkurs konar tæknilegri þróunarröð' , sagði skipherra „Það sem helzt er ábótavant er meiri hraði, en þyrlan bætir það þó nokkuð vel upp", sagði skipherra i lok viðtalsins við okkur. Skipið er búið einni 7.5 sm fall- byssu, og auk annars smá-útbúnaðar þá eru um borð djúpsprengjur sem hægt er að varpa úr þyrlunni Vegna hmnar miklu sjálfvirkni, samanstendur áhöfnin aðeins af 59 mönnum, en svipuð skip dönsku land- helgisgæslunnar eru með 72 manna áhöfn Yfirmenn, þ e skipverjar aðrir en sjóliðar, eru 1 9. en sjóliðar eru 40 talsins Helmingur þeirra gegnir aðeins skyldukvöðum um hermennsku, en hinir eru i sióhernum til langtima „Þótt ekki séu nema 7 mánuðir síðan skipið var tekið í notkun þá er þegar komin á það hin sæmilegasta reynsla. Það er í alla staði mjög skemmtilegt sjóskip, og útbúnaður þess hefur reynst vel. Þetta er nýtískulegt skip og að öllu leyti sjálfvirkt, þ.e. það þarf engan mann í velarrúm þvl þar er um algera sjálfvirkni að ræða. Það þarf aðeins að ýta á einn takka eða svo í upphafi, og síðan kemur þar enginn maður, nema um bilun verði að ræða, en það sjáum við allt á sjálfvirkum stjórntöflum, sem sýna staðsetningu bilunar, komi þær upp". Þannig mælti J. Thorsen, skipherra á danska varðskipinu Beskytteren, en skipið liggur nú við Grandagarð. Beskytteren hefur nýlokið 3 mánaða tekinn að ólöglegum veiðum breskur gæslustörfum í grænlensku fiskveiði- togari þar við strendur. landhelginni, en þar áður var skipið við Eins og áður segir er um algera Færeyjar við sömu störf, og þá var sjálfvirkni að ræða í vélarrúmi. í brú og Alger sjálfvirkni í vélarrúmi — Góður búnaður til gæslu- og björgunarstarfa Roi Jesperson 1. stýrimaður í þyrluþilfari. Roi hóf sjómennsku slna á islenskum togurum. en gekk svo I danska sjóherinn. Þa8 var handagangur I öskjunni þegar vi8 litum viS I eldhúsinu á Beskytteren. Kokkarnir voru hinir vlgalegustu. en handbrögS þeirra voru fagmannleg. Áður á íslenskum togurum. Eftir móttökur í vistarverum skip- herra var okkur fylgt um skipið af Roi Jespersen, 1 stýrimanni Roi þessi hóf sina sjómennsku á islenskum togurum Var hann á Gylfa frá Patreksfirði og Hallveigu Fróðadóttur á árunum 1954—1959 Að því búnu hélt hann til Danmerkur þar sem hann gekk i danska sjóherinn Roi talaði ágætis islensku, og var kunnátta hans at- hyglisverð fyrir þær sakir að hann hefur ekkert talað islensku siðan 1959 Það kom i Ijós á för okkar um skipið með Roi, að skipið er vel hannað og fyrir öllum hlutum séð Vistarverur yfir- mannanna eru allar vistlegar og þar séð fyrir bestu þægindum Sjóliðar búa allir i 2 eða 4 manna káetum sem eru rúmgóðar Skipslæknirinn hefur góð starfsskilyrði að sögn, þar sem eru sérstakt uppskurðarherbergi og svo annað til almennra lækninga Þá eru nokkur herbergi útbúin til að skipverjar geti dundað við einhverja tómstunda- iðju I skipinu er einnig fangeísi, en að sögn Roi hefur það aldrei verið notað Skipið verður almenningi til sýnis á miðvikudag (29 sept) frá kl 1 4— 1 7. VITIÐÞIÐ...? ... HVAÐHÆGT ERAÐ GERA SVAKALEGA góð kaup á ÚTSÖL UMARKAÐNUM Föt m/vesti frá kr. 12.000,— Kjólar frá kr. 2.500,— Peysur frá kr. 1.200.— Herraskyrtur frá kr. 1.290.— Kápur frá kr. 6.500.— Pilsdragtir frá kr. 6.500.— Buxna fínflauelspils frá kr. 1.900,— Stakar terylene- buxur, bæði dömu og herra frá kr. 3.000.— Rifflaðar flauelsbuxur frá kr. 2.500.— Herra- og dömubolir í ofsalegu úrvali frá kr. 600,— Skór frá kr. 2.500.— Allt mjög góðar og nýlegar vörur Látið ekki happ úr hendi sleppa TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS tjn KARNABÆR Útsölumarkaöurinn, Laugavegi 66, sími 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.