Morgunblaðið - 28.09.1976, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.09.1976, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 Alfreð Þorsteinsson: Vilmundur Gylfason villir á sér heimildir Pólitískir skúrkar í skikkjum vandlætara eru engin nýlunda. Einn slíkur féll af stalli vestur í Bandaríkjunum fyrir tveimur ár- um. 1 kosningaáróðri sínum hét Nixon kjósendum að berjast gegn glæpastarfsemi og uppræta hvers kyns spillingu í opinberu lífi, er átti að hafa þrifizt undir stjórn demókrata. Raunar var þessi mál- flutningur hans meginuppistaðan í baráttu hans fyrir þvf að komast í Hvfta húsið 1968. Siðferðispostulinn Richard Nix- on reyndist sjálfur vera mesti skúrkur, sem setið hefur á valda- stóli í Bandaríkjunum. Adolf Hitler þóttist einnig ætla að siðbæta þýzk stjórnmál, er hann var að brjótast til valda. Gyðingar og sósíaldemókratar voru úthrópaðir af nazistum sem glæpamenn og óþjóðalýður. GETUR HUGSJÓNA- SMIÐUR FLOKKS VERIÐ ÓHÁÐUR HONUM? Þessi formáli er að ýmsu leyti nauðsynlegur að svargrein til Vil- mundar Gylfasonar, ekki vegna þess, að greinarhöfundur telji hann jafnilla innrættan og fyrr- nefnda skúrka, fjarri þvi, en skyldleiki þeirrar baráttutækni, sem þeir beittu, og þeirrar, er Vilmundur Gylfason beitir, leynir sér ekki. Og sem betur fer er almenningur í landinu nú farinn að átta sig á því pólitfska sjónar- spili, sem þarna býr að baki. Vil- mundur Gylfason er nefnilega meira en atvinnublaðamaður, óháður forskrift nokkurs stjórn- málaflokks, eins og hann lýsir yf- ir í Mbl.grein sinni s.l. laugardag. Hann er einn af áhrifamönnum Alþýðuflokksins, frambjóðandi Anti-. perspirant creme Varanleg svitavörn Kremið á áð bera á sig áður en lagst er til svefns fjögur kvöld I röð, siðan aðeins eftir þörfum, venjulegast tvisvar til fjórum sinnum í viku. Kremið er mýkjandi, er án fítu, gengur vel inn i húðina og varnar að svitablettir myndist i fatnaði. Kremið inniheldur engin ilm- efni og hentar vel bæði kon- um og körlum. KmkKni Endocil k deodorant ***** Sérstaklega áhrifaríkur llmurinn sérstaklega hannað- ur til að halda ferskleika sínum allan daginn. Þornar fljótt og skilur ekki eftur bletti í fatnaði. Hentaröllum. Heildsölubirgðir: Bláfell h.f. Skipholti 7, sími 27033 flokksins við sfðustu þingkosning- ar, og sennilega við þær næstu, auk þess, sem hann var kosinn til þess af flokki sínum að móta nýja stefnuskrá hans. Hvernig í ósköpunum getur slíkur maður lýst þvf yfir, að hann sé óháður forskrift stjórn- málaflokks, sjálfur höfundur nýrrar stefnuskrár Alþýðuflokks- ins. Annaðhvort er maðurinn að gera gys að almenningi með yfir- lýsingu af þessu tagi, eða gera grfn að Alþýðuflokknum. PRÓFSTEINNINN En þannig er reynt að villa á sér heimildir. Vinnubrögð af slíku tagi, ein út af fyrir sig, segja meira um heiðarleika mannsins en margt annað. Að vfsu má vel vera, að Vilmundur Gylfason trúi því sjálfur, að hann geti aðskilið hlutverk sitt, verið óháður at- vinnublaðamaður einn daginn, óháður forskrift nokkurs stjórn- málaflokks, og skrifað stefnuskrá Alþýðuflokksins hinn daginn. En í þessum efnum hlýtur reynslan að vera ólygnust. Eða hver man eftir þvf, að Vilmundur Gylfason hafi af nokkurri alvöru blakað við sfnum eigin flokki eða flokksmönnum f föstudagsgrein- um sfnum, hvort sem þær hafa verið f Vfsi eða Dagblaðinu? Er það ekki einmitt prófsteinninn á það, hvort blaðamaður er frjáls og óháður forskrift stjórnmála- flokks, að hann hafi kjark og getu til að gagnrýna alla flokka jafnt? TVENNSKONAR SIÐGÆÐISMAT Vilmundur ypptir kannski öxl- um og segir sem svo, að hans flokkur hafi hreina samvizku. Þar sé fátt gagnrýnisvert. Kratar séu upp til hópa hvftþvegnir englar. Það séu aðeins Framsóknarmenn, aðallega ráðherrar flokksins, og einn eða tveir af ráðherrum Sjálf- stæðisflokksins, sem hafi óhreina samvizku. Að þessu leyti er Vilmundur ekki hótinu betri en ritstjórar Þjóðviljans, sem undanfarnar vikur og mánuði hafa elt uppi ýmsa einstaklinga utan Alþýðu- bandalagsins, aðallega f Fram- sóknarflokknum og Sjálfstæðis- flokknum, og bent á þá sem sér- staka skúrka f skattamálum. Þjóð- viljinn á hrós skilið fyrir þessa baráttu sína gegn skattamisrétt- inu. En svo undarlega bregður við, að þegar Þjóðviljinn fær að- stoð f þessum málum og er bent á það, að formaður þingflokks Al- þýðubandalagsins, stóreignamað- urinn Lúðvík Jósepsson, greiði aðeins 575 krónur í tekjuskatt, þá hættir Þjóðviljinn baráttu sinni og þegir þunnu hljóði. Þetta heitir að hafa tvenns kon- ar siðgæðismat á hlutunum. „Mór- allinn“ fyrir Jón og séra Jón er ekki f sömu skúffunni. En vita- skuld verða allir að sitja við sama borð f þessum efnum, hvort sem um er að ræða aðila í Sjálfstæðis- flokknum, Framsóknarflokknum, Alþýðubandalaginu eða Alþýðu- flokknum, þó að rétt sé að taka það fram, að vitaskuld geti flokk- arnir ekki sem slíkir borið ábyrgð á gerðum fylgismanna sinna. En þær kröfur verður að gera til þeirra aðila, sem skrifa greinar f blöð að staðaldri undir yfirskyni heiðarleika og hlutleysis, að þeir skirrist ekki við að benda á mál, sem eru viðkomandi þeirra eigin flokki eða flokksbræðrum. Ann- ars eru þeir ekki trúverðugir. Að þvf leyti hefur Vilmundur Gylfa- son algerlega brugðizt hlutverki sínu. Hann hefur þagað yfir ýms- um málum, sem snerta Alþýðu- flokkinn, málum, sem honum er fullkunnugt um og ætti að hafa aðstöðu, betri en ýmsir aðrir, til að upplýsa. Þau mál verða ekki rakin hér og bíða betri tfma. En nú skal vikið að einu máli. lAntökur EINARS OG GYLFA Þ. Af öllu því moldviðri, sem Vil- mundur Gylfason hefur þyrlað upp og reynt að tengja við Fram- sóknarflokkinn, stendur aðeins eitt mál eftir. Og það er eina málið, þar sem Vilmundur hefur lagt staðreyndir á borðið f stað skoðana sinna. Hér er átt við lán- töku Einars Ágústssonar í Lands- bankanum, 5.7 millj. kr. til átta ára með 18% vöxtum. Vissulega nýtur utanrfkisráð- herra f þessu tilviki óvenjulegrar fyrirgreiðslu f bankakerfinu, sem almenningur á ekki kost á. Það hefur ráðherrann viðurkennt f viðtali við Þjóðviljann, en jafn- framt gert grein fyrir ástæðum þeim, sem lágu að baki. Um þær verður hver og einn að dæma. En hvað vakti fyrir Vilmundi með því að vekja sérstaklega at- hygli á lántöku Einars Ágústsson- ar? Jú, ekki aðeins, að hér væri um „siðlausa“ lánveitingu að ræða, þó að hún væri lögleg, held- ur ekki síður hinu, að hér hefði ráðherra Framsóknarflokksins brotið f blað og farið inn á nýjar brautir. Annars hefði þessi frétt ekki þótt neitt tiltökumál. En hér rfður siðleysið ekki við einteyming. Vilmundur vissi af þvf, áður en hann kastaði þessari „bombu", að aðrir áhrifamenn f þjóðfélaginu höfðu notið sam- bærilegrar lánafyrirgreiðslu, og meira að segja talsvert stærri að vöxtum en sú, er utanrfkisráð- herra fékk. Nú er það út af fyrir sig engin vörn fyrir utanrfkisráðherra, að einhverjir aðrir hafi fengið hag- stæð lán. En er það ekki siðleysi, þegar „óhlutdrægur" blaðamaður eins og Vilmundur, sem veit um þau mál, skuli þegja yfir þeim? Beinlfnis hylma yfir með mönn- um, sem eru tengdir honum? 1 þvf sambandi hefur verið rifj- að upp, að núverandi formaður þingflokks Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gfslason, fékk árið 1949 lán til húsbyggingar ásamt nokkrum öðrum prófessorum við Háskól- ann. Reiknað hefur verið út, að þetta lán jafngildi 7—8 millj. kr. í dag. Þetta þóttu há lán á þessum tfma og þættu enn í dag. I þessu sambandi má benda á, að sam- kvæmt upplýsingum Alþýðu- blaðsins s.l. laugardag, námu þessi lán helmingi byggingar- kostnaðar. Lánin voru ekki til átta ára með 18% vöxtum heldur til 30 ára með4%vöxtum. VILL VILMUNDUR SVIPTA HULUNNIAF? Auðvitað má það vera, að það stafi af gleymsku, að Vilmundur nefndi ekki þessi lánamál. Kannski ætlaði hann að gera það sfðar, þó að honum hefði ekki unnizt tími til þess ennþá. Nú hefur það ómak hins vegar verið tekið af honum. Hins vegar er það ómaksins vert fyrir Vil- mund að fylgja þessu máli ögn eftir, og það gæti t.d. verið uppi- staðan f næstu föstudagsgrein hans. Því hefur verið fleygt, að vextir af þessu langa og hagstæða láni hafi verið lækkaðir verulega. Ég þykist vita, að Vilmundur Gylfason muni vera mér sammála um það, að hér sé um einstakt hneykslismál að ræða, ef satt reynist, slfkt hneyksli, að lánamál utanrfkisráðherra blikni í saman- burði við það. Ekki er að efa, að allur almenningur f landinu, sem greiða verður hálfgerða okurvexti Haesvn húsmóðir notar Alfreð Þorsteinsson af húsnæðislánum, yrði feginn því að hafa tækifæri til að lækka vexti af sínum lánum um helm- ing. Eða hvað heldur Vilmundur um það? Nú er spurningin þéssi! Er Vil- mundur reiðubúinn til að aðstoða við að upplýsa þetta mál og kannski önnur viðkomandi Há- skólanum? Það mætti t.d. spyrja hvort aðrir starfsmenn Háskólans hafi sfðar átt kost á sömu fyrir- greiðslu og Gylfi Þ. og félagar. Það kann að vísu að koma illa við einhverja, en um leið gæfist Vil- mundi tækifæri til að afsanna þá fullyrðingu, að hann sé háður ein- um tilteknum stjórnmálaflokki. UPPBOÐS VARNINGUR Sá, sem þessar lfnur skrifar, hefur leitazt við að benda á, hvernig Vilmundur villir á sér heimildir. Á bak við penna at- vinnublaðamannsins Vilmundar Gylfasonar leynist hugsjónasvip- ur Alþýðuflokksins. Ein helzta sjónhverfing hans hefur auðvitað verið sú að fá inni með greinar sínar í önnur blöð en Alþýðublað- ið. Það hefur honum tekizt, og raunar meira en það. Honum hef- ur tekizt að gera skrif sfn að eins konar uppboðsvarningi. Dagblað- ið býður hærri ritlaun en Vfsir — samkvæmt hans eigin upplýsing- um í Mbl. s.l. laugardag — og þá er rokið til og skrifað í Dagblaðið. Dylgjur f garð undirritaðs um það, að hann hafi skrifað nafn- lausa grein f Mánudagsblaðið um lánamál Gylfa Þ. eru út í hött. Skrif undirritaðs eru enginn upp- boðsvarningur, hvorki fyrir Vfsi, Dagblaðið né Mánudagsblaðið. Og Vilmundi ætti að vera kunnugt um það, að hver sem er getur gengið inn á skrifstofur borgar- fógeta til að verða sér úti um veðbókarvottorð. Og enginn hefur fellt neitt niður úr athugasemd- um hans, er birzt hafa í Tímanum. LOKAORÐ Kunnugir brosa, þegar Vil- mundur Gylfason lfkir skrifum sfnum við það bezta, sem gerist í þeim efnum í Bretlandi. Það er svona álíka og Hilmar Jónsson sálufélagi Vilmundar færi að líkja eftir skrifum sfnum við verk Halldórs Laxness. Övandaðir menn hafa á öllum tímum reynt að komast til áhrifa með þvf að rægja andstæðinga sfna, opinberlega eða með öðrum hætti. í nokkrar vikur gengu hér um borgina, og reyndar vfðar, list- ar yfir meinta ávísanafalsara. Nöfn nokkurra helztu trúnaðar- manna Framsóknarflokksins í Reykjavfk, þ.á.m. ráðherra og borgarfulltrúa, voru þar efst á blaði ásamt nöfnum nokkurra þekktra fjárglæframanna. Það skyldi aldrei vera, að Vilmundur Gylfason og helztu samstarfs- menn hans þekktu eitthvað til höfunda þessara lista? Vonandi gefst tækifæri til þess fyrr en síðar að ræða þessi mál við stjórnmálamanninn Vilmund Gylfason. Framboð Alþýðuflokks- ins eru óvenju snemmkynnt að þessu sinni. NMMMMMMR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.