Morgunblaðið - 28.09.1976, Page 18

Morgunblaðið - 28.09.1976, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10100 Aðalstræti 6, simi 22480 Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Umferðin og skammdegið Islendingar eru fámenn þjóö í stóru landi. Því hefur á stundum verið haldið fram, að það liggi á mörkum hins byggilega heims. Og einsýnt er, að þær nytjar, sem lands- menn hafa af láði og legi eru með þeim hætti, að þjóðin þarf að byggja land- ið allt. Fiskimiðin, sem af- koma þjóðarinnar og fjár- hagslegt sjálfstæði hvila einkum á, umlykja landið allt, og sjávarplássin, sem eru hornsteinar útgerðar og fiskiðnaðar, mynda keðju byggðarlaga á gjör- vallri strandlengju ey- landsins. Eigi þjóðin að vera sjálfri sér nóg um neyzluvörur þær, sem land- búnaðurinn leggur á borð hennar, er og óhjákvæmi- legt að nýta takmörkuð landgæói sem viðast á land- inu. Báðar þessar hefð- bundnu atvinnugreinar þjóðarinnar tengjast og vaxandi iðnaði í landinu böndum, sem ekki mega bresta, bæði sem ómissandi hráefnagjafar og markað- ur fyrir margháttaða iðn- aðarþjónustu. Sú dreifða byggð, sem þann veg virðist undir- staða velmegunar þjóöar- innar, kallar á traustar og öruggar samgöngur, sem einnig þjóna þýðingar- miklu félagslegu hlutverki. Sú hefur orðið raunin á að samgöngur, í lofti, á sjó og á landi, gegna í æ ríkara mæli undirstöðuhlutverki í þjóðlifinu og þjóðar- búskapnum. Vegna stað- hátta hefur þessi þróun leitt til ört vaxandi bif- reiðaeignar landsmanna. Bifreiðin er fyrir löngu orðin helztur farkostur landsmanna, ekki aðeins landshluta og byggðarlaga á milli, heldur einnig í dag- legu lífi manna í byggðum landsins, sem oft eiga langa leið að fara milli heimilis og vinnustaðar. Það má vel vera að bifreið- in sé í mörgum tilfellum nýtt umfram þörf. Hitt er þó almannamat, að hún sé i dag jafnsjálfsagður hlutur og það þótti fyrir nokkrum áratugum að eiga hest til að komast á milli bæja. Vaxandi bifreiðaeign landsmanna hefur, þrátt fyrir marga kosti, einnig sínar neikvæðu hliðar. Hún heur vaxið örar en samfélagsleg geta þjóðar- innar til að byggja upp samsvarandi vegakerfi. Og það hefur sýnt sig að ógæti- leg meðferð hennar og skortur á tillitssemi í um- ferð og hlýðni við um- ferðarreglur hefur valdið tjóni langt umfram það sem vera þyrfti. Morgun- blaðið birti í gær tölur um umferöartjón einnar haustviku liðins árs. Á þessari einu viku uróu 85 umferðaróhöpp, sem náðu til 156 ökutækja. Fjórtán slösuðust meira eða minna, og tveir létust af völdum meiðsla. Þessar tölur ná að- eins til umferðaróhappa í Reykjavik og segja því ekki alla söguna. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Reykjavík hefur nokkuð dregið úr slysatíðni í umferðinni á yfirstandandi ári. Fyrstu 8 mánuði ársins slösuðust 69 færri í umferðinni í Reykjavík en á sama tíma- biii í fyrra, eóa 150 manns á móti 219. Árekstrum fækkaði einnig um 245, vóru 1926 fyrstu 8 mánuði þessa árs en 2171 á sama tíma á liðnu ári. Hliðstæð, jákvæö þróun hefur einnig átt sér stað utan höfuó- borgarsvæðisins. Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn, hefur nefnt athyglisverðar tölur í þessu sambandi. Legudagar á sjúkrahúsi kosta nú 15.700 krónur. 69 manna hópur, sem sloppið hefur við meiðsli á þessu ári, sé samanburður við fyrra ár notaður, myndi kosta þjóðfélagið, ef lagður yrði á sjúkrhús, yfir eina milljón króna á dag. Meðal- tjón í árekstri árið 1975 var nær 60.000 krónur, þannig að fækkun árekstra um 245, fyrstu 8 mánuði árs- ins, sparar milli 14 og 15 milljónir króna og raunar nokkru meira miðað við verölag i dag. Þó skipta fjármunir minnstu máli í þessu sambandi. Þær þján- ingar, sem fólk líður, þau örkuml, sem það verður fyrir og sú röskun á högum þess, sem oft fylgir í kjöl- far umferðarslysa, verða ekki metin i peningum. Nú fer í hönd sá árstími — skammdegið —, sem hefur hæsta slysatíðni. Verri aksturskilyrði, vegna myrkurs, hálku og snjóa kalla því á meiri árvekni, varúð og tillitssemi í um- ferðinni. Reynslan hefur sýnt að hægt er að draga verulega úr tíðni um- ferðaróhappa, ef ökumenn og gangandi vegfarendur sameinast í viðleitni í þá átt. í því sambandi gegna fjölmiðlar veigamiklu hlut- verki að halda slíkri viö- leitni vakandi. Því skal enn heitið á landsmenn alla að sýna varúð og háttvísi í umferðinni komandi haust og vetrarmánuði, minnuga þess, að það er of seint að sjá að sér, eftir að óhapp hefur átt sér stað, sem kann að hafa í för með sér óbætanlegar afleiðingar. Þessi viðvörun nær ekki einvörðungu til ökumanna, heldur ekki síður til gang- andi vegfarenda. Foreldr- ar og kennarar þurfa og að leggja hönd á plóginn, varðandi almenna um- ferðarfræðslu. Ekkert barn ætti að vera á stjái við eða á umferðargötum, eftir að skyggja tekur, nema brýna nauðsyn beri til, og aldrei án endurskinsmerk- is. Haldbezta ráðið gegn vá á vegum er tillitsemin. Lát- um hana vera vegvísinn í umferðinni í komandi skammdegi. ,,Að þetta skulí geta komið fyrir í jrlandi. Í gær vörpuðu „þeir" sprengju inn á himili í Belfast og tóku fótinn af dreng. Skilurðu þetta? Aldrei mundi þetta geta komið fyrir á Íslandi". Þessari at- hugasemd var beint til min í áætlunarbílnum á leið frá Kefla víkurflugvelli til Reykjavikur af manni, sem líka var að koma frá Írlandi. Við höfðum bæði verið á ferð i irska lýðveldinu, sem um þessar mundir er að reyna að verj- ast þvi að fá slikt yfir sig að norðan með nýrri og umdeildri ■öggjöf. þar sem lýst er yfir neyðarástandi og lögreglunni, „garda". gefin víðtæk heimild til handtöku og leitar. Raunar höfðu einhverjir „þeir", sem reyndust vera 3 ungmenni úr IRA og tveir félagar þeirra. brennt upp tvo bari i Dublin 1 — 2 dögum eftir að ég sótti þá heim. Á sunnu- dagsnótt höfðu sprungið i þremur börum og tveimur kvikmyndahús- um íkveikjusprengjur og garda fann við leit fleiri ósprungnar á slikum stöðum i miðborginni. Þarna var jafn friðsælt sem á Hressingarskálanum. þegar við komum til borgarinnar á föstudegi og römbuðum inn á þennan gull- fallega Mooneybar i Parnellstræti með ollum sinum gömlu gegnsósa brúnu viðarþiljum og koparhand- föngum. Fengum okkur matarbita og öl og nutum þess að snusa af andrúmsloftinu i Dublin. Það var létt og notalegt. Þarna kom fólk á öllum aldri, settist og rabbaði og horfði á fréttirnar i sjónvarpinu. Hver einasti maður virtist i útliti dæmigerður islendingur. Sumir keyptu sér tvo bjóra í einu til öryggis. Hvergi vottaði þó fyrir háværri ölvimu. þó írar segi sjálfir að sérhver Íri mundi hiklaust klifra yfir 10 naktar konur til að ná i wiskýflösku, ef hann vissi af henni þar. En á sunnudagsnótt var þessi gamli staður orðinn að viður- styggilegri rúst, þar sem þúsundir manna höfðu í áratugi notið sam- skipta. Sömuleiðis hinn fallegi Mooneybar skammt frá sem við dáðumst að á sunnudag. Stóra kvikmyndahúsið, þar sem við þetta sama kvöld sáum kvikmynd- ina um aðra skúrka. „Menn for- setans" i Bandarikjunum, var þó ekki eitt þeirra kvikmyndahúsa, sem brann. Sumar ikveikju- sprengjurnar, sem fundust ósprungnar, voru ekki stærri en sigarettupakki. Og hvernig á að greina slikt frá öllu draslinu. sem þekur gólfin i landi. þar sem allir kasta frá sér drasli — og háma jafnvel i sig meira sælgæti i leik- húsum og kvikmyndahúsum en við. Slik nálægð kemur óneitanlega nær sálartötrinu í manni en prent- aðar fréttir í fjarlægu landi. En gæti slikt komið fyrir hér? Þegar spurt er við heimkomuna hvað hafi gerzt á Fróni meðan maður var i burtu eða iitið er i blaðabunk- ann, er svarið:— Þvi miður engar góðar fréttir! Og svo koma frá- sagnir af morðum og svikum, braski og tortryggni. og fylgja frómar óskir um að þessi eða hinn reynist nú aldeilis skúrkur. Ja. hvað getur ekki gerzt hér? frskur málsháttur segir, að þrenns konar afl sé sterkast: krafturinn i eldin- um, orka vatnsins og afl haturs- ins; frar — og þá á ég að sjálfsögðu við þá fra, sem á vegi minum urðu á akstri um þvert og endilagt Suður-frland eða irska lýðveldið — virðast við fyrstu kynni öllu glaðlegra og Ijúfara fólk i háttum Eftir Elínu Pálmadóttur sinum en við með okkar ger- manska stofn. A.m.k. brjótast koplexarnir ekki út með jafn miklu brambolti og ofsa, þegar drukkur losar um stifluna. Þeir eru fljótir að bregða upp spaugi og eiga urmul af kimnum og högum orða- tiltækjum og gamanspeki, sem raunverulega er höfð til daglegs brúks. Slik kimni er prentuð á lin, tré, postulin. tréspjöld og plaköt, svo menn megi hengja þau upp á vinnustöðum, i íbúðinni hjá sér og ekki sist á börunum og brosað svolitið saman. Sagt er að þarna sé á ferðinni keltnesk arfleifð. sem nái allt aftur til 9. aldar. Semsagt til orðin áður en víking- arnir tóku að herja á það góða fólk, flytja með sér til islands og blanda við það blóði Þykir mér hálfsúrt i broti hve litið af þessum erfðaþætti hefur slæðzt hingað og blandast í þann vefnað. sem Islendingar eru gerðir úr. Ekki veitti okkur af svolitið stærri skammti af græskulausri kimni hér í skammdeginu. fslenzk sveitakona, hún Margrét i Dals- mynni segir i viðtali i blaðinu nú í vikunni:—Ég hefi verið i vinlaus- um boðum, þar sem ekki er hægt að toga orð upp úr nokkrum manni eða konu. Það er alveg undarlegt hve flestum virðist ganga illa að tjá sig og losna við feimni án áfengis. Mér þykir hlýleg þessi sigilda irska ósk. sem þarlendir hafa gjarnan í frammi um leið og þeir lyfta glasi:—Megirðu verða kom- in til himna hálftima áður en djöf- ullinn veit að þú ert dauður! f svipinn man ég ekki eftir neinni ósk með líku orðfæri á íslenzku annarri en orðunum, sem höfð eru eftir Oddi lækni Hjaltalin, sem uppi var á 19. öld og Bjarni Thor- arensen orti eftir:—Ég vildi að þú værir horfinn svo langt ofan fyrir helvíti að djöfullinn sæi þig ekki i bezta kiki! Uppi á vegg á förnum vegi rak ég augun i þessi orð, sem mér þóttu vel við eiga i þessu landi: Guð skapaði timann en hann minnist hvergi á flýti! Það er rétt. Það er enginn æðibunugangur á írum. Þegar vesalings útlendur bílstjóri frá hægri handar landi slangrar yfir á vinstri vegarbrún eða stanzar á miðjum gatnamót- um til að átta sig, flautar enginn eða sýnir óþolinmæði. Vegir eru líka góðir, umferð litil og merking- ar sérlega góðar. Aðvaranir i tæka tið: Götuviti framundan! Verk- smiðjuport með umferð! Hliðar braut í nánd! Kýr á gangi! Þessi siðasta aðvörun sést viða og forð- ar manni frá að lenda á kýrröss- um, þegar þessar hæglátu skepn- ur eru að labba sér til og frá mjöltum. f stað hörkulegs hótun- arorðfæris islenzkra opinberra til- kynnenda, eru í þessu landi miklu fremur skilti með góðlátlegum að- vörunum um hvað eina: Ertu þreyttur. hvildu þig!, Áfengi skað- ar aksturinn! eða Viktu! Vertu ekkert að fara i kapp! Ekki hefi ég enn gert það upp við mig hvað það er, sem veitir þessum skyldmennum okkar i Ira veldi hinu syðra þessa tiltölulega Ijúfu sálarró. Hvort það er kirkjan með skriftum sínum og bænahaldi eða bjórinn á kránum, sem hleypir i smáskömmtum þrýstingnum af streitunni. svo að öll geymd hrell- ing sálarinnar kemur ekki i einni gusu. þegar varnarveggurinn bilar og áheyrandi loks fæst. Þetta tvennt er mest áberandi i þvisa landi. f hverju þorpi og á hverju götuhorni i landinu er bar og i þeim öllum fólk á öllum aldri að stunda tjáskipti. eins og spreng- lærðir sérfræðingar á sálina mundu sennilega orða það. Sagt er að einn bar sé á tiunda hvern ibúa. hvort sem eitthvað er hæft i því. Ekki er heldur skortur á kirkj- um, þvi i hverju þorpi eru margar fallegar kirkjur og ekki léleg kirkjusókn. Alltaf má þar sjá ein hverja, unga og gamla, á bæn, að bera sig upp við guð sinn. Og fullt hús við messugjörð. Ætli ekki sé betra að safna ekki of miklu fyrir i sálina. hvað sem maður geymir þar. áður en tappað er af. Samanburður kemur ósjálfrátt i hugann, þegar ferðast er um fram- andi land, þar sem hver maður getur að útliti og fasi verið fslend- ingur. Ég sá t.d. engan mann á sveitahátíð i bænum Listowarna i hinu hrjóstruga Burrenland, sem ekki var dæmigerður fslendingur i útliti — svipurinn kannski ivið hýrari. Kvöld eftir kvöld flykktist sveitafólkið á skemmtistaðina i bænum, þar sem ungir og gamlir dönsuðu og sungu fram á mið- nætti og hljóðfæraleikarar frömdu fjöruga irska dansa — einn fiðlar- inn sat með barnið sitt sofandi i fanginu — liklega svo mamman gæti dansað. Þó notaleg kimni hafi kannski ekki komið i rikum mæli i okkar arfahlut frá frum, þá höfum við fengið annað — draslarahátt i umgengni. f leikhúsum, bióum og á götum úti henda menn frá sér rusli þar sem þeir standa. Kona við hlið okkar i leikhúsinu át upp úr heilum konfektkassa og lét hann svo detta milli sætanna. Önnur gæddi sér á banana við strætisvagnastöð og lét hýðið detta og hinir alkunnu safnarar gamalla bila. járnarusl og spýtna- braks eru sýnilega lika til á býlun- um. Ástæða þykir til að setja upp skilti með beiðni um að henda ekki rusli, hvar sem tök væru á að sturta úr bil eða henda kössum út fyrir veg — iðulega árangurs- laust. Þvi lika er verið að reyna að kippa þessu í liðinn þarna. Það veitir fslendingi lúmska sjálfs- ánægju að sjá, að ein þjóð er þó liklega heldur styttra komin á þessum vegi en við. En þvi i ósköpunum gátum við ekki heldur erft stóran skammt af kimninni og léttleikanum en þjóðlægan drasl- araskap úr þessari átt? Kannski leynist frjóangi kimninnar i þjóð- arsálinni. ef að er gáð og við förum að rækta garðinn okkar. kippa upp illkvittnisgresinu og sá græskulausu og hlýju gamni. Það ku vera ennþá betra að hafa menningu i lifinu en lif i menning- unni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.