Morgunblaðið - 28.09.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.09.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28 SEPTEMBER 1976 31 — Hringtenging Framhald af bls. 28 lendinga fagnar auknum raforku- framkvæmdum á Norðurlandi. Treystir þingið því, að ekki verði látið staðar numið með tilkomu Kröfluvirkjunar, heldur unnið markvisst að áframhaldandi virkjunum í fjórðungnum. 3. UM SAMTENGINGU ORKU- VEITUSVÆÐA Fjórðungsþing Norðlendinga fagnar tengingu raforkuvera á Norður- og Suðurlandi og telur að áfram eigi að halda á sömu braut. Telur þingið að stefna beri að því að hringtengja orkuveitusvæði landsins sem fyrst, enda skapar slík tenging stóraukið öryggi not- enda raforkunnar og stuðlar að betri nýtingu nýrra orkuvera. 4. UM DREIFINGU RAFORKU Fjórðungsþing Norðlendinga telur, að endurskoða þurfi dreif- ingu raforku á Norðurlandi, jafn- hliða endurskipulagningu raf- orkuframleiðslunnar. Markmið þessarar endurskoðunar skal vera, að treysta og bæta núver- andi dreifikerfi, að tryggja sem jafnast orkuverð í öllu landinu og færa stjórnun raforkudreifingar- innar heim I byggðir Norðurlands í nánari tengsl við raforkunotend- ur. 5. UM EFLINGU IÐNAÐAR A NORÐURLANDI Fjórðungsþing Norðlendinga tekur undir þá skoðun fulltrúa í nefnd um Norðurlandsvirkjun, að stórefla þurfi iðnað á Norður- landi I kjölfar aukins framboðs á raforku í fjórðungnum. Minnir þingið á, að þegar ráðist var í byggingu Búrfellsvirkjunar geng- ust stjórnvöld jafnhliða fyrir upp- byggingu orkufrekrar stóriðju til að styrkja raforkumarkaðinn og halda niðri raforkuverði, jafn- hliða því sem í tengslum við Búr- fellsvirkjun var byggð stór vara- aflsstöð fyrir orkuveitusvæðið. Þingið telur að eigi að vera sam- ræmi í vinnubrögðum stjórnvalda þá og nú beri Iðnaðarráðuneytinu að hafa forgöngu um eflingu iðnaðar á Norðurlandi strax I upp- hafi reksturs Kröfluvirkjunar og fyrri virkjana á landinu nema jafnframt sé komið á fót stórum orkunotendum áNorðurlandi. — Jafnari atkvæðisréttur Framhald af bls. 28 ingu, getur þetta landssvæði náð undirtökum á Alþingi. Er ekki tímabært fyrir lands- byggðarfólk að búa sig undir að mæta þessu nýja tómarúmi, sem skapast með minnkandi áhrifum á Alþingi? Hver verð- ur staða landsbyggðarinnar eft- ir þetta? Það er stóra spurning- in, sem ekki verður komizt hjá að svara. Þessi staða getur verið miklu nær heldur en margur heldur. Það virðist vera ríkjandi stefna f öllum stjórnmálaflokkum að breyta kosningaskipulaginu til jöfnunar miðað við atkvæða- magn. Þessi þróun verður tæp- ast stöðvuð. Spurningin er sú: Er hægt að koma aukinni valda- tilfærslu út í landshlutana til mótvægis, þann veg að hver landshluti fari í auknum mæli með sín sérmál? Við ákvörðun um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga verður ekki komizt hjá því að hafa þessar staðreyndir að leiðarljósi." — Elztu sveitar- stjórnarsamtök Framhald af bls. 28 skoraði þingið og á Alþingi að samþykkja framkomið frumvarp á Alþingi um tvö biskupsdæmi og sérstakt biskupssetur f Norðlend- ingafjórðungi. 8. Ferðamál. Þar var rætt um útgáfu samræmdra ferðabækl- inga fyrir Norðurland í heild og rekstrarerfiðleika veitingahúsa í landsfjórðungnum, sem halda uppi heils árs þjónustu. Þingið fór þess á leit við samgönguráðu- neytið að það birti sem allra fyrst niðurstöður sérstakrar nefndar, sem fjallað hafi um rekstrarstöðu þessara stofnana. 9. Vmis mál. Gerðar voru álykt- anir um eftirtalin efni:a) breytt- arúthlutunarreglur Jöfnunar- sjóðs sveitarfélaga, b) innheimtu gjalda til sjúkratrygginga, c) gatnagerðargjöld, d) endur- skoðun ' sveitarstjórnarlaga, e) simagjöld, f f aúkaframlög af þéttbýlisvegafé, g) byggðaþróun- aráætlanir o.fl., sem sendar voru þingmönnum sem vilja yfirlýsing norðlenzkra sveitarstjórnar- manna í viðkomandi málaflokk- um. Bjarni Þór Jónsson, bæjarstjóri í Siglufirði, var kjörinn formaður Fjórðungssambands Norðlend- inga næsta starfsár, en fyrirhug- að er að halda næsta fjórðungs- þing að Varmahlíð í Skagafirði að ári. — Samgöngu- áætlun Framhald af bls. 28 unarinnar, Vegagerð, flugmála- stjórn og hafnarmálastjóra, gang- ist fyrir fundum f héruðunum, þar sem framlögð „Samgöngu- áætlun Norðurlands" verði kynnt fyrir sveitarstjórnar- og sýslu- nefndarmönnum og öðrum þeim, sem um samgöngumál sýsla á Norðurlandi, þar sem leitað verði ftarlegra ummæla heimaaðila. Þingið leggur til, að fundum þess- um verði lokið á þessu hausti, áður en ný vegaáætlun og fjár- framlög til flugvalla og hafna eru ákveðin fyrir árið 1977. Að fengnum tillögum heimaað- ila heimilar Fjórðungsþingið sam- göngunefnd, ásamt fjórðungsráði, að ganga frá endanlegri af- greiðslu á umsögn Fjórðungssam- bandsins um samgönguáætlun fyrir Norðurlandi. — Könnun á iðnaði Framhald af bls. 28 verði lagðar fyrir næsta fjórð ungsþing. 3. Fjórðungsþing Norðlending; haldið á Siglufirði, 30. águst til 1 sept. 1976, samþykkir í framhald af þeirri frumathugun, sen Framkvæmdastofnun rfkisin hefur lagt fram, um byggðaþróui á Norðurlandi vestra að stofna verði undirbúningshlutafélag svæðinu um nýtingu jarðefna ti iðnaðar. 4. Fjórðungsþing Norðlending haldið á Siglufirði, 30. ágúst til: sept. 1976, bendir á, að þegar sé Norðurlandi kominn vlsir a framleiðslusamstarfi milli fyrii tækja og vekur þingið athygli skipulögðu samstarfi prjónastof og saumastofa. Vitað er að skil yrði eru fyrir slíku samstarfi fleiri iðnaðargreinum og æskileg að það komist á. 5. Fjórðungsþing Norðlending; haldið á Siglufirði, 30. águst til 1. sept., telur að verkefni iðn- þróunarnefndar sé fyrst og fremst að stuðla að atvinnu- og iðnaðaruppbyggingu I landshlut- anum eins og nafn nefndarinnar gefur til kynna. 6. Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Siglufirði, 30. águst til I. sept. 1976, beinir eftirfarandi at- hugasemdum til nefndar, sem nú vinnur að endurskoðun laga um húsnæðismál: a. Þar sem afgreiðsla lána úti á landsbyggðinni hefur verið mjög þung í vöfum skal ákveðið stefnt að því að bankastofnanir á hverjum stað geti á fljótvirkan hátt afgreitt lán Húsnæðismála- stofnunar rfkisins. b. Launaskattur renni óskert- ur til Byggingasjóðs ríkisins. c. Upphæð lána úr Bygginga- sjóði fylgi breytingum á byggingarvísitölu. Fjórðungsþingið væntir þess, að sveitarfélögunum og samtök- um þeirra verði gefinn kostur á að fjalla um tillögyr endurskoö- unarnefndar áður en frágengnar tillögur verða lagðar fyrir Al- þingi. DnnssHðn sivniossoniiR SIÐUSTU INNRITUNARDAGAR Síðasti innritunardagur er miðvikudaginn 29. sept Innritun daglega frá kl. 10—1 2 og 1 —7. REYKJAVÍK Brautarholt 4 slmar 20345 og 24959. Breiðbolt. Arbær, sími 38126. Drafnarfelli 4 simi 74444 KÓPAVOGUR Félagsheimilið simi 38126 HAFNARFJÖRÐUR Góðtemplarahúsið simi 38126 SELTJARNARNES Félagsheimilið simi 381 26. tT UNGUNGAR Allir nýjustu tánmgadansarnir — svo sem Bus stop, Disco stretch, Footstomper, Cleveland continental, Rubi reddress, Crazy fever, Tacatu, Sing sing, Boogie og margir fleiri. Einnig Rock og Tjútt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.