Morgunblaðið - 06.10.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.10.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÖBER 1976 Enn engin ákvörðun um álver við Eyiafiörð AÐUR en samningar geta hafizt um byggingu áiverksmiðju f eigu fslenzka rfkisins og Norsk Hydro, verður rfkisstjórn Islands að mynda sér stefnu um eignarhlut- deild, hvers konar skattameðferð fvrirtækið á að fá, hún verður að taka ákvarðanir um virkjanir. Engum dettur heldur f hug að binda sig við það að álveríð rfsi f Eyjafirði, því að fyrst verður að athuga, hvort náttúran þoli nær- veru slfkrar verksmiðju, f öðru lagi, hvort byggðin þoli hana og f þriðja lagi vilja fbúar Eyja- fjarðar fá álver f nágrenni við sig: Þær viðræður, sem enn sem komið er hafa átt sér stað við Norsk Ilydro, <ru eingöngu könnunarviðræður. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið í gær hjá Garðari Ingvarssyni, sem er i sérstökum viðræðuhópi, sem skipaður var til viðræðna um möguleika á stað- setningu álvers á Norðurlandi eða „Eigum ad selja lélegar kartöflur á hærra verdi” — seffir íalsmaður malvörukaupmanna „VIÐ töldum að við gætum ekki lengur staðið fyrir framan neyt- endur með svo lélega vöru eins og kartöflurnar hafa verið," sagði Magnús Finnsson hjá Kaup- mannasamtökunum þegar Mbl spurði hann f gær um ástæðuna fyrir ályktun félags matvöru- kaupmanna varðandi gæðamat og verðlag á kartöflum. „Það er smá hópur ræktenda," Framhald á bls. 31 á einhverjum öðrum stað en við Faxaflóasvæðið. Garðar sagði enn ekkert ákveðið um það, hvort álver yrði reist og þá væri skiljan- lega enn ekki ákveðin staðsetning þess i Eyjafirði. Samningaviðræð- ur hafa enn ekki hafizt. Garðar sagði að í raun væri aðeins um það að ræða að Norsk Hydro hef- ur með þessum viðræðum haldið sambandi við Islendinga og kvað hann langt siðan norska fyrir- Hlaða og 500 hestar af heyi brunnu HLAÐA og 500 hestar af heyi brunnu í fyrrinótt á Torfastöð- um í Biskupstungum, en elds- ins varð vart kl. 4 um nóttina. Víð rannsókn í gær kom í ljós að eldur kviknaði út frá raf- magni á fjóslofti, en fjósið var undir hlöðunni. Samkvæmt upplýsingum Guðmundar Gíslasonar bónda á Torfastöðum eyðilagðist allt hey í hlöðunni, 500 hestar, en það er einn þriðji hluti hey- forða hans. Kvaðst hann vera með um 1000 hesta í tveimur öðrum hlöðum, en Guðmundur er með liðlega 200 fjár og lið- lega 100 hross. Þrjú hross voru í húsi undir hlöðunni og björg- uðust þau út, einnig bjargaðist hesthús, nýbygging við hlöð- una, en allt var þetta undir sama þaki og fór það allt í eldinum. Slökkvibíll sveitar- innar kom skjótt á vettvang, en það tók 6 klst. að ráða niður- lögum eldsins. tækiið lýsti áhuga á því að reisa álver í samvinnu við Islendinga Framhald á bls. 31 Breytingar á fréttastofu sjónvarps Á FUNDI útvarpsráðs í gær var Baldur Hermannsson ráðinn fréttamaður á sjónvarpinu til að taka við störfum Sonju Diego sem er I þriggja mánaða leyfi. Alls sóttu sex um stöðuna, en auk Baldurs voru það: Alti Freyr Guð- mundsson, Elías Snæland Jóns- son, Gunnar Kári Magnússon, Reynir Jónsson og Þuríður Baxter. Þá kom það fram á fundi út- varpsráðs að Jón Hákon Magnús- son fréttamaður á sjónvarpinu hefur sagt upp störfum og tók hann það fram í uppsögn sinni að ástæðan væri hin slæmu kjör sjónvarpsstarfsmanna. Þessi athurður gerðist á Hvalfjarðarveginum sl. sunnudag. Bifreið sem ók norður veginn bilaði skyndilega, Ifklega farið spindilboltar, og hún hentist út af veginum og ofan I ræsi. Bifreiðastjóri annarrar bifreiðar, sem kom á móti, sá þetta heljarstökk og stanzaði til að koma farþegunum fjórum til hjálpar. Þá kom þar aðvífandi þriðji bíllinn og ók aftan á kyrrstæðu bifreiðina og skemmdi hana. Mildi var að ekki urðu þarna teljandi slys á fólki. Síld fyrir 433 millj. kr.: Meðalverð pr. kíló 30 kr. hærra en í fyrra FRÁ því að síldarsölur hófust í Danmörku I vor hafa fslenzku sfldveiðiskipin selt þar alls 6.262 lestir af síld fyrir 447.841.659.— kr. og er meðalverð pr. kfló kr. 7160. A sama tfma f fyrra höfðu skipin selt 10.165 lestir fyrir 407.001.266.— og þá var meðal- 35 Alþýduflokksmenn: verð pr. kíló kr. 40.04 eða 30.56 kr. lægra en f sumar og haust. Síldarskipin seldu alls 15 sinnum f Hirtshals og Skagen f s.l. viku 932.9 lestir fyrir 72.6 millj. króna og var meðalverð pr. kfló kr. 77.82. Hæstu sölu vikunn- ar átti Skarðsvfk SH með en skipið seldi 109 lestir fyrir tæp- lega 8.6 millj, króna og fékk 78.83 meðalverð. Isleifur VE fékk hins alverð kr. 80.30, Þóður Jónasson EA seldi 37.5 lestir fyrir 3.2 millj. kr., meðalverð 85.38, sem er hæsta meðalverð sem lengi hefur fengist f Danmörku, Dagfari ÞH seldi 28.5 lestir fyrir 2.3 millj. kr„ meðalverð kr. 80.83, Ásberg RE seldi 65.8 lestir fyrir 4.9 millj. kr„ meðalverð kr. 74.75 og Skarðsvík SH seldi 83.4 lestir, fyrir 6.5 millj. kr„ meðalverð kr. 75.43. Greiddu 5,3 millj. kr. af tapi Alþýðublaðsins T«*‘ a greidsluna frádráttarbæra til skatts 35 Alþýðuflokksmenn stofnuðu á sfnum tfma sameignarfélag til þess að styrkja útgáfu Alþýðu- blaðsins á árunum 1974 og 1975. S.l. ár greiddu þessir 35 einstakl- ingar 150 þús. kr. hver til að grynnka á tapi Alþýðublaðsins og sfðan færðu þeir 150 þús. kr. til frádráttar á skattskýrslum sfnum. Morgunblaðið hafði f gær sam- band við Benedikt Gröndal for- mann Alþýðuflokksins og innti nánari skýringa á þessu máli. Benedikt sagði að fyrirtækið Blað h.f. sem rak Alþýðublaðið hefði verið I mikilli skuld vegna tapreksturs á Alþýðublaðinu en þá var leitað til 35 manna sem stofnuðu sameignarfélag til að styrkja útgáfu blaðsins. Haft var samband við vararfkis- skattstjóra til þess að kanna mögulegan skattfrádrátt í þessu sambandi og benti hann á að ef menn skuldbyndu sig í félagsskap til að borga tapið, þá væri það frádráttarbært. Hver þessara 35 manna greiddi 150 þús. kr„ en alls er hér um að ræða 5,3 millj. kr. Þegar til kom vildi Halldór Sig- fússon skattstjóri ekki ábyrgjast þessa færslu til frádráttar og bíð- ur málið úrskurðar skattyfir valda. „Þegar blaðið átti í miklum erf- iðleikum,“ sagði Benedikt, „var Framhald á bls. 31 UM 15 línubátar á Vestfjörðum róa ekki nú vegna deilu þeirrar sem risið hefur milli útvegs- manna og sjómanna um skipta- prósentuna. Eins og sagt hefur verið frá í fréttum sömdu sjó- menn og útvegfcmenn á Súganda- firði um 30% skiptaprósentu og róa 4—5 lírjubátar þaðan, en Utvegsmannafélag Vestfjarða hefur boðið 29,2% annars staðar. vegar hæsta meðalverðið kr. 80.55, en hann seldi 50.1 lest fyrir 4 millj. kr. í gær seldu fimm síldarskip í Danmörku alls, 285 lestir fyrir tæpar 22.2 millj. krona og var meðalverð pr. kíló kr. 77.81. Sölvi Bjarnason BA seldi 67.3 lestir fyrir 5.4 millj., kr„ með- Hins vegar gera lögin ráð fyrir 28,2%. „Þetta varðar nokkra tugi þús- unda á ári,“ sagði Pétur Sigurðs- son formaður Alþýðusambands Vestfjarða í samtali við Morgun- blaðið, en hann kvað þetta mál standa algjörlega fast og engir fundir eru á næstu grösum að hans sögn. Ver doktors- ritgerð við Háskólann Föstudaginn 8. október n.k. fer fram doktorsvörn við verkfræði- og raunvísindadeild Háskóla íslands. Bragi Árnason prófessor mun verja rit sitt „Groundwater systems in Iceland Traced by Deuterium." Forseti verkfræði- og raunvfsindadeildar, Guðmundur Eggertsson prófessor, stýrir athöfninni en andmælendur af hálfu deildar- innar verða prófessor Willi Dans- gaard frá Kaupmannahafnar- háskóla og prófessor Trausti Einarsson. Doktorsvörnin fer fram I hátíðasal Háskólans og hefst kl. 2 e.h. Línubátar á Vestfjöröum: 0,7% ber í milli Þessi mynd er úr umferðinni á mánudaginn þegar allt gekk á afturfótunum. Þarna hefur ökumaður ekki gætt að sér og ekið á næsta bfl fyrir framan. A bls. 18 f dag er einmitt fjallað um aftanákeyrslur. Fleiri árekstrar en f ærri slys 15 ÓHÖPP urðu f umferðinni f Reykjavík í gær en enginn slas- aðist f þessum óhöppum. Sama dag í fyrra urðu 13 óhöpp og f þeim slösuðust þrfr. Vegfarendur hafa staðið sig mjög illa sfðustu tvo dagana. Mánudagurinn var sérstaklega slæmur, en þá urðu 28 óhöpp i umferðinni, þar sem þrfr slös- uðust en engin samt alvarlega. Sama dag í fyrra urðu 9 óhöpp og einn slasaðist, þannig að samanburðurínn er mjög óhag- stæður. Sunnudagurinn var aft- ur á móti betri en í fyrra, nú urðu 2 óhöpp I umferðinni á móti 7 f fyrra. Eignatjónið f þessum óhöpp- um síðustu daga er óskaplegt, þegar haft er i huga að meðal- tjón í árekstri í fyrra var rúmar 58 þúsund krónur. Ef ástandið á að batna, þurfa vegfarendur greinilega að gera stórátak.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.