Morgunblaðið - 06.10.1976, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÖBER 1976
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Óska að kynnastkonu
nálægt miðjum aldri, með
sambúð í huga. Tilboð send-
ist blaðinu fyrir 10. þ.m.
merkt „Einkamál — áhuga-
mál — 102-2525."
Ung kona óskar
eftir vinnu f.h. Margt kemur
til greina. Vön afgreiðslu-
störfum. Hefur bíl. Sími
32941 frá kl. 1—6 e.h.
21 árs reglusöm
stúlka
óskar eftir vinnu. Margt kem-
ur til greina. Góð sænsku-
kunnátta. Upplýsingar í síma
20157.
1 8 ára stúlku
með Verzlunarskólapróf vant-
ar atvinnu strax. Hefur góða
kunnáttu í ensku og dönsku.
Flest kemur til greina. Upp-
lýsingar í síma 81 033.
Maðurmeð reynslu
í bifreiðavarahlutaverzlun,
með góða ensku kunnáttu
óskar eftir verzlunar- eða
lagerstörfum. Tilboð sendist
til Mbl. merkt: Atvínna —
6247.
r til sölu
iVerðlistinn auglýsir.
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað.
Verðlistinn, Laugarnesvegi
82, sérverzlun, sími 3 1 330.
Buxur
Terylene dömubuxur, einnig
drengjabuxur úr terylene og
flaueli. Framleiðsluverð.
Saumastofan, Barmahlíð 34,
sími 14616.
Nýtt Nýtt
Blússur í stærðum 36—48.
Glæsilegt úrval, gott verð.
Dragtin, Klapparstíg 37.
Kniplingará upphluti
fást í íslenzkum heimilis-
iðnaði, Laufásvegi 2.
Framburðarkennsla í
dönsku
Einkatímar. Sími 82226 milli
kl. 1 8 og 19.
Frtmerkjasafnarar
Sel íslenzk frímerki og FCD-
útgáfur á lágu verði. Einnig
erlend frímerki og heil söfn,
Jón H. Magnússon,
pósthólf 3371, Reykjavík.
Benz 309 22ja manna
Viljum kaupa litið notaðan
Benz 309 22ja manna.
Vélsmiðjan Stál, Seyðisfirði
simi 97-2300 eða 2301.
íbúð — Vesturbær
4ra herb. ibúð til leigu nú
þegar við Háskólann. Tilboð
sendist Mbl. fyrir 9. þ.m.
merkt „Góð íbúð — 2898".
Keflavík
Til sölu nýlegt raðhús i mjög
góðu ástandi 5 herb. og eld-
hús. Girt og ræktuð lóð.
Fasteignasalan.
Hafnargötu 27. Keflavík
simi 1 420.
I.O.O.F. 7 = 1581068V2 =
RMR — 6 — 10 — 20 —
KS — MT — HT
I.O.O.F. 9 = 1581068V2 =
9.0.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld miðviku-
dag 6. okt.
Verið öll velkomin og fjöl-
mennið.
I.O.G.T. Stúkan
Einingin nr. 14.
Fundur verður haldinn mið-
vikudaginn 6. okt. 1976 kl.
20.30 í-Templarahöllinni við
Eiríksgötu.
Dagskrá.
Að liðnu sumri, Stórstúku-
þing, bindindismót í Berlín
og fl.
Félagar fjölmennið á fyrsta
fund vetrarstarfsins. Æ.T.
verður til viðtals í síma
81794 milli kl.
17.30—18.30.
Æ.T.
Kvenfélagið Fjallkon-
Fjallkonurnar
Breiðholti III.
Konur, munið aðalfundinn kl.
20.30 fimmtudagskvöld í
Fellahelli.
Stjórnin.
Hörgshlíð 1 2
Samkoma í kvöld, miðviku-
dag kl. 8.
Kristniboðssambandið
samkoma verður haldin i
Kristniboðshúsinu Betanía
Laufásvegi 13 í kvöld kl.
20.30. Ástráður Sigurstein-
dórsson, skólastjóri talar.
Fórnarsamkoma.
Allir eru velkomnir.
SIMAR. 11798 OG 19533.
Allir ferðir félagsins falla
niður um næstu helgi
Ferðafélag íslands.
Grensáskirkja
Almenn samkoma í safnaðar-
heimilinu fimmtudaginn 7.
okt. kl. 20.30.
Orð drottins boða. Bænir —
Fyrirbænir. Mikill söngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Halldór S. Gröndal.
radauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
fundir — mannfagnaöir
Hafnfirðingar
Opið hús með dagskrá fyrir aldraða Hafn-
firðinga, hefst að nýju n.k. fimmtudag 7.
okt. kl. 2 e.h. í Góðtemplarahúsinu.
Styrktarfélag aldraðra.
Félag áhugaljósmyndara:
Á fundinum 6. október kl. 20.30, að Fríkirkjuveg 1 1 verður
Canon F-1 myndavélin kynnt.
Sýnd verður kvikmynd, sem fjallar um hina fjölmörgu mögu-
leika, sem Canon F-1 býður upp á. Að lokinni sýningu verður
svarað fyrirspurnum um hinar ýmsu framleiðsluvörur. Canon.
Verið velkomin og takið með ykkur gesti.
Týli h.f.
Austurstr. 7
Hilmar Helgason h.f.
31 Sundaborg.
ln U/Konur
Vesturbæ — Miðbæ
Frúarleikfimi með tónlist verður í ÍR-
húsinu í vetur þriðjudaga og fimmtudaga
kl. 4.20 og 5.10. Kennari: Dóra Emils. '
Upplýsingar í ÍR-húsinu, sími 1 4387.
Tilboð óskast í beltagröfu
Prestman glussavél.
árg. 1968. Með vélinni er grafskófla,
fláaskófla og flutningavagn. Vélin er til
sýnis að Breiðhöfða 8, móti ísaga. Vélin
er hentug fyrir sveitarfélög. Sími 1 4098.
Félag sjálfstæðismanna í
Vestur- og Miðbæjarhverfi
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í Vestur- og Miðbæjar-
hverfi verður haldinn fimmtudaginn 7. október í Tjarnarbúð.
Fundurinn hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar mætið stundvíslega.
Stjórnin.
— Pallborðs-
umræður
Framhald af bls. 17.
Búast má við, að
um 80% landsmanna
muni hafa hitaveitu
í náinni framtíð
Unnið er áfram að rannsókn
háhitasvæða landsins og er nýt-
ing sumra þeirra þegar hafin
eða í undirbúningi eins og t.d. i
Námafjalli, Kröflu, Svartsengi
og Reykjanesi.
Þáttur orkufram-
kvæmda í ríkisf jár-
málum og erlendum
lántökum
Stundum heyrast þær stað-
hæfingar, að orkuframkvæmd-
ir í landínu séu nú allt of mikl-
ar, þær eigi mikinn þátt í
greiðsluhalla ríkissjóðs á s.l. ári
og þyngi stórlega hinn erlenda
skuldabagga. Hvorttveggja er
misskilningur.
Á árinu 1975 nam greiðslu-
halli rikissjóðs, skv. ársskýrslu
Seðlabankans 5.810 milljónum
króna. Af þeirri upphæð eru í
mesta lagi rúmar 100 milljónir
vegna orkumála.
Orkuframkvæmdir voru því
ekki orsök halla ríkissjóðs.
Þau stórvirki, sem við ráð-
umst í á sviði orkumála verða
ekki unnin nema með mikilli
fjáröflun. Ef gera á stórátak i
þessum efnum verður erlent
fjármagn að koma til. Því eru
þó takmörk sett, hve langt er
æskilegt eða unnt að ganga í
þeim efnum, eins og ljóst má
vera af hinni erfiðu greiðslu-
stöðu út á við og skuldasöfnun.
Enda er fyllsta ástæða til
þess að framkvæmdir verði
fjármagnaðar í ríkari mæli af
eigin fé fyrirtækjanna en tíðk-
ast hefur og að þau setji sér
það markmið og fái til þess
möguleika að auka eigin fjár-
myndun sína stig af stigi, eins
og orðið hefur og ásetningur er
um hjá Landsvirkjun. Hitaveita
Reykjavíkur hefur einnig sett
sér markmið að þessu leyti.
En lítum nú á erlendar lán-
tökur á síðasta ári og þátt orku-
mála i þeim.
Erlend lán 1975, innkomin og
á meðalgengi þess árs, námu
alls 20.2 milljörðum króna. Af
því munú alls hafa gengið til
orkumála 8.1 milljarður. Af
þeirri upphæð er nteiri hlutinn
til Sigölduvirkjunar, 4.4
milljarðar, — til stækkunar
hitaveitu Reykjavíkur 1.6
milljarður, — til Rafmagns-
veitna ríkisins (þ.e. Lagarfoss-
virkjun, Mjólkárvirkjun, norð-
urlína o.fl.) 1 milljarður, — til
Kröflu 695 milljónir.
Ef frá er talin Sigölduvirkj-
un, sem er óumdeild, og hita-
veituframkvæmdirnar, sem
spara meira í gjaldeyri á ári
hverju en nemur vöxtum og
afborgunum af lánum til
þeirra, þá hafa erlendar lántök-
ur til annarra orkumála í heild
verið um 2 milljarðar eða 10%
af heildarupphæð erlendra
lána.
Hagræn úttekt
á orkubúskap
Islendinga
Á síðastliðnu ári var hafist
handa um hagræna úttekt á
orkubúskap íslendinga. Hefur
þegar verið lögð mikil vinna í
þá rannsókn.
Haldgott skipulag er óaðskilj-
anlegur þáttur hagkvæmrar
öflunar og nýtingar orku. Jafn-
framt því sem fylgt er þeirri
stefnu Sjálfstæðisflokksins, að
íbúar á einstökum landsvæðum
ráði um og verði ábyrgir fyrir
ákvörðunum í eigun málum
ber að sinna samtengingu orku-
svæða þannig að heildarnýting
verði sem best og öryggissjón-
armiða gadt.
Landshlutanefndir hafa ver-
ið skipaðar til þess að vinna að
orkumálum viðkomandi lands-
hluta og kanna viðhorf sveitar-
félaga þar.
Vestfjarðanefndin hefur þeg-
ar skilað áliti og heimildarlög
um stofnun Orkubús Vest-
fjarða verið samþykkt.
Nefndir um orkumál Norður-
lands og Austurlands hafa skil-
að áliti.
Á næstunni þarf að koma
skipulagsmálum í höfn með
nýju heildarskipulagi orku-
mála til þess að tryggja ábyrga
og hagkvæma öflun og dreif-
ingu innlendrar orku.
Lögð er áhersla á aukin áhrif
sveitarfélaga á ákvarðariir í
orkumálum.
Það ber að stefna að aukinni
nýtingu jarðvarma til húshitun-
ar þar sem tök eru á, en að
rafhitun þar sem jarðvarma er
ekki til að dreifa.
Kyndistöðvar gætu komið að
góðu haldi sem bráðabirgða-
lausn, þar sem hagkvæmt þyk-
ir.
Auka má raforkunotkun í
margs konar iðnaði, þar sem nú
er notuð olía. Er hér einkum átt
við útrýmingu á olíunotkun til
gufuframleiðslu í iðnaði.
Auk þess má nota raforku til
kjarnfóðurframleiðslu og hey-
þurrkunar í miklu sta-rri stil en
tíðkast hefur.
Leggja ber aukna áherslu á
leiðir til sparnaðar og aðferðir
til að koma í veg fyrir sóun
orku og rétt að örva viðleitni i
þá átt.
Stefna ber að því að reisa stór
raforkuver einnig utan hinna
eldvirku svæða og nefni ég þar
nú sérstaklega Blöndu i Húna-
vatnssýslu og virkjun í Fljóts-
dal á Austurlandi.
Gjaldskrár rafmagnsveitna
þarf að taka til gagngerðrar
endurskoðunar.