Morgunblaðið - 06.10.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1976
7
Miðar í
rétta átt
Á þessu ári hafa berlega
komiS I Ijós ýmis bata-
merki I efnahagsmálum
þjóSarinnar. Kemur þar
hvort tveggja til, aS að-
haldsaðgerðir stjórnvalda
hafa borið nokkurn árang-
ur og að ytri skilyrði hafa
breytzt til hins betra á
ýmsum sviðum. Fram-
leiðsluverðmæti sjávar-
afurða jukust um 9
milljarða á fyrstu 8
mánuðum ársins, miðað
við sama tlma I fyrra. Á
timabilinu janúar-ágúst er
fob
útflutningsverðmætið tal-
ið nema 35.5 milljörðum
króna á móti 26.5
milljörðum sömu mánuði
1975, og er aukningin
milli ára 33.96%. Gengis-
sig islenzku krónunnar
kemur að visu inn I þessa
mynd, en engu að slður er
verðm ætisaukningin
mikil
Hjöðnun verðbólgu hef-
ur verið allt of hæg, en
framangreind tiðindi lofa
góðu, þó Ijóst sé, að ekki
er enn svigrúm til beinna
lifskjarabóta, eins og mál
eru i pottinn búin.
Þörf er mjög strangra
aðhaldsaðgerða, jafnvel
enn ákveðnari en beitt
hefur verið til þessa. Á
þetta jafnt við um riki.
sveitarfélög, fyrirtæki og
heimilin i landinu. Gegnd-
arlaus skuldasöfnun
erlendis á siðustu árum
hefur sniðið okkur þröng-
an stakk i þessum efnum,
sem háir þvi, að nokkur
verðhækkun útflutnings-
framleiðslu þjóðarinnar
•geti komið fram i bættum
lifskjörum, a.m.k. fyrst
um sinn. Viðskiptabatinn
hverfur i skuldafenið, sem
við höfum steypst i á liðn-
um árum.
Það sem þarf helzt að
varast nú, við batnandi
viðskiptakjör, er að þau
leiði ekki til nýrrar verð-
bólguholskeflu. Stefna
verður að nokkrum
greiðsluafgangi á fjárlög-
um næsta árs. 1977.
Rikisfjármálin þurfa að ná
áþreifanlegri bata en
náðst hefur á þessu ári.
Sennilega verður áfram
að reka vaxtastefnu, sem
tekur mið af verðbólgu og
beita útlánatakmörkun-
um, eins og gert hefur
verið um sinn. Verðbólga
er nú komin niður I 25 til
30% vöxt, úr milli 50 og
60% á árunum 1973 og
1974. Ef takast á að
hægja enn á verðbólgu-
vextinum þarf hvort
tveggja að gæta þess að
halda almennum launa-
hækkunum innan hóf-
legra marka og herða á
aðhaldsstefnu innan rfkis-
kerfisins og i rikisfram-
kvæmdum. Það þarf sam-
ræmdar aðgerðir á öllum
sviðum þjóðarbúskaparins
til þess að eygja árangur i
baráttunni gegn verðbólg-
unni. Forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar, Jón
Sigurðsson, segir skýrt og
skorinort i nýlegu viðtali
við tfmaritið „Frjálsa
verzlun", að án strangs
aðhalds i stjórn heildar-
eftirspurnar sé engin von
til þess að hægt sé að ná
tökum á verðbólguvand-
anum. Hann segir og, að
þessa aðhalds sé ekki
siður þörf til þess að
trY99Ía að fyrstu ávöxtum
efnahagsbatans verði var-
ið til að bæta greiðslu-
stöðuna við útlönd.
innréiifi
Grensásvegi 3 - S(mi 83430
-Jpinstakt tæ’kifæri.
Teppi á sfáaganga á sérfega hagstæóu verói.
;endiö oKkur
•a atkl'PPuna neðSt 'nrian 950 biaösíðoa mörk
wat-wwr •f" öðtu »y»' 9'e,ð'8 Þ ___
krónuni
m
fONAL
Sendill
Óskum að ráða nú þegar röskan sendil, hálfan
eða allan daginn. Lágmarksaldur 1 3 ár.
H. F. Hampiðjan,
Stakkho/ti 4.
gengið inn frá Brautarholti.
Umboðsmenn óskast
í Keflavík og Grindavík frá næstu áramótum.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 20. okt. til
skrifstofu Happdrættis Háskóla íslands,
Tjarnargötu 4.
Happdrætti Háskóla islands.
I Ullarefnamarkaður I
í Vogue Glæsibæ I
Einmitt þegar ullarefnin
eru að koma í tízku.
Hagstætt verð.
Einnig: röndótt denim
ncf iirvíil íif íersev <>f tinni