Morgunblaðið - 06.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1976
3
Ágreiningur
innan IATA um
vetrarfargjöld
FLUGFÉLÖG þau sem aðild eiga
að IATA — alþjóðasambandi
flugfélaga — virðast eiga ( nokkr-
um erfiðleikum með að koma sér
saman um vetrarfargjöldin sem
Sérstakir
hljóðnemar
fyrir tvo af
þingmönnum
alþingis?
NU ER í athugun að setja upp
sérstaka hljóðnema fyrir tvo af
þingmönnum alþingis, þannig
að þeir þurfi ekki að stíga i
ræðustól, þegar þeir taka til
máls. Að sögn Friðjóns Sig-
urðssonar skrifstofustjóra al-
þingis er nú verið að undirbúa
málið, en formleg ákvörðun
verður ekki tekin fyrr en al-
þingi kemur saman.
Það var Magnús Kjartansson
alþingismaður sem fór fram á
að hljóðnemi yrði settur upp
fyrir sig, en hann hefur sem
kunnugt er átt við mikil veik-
indi að stríða að undanförnu.
Ef hljóðnemi verður settur
upp fyrir Magnús, verður ann-
l ar settur upp fyrir Jóhann
f Hafstein sem einnig hefur átt
| við mikinn heilsubrest að
S stríða.
nú skulu gildá. Fargjaldaráð-
stefna IATA sem haldin var á
Miami I Bandarfkjunum ( sfðasta
mánuði mun hafa farið út um
þúfur og er óljóst hver fram-
vindan verður.
Samkvæmt frétt í brezka
blaðinu Daily Telegraph verða
eins konar frjáls fargjöld í gildi á
leiðinni yfir N-Atlantshaf, þar
sem þau flugfélög sem halda uppi
áætlunarflugi á þessari leið geta
sett upp þau gjöld sem þau lystir.
Fargjöldin verða þó engu að síður
að hljóta staðfestingu viðkomandi
stjórnvalda en nokkurn veginn
liggur fyrir að fargjöldin muni
hækka um 15—35%.
I samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Martin Petersen fram-
kvæmdastjóri markaðsdeildar
Flugleiða að þessi frétt væri ekki
að öllu leyti í samræmi við þær
upplýsingar sem Flugleiðir hefðu
haft af fargjaldaráðstefnunni. Að
vísu hefði Miami-ráðstefnan f
síðasta mánuði farið út um þúfur
að því leyti að ekki hefði náðst
þar samkomulag um samræmd
fargjöld. I kjölfar þess hefðu að
minnsta kosti sex flugfélög skráð
fargjöld yfir N-Atlantshafið og
væri þau öll mjög svipuð, þannig
að í stað þess að nota vetrarfar-
gjöldin frá í fyrra þá styddu þau
nú við vor- og haustgjöldin, sem
væru um 15—35% hærri. Hins
vegar hefðu Flugleiðir síðan þær
upplýsingar, að stefnt væri að því
að halda annan fund innan IATA
í kringum 6. október, þar sem
ætlunin væri að fjalla um þessi
gjöld og reyna að ná samkomu-
lagi.
SFV í Reykjavík:
Félagið starfar áfram
Starfsliði sagt upp
A AÐALFUNDI Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna i Reykja-
ví, (þ.e. Reykjavíkurfélagsins),
sem haldinn var í fyrrakvöld var
samþykkt tillaga þess efnis, að
félagið starfi áfram og jafnframt
var lýst sérstöku trausti á
Magnúsi Torfa Ólafssyni alþm.
störfum
Var tillaga þessi samþykkt með 16
atkvæðum en 30 sátu fundinn. Þá
var frá því skýrt á fundinum, að
ritstjóra málgangs SFV, Nýrra
Þjóðmála og öðru starfsliði sam-
takanna var sagt upp störfum frá
og með 1. október sl.
Hvöt hefur vetrarstarfið:
Bingó með góð-
um vinningum
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ Hvöt er nú að hefja vetr-
arstarfið. Verður byrjað með fjár-
Enska
knatt-
spyrnan
IIRSLIT I ensku knattspyrnunni (
gærkvöldi:
1. deild:
Everton —
Manchester City 2:2
QPR — Norwich 2:3
2. deild:
Bristol Rovers —
Chelsea 2:1
Wolves — Southampton 2:6
3. deil:
Brighton — Walsall 7:0
Sheffield Wed. —
Chester 3:0
Enski deildarbikarinn:
Bolton — Fulham 2:2
(Aukaleik þarf milli liðanna)
Arsenal — Blackpool 2:0
öflun til að standa undir starfsem-
inni og síðan hefjast fundir um
miðjan október. í kvöld kl. 8.30
efnir Hvöt til bingós á Hótel Borg
og vandar til vinninga. Er t.d. í
vinning flugfar til útlanda, vönd-
uð útvarpstæki, vöruúttekt í
verzlunum, ferðaútbúnaður,
skrautmunir og hreinlætisvörur.
Fundir félagsins, sem hefjast
síðar í mánuðinum, verða I vetur í
Sjálfstæðishúsinu nýja, en þar
skapast miklu betri aðstaða til
félagsstarfsemi en verið hefur.
Góð veiði
hringnótabáta
VEÐUR batnaði á síldarmiðunum
milli Ingólfshöfða og Hrollaugs-
eyja i fyrrakvöld og fengu þá
hringnótaskipin sem þar voru
góðan afla.
I gær var vitað um 13 skip á
miðunum og biðu þau þess að
síldin kæmi upp méð kvöldinu.
Nærri 30 skip hafa nú hafið síld-
veiðar með hringnót.
Ljósmyndin, sem prýðir kápuna, ánafnaði Gunnar heitinn Hann-
esson, afmælisritinu.
Ritnefnd var skipuð 1974, en
( henni hafa starfað Þórhallur
Halldórsson, formaður félags-
ins, Gunngeir Pétursson,
Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
Lára Gunnarsdóttir og Lárus
Guðbjartsson. Björg Einars-
dóttir er ritstjóri, Gylfi Sigurðs-
son hefur hannað ritið og
Jóhannes Long tekið flestar
myndirnar. Ritið er 160 síður
að stærð og prýtt fjögur hundr-
uð myndum. Myndin á kápu
ávarp borgarstjóra og formanns
BSRB. Agrip af sögu félagsins I
fimmtiu ár, heimsóknir á
vinnustaði og viðtöl við eldri
sem yngri starfsmenn. Skrá yf-
ir stofnfélaga, stjórnarmenn og
línurit yfir fjölda og aldur
starfsmanna, eftir kynjum og
deildum.
Meginþættir i uppbyggingu
ritsins, er skýra upp úr hvernig
jarðvegi Starfsmannafélagið
sprettur í kjölfar mikilla þjóð-
Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar gefur út rit
I TILEFNI fimmtlu ára afmæl-
is Starfsmannafélags Reykja-
víkur borgar á þessu ári, en það
var stofnað 17. jan. 1926, afréð
stjórn félagsins og fulltrúaráð,
að minnast tlmamótanna með
útgáfu veglegs rits.
ritsins er tekin af Gunnari
heitnum Hannessyni ljósmynd-
ara og sýnir m.a. auðlind og
hitagjafa Reykjavíkurborgar,
tankana á öskjuhlíð.
Efni ritsins er m.a. viðtal við
formann Starfsmannafélagsins,
félagslegra átaka. Að sögn
Bjargar Einarsdóttur ritstjóra
hefði ritið ekki komið til, nema
með stuðningi félagsins og
stjórnarinnar og almennrar vel-
vildar félagsmanna við öflun
fanga.
Odi Italinn
fluttur til
heimalandsins
á nýjan leik
ÓÐI ltalinn, sem við sögðum frá
fyrir nokkru að hefði gengið ber-
serksgang á Hótel Sögu og brotið
þar allt og bramlað, bírtist á ný
hér á landi um s.l. helgi. Var þá
ekki liðin nema rúm vika frá þvf
að hann var fluttur til heima-
landsins ( fylgd tveggja lögreglu-
manna og geðlæknis.
Að sögn Arna Sigurjónssonar,
yfirmanns útlendingaeftirlitsins í
Reykjavík, hefur ástand Italans
verið litlu betra nú en var áður.
Hefur hann sýnt greinileg merki
geðtruflunar á háu stigi. Rólegast-
ur hefur hann verið á návist
þeirra þriggja manna, sem fóru
með hann til ítaliú á dögunum.
Varð það að ráði að tveir þessara
manna, þeir Lárus Helgason geð-
læknir og Karl Jóhannsson lög-
reglumaður, voru fengnir ti! að
fara með ítalann til heimalands-
ins á ný og fóru þeir út í gærmorg-
un.
Að sögn Arna Sigurjónssonar
hefur ítölskum yfirvöldum verið
send ákveðin ósk um að þau sjái
til þess að maðurinn verði hafður
á ítaliu, enda er það hagkvæmast,
því ítölsk yfirvöld borga allan
kostnað af flutningi mannsins til
Italíu.