Morgunblaðið - 06.10.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÖBER 1976
5
Fyrirlestrar um
æskulýdsmál
DAGANA 7. og 8. okt. verða
haldnir fyrirlestrar um æskulýðs-
mál í Norræna húsinu. Þessir
fyrirlestrar eru í tengslum við
ráðstefnu þá, Nordisk storstads-
konferense, sem haldin verður í
Reykjavík dagana 7.—9. október
með æskulýðsmál að meginvið-
fangsefni. Þar eð ráðstefna þessi
verður einungis fyrir þröngan
hóp, en æskulýðsmál varða hins
vegar svo marga, varð að sam-
komulagi milli Norræna hússins
og æskulýðsráðs, að nokkrir gest-
anna af ráðstefnunni héldu opin-
bera fyrirlestra i fundarsal
Norræna hússins.
Skáksveit
Landsbanka
austur
VETRARSTARF Skáksambands
Austurlands hefst um næstu helgi
með komu skáksveitar Lands-
banka tslands til keppni við Skák-
samband Austurlands. Föstudags-
kvöldið 8. október verður keppt í
hraðskák á Eskifirði en á laugar-
dag verður tefld hæg skák á Nes-
kaupstað.
1 skáksveit Landsbankans eru
10 skákmenn þar á meðal margir
kunnir landsliðs- og meistara-
flokksmenn.
Kynna bar-
áttu afrískr-
ar alþýðu
FULLTRUAR Pan Africnaist
Congress (PAC) eru væntanlegir
hingað til lands 18. október, iboði
Einingarsamtaka kommúnista
(marx-leninista) og Azaniu-
nefndar þeirra. PAC er ein
margra þjóðfrelsishreyfinga i
Afriku og sú eina í S-Afriku sem
afneitar allri sáttastefnu við
Vorster-stjórnina og skipuleggur
fjöldabaráttu.
Fulltrúar PAC munu dveljast
hér til 21. okt. og sitja almennan
opinn fund, halda blaðamanna-
fund o.fl. Þá er hafin fjársöfnun
til stuðnings PAC og geta
stuðningsmenn baráttunnar
komið styktarfé til Azaníu-
nefndarinnar.
Fimmtudagskvöldið tala tveir
norskir sérfræðingar um efnið,
sem þeir nefna — Opsögende
virksomhed som forebyggende
ungdomsarbéjde. Eru það Lars
Haavik og Hermali von der Lippe,
báðir deildarstjórar við Ungdoms-
kontoret í Ösló.
Föstudagskvöldið talar Bertil
Wijk, fræðslustjóri I Gautaborg,
um efnið Skolan — forum för
utbildning och fritid.
Lionsmenn
safna eystra
A HINUM alþjóðlega þjónustu-
degi Lionsmanna 8. október hafa
Lionsmenn á Austurlandi tvö
síðast liðin ár safnað í sjóð til
Styrktarfélags vangefinna á Aust-
urlandi. Safnast hefur á aðra
milljón króna.
Sjóði þessum er ætlað það hlut-
verk að styrkja til náms væntan-
legt starfsfólk við vistheimili
Styrktarfélags vangefinna á Aust-
urlandi sem væntanlega verður
byrjað að byggja á Egilsstöðum
næsta vor.
Á svæðisfundi Lionsmanna á
Austurlandi sem haldinn var á
Fáskrúðsfirði 18. sept. s.l. var ein-
róma samþykkt að safna 8.
október n.k. til byggingar sund-
laugar fyrir vangefið fólk við vist-
heimilið á Egilsstöðum.
Það er von Lionsmanna á Aust-
urlandi að hægt verðiað vfgja
sundlaugina um leið og fyrsta
vistheimilið á Egilsstöðum.
Einmuna
veðurblída
á Húsavík
Húsavík, 3. október.
EINMUNA veðurbliða var hér
allan septembermánuð og enn
ganga nautgripir úti á daginn, en
í venjulegu árferði hafa þeir ver-
ið inni a.m.k. hálfan mánuð á
þessum tíma.
Gróður hefur litið sölnað og i
Kinnarfjöllum hefur ekki sést
nýfallinn snjór i allt sumar, en
mörg sumur er það svo, að i hverj-
um mánuði sést þar nýfallinn
snjór.
Fréttaritari.
Stutt athugasemd
Sökum þess að lögmaðurinn
Gunnlaugur Þórðarson ber
fram getsakir og dylgjur í minn
garð í grein í Morgunblaðinu í
dag (5. okt.) verð ég að óska
birtingar á stuttri athugasemd.
Hins vegar hefur aldrei verið
ætlun mín að deila við lög-
manninn á þessum vettvangi,
heldur einungis að leiða í ljós
staðreyndir sem lágu í þagnar-
gildi.
Glöggskyggni lögmannsins
sér annarleg öfl að baki grein
minni I Morgunblaðinu 24.
sept. Þau „annarlegu öfl“ eru
eingöngu samvizka min, og má
hann mér að meinalausu nefna
hana hvaða nöfnum sem honum
þóknast. Ég get fullyrt að grein-
in er samin af eigin hvötum
einvörðungu og enginn annar
hafði vitneskju um hana, áður
en hún var afhent Morgun-
blaðinu til birtingar, að undan-
skilinni konu minni, sem vél-
ritaði hana fyrir mig. Visa ég
því dylgjum lögmannsins um
þetta atriði rakleitt til föður-
húsanna, þær eiga hvergi
annars staðar tilverurétt.
Föstudaginn 17. sept. var
kveðinn upp dómur i Bæjar-
þingi Reykjavikur, og var
Alþingi þar sýknað af launa-
kröfum, sem um var fjallað þar
sem ekki hafði verið sýnt fram
á brot á lögum um Jafnlauna-
ráð. Að þessum dómsorðum
birtum lýsti lögmaðurinn
Gunnlaugur Þórðarson að sögn
dagblaðsins Visis 18. sept. yfir,
að með dóminum „væri staðfest
að lög um sömu laun fyrir sömu
vinnu væri dauður lagabók-
stafur og Alþingi hefði gengið
lengst í þvi að ófrægja þessi
lög“. Lögmaðurinn hefur mér
vitanlega enga athugasemd
gert við þessi ummæli blaðsins
né afturkallað þau. Mér hefur
skilizt að það væri verkefni lög-
manna að flytja mál fyrir dómi,
en ekki að deila við dómara og
kveða upp dóma. Og um til-
vitnuð ummæli lögmannsins
get ég ekki kveðið vægar að
orði en kalla þau sleggjudóma.
Jóhannes Halldórsson.
Sýning Þjóðleikhússins á
INUK heldur enn áfram að
vekja athygli leikhúsfólks um
víða veröld. Um helgina kom
leikhópurinn heim frá Belgrad
i Júgóslaviu, þar sem ÍNUK var
sýnt þrisvar sinnum á alþjóð-
legri leiklistarhátíð en á hátið
þessari sýndu margir helstu
leikflokkar og leikhús veraldar
verk sin. Á hátiðinni í Belgrad
Enn var í núk
stórvel tekið
Verkið hefur verið sýnt í 19 löndum
voru sýndar sýningar frá mörg-
um þeim leikhúsum, sem nú
ber hæst í leiklistarheiminum
og má þar nefna sýningar eins
og og sýningu Peter Brooks á
leikritinu IK, þýska sýningu
frá Berlin á leikriti Becketts,
Beðið eftir Godot, I leikstjórn
höfundar, sýningar á Hamlet og
fleiri verkum frá Taganka-
leikhúsinu í Moskvu undjr
stjórn Ljubimovs, sýningar frá
Óðinleikhúsinu i Holsterbro
undir stjórn Eugeno Barba og
svo mætti lengi telja. Alls
sýndu milli 20 og 30 leikflokkar
á hátíðinni. Hátfðin hófst 10.
september en frumsýningin á
ÍNUK var 23. sept. og var upp-
selt á allar þrjár sýningar Þjóð-
leikhússins strax áður en hátíð-
in hófst. Var sýningunum sem
endranær afbragðsvel tekið og
hlaut góða dóma. Júgóslavn-
eska sjónvarpið tók sýninguna
upp og var INUK sýnt f heild í
sjónvarpi um alla Júgóslavíu.
Að lokinni hátiðinni í Bel-
grad fór hópurinn til þriggja
annarra staða með sýninguna
og var leikritið sýnt einu sinni
á hverjum eftirtaldra staða: i
Titógrad í Montenegro, f Cacek
og i Nis.
Ákveðið hefur verið að hafa
tvær sýningar á INUK á Stóra
sviði Þjóðleikhússins, á laugar-
daginn kl. 15 og á þriðjudags-
kvöld 12. október kl. 20.
AIls hefur verkið nú verið
sýnt 217 sinnum f 19 löndum.
Leikstjóri ÍNUKS er Brynja
Benediktsdóttir en aðrir I hópn-
um eru Ketill Larsen, Krist-
björg Kjeld, Helga Jónsdóttir
og Þórhallur Sigurðsson. Sýn-
ingarstjóri er Þorlákur Þórðar-
son en höfundar ásamt hópnum
er Haraidur Ólafsson.
Myndin sýnir atriði úr leikrit-
inu.