Morgunblaðið - 06.10.1976, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1976
„Hvað varðar vinnu
fanga og vinnuaðstöðu
hafa miklar framfarir átt
sér stað hérna að Litla-
Hrauni á sfðustu 5 árum,
en þrátt fyrir það tel ég
okkur enn eiga nokkuð
langt i land til að aðstað-
an geti talizt fullkomin“.
Þetta mælti forstjóri
Litla-Hrauns, Helgi
Gunnarsson, þegar hann
og stjðrn vinnuhælisins
sýndu blaðamönnum
staðinn nýlega.
Það kom fram í heim-
sókn okkar á Litla-
Hrauni, að fangarnir
geta stundað alls konar
vinnu, sér til dægrastytt-
ingar en þð vantar bæði
aðstöðu og áhöld til að
hægt sé að kenna föngum
ýmsa verkmenntun sem
gæti orðið þeim að liði
þegar þeir verða frjálsir
menn á ný, en það er
einmitt mesta vandamál
íslenzkra fanga að þeir
hafa yrirleitt hvorki
nokkra verklega né bðk-
lega menntun, og er það
þeim ógjörningur að
komast inn í atvinnulífið
þegar þeir losna af
„Hrauninu“.
Sú vinna, sem stunduð er á
Litla-Hrauni, er eins og áður
segir fönjíunum fyrst o>; fremst
til dæsrastyttingar. Þó er þar
um nokkra tekjulind fyrir þá að
ræða því þeim eru greidd laun
eftir því hversu miklu þeir af-
kasta. Vinna þessi er að mestu
leyti steypuvínna, en fyrir 2
árum fékk hælið vélar
semetmm i ersstyplar geng-
téttarhellur, milliveggjaplötur,
netasteinar o.fl. Þá stunda vist-
menn einnig uppsetningu
veiðarfæra og öskjugerð fyrir
ýmsar opinberar stofnanir og
embætti.
í steypuvinnunni er notað
ákvæðisfyrirkomulag á félags-
legum grundvelli, og að sögn
Helga hefur þessi vinna gefið
góða raun. Hann sagði að hangs
og vinnusvik væru mjög lítil, og
alls ekki meir en gerðist á hin-
um frjálsa vinnumarkaði. —
Helgi Gunnarsson
forstjðrí
vinnuhælisins
Áfengið yfirleitt að
baki
— Ætli það séu ekki um
80—85% af föngunum hér sem
koma hingað vegna vandræða i
sambandi við áfengi eða pillur.
Þeir hafa leiðzt út i afbrot sin
vegna áfengisneyzlu eða pillu-
áts.
Það sem er þó eiginlega enn
verra er að flestir þessara
manna koma hingað aftur fyrir
svo til sömu sakir. Þetta er án
efa vegna þess að þjóðfélagið er
á engan hátt undirbúið að taka
við þessum mönnum þegar þeir
eru lausir héðan. Þeir lenda því
flestir inn á sömu brautir aftur
og enda hér.
íslendingar hefni-
gjarnir
— Mér sýnist þurfa hugar-
farsbreytingu hjá okkur Islend-
ingum gagnvart mönnum sem
nýlokið hafa refsivist. Það er
nú svo að þegar þessir menn
koma út héðan og leita sér
vinnu, þá eiga þeir afar erfitt
uppdráttar. Þeir hafa náttúru-
lega litla eða enga menntun,
bóklega eða verklega, og eru
því ef til vill illa undir það
búnir að leita fyrir sér nema á
afmörkuðu sviði. Þá bætist það
við að atvinnurekendur hér-
lendis virðast alls ekki treysta
mönnum sem lent hafa i afbrot-
um, og því gefst fáum tækifæri
til að reyna sig t.d. í iðnaði alls
konar.
Mér sýnast Islendingar vera
fram úr hófi hefnigjarnir, og
við erum að því leyti langt frá
því sem ég þekki til t.d. á
Norðuriöndunum. Það virðist
hreint og beint enginn vilja
hjálpa þessum mönnum til að
komast á réttan kjöl og ná
þannig fótfestu i lifinu. Þannig
er það að margir þeirra sem
fara héðan og fá sér vinnu, fara
t.d. á bát, koma hingað aftur
vegna þess að þeir hafa leiðzt út
í vesen, sem má rekja beint il e
þeese að þeir ffaa g
veeeververeri útskúfaðir af
vvinnnududd-
effdffdfdffeeélödunum. Við
höfum nokkur dæmi þess að
vinnufélagar hafa skilið fyrr-
um vistmann eftir og ekki boðið
honum með sér þegar hópurinn
hefur farið út að skemmta sér.
Þannig hafa menn fundið sig
útskúfaða og byrja kannski að
drekka einir, og það hefur oft
leitt menn út í afbrot.
Að þessu leyti og mörgu öðru
erum við langt eftir nágranna-
þjóðum okkar, sagði Helgi
Gunnarsson forstjóri Litla-
Hrauns.
Texti og myndir
ágás.
Forstjóri .
Litla-Hrauns:
Tel
íslenzk a
fanga
bæði
vinnufúsa og duglega
Þetta húsnæði hýsir alla vinnu á Litla-Hrauni, að gang-
stéttahellugerðinni undanskilinni.
Menn ýta hver á annan í hópn-
um svo að úr verður afkasta-
mikil heild, sagði Helgi.
Vinnan endurhæfing
— Það er alls ekkert vafamál
að vinna er afar mikilvægur
þáttur í endurhæfingu fang-
anna. f'lestir fanganna hafa
ekki unnið fyrir sér né kynnzt
þeirri daglegu önn sem flestir
þurfa að sinna. Hér ma>ta menn
til vinnu á réttum tíma og
vinna allan daginn, og því ættu
Með þessu væri hægt að kenna
nokkra verkmenntun þvi það
gæfi mönnum betri kost á at-
vinnu þegar þeir losna héðan.
Þá þyrftum við einnig að fá
alls konar smáverkefni frá hin-
um ýmsu aðilum. Hér á ég við
alls konar samsetningu i t.d.
rafiðnaði, en það væri alveg
ákjósanlegt að setja hér saman
litlar vélar, því það hefur sýnt
sig að fangarnir vinna vel og
flestir þeirra hafa gott hand-
bragð. Við höfum ekki fengið
svona verkefni, og tel ég það
þvi atriði til að vinna að.
Flestir þeirra sem hingað
koma eru illa í stakk búnir
hvað snertir almenna menntun,
enda margir þeirra ekki með
jafngildi grunnskólanáms á bak
við sig. Við höfum reynt að
bæta úr þessu og til þess notið
stuðnings kennara af Eyrar-
bakka. Þátttaka hefur verið
mjög góð, og hið sama má segja
um föhdur af ýmsu tagi sem
hér er einnig kennt.
Vantar íþróttahús
— Það sem er einna efst á
óskalista okkar er íþróttahús.
Það vantar hér mikið aðstöðu
svo að menn geti iðkað likams-
æfingar að vetri til. Þeir sem
hér dvelja eru svo til allt ungir
menn og sprækir. Við höfum
hér knattspyrnuvöll, sem mikið
er notaður á sumrum og því
hafa fangar vafalaust mikinn
áhuga á að fá aðstöðu til leik-
fimi og innanhússíþrótta, en
slík aðstaða þykir sjálfsögð alls
staðar þar sem ég þekki til er-
lendis.
náttúrulega nokkuð einhæf
vinna og í henni lítil verk-
menntun sem slík.
Einn þáttur vinnunnar er af-
ar mikilvægur. Það er að fang-
arnir vinna sér inn laun, sem
þeir síðán nota til að borga t.d.
barnsmeðlög, víxilskuldir,
húsaleigu o.fl., o.fl. Þá hjálpa
sumir þeirra fjölskyldum stn-
um með þessum tekjum, en við
teijum það afar mikilvægt að
fjölskylduböndin slitní ekki
þótt menn verði að dvelja hér
um langan eða skamman tíma.
Litla-Hraun. Álman nær, sem tekin var í notkun 1971, hefur 21 fangaklefa auk
setustofu fanga, varðstofu og stjðrnunarherbergi. Alls er nú rúm fyrir 50 fanga, en
eldra húsið er með 29 klefa.
Afköst dagsins f gangstéttahellugerðinni, um 700 hellur.'
Þeir voru þrír um þetta, en fyrir hverja hellu fær
samstarfshópurinn 11 krónur.
Hugmyndin að þessum launum
er einnig að kenna föngunum
þær ýmsu skattskyldur sem
hinn almenní borgari hefur að
gegna.
Betur má ef duga
skal.
Það sem ég tel helzt á skorta
hér er vélar og áhöld til alls
konar smíði. Hér á ég fyrst og
fremst við vélsmíði og aðra
létta járnsmíði, svo að hægt
yrði að'kenna mönnunum hér
undirstöðu verkstæðisvinnu.
fangarnir að vera betur undir
það búnir að vinna fyrir sér
þegar þeir koma út úr fangels-
inu, sé vilji fyrír hendi og sú
félagslega aðstoð sem þessir
menn þarfnast. Þetta er