Morgunblaðið - 06.10.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1976
15
Andstæðar
fylkingar
í Rhódesíu
LEIÐTOGAR fimm
hreyfinga blökkumanna
munu berjast um völdin
f Rhódesfu eða Zim-
babwe eins og þeir kalla
landið þegar blökku-
menn fá aðild að stjórn
landsins og sfðan öll völd
f sfnar hendur.
Joshua Nkomo er þeirra
kunnastur og er leiðtogi eins
arms Afríska þjóðarráðsins
(ANC). Hann stofnaði samtök-
in Zapu 1961 þegar tvær eldri
hreyfingar höfðu verið bannað-
ar. Nkomo var hafður I haldi (
12 ár en látinn laus f desember
1974 svo hann gæti tekið þátt í
viðræðum sem urðu til þess að
sameina um tíma allar hreyf-
ingar blökkumanna í ANC.
Nkomo sneri baki við leiðtoga
ANC, Abel Muzorewa biskupi, I
september 1975 þvf hann taldi
sig sjálfkjörinn leiðtoga sam-
takanna. Nkomo hefur um ára-
bil notið stuðnings Rússa og
annarra en er talinn viðræðu-
hæfastur allra leiðtoga blökku-
manna. Stuðning sinn f
Rhódesíu fær hann aðallega frá
Ndelbele-þjóðinni sem er einn
fimmti landsmanna. Þó eru
hann og tveir helztu aðstoðar-
menn hans, Jason Moyo og
George Silundika, af þjóð
Shona. Meðal annarra áhrifa-
mikilla stuðningsmanna
Nkomo eru Josiah Chinamano
og kona hans Ruth, Ishmael
Mlambo, Ariston Chambati,
Willi Musarurwa og Edward
Ndlovu.
Afríska þjóðarráðið (ANC)
var stofnað 1971 undir forystu
Abel Muzorewa biskups til að
berjast gegn lausn á Rhódesíu-
málinu sem þá var stungið upp
á. Stjórn samtakanna var skip-
uð fyrrverandi félögum tveggja
samtaka afrískra þjóðernis-
sinna sem höfðu verið bönnuð.
Hann nýtur vfðtæks stuðnings f
Rhódesíu þar sem hann er tal-
inn hafinn yfir flokkadeilur og
manna líklegastur til að geta
afstýrt þvf að borgarastyrjöld
brjótist út milli hinna and-
stæðu fylkinga þjóðernissinna.
Hann er óreyndur og sumir
segja barnalegur en ræður yfir’
vel skipulögðum samtökum f
Rhódesíu sjálfri.
Ymsir áhrifamenn halda
tryggð við hann, þeirra á meðal
James Chikerema, George
Nyandoro og Nathan Shamuy-
arira, Gordon Chavunduka séra
Canaan Banana og séra Max
Chigwida.
SÉRA NDABANINGI
SITHOLE stofnaði Zanu þeg-
ar hann klauf sig úr Zapu 1963.
Samtökin voru bönnuð 1964 og
Sithole sat í fangelsi næstu tfu
ár. Hreyfingin gekk f ANC und-
ir forystu hans í desember 1974
og hann var næstráðandi
Muzorewas biskups þangað til
snemma í síðasta mánuði þegar
hann lýsti því yfir að hann væri
aftur forseti Zanu. Blóðugar
illdeilur innan hins pólitfska
arms samtakanna og hers
þeirra hafa veikt stöðu
hreyfingarinnar. Sithole nýtur
mikillar alþýðuhylli f Rhódesfu
en hann ræður ekki lengur yfir
samtökum sem standa undir
nafni og á fáa pólitfska banda-
menn sem máli skipta.
ROBERT MUGABE,
einn stofnenda Zanu og náinn
samstarfsmaður Sithole, heldur
þvf nú fram að hann sé lögmæt-
ur leiðtogi Zanu. Hann var
ósamþykkur inngöngu Zanu f
ANC 1974 (þegar honum var
sleppt úr haldi). Hann fór frá
Rhódesiu á laun um mitt ár f
fyrra og hefur sfðan búið í
Mozambique þar sem hann hef-
ur treyst samband sitt við
rhódesfska skæruliðaleiðtoga.
Mugabe er herskáasti þjóð-
ernissinnaleiðtoginn,
rómversk-kaþólskur en ekki
marxisti. Hann hefur fælt frá
sér marga hugsanlega banda-
menn með hroka, en þó gætu
fyrrverandi félagar úr Zanu
sem nú halda tryggð við Muzo-
rewa biskup fylkt sér um hann.
Mugabe heldur þvf fram að
hann sé pólitfskur talsmaður
Alþýðuhers Zimbabwe, Zipa.
Raunar er sáralitið vitað um
leiðtoga skæruliðahersins og
skoðanir þeirra. Forsetar
blökkumannarikjanna i
sunnanverðri Afríku koma á
fót 18 manna herstjórn þegar
þeir gerðu árangurslausa til-
raun til að sameina liðssveitir
skæruliða. En talið er að níu
fyrrverandi yfirmenn herliðs
Zapu hafi yfirgefið
herbúðirnar f Mozambique og
Tanzaníu og talið er að þrír af
fyrrverandi yfirmönnum her-
liðs Zanu hafi fallið í júní í
bardögum í herbúðum f
Tanzaníu.
Bæði Nkomo og Mugabe
Framhald á bls. 31
— Thatcher
Framhald af bls. 1
að er að það er skoðun margra
fulltrúanna að verkalýðsfélög
og sambönd séu orðin áhrifa-
meiri í Bretlandi en eðlilegt sé
og að staða þjóðþingsins sé
mun veikari en áður.
Margaret Thatcher, formað-
ur flokksins, mun kynna tillög-
ur þar sem hvatt er til aðgerða
til að draga úr völdum stjórna
verkalýðsfélaga, sem hafi orð-
ið á kostnað hagsmuna verka-
manna. Einnig hvetur hún til
að mótuð verði ný stefna og
viturlegri í launa- og kjaramál-
um. Margaret Thatcher sagði
að stjórn Ihaldsflokksins
myndi ráðfæra sig við verka-
lýðsfélögin þar sem þau skiptu
óhemju miklu máli í þjóðfélag-
inu þegar um launamál væri
að tefla. Hún hefur sætt gagn-
rýni ungra íhaldsmanna fyrir
að vera of loðin í máli hvað
viðkemur launamálum, en á
hinn bóginn segja talsmenn
verklýðssambanda að stefna
hennar sé afturhvarf til
nitjándu aldar.
Meðal annarra mála sem
rædd verða er innflytjenda-
vandamál það sem Bretar eiga
við að glfma.
— Lögregluríki
Framhald af bls. 1
eða neita ættingjum mánuðum
eða árum saman um leyfi til að
heimsækja pólitfska fanga eða
skrifa þeim.
Getur nokkur búið við slíkar
aðstæður og þá hversu lengi?
Mér er það algerlega um
megn.“
Prófessorinn staðfesti að
hann myndi sækja um hæli sem
pólistfskur flóttamaður í
Svfþjóð. Talsmaður stjórnar-
innar sagði að engin yfirlýsing
yrði gefin út um málið fyrr en
að þvf afgreiddu og loknu.
Kolman hefur gefið út fjölda
bóka og ritgerða um heimspeki
og stærðfræði. Hann hefur búið
í Moskvu síðustu þrettán árin.
r
— Ottast
Framhald af bls. 1
Óeirðirnar eiga að miklu leyti
rætur að rekja til starfsemi öfga-
samtakanna Gush Emunin (Trú-
arsamsteypan) undir forystu
rabbíans Mashe Levinger er
reyna að endurreisa, áhrif Gyð-
inga í Hebron þar'sem Arabar
frömdu fjöldamorð á Gyðingum
1929. Arabískir unglingar hafa
ráðizt inn I helgan stað Gyðinga
og Múhameðstrúarmanna f bæn-
um og unnið helgispjöll því að
þeir segja að Levinger og stuðn-
ingsmenn hans hafi vanvirt kór-
aninn þar.
Israelsk blöð fordæmdu f dag
helgispjöll Arabana f Hebron en
sum þeirra kenndu Levinger um
óeirðirnar. Öeirðir geisuðu i þrjá
mánuði fyrr á árinu vegna til-
rauna Gyðinga til að biðjast fyrir
á stað einum f Jerúsalem skammt
frá helgistöðum Múhameðstrúar-
manna f borginni og reiði sem
þær ollu meðal Araba.
Blaðið Haarets sagði i dag að
barátta Israelsmanna fyrir öryggi
sínu hefði snúizt upp í óþarfa
deilu trúarofstækismanna Gyð-
inga og Múhameðstrúarmanna.
— Skák
Framhald bls. 32
kvöldi var þannig að Smejkal var
efstur með 4Vi vinning, Vukic
annar með 4 vinninga og eina
biðskák, Friðrik er með 4 vinn-
inga og Guðmundur var með 314
vinning.
I dag að loknum biðskákum
verður 7. umferð mótsins tefld og
þá teflir Guðmundur við Vukic og
Friðrik teflir við Teze.
Hua son-
ur Maos?
Tapei. 5. okt. Ntb
KlNVERSKUR flokksstarfs-
maður Wang að nafni sem flúði
til Formósu fyrir tveimur árum
staðhæfði f blaðaviðtali f Tapei f
dag að Hua Kuo-Feng forsætis-
ráðherra væri f raun sonur Mao
heitins formanns og héti hann
réttu nafni Mao Yen-Lun.
Wang þessi var foringi í kfn-
verska hernum í tólf ár. Hann
sagði að Hua væri yngstur þriggja
sona sem Mao hefði eignast í
fyrsta hjónabandi sínu. Sonurinn
hefði horfið sporlaust þegar hann
var í bernsku.
Hann sagðist í fyrstu hafa talið
að fregnir þessa efnis væru úr
lausu lofti gripnar en sfðan hefði
hann sannfærzt um þetta vegna
hins skóta frama Huas og hversu
likur ferill hans væri ferli Maos.
Lánastefna
Alþjóða-
bankans
gagnrýnd
Manilla, 5 okt Reuter
NOKKRIR af fulltrúum þróunar
ríkjanna á ársfundi Alþjóðabank-
ans, sem nú stendur yfir í Manilla
á Filipseyjum, gagnrýndu I dag
stefnu bankans I lánamálum og
sögðu að hún minnti fremur á
stefnu viðskiptastofnunar en
stefnu hjálparstofnunar. Gagn-
rýnin var þó fremur hógvær í
flestum tilvikum, en fulltrúar létu
að þvl liggja að iðnaðarþjóðirnar
hugsuðu meira um eigin hag en
velferð fátæku rlkjanna. Ræður
fulltrúa iðnaðarþjóðanna stungu I
stúf við þær ræður, sem fulltrúar
frá Afrlku og Aslu fluttu, einkum
ræða William Simons, fjármála-
ráðherra Bandarlkjanna, sem
benti á að mjög góður orðstlr
bankans gerði það að verkum að
hann gæti tekið stór lán á alþjóð-
legum peningamörkuðum til þess
að endurlána til þróunarrlkja.
Abdelmalek Temam, fjármála-
ráðherra Alslr, sagði I sinni ræðu
að þróunarrlkin hefðu áhyggjur af
takmörkunum sem einstök rlki úr
hópi iðnaðarþjóðanna vildu setja
á útlánastarfsemi bankans og
óvissunni, sem ríkti um að bank-
anum yrði útvegað meira fjár-
magn til að lána. Hann sagði að
komin væri upp togstreita milli
rlku og fátæku þjóðanna, sem
engin lausn virtist sjáanleg á.
Marie Goboku, fjármálaráð-
herra Miðafrlkulýðveldisins,
sagði að Afrlkuþjóðir bæru svo
óskaplegar erlendar skuldir, að
allar fjárfestingaráætlanir þeirra
væru I hættu. Sagði hún að er-
Framhald á bls. 31
Samkomulag
um ráðstefnu
Pretoria, 5. október. Reuter.
AP.
IAN Smith, forsætisráðherra
Rhódesfu, og leiótogar blökku-
manna ( landinu hafa orðið ásátt-
ir um að taka þátt f ráðstefnu sem
Bretar efna til f þvf skyni að
mynda bráðabirgðastjórn sem fer
með völdin unz meirihlutastjórn
blökkumanna tekur við.
Ted Rowlands, aðstoðarráð-
herra í brezka utanríkisráðuneyt-
inu, skýrði frá þessu í Pretoria i
dag. Hann og bandaríski aðstoðar-
utanríkisráðherrann William
Schaufele hafa ferðazt um
sunnanverða Afríku undanfarna
daga til að ná samkomulagi um
ráðstefnu sem verður undir for-
sætis Ivor Richards, aðalfulltrúa
Breta hjá Sameinuðu þjóðunum.
Utanríkisráðherra Breta,
Anthony Crosland, sagði á blaða-
mannafundi í dag að líklega yrði
tilkynnt á föstudag hvar og
hvenær ráðstefnan yrði haldin.
Hann kvaðst vona að bráðabirgða-
stjórn gæti tekið við völdunum i
Rhódesíu eftir fjórar til sex vikur.
Crosland lagði á það áherzlu að
það væri á valdi hinna ýmsu full-
trúa Rhódesíu að ná samkomulagi
um þau atriði sem yrðu á dagskrá.
Hann sagði að skipting ráðherra-
stóla væri ekki ákveðin fyrirfram.
1 Salisbury rfkir enn óvissa um
hve langt Smith er fús að ganga i*
samkomulagsátt. Spáð er hörðum
árekstrum á ráðstefnunni ef
blökkumenn krefjast þess að far-
ið verði út fyrir ramma ráðstefn-
unnar og rætt um almenn stjórn-
arfarsleg mál.
Crosland utanrikisráðherra
sagði að létta ætti af Rhódesiu
efnahagslegum refsiaðgerðum
þegar bráðabirgðastjórn tæki við
völdum. Hann kvaðst telja rétt að
refisaðgerðunum yrði haldið
áfram þar til stjórnin yrði mynd-
uð. Þetta er eitt af skilyrðum
Smiths fyrir því að fallast á mynd-
un bráðabirgðastjórnar.
Carter
verður
harður
Washington, 5. okt. Reuter
NTB
FORD Bandarfkjaforseti og
Jimmy Carter, frambjóðandi
demókrata, búast nú til að
heyja sjónvarpseinvfgi sitt hið
annað af þremur og fer það
fram annað kvöld, miðviku-
dagskvöld. Carter hefur látið
að þvf liggja að hann muni
verða mun harðskeyttari og að-
gangsharðari f þessum þætti
og mun hann einkum ætla að
beina spjótum sfnum f þá veru
að sýna fram á lélega og veika
stjórn Fords f málefnum Mið-
austurlanda.
Sjónvarpseinvígið siðasta
þótti ekki takast sérlega vel,
en þó bar flestum saman um að
Ford hefði sloppið heldur
betur frá því en Carter og
skoðanakannanir benda til að
Ford dragi hægt og bítandi á
það forskot sem Carter hefur
haft að undanförnu á fylgi
kjósenda.
Sjónvarpsþátturinn verður
sendur út beint frá sjónvarps-
stöð I $an Fransisco og hafa
verið gerðar mjög miklar
öryggisráðstafanir þar i borg
vegna þáttarins. Fyrri þáttur-
inn var tekinn upp í sjónvarps-
stöð í Filadelfíu.