Morgunblaðið - 06.10.1976, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 1976
Albert GK 31 við bryggju f Grindavfk
Fískiskip úr Grinda-
vík lengt í Noregi
SlÐASTLIÐINN sunnudag
kom til Grindavíkur frá Skute-
neshavn í Noregi Albert GK 31,
eign Þróttar h/f í Grindavík.
Skipið, sem var þar til lenging-
ar og breytinga, var allt yfirfar-
ið og er nú sem nýtt, með yfir-
byggðu dekki, þóútbúið þannig
að úr hlið þess og yfirbyggingu
eru losaðar lúgur þegar veitt er
með þorskanetum. Skipið, sem
áður var 275 tonn, mun nú bera
yfir 500 tonna loðnufarm. Skip-
stjóri er Þórarinn Ölafsson,
kunnur aflamaður frá Grinda-
vík. Guðfinnur.
Hamar seldi 48 lest-
ir fyrir 5,8 millj.
HAMAR SH seldi 48.2 lestir af
netafiski f V-Þýzkalandi f gær
fyrir 5.8 milljónir króna og var
meðalverð pr. kfló kr. 120.95
sem er gott verð.
Grimsby f Englandi og á morg-
un selur skuttogarinn Stálvfk
frá Siglufirði þar. Stálvfk átti
að selja þar f morgun, en kom
þremur stundarfjórðungum of
seint til að komast inn á flóðinu
t dag á Fylkir NK að selja f f gærkvöldi.
Þrír með lodnu
um helgina
Á sunnudag tilkynntu þrír
loðnubátar um afla, voru þaó
Börkur NK sem fór til Nes-
kaupstaóar með 640 lestir, Guð-
mundur RE sem fór til Bolung-
arvíkur með 280 lestir og Ar-
sæll Sigurðsson GK fór til
Grindavíkur með 18o lestir.
Andrés k’innbogason starfs-
maður Loðnunefndar sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær,
að bátarnir hefðu lagt af stað til
lands aðfararnótt sunnudags-
ins, en þá var komin bræla á
miðunum. Bræla var enn á mið-
unum í gær og þeir bátar sem
eru á loðnuveiðum lágu í vari.
Sem kúnnugt er hefur loðnan
verið nokkuð dreifð að undan-
förnu, en að sögn fiskifræðinga
eru miklir möguleikar á að hún
þétti sig, ef kuldaskilin í sjón-
um fyrir vestan og norðan land
verða gleggri, en til þess þarf
ekki nema norðaustanátt í ein-
hvern tíma
Góð síldveiði hring-
nótabáta á laugardag
GÓÐ sfldveiði var hjá hring-
nótabátum austan við Ingólfs-
höfða á laugardagskvöld, en á
sunnudag gerði brælu á miðun-
um og var enn f gærkvöldi. Alls
hafa 24 bátar bafið sfldveiðar
með hringnót og þegar eru 8
bátar hættir eða búnir með 200
tonna kvótann, og nemur afli
þeirra frá 155 til 225 tonnum.
Bátarnir sem fengu sfld á
laugardag fóru til margra
hafna. Sandafell fór með 15
tonn tíl Vestmannaeyja, Hákon
fór til Grindavfkur með 110
tonn, Huginn til Vestmanna-
eyja með 48 tonn, Loftur Bald-
vinsson fór til Eskifjarðar með
100—120 lestir, Helga 2. til
Reykjavfkur með 80 lestir,
Reykjaborg til Siglufjarðar
með 100—120 lestir, og Bergur
til Vestmannaeyja með 95 lest-
ir.
10.400 tunnur saltaðar
Höfn í Hornafirði 4. október
B('If) er að salta 10.400 tunnur af sfld hér á staðnum og 100 tonn
hafa farið til frystingar. Bræla hefur verið á sfldarmiðunum f gær
og f dag og virðist brim hafa aukizt fremur en minnkað.
jm
82 kr. meðalverð
pr. kiló í Danmörku
AÐEINS eitt skip seldi síldarafla í Danmörku í gær og fékk bezta
meðalverðíð sem þar hefur fengizt á síðustu vikum. Gullberg frá
Vestmannaeyjum seldi 75 lestir fyrir 6.1 millj. króna og var
meðalverð pr. kíló kr. 82.
Augnabliks aðgæzluleysi
getur gert þig nokkur
hundruð þús. kr. fátækari
Nokkur orð um aftanákeyrslur
AÐ EKIÐ sé aftan á bifreið er
af flestum talið minniháttar
óhapp og nokkuð sem lftið eða
ekkert er hægt að gera við,
nema að hafa lengra bil milli
ökutækjanna.
Þetta er ekki alveg rétt, þvf
mjög oft fylgja meiðsli. Þegar á
þessu ári hefur orðið eitt bana-
slys og mjög margir hafa hlotið
talsverð meiðsli. Algengast er
að þeir sem eru f fremri bif-
reiðinni fá hnykk á hálsinn. 1
fyrstu virðast þetta vera lftil
meiðsli, en þegar frá lfður
koma óþægindi og hálsinn
verður stffur og það er ótrúlegt
hvað lftið högg þarf til að svona
fari. 1 mjög mörgum tilfellum
eru þetta varanleg meiðsli og
getur orðið ævinlöng byrði.
Að hafa nægilegt bil milli
ökutækjanna, þannig að hægt
sé að hafa góðan fyrirvara ef
bifreiðin á undan er stöðvuð er
nauðsynlegt, en alls ekki nóg.
Ef hugurinn er fjarri, ef þú ert
svo viss um að ökumaðurinn á
bifreiðinni á undan hagi akstri
sínum eins og þú gerir ráð fyrir
eða að bifreiðin sem þú stöðvað-
ir aftan við á gatnamótunum sé
farin þegar þú leggur sjálfur af
stað, án þess að þú lítir fram
fyrir þig, dugir ekkert langt bil
á milli ökutækja. Til þess að
lýsa þessu aðeins nánar ætla ég
að sýna ykkur hvernig svör við
fáum á vettvangi, stundum oft
á dag, hjá þeim ökumönnum
sem hafa ekið aftan á.
1. Ég veitti því ekki athygli
að bifreiðin sem var á undan
var kyrrstæð fyrr en of seint.
2. Ég ætlaði að skipta um
akrein og leit þess vegna af
umferðinni framan við mig. En
þegar ég var rétt ókominn að
bifreióunum sem höfðu stöðvað
á akbrautinni sá ég þær og
hemlaði en mín bifreið rann
áfram og lenti aftan á bifreið-
inni næst mér og kastaði henni
á bifreiðina sem var fyrir fram-
an hana.
3. Ég ók næst á eftir hinni
bifreiðinni og sá þegar ökumað-
ur hennar hemlaði. Ég ætlaði
þá að stöðva mína bifreið, en
hún rann áfram og lenti aftan
á.
4. Ég ók næst á eftir R.. og
þegar ökumaður hennar var að
koma að gatnamótunum skiptu
ljósin af grænu og yfir á gult.
Ég taldi að bifreiðinni yrði ekið
áfram yfir gatnamótin og
ætlaði að fylgja á eftir. Hinni
bifreiðinni var þá hemlað og
hún stöðvuð. Ég reyndi þá að
Prentarar
vilja áfram
mjólkurbúðir
Fulltrúaraðsfundur Hins íslenzka
prentarafélags, sem haldinn var
29. september s.l. lýsir yfir fyllsta
stuðningi við aðgerðir ASB-
nefndar gegn þeirri ákvörðun
yfirvalda að loka öllum mjólkur-
búðum Mjókursamsölunnar í
Reykjavfk.
1 fréttatilkynningu frá félaginu
segir að í eldri hverfum borgar-
innar verði erfiðara að nálgast
mjólkina vegna þess að matvöru-
verzlanir þar hafi langflestar ekki
aðstöðu til mjólkursölu og þar af
leiðandi muni mjólkursölustöðum
fækka ef til lokana komi. Þá segir
að atvinnuástand sé ekki það gott
í Reykjavík, að konur sem starfað
hafi við mjólkursölu geti með
auðveldu móti fengið vinnu við
önnur störf og loforð kaupmanna
þar um séu ekki fullnægjandi enn
sem komið er.
stöðva líka en var kominn svo
nærri að ég gat það ekki.
5. Ég stöðvaði aftan við hina
bifreiðina við gatnamótin og
þegar ökumaður hennar ók
ekki af stað þegar ég taldi að
honum væri óhætt flautaði ég.
Hinni bifreiðinni var þá ekið
aðeins áfram en stöðvuð aftur,
en þá lenti mín bifreið aftan á
henni.
6. Ég stöðvaði mína bifreið
aftan við hina við gatnamótin.
Þegar umferðin um aðalbraut-
ina gaf tilefni til taldi ég að
ökumaður hinnar bifreiðar-
innar hefði ekið af stað inn á.
Ég fylgdist með umferðinni um
aðalbrautina og ók af stað inn á
Á næstunni hefjast skáknám-
skeið á vegum Skákstofunnar að
Ilagamel 67. Er námskeiðið jafnt
fyrir þá sem eru að læra mann-
ganginn og þá sem vel eru að sér f
skáklistinni.
Að sögn Jóhanns Þóris Jónsson-
ar munu þeir Friðrik Ólafsson,
Guómundur Sigurjónsson og Ingi
R. Jóhannsson leiðbeina þeim
en lenti þá aftan á hinni bif-
reiðinni sem var ekki farin.
Eignatjón í þessum árekstr-
um er oft talsvert og oftast mun
meira hjá þeim sem ekur aftan
á. Nær undantekningarlaust er
sá sem ók aftari bifreiðinni tal-
inn I sök. Hans tryggingarfélag
verður þá að bæta skemmdir á
fremri bifreiðinhi sem hefur i
för með sér greiðslu á sjálfs-
ábyrgð og bónusmissi, auk þess
sem hann verður oftast að bera
tjónið á eigin bifreið sjálfur.
Augnabliks aðgæzluleysi getur
því auðveldlega gert þig
nokkur hundruð þúsundum
fátækari áður en þú veizt af.
FGG
beztu, en margir af þekktustu
skákmönnum landsins munu
kenna þeim sem eru að læra að
tefla. Innritun á námskeiðið fer
fram á Skákstofunni, Hagamel 67,
út þessa viku.
Þetta er í fyrsta sinn sem skipu-
lagt skáknámskeið er haldió á
Islandi og á það að standa í tvo
mánuði.
Miðla íslendingar
Irum af þorska-
striðsreynslu sinni?
t NÁJASTA hefti Observer er
skýrt frá þvl að þorskastríðið sé
nú að færast suður á bóginn. Er
þar skýrt frá fiskveiðum íra og
baráttu þeirra innan Efnahags-
bandalags Evrópu fyrir að fá
viðurkennda einkalögsögu
þeirra. Segir að 1 bfgerð sé að
loka höfnum fyrir skipum af
erlendum uppruna, sen þang-
að leita vegna vistatöku læknis-
aðstoðar eða vegna óveðurs.
Sfðan segir f fréttinni: „Þeir
(frsku sjómennirnir — innskot
Mbl.) hafa beðið fslenzku land-
helgisgæzluna, sem er reynslu-
rfk f þessum efnum, um að vera
ráðgefandi um það, hvernig
bezt sé að áreita erlenda tog-
ara... “ Vegna þessa hafði
Morgunblaðið f gær samband
við Gunnar Olafsson, skipherra
hjá Landhelgisgæzlunni, og
spurði hann, hvort einhver slfk
beiðni hefði borizt Landhelgis-
gæzlunni. Hann sagði að slfkt
bréf hefði ekkí borizt enn
a.m.k.
Sjónvarpseinvígi
Fords og Carters sýnt í
Ameríska bókasafninu
SJÓNVARPSEINVÍGI Fords Bandarfkjaforseta og Carters mót
frambjóðanda hans, frá 23. september s.l., verður sýnt f Amerfsk;
bókasafninu við Neshaga fyrir almenning n.k. fimmtudag klukkai
11 fyrir hádegi og kl. 20. Ákveðið er að seinna sjónvarpseinvfg
Fords og Carters verði sýnt f bókasafninu sfðar.
Skáknámskeið að hefjast
hjá Skákstofunni á Hagamel