Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1976 3 Framkvæmdir í Kópa- vogsgjá tengdar hrað- braut um Garðabæ VEGNA samþykktar fundarins f Garðabæ sneri Mbl. sér til Björgvins Sæmundssonar bæjarstjóra ( Kópavogi til að fræðast um tengsl mann- virkjanna þar og hraðbrautar um Garðabæ. — Jú, ég held að hraðbraut um Garðabæ sé ábyggilega framhald af þeim framkvæmd- um sem hafa átt sér stað f Kópa- vogi. Ég þori þó ekki beint að fullyrða hvort i sjálfu sér séu til einhverjar samþykktir þar að lútandi. Þó er það hald mitt að gert hafi verið ráð fyrir að svo væri. Það er allavega ljóst að vegur af þeirri stærð sem um gjarnar hér liggur verður að minnsta kosti að ná til Hafnarfjarðar, burtséð frá því hvort eða hvenær Reykjanes- brautin kemur. Sá vegur verður að vera a.m.k. 4 ak- reinar, en það er svo annað mál hvort kalla skuli þann veg hrað- braut eða .ekki. Ég held nú að menn kalli Hringbrautina yfir- leitt ekki hraðbraut þótt 4 ak- reinar séu. — Ég hef ekki trú á því að umferð um Hafnarfjarðar- veginn minnki þótt Reykjanes- brautin komi. Þá ber að hafa það sérstaklega í huga að f framtíðinni á eftir að rísa byggð á Álftanesinu sem verður líklega stærri en öll sú byggð sem fyrir hendi er í Garðabæ og Hafnarfirði. Hver er kostnaður við mannvirki þau f Kópavogi sem tengd eru væntanlegri hrað- braut? Er þar um að ræða 1 milljarð eins og stundum er haldið á loft? — Það má vel vera að þarna sé um 1 milljarð að ræða ef allar krónur sem farið hafa til verksins eru reiknaðar á núverandi gengi. Krónutalan sjálf er þó ekki orðin að einum milljarði. Hraðbraut vestan Hrauns- r holts út á Alftanes vegna væntanlegrar byggðar þar HRAÐBRAUT um Kópavog Garðabæ o.s.frv. er mikið mál og á þvf margar hliðar. Fer það allt eftir þvf hvað verður ofan á f sambandi við heildarskipulag alls höfuðborgarsvæðisins. Að mfnu áliti ætti væntanleg hrað- braut að koma um Arnarnes- voginn og vestur fyrir Hraun- holtið. Þessi braut ættí svo ekki að tengjast Reykjavfkurvegi beint, heldur að vera bein hrað- braut út á Álftanesið, vegna væntanlegrar byggðarþróunar þar. Haldi maður svo lengra fram f tfmann þá ætti brú frá Álftanesi f Suðurgötu að vera rökrétt framhald af þessari hraðbraut. Gallinn er bara sá að f þessum málum er við marga hagsmunahópa að ræða, og hvert bæjarfélag virðist ekki beint taka mikið tillit til annarra né taka tillit til heildarþróunar höfuðborgar- svæðisins, sagði Gestur Ólafs- son skipulagsfræðingur f viðtali við Mbl. — Hér er enginn sem hefur neitt ákvörðunarvald vegna heildarskipulags sagði Gestur ennfremur. Þá hefur skort á að stofnanir hafi framkvæmt vissar rannsóknir varðandi byggðaþróun, sem þeim er ætlað. Á sfnum tfma starfaði samstarfsnefnd bæjar- félaganna á höfuðborgar- svæðinu um hugsanlegt sam- Framhald á bls. 47 Þetta kort sýnir helztu vegi sem tengja sveitarfélög höfuðborgar- svæðisins. Feita strikalfnan sýnir hvar Garðbæingar vilja fá hugsanlega hraðbraut f stað þess að hún verði þar sem Hafnar- fjarðarvegur liggur nú. Aðrar strikalfnur sýna hugmyndir um þverbrautir milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar en sá hluti hennar sem ókláraður er er sýndur með strikalfnum. Vegagerðin vinn- ur samkvæmt skipu- lagi hvers og eins 1 TILEFNI samþykktar borg- arafundsins f Garðabæ leitaði Mbl. til Vegagerðar rfkisins um það á hvaða stigi undirbúning- ur Hafnarf jarðarbrautar, sunn- an Hraunslækjar, væri. — Ég er ekki búinn undir til að segja neitt um hvað verður, með tilliti til þessarar sam- þykktar, sagði settur vegamála- stjóri, Snæbjörn Jónasson. Snæbjörn sagði að vegagerðin hefði aðeins áhrif á fram- kvæmdir við vegagerðina sjálfa þ.e. á legu vegarins, hvernig gatnamótum skyldi hagað, hvaða hús þyrfti að rífa, o.þ.h. Við höfum ekki undir höndum neinar tillögur varðandi lagn- ingu vegarins frá Hraunsholts- læk um Arnarvoginn og þá fram hjá Hraunsholti eða yfir það. Við högum okkar vinnu alveg eftir því hvað skipulag viðkomandi bæjar- og sveitarfé- Framhald á bls. 47 Hafnarfjarð- arvegurinn er ekkert einkamál Garðbæinga ÞAÐ er of snemmt að segja eitthvað um málið á þessu stigi. Þessi samþykkt Garðbæinga var aðeins rædd á fundi bæjar- stjórnar f gær. Þá var að vfsu engin afstaða til hennar tekin, heldur var mér og Friðþjófi Sigurðssyni, formanni skipu- lagsnefndar bæjarins, falið að kanna málið betur, þ.e. viðhorf Garðbæinga til endurbótar á Hafnarf jarðarveginum, sagði Björn Arnason, bæjarverk- fræðingur, f Hafnarfirði. — Ég reikna með að einhver afstaða verði tekin i þessu máli á fundi bæjarstjórnar nk. þriðjudag. Það er þó mín skoð- un að það sé alger f jarstæða að ætlast til að klippt verði á Hafn- arfjarðarveginn. Sá vegur er ekkert einkahagsmunamál Garðbæinga. Vegur þessi er einnig þjónustubraut fyrir Hafnfirðinga og Hafnfirðingar munu leggja leið sina um hann til Reykjavíkur þótt Reykjanes- brautin komi en hún er út af fyrir sig nauðsyn. Nú samþykkti fundurinn i Garðabæ, að I væntanlegu skipulagi bæjarins yrði tekið frá land fyrir hugsanlega hrað- braut vestan núverandi Hafn- arfjarðarvegar með tengingu við Álftanesveg, vegna væntan- legrar byggðarþróunar á Alfta- nesinu. Hvernig kemur þetta heim og saman við þarfir Hafn- firðinga, þar sem þetta mundi sennilega tákna að ekki yrði urh beina tengingu við miðbæ ykk- ar að ræða? — Ég skil þetta sjónarmið, og það má vel vera að það geti fallið að okkar hagsmunum í framtíðinni, ef t.d. Hafnarf jörð- ur ætti eftir að þróast meir I norðvestur, en þar er okkar land svo til klárað nú. Reyndar er bærinn kominn I allsherjar plássleysi hvað varðar frekari stækkun. hálfsmánaöarlega frá 24. sept. til 18. des. Verð frá i kr. 35.900.- > :erðaskrifstofan AUSTURSTRÆTI 17 — SIMI 26611 OG 20100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.