Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 24. OKTÓBER 1976 19 haimin er eutnvað svo umkomu- laus litla ekinnið, þar sem hann stendur innan um ferðatöskurnar (lestinni, sem er að leggja af stað til Moskvu daginn eftir að glæpa- starfsemin var afhjúpuð. Fjöl- skyldur sendiráðsmanna voru sendar úr landi f skyndi, en sjálf- ir urðu þear eftir. Þeim var gef- inn sex daga frestur til að hafa sig á braut en enginn veit hvernig heamkoman verður. Interpol en lögregla í hinum ýmsu löndum hefur ekki getað haft hendur í hári hans, meðal annars af þvf að hann hefur átt góða vini f hópi sendiráðsstarfs- manna, sem hafa aðstoðað hann á ferðum hans. I fyrra skall þó hurð nærri hælum þegar hann var handtekinn í Beirút. Frönsk og dönsk yfirvöld stóðu í þeirri trú, að hann fengist fram- seldur, en það fór á aðra lund. Eftir tvo daga var hann látinn laus. Vinir hans, sem kunnu að spila á mútukerfi embættismanna f Lfbanon sáu um það. Nú afsaka yfirvöld í Lfbanon sig með þvf, að þarna hafi verið um að ræða „leið mistök“. Þar til verulega fór að hitna f kolunum f Lfbanon var þar meiriháttar miðstöð eiturlyfja- sölu, en nú er talið að aðal eitur- lyf jahreiðrið sé í Marokkó. Talið er að myrkraverk sendi- ráðsmannanna hafi byrjað í fyrra, en þá fengu sendiherrar hins sósfalistiska alþýðulýðveldis Norður-Kóreu orðsendingu um harkalegan niðurskurð á fjárveit- ingum frá stjórninni í Pyoungyan. Þetta er sett f sam- band við hinn síversnandi fjarhag landsins og mikinn viðskiptahalla við útlönd. Skuldir rfkisins við Vesturlönd ein nema nú um 500 milljónum Bandarfkjadala. Langmestur hluti varningsins kom til Gedser á Falstri með ferj- unni frá Warnemiinde f Austur- Þýzkalandi. Afengi og tóbak var sfðan selt hópi Dana og Pólverja, en hassið fór til glæpahrings, sem í eru Danir, Sýrlendingar og Líbani. Augljóst er að sendiráðsmenn- irnir notuðu ekki nema lítin hluta ágóðans til eigin þarfa, og þvf vaknar sú spurning hvert pening- arnir hafi farið, og f framhaldi af þvf, hvort það geti raunverulega verið, að glæpastarfsemi á Vest- urlöndum sé farin að framfleyta þjóðrfki, — jafnvel þótt „sósíalískt alþýðulýðveldi“ sé? — A.R. Vodkaflaskan á V^9 \ A«nr sígarettn- kronur, * krónUr og litsjónvarpstæK á 125 þúsund • • • - VEGNA Norður-Kóreumálsins hafa spunnizt nokkur blaðaskrif og umræður um stöðu erlendra sendi- ráð: og starfsmanna þeirra á Norðurlöndum. Vekur þá fyrst og fremst athygli sú algera sérstaða, sem sendiráðsmenn hafa hvað snertir réttindi, skyldur og óvenjuleg hlunnindi. I alþjóðasamningi gerSum í Vinar- borg er kveðiS á um sérstöðu starfs- manna sendiráSa. Ákvæði samnings- ins fela meðal annars f sér ýmiss konar fríðindi sendiráðsstarfsmanna um viða veröld, og i beinu sambandi við þessi friðindi er rekin umfangs- mikil kaupsýsla i mörgum löndum. í Kaupmannahöfn eru tvö fyrir- tæki, sem hafa sérhæft sig á þessu sviði. Til að gefa hugmynd um þau friðindi, sem i boði eru, má nefna að í verðlista annars þeirra eru boðin litsjórnvarpstæki i háum gæðaflokki. Reiknað i islenzkum krónum er verð- ið 125 þúsund krónur. en slík tæki kosta um 320 þusund krónur í verzl- unum hér á íslandi. Stór og vönduð svart-hvit sjónvarpstæki kosta um 40 þúsund. En sjónvarpstæki eru EINN Pólverjanna, sem voru teknir fastir i Kaupmannahöfn i sambandi við mál norður-kóreska sendiráðsins. Pól- verjarnir eru sakaðir um að hafa annazt sölu á hassi, vindlingum og áfengi. Mynd þessi birtist i Politiken s.l. þriðjudag. ekki það eina, sem i boði er, — í verðlistanum er að finna heimilis- tæki, matvöru, snyrtivörur, Ijós- myndavélar, skartgripi, silfurmuni, og fieira sem of langt mál yrði upp að telja. Verðið er ævintýralegt, og engum dytti i hug að halda þvi fram, að það væri verðbólguhvetjandi. Að því er næst verður komizt not- færa sendiráðsmenn á islandi sér aðallega þjónustu erlendra fyrir- tækja i þessu sambandi, og greiða lögum samkvæmt engin innflutn- ingsgjöld i því sambandi. Bifreiðar, áfengi og tóbak kaupa þeir þó hér á landi, og óskaði Morgunblaðið eftir upplýsingum um verð á áfengum drykkjum og tóbaksvörum til sendi- ráðsmanna hjá Áfengis- og tóbaks- verzlun rikisins. Þar fengust þau svör. að upplýsingar af þessu tagi væru ófáanlegar, — þær væru leyndarmál. Þvi leitaði Morgunblað- ið til nokkurra innflytjenda og fékk þar greinargóðar upplýsingar. sem látnar voru i té Ijúfmannlega. Verður hér leitast við að gefa hugmynd um friðindi. sem sendimenn erlendra ríkja njóta með örfáum dæmum: Þar eð upplýsingar fengust ekki hjá ÁTVR er álagning ekki með i eftirfarandi útreikningum, heldur einungis innkaupsverð og kostnaður við flutninga á áfengi og tóbaki, svo fastlega má búast við því, að dipló mataverðið" sé nokkrum krónum hærra en hér er gert ráð fyrir. Flaksa af algengri viskítegund kostar um 230 krónur til þeirra. sem verða umræddra hlunninda aðnjót- andi, en fyrir sömu flösku greiðir almennur viðskiptavinur 3.800 krónur. Vodkaflösku, sem kostar 3.550 krónur i Ríkinu, kaupa hinir útvöldu á um það bil 1 79 krónur. Tóbaksreykingar valda ekki þung- um búsifjum þegar hver pakki af sigarettum kostar 34 krónur, en al- menningur greiðir hins vegar 220 krónur fyrir pakkann. Dæmi um vildarkjör á ilmvatni er, að meðalstórt glas af algengri teg- und. kostar til þeirra, sem undan- þegnir eru opinberum gjöldum, um 790 krónur, en út úr búð kostar samskonar glas 1.720 krónur. Þegar skoðað er verð á bifreiðum kemur í Ijós, að meðalstór bandarisk- ur bill kostar almennan kaupanda 2.742.000, en fyrir samskonar bil greiða sendiráðsmenn 1.129.000. Meðalstór brezkur bill losar rétt milljón á „diplómataverði", en sama bil kaupir almenningur fyrir eina og hálfa milljón. Þá sneri Morgunblaðið sér til skrif- stofu lögreglustjórans i Reykjavik og spurði hvernig farið væri með brot á umferðarreglum þegar starfsmenn erlendra sendiráða ættu i hlut. Sturla Þórðarson fulltrúi sagði, að þegar um væri að ræða ólöglegar bifreiðastöður við stöðumæla eða annars staðar væri skilinn eftir miði með tilmælum um að Ijúka málinu með sátt, eins og öllum öðrum tilvik- um. Híns vegar væri venja að fylgja slikum málum ekki eftir, þegar starfsmenn erlendra sendiráða ættu i hlut. „En þegar sendiráðsmaður er tekinn fyrir alvarlegra umferðarbrot er utanríkisráðuneytinu gert viðvart, og það sér þá um áframhaldið," sagði Sturla. Björg Einarsdóttir (t.v.) og Vaiborg Bentsdóttir afhenda safnverði f Arbæjarsafni, Kristfnu Jónsdóttur, tii varðveizlu merki er notað var við ýmis tækifæri f Reykjavfk á kvennaárinu. Eitt ár lidið frá „kvennafríi” 1 dag er eitt ár liðið frá þvf að fslenzkar konkur tóku sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags sfns f þjóð- félaginu. Aðgerðin átti sér upptök í áskorun, sem samþykkt var á ráð- stefnu, sem um þrjú hundruð konur sóttu á Hótel Loftleiðum í júni 1975. Kvennafríið var haldið undir kjörorðum kvennaársins: Jafnrétti — framþróun — friður. Töluverður tekjuafgangur var eftir fríið og var hann látinn ganga til Kvennasögusafns Islands þvf til eflingar. í gær höfðu forráðamenn safnsins opið hús fyrir velunnara þess og mætti f jöldi manns. Reikningar yfir fjármál fram- kvæmdanefndar hafa verið sendir öllum félögum og öðrum, er létu fé af hendi rakna og flest bókasöfn landsins hafa fengið senda möppu með helztu plögg- um, er urðu til vegna „kvenna- frísins" ásamt mynd af úti- fundinum f Reykjavík. Páll Friðbertsson: Um sjómannasamn- inga á Vestfjörðum t Þjóðviljanum þrfðjudaginn 12. október sfðastliðinn er frétta- bréf frá Gfsla Guðmundssyni, Suðureyri, er hann nefnir „Vei að verki staðið", þar sem hann lof- syngur mig fyrir að brjóta bráða- birgðalög um skiptakjör á ifnu- bátum. Þar sem Gísli fer hér með rangt mál, vil ég upplýsa eftirfarandi: 1. Utvegsmenn á Vestfjörðum höfðu boðið skiptakjör á línubát- um 29,2% til áhafnar, en það er 1% hærra en samningsdrög frá 1. mars s.l. gerðu ráð fyrir. t fyrri samningi höfðu hlutaráðnir sjómenn á Vestfjörðum 1% hærri skiptakjör, en annars staðar á landinu eða 32%, þegar aðrir höfðu 31%. Umrædd bráðabirgða- lög gera ráð fyrir slfkri samræm- ingu. 2. Ég hafði rökstuddan grun um, að sjómenn vildu hef ja róðra, ef þeir fengju 30% skiptakjör. Stjórn Fiskiðjunnar Freyju sam- þykkti því að greiða þau 0,8%, sem á skorti til þess að hægt væri að hefja róðra. Utvegsmenn á Suðureyri buðu þvi ekki hærri kjör en aðrir útvegsmenn á Vest- fjörðum. Sem dæmi um þá miklu kjara- bót, sem sjómenn á linuveiðum fengu m.a. við sjóðakerfisbreyt- inguna á þessu ári, vil ég nefna, að í októbermánuði 1975 voru hásetakjörin á m/s. Kristjáni Guðmundssyni þannig, að afla- hlutur úr hverju fisktonni var kr. 1.009.00 og þurfti þá 85 tonn til þess að afla fyrir hásetatrygg- ingu, en nú f október er aflahlut- ur úr hverju fisktonni kr. 1.682.00 og þarf nú aðeins 64 tonn fyrir hásetatryggingu. 3. Tfu dögum áður en heyrðist um bráðabirgðalögin var gerð til- raun til að ráða áhöfn á m/s. Kristján Guðmundsson, en svar sjómanna var, að þeir vildu ekki láta skrá sig á skipið fyrir 28,2% skiptakjör, svo að bráðabirgðalög- in voru ekki þá orsök þess, að róðrar hófust ekki. Það hafði rfkt algjört ófremdar- ástand f samningamálum sjómanna og útvegsmanna allt frá því að sjóðakerfisbreytingin var lögfest. Var þvf nauðsynlegt að marka ákveðna stefnu með lög- um. 4. Umrædd bráðabirgðalög eru án efa ein mildustu bráðabirgða- lög um kjaramái, sem lögfest hafa verið. Þau banna að vfsu verkföll og verkbönn um takmarkaðan tfma, en það er ekki svo alvarlegt, þar sem sjómenn geta neitað að láta skrá sig á skip í byrjun ver- tíðar. Það er því óþarfi fyrir Þjóð- viljann að kalla þessi lög þrælalög og öðrum illum nöfnum, en allir vita hver tilgangurinn er. Hann er sá, að þyrla upp pólitísku mold- viðri og gera alla óánægða með sín kjör. Það eru broslegir til- burðir að æsa sjómenn um land alit gegn þessum bráðabirgðalög- um. Páll Friðbertsson 51 þjóð á Olympíu- skákmóti í ísrael Amsterdam 22. október. Reuter. DR. MAX Euwe, forseti alþjóðaskáksambandsins, FIDE, fordæmdi f dag ákvörð- un kommúnistarfkjanna og Arabarfkjanna um að taka ekki þátt f Ölympíuskák- mótinu f Israel og sagði að hér væri um pólitfska ákvörðun að ræða. Euwe sagði, að FIDE viðurkenndi ekki skákmótið, sem haidið er f Tripoii, þar sem þær þjóðir, sem ekki senda sveitir til Israels, keppa, en sagðist harma að það mót skyldi haldið. Euwe sagði að 51 þjóð af 94 f FIDE tæki þátt f Ólympfuskákmótinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.