Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1976 45 VELVAKANDI Velvakandi svarar f sfma 10- 100 kf. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. 0 Garðyrkja Gormur skrifar: „Það er oft þannig að sama er hvað mikið er gert, að sjaldan verða allir ánægðir. Þegar litið er til þess hve mikið hefur verið gert hér í Reykjavík á undanförnum árum i garðyrkjumálum, þá kann það að sýnast ósanngjarnt að gagnrýna. En þó langaði mig til að benda á örfá atriði sem Rafliði garðyrkjustjóri væri vís til að taka til athugunar. Það er áberandi og þakkarvert hvernig grasið hefur verið að teygja sig um sífellt stærri svæði hér í borginni, en fyrirgefi mér Óðinn og Þór, þó að ég leyfi mér að halda því fram, að sums staðar hafi verið ofgert. Fer það sérstak- lega í taugarnar á mér að svæði í kringum strætisvagnastöðvar t.d. við Arnarbakka eru grasilögð en aðeins lítil stétt fyrir framan bið- skýlin. I okkar votviðrasömu borg verður ekki hjá því komist að allt i kringum biðskýlin verður óyfir- stíganlegt drullusvað, þvi veik grasrótin þolir ekki umgang og votviðrið. Væri það nokkur goðgá að biðja um fleiri gangstéttir. Svaðið fyrir 'framan biðskýlið á Lækjartorgi við Hafnarstræti er talandi dæmi um hvað ég á við. Og úr því að ég er nú kominn af stað má ekki setja almennilegan stöpul undir höggmyndina sem stendur á Lækjartorgi.Ég verð að segja það Birgir minn, Isleifur, að kassinn, sem hún stendur á er til háborinnar skammar. Eða hefur þú nokkurn tima séð í nokkurri borg annarri en Reykjavík styttu eða höggmynd á trékassa, sem heldur ekki einu sinni sandinum sem í hann hefur verið troðið?“ • Keflavíkur- sjónvarp „Mikið hefur verið ritað um ýmis málefni i Velvakanda en einna mest um hið blessaða Kefla- vikursjónvarp. Er það i sjálfu sér ekki nema eðlilegt þvi það er óskiljanlegt hvers vegna ríkis- stjórn Islands, og þar á ég aðal- lega við sjálfstæðismenn i stjórn og á Alþingi, þverskailast mót vilja þjóðarinnar í þessu máli. Eru þeir manna fyrstir til að skrifa um Rússagrýluna og þá kúgun og nauðungar sem þar eiga sér stað. En hvað kalla þeir þetta, þegar þeir af hræðslu við kommúnista og framsóknar- komma samþykktu lokun Kefla- vikursjónvarpsins í trássi við vilja kjósenda og jafnvel þjóðar- innar í heild. 85 til 90% þjóðar- innar munu vera með Keflavikur- erum búin — nema Jamie leggi blessun sína yfir breytinguna. Yvonne Cartel brosti bllðlega til Arts Whelocks. Yvonne hafði aldrei fengið því framgengt að herbergi væri málað á ný til að það passaði við hennar litf. Hún hafði satt bert að segja leikið tvö hlutverk I sjðnvarpsleikritum en var nú að gera sér vonir um betri tlð. — Þér kannist auðvitað við ungfrú Cartel, sagðí Martin. — Vissulega. Anægja að hilta yður, ungfrú Cartel. — Það munaði engu hún fengi Oscarsverðlaunin I ár. — Ég er sannfærður um að þér fáið þau næsta ár ... Art uppgötvaði að einhver stóð að baki honum og vék ti! hliðar til að gefa Reg Curtiss kost á að dást að ungfrúnni. — Reg vinnur líka f þjónustu Jamie. Reg þú verður að skýra fyrir honum hvers vegna við get- um ekki hleypt þeim inn. — Það er með öllu óhugsandi, herra Case. Ég myndi missa vinn- una ef við gerðum það. Jack Erín og Helene komu inn frá ströndinni. sjónvarpinu og þess vegna er það óskiljanlegt hvers vegna farið er að ráðum fárra ofstopafullra gasprara, sem sjá svart í sam- bandi við Kanann. Eruð þið ekki hræddir við kjós- endur ykkar eða dettur ykkur i hug að kjösendur Sjálfstæðis- flokksins gefi ykkur atkvæði sín bara til að þið hlaupið á eftir vilja hinna flokkanna í hvað máli sem er? Þá eruð þið blindir. Við viljum vera frjálsir í frjálsu landi en þolum enga einangrun eða kúgun. Látið þess vegna opna kanasjónvarpið. Mér finnst það vera hrein og bein skömm, a við skulum ekki sjálf fá að ráða hvaða sjonvarps- efni við horfum á. Hvergi i heiminum eru eins miklar hömlur lagðar á i slikum efnum. Sjón- varpið á Keflavikurflugvelli er stofnun, sem ríkið greiðir eki með og því engin ástæða til að loka því. Það er talið af nokkrum of- stopafullum körlum og konum, sem vilja láta mikið á sér bera, að allt, sem aflaga fer i þessu landi svo og glæpir stafi af Keflavíkur- sjónvarpinu. Þetta eru auðvitað ekki annað en móðursjúkar hugsanir. Ekki horfa landsmenn á kanasjónvarpið núna en samt linnir ekki glæpunum. Aldrei hafa verið framin eins mörg inn- brot og glæpir siðan lokað var fyrir stöðina á Keflavíkurflug- velli. Það sást varla unglingur úti á götu þegar góð mynd var í kana- sjónvarpinu og þá var minna um glæpi. Hvers vegna í ósköpunum má ekki draga úr þeim ósóma sem nú tröllríður islenzku þjóðinni með þvi að leyfa kanasjónvarpið aftur? Virðulegir stjórnmálamenn, hvar í flokki sem þið standið. Ef þið haldið að þið græðið atkvæði með þessari framkomu ykkar gagnvart islenzkum kjósendum þá skjátlast ykkur hrapallega. Opnið þvi Keflavíkursjónvarpið á ný og þá mun ykkur farnast vel.“ Sjálfstæðismaður HÖGNI HREKKVÍSI „Flýtum okkur! Tryggur og Högni ætla að heyja einvígi." © 1976 McNaught Symd., pro- 'matt Enn ein nýjung frá Myndiðjunni Ástþór h.f.: Nú bjóðum við allar litmyndir unnar á Pro-mattan pappír, sem aðeins atvinnu- Ijósmyndarar hafa notað hingað til. PRO-MATT tryggir yður besta fáanlega skarpleika á litmyndum og jafnframt endingargóða og fallega liti. Myndiðjan Ástþór hefur frá byrjun ávallt verið i fararbroddi með nýjungar. Eruð þér í takt við tímann? Eru yðar myndir unnar á PRO-MATT hjá Myndiðjunni Ást- þór h.f. mynaiðian SÁSTÞÖRf LEIÐANDI FYRIRTÆKI Á SVIÐI LJÓSMYNDAIÐNAÐAR Fréttir frá Vogue Gróf stórisefni Rúmteppi Dagatöl Dúkar Tilbúnir púðar Gluggatjaldaefni í mik/u úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.