Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÖBER 1976
Loðskinn hf. ætlar
ad bjóða hærra verd
fyrir gærurnar
EINS og frá var skyrt ( blaðinu f gær eru allar horfur á að Sútunar-
verksmiðjan Loðskinn h.f. á Sauðárkróki verði að draga mjög úr
framleiðslu sinni á næsta ári vegna skorts á hráefni. Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Loðskinns, sagði f gær að allt útlit væri fyrir að
verksmiðjan yrði að hætta starfrækslu sinni f desember n.k. ef hún
fengi ekki meira hráefni en nú stæði til boða. Sagði Jðn það ætlun
Loðskinns að reyna fyrir sér hjá sláturleyfishöfum og bjóða beim
hærra verð fyrir gærurnar og kanna þannig hvort unnt væri að fá
meira hráefni fyrir verksmiðjuna.
Agnar Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Búvörudeildar SlS,
sagði í samtali við blaðið í gær, að
það væri rétt að Iðnaðardeild SlS
hefði óskað eftir því að auka kaup
sin á hrágærum og Búvorudeildin
gæti af þeim ástæðum ekki ráð-
stafað til Loðskinns h.f. nema
hlula af þeim gærum, sem fyrir-
tækið hefði óskað eftír að fá
keypt. — Búvörudeildin getur
erfiðlega neitað Iðnaðardeildinni
um þa'r gærur sem þeir óska eftir
og geta borgað verðlagsgrundvall-
arverð fyrir. Að mínum dómi er
það eðlilegt að þar sem kaupfélög-
in sjá okkur fyrir hráefni þá fari
það hráefni til vinnslu hjá fyrir-
tækjum Sambandsins, sagði
Agnar.
Hjörtur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
SÍS, sagði að þegar Sútunarverk-
smiðja Sambandsins hefði verið
endurbyggð á Akureyri hefði ver-
ið gert ráð fyrir þvi að verksmiðj-
an ynni úr milli 500 og 600 þús-
und skinnum árlega. Um ástæðu
þess að Iðnaðardeildin ætlar nú
að auka kaup sín á hrágærum úr
350 þúsund gærum í 550 þúsund,
sagði Hjörtur, að Iðnaðardeildin
ætlaði bæði að auka framleiðslu
sina á fullunnum gærum í fatnað
og auka sölu sína á forsútuðum og
klipptum gærum til erlendra að-
ila. — Það hefur verið stefna Iðn-
aðardeildarinnar að fullvinna
sem mest af gærum hér heima en
við höfum selt saltaðar gærur til
Póllands siðustu 30 ár. Pólverj-
Arangur af gróðursetningu er
víða farinn að setja svip á landið.
arnir notuðu þessar gærur i fatn-
að, sem þeir sendu á Evrópumark-
að eða þann sama markað og við
vorum að reyna að komast inn á.
Þeir greiða gott verð fyrir gær-
urnar en hafa nú ákveðið að flytja
sig yfir á Bandaríkjamarkað með
sina vöru, sagði Hjörtur.
Hjörtur tók fram að Pólverjar
hefðu gert það að skilyrði að fá
150 þúsund saltaðar gærur en
hefðu aðeins fengið 100 þúsund.
Iðnaðardeildin ætlar að selja
Pólverjum 150 þúsund þvegin og
klippt skinn og Loðskinn hefur
einnig undirritað samninga um
sölu á 200 þúsund sams konar
skinnum til Póllands. — Það
skiptir miklu fyrir okkur að geta
fullnýtt verksmiðjuna á Akureyri
og þegar ákveðið var að byggja
hana upp með þessum hætti var
gengið út frá þvi að Búvöru-
deildin skyldi sjá verksmiðjunni
fyrir því hráefni, sem hún þyrfti
og Búvörudeildin hefði umráð
yfir. Það er ekki tilgangur okkar
að kippa fótum undan einu eða
neinu fyrirtæki, sagði Hjörtur að
lokum.
Jón Ásbergsson, framkvæmda-
stjóri Loðskinns h.f. sagði að i
fyrra hefði verksmiðjan unnið úr
alls 272.000 gærum og hefði fyrir-
Framhald á bls. 47.
Skógræktarfélag
Reykjavíkur 30 ára
1 dag, sunnudag. á Skógræktar-
féiag Keykjavíkur 30 ára afmæii.
Miðstöð Skógræktarfélagsins er
„Myndir úr
mannlífinu og
andi stemmning"
Sýningu Einars Hákonarsonar
að ljúka á Kjarvalsstöðum
„Myndirnar eru úr mannllf-
inu, af fólki við alls konar iðju,
við störf til lands og sjávar og
að sjálfsögðu við leik, sem sagt
þvf sem viðkemur mannlffinu,"
sagði Einar Hákonarson list-
málari t rabbi um sýningu
hans.
Það eru 88 myndir á sýning-
unni, en hún er opin fram á
Ljosmynd Mbl. Friðþjófur.
Serstæð altaristöflumynd er á sýningu
Einars. ,..lá. það er gott að þið takið myml
af altarislöflunni, fer vet S þvl að trekkja
upp á Irúna þvf við erum svo trúaðir og
það fylgirmikil blessun þessari mynd."
Einar Hákonarson.
mánudagskvöld milli kl. 2 og
10.
Einar sagðist hafa málað
þessar myndir á síðustu 5 árum,
en hann kvaðst vonast til að sjá
fleira fólk á sýningunni um
helgina. „Aðsóknin hefur verið
sæmileg," sagði hann, „en það
er nóg pláss fyrir fleiri gesti,
nóg af myndum og rffandi
stemmning úr ýmsum áttum,
enda jafnvel smá landslags-
rómantfk hér og þar. Nú eru
haustlitirnir í landinu, gott fyr-
ir fólk að teygja úr sér og upp-
lagt að Hta við á Kjarvalsstöð-
um um helgina þar sem Magnús
A. Árnason er einnig með sýn-
ingu."
f Fossvogi og þar eru aldar upp
trjá- og runnapiöntur f hundruða
þúsunda tali árlega. Athafna-
svæði félagsins eru mörg, en
þeirra vfðáttumest er Heiðmörk.
Þar hafa hin sfðustu ár verið
gróðursettar um 100 þúsund trjá-
plöntur árlega og er það starf að
mestu unnið af unglingum f
Vinnuskóla Reykjavfkurborgar.
Önnur athafnasvæði félagsins eru
Öskjuhlfð og Rauðavatnsstöð.
Félagar f Skógræktarfélaginu
eru nú um 1300, en stjórn félags-
ins skipa: Björn Ofeigsson, Guð-
mundur Marteinsson, Jón Birgir
Jónsson, Lárus Blöndal Guð-
mundsson og Sveinbjörn Jónsson.
Framkvæmdastjóri er Vilhjálm-
ur Sigtryggsson.
Eldfærin á
Kjarvalsstöðum
Brúðuleikhúsið sýnir hið vinsæla
leikrit Eldfærin í dag, sunnudag,
á Kjarvalsstöðum kl. 15 og 17.
Ljósm.: Sv. P.
A degi iðnaðarins, á föstudaginn, á Akureyri, voru tveir akureyrsk-
ir iðnaðarmenn heiðraðir. Sigurður Kristinsson forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna afhenti þeim Pál Friðfinnssyni bygginga-
meistara til vinstri á myndinni, og Kristjáni Nóa Kristjánssyni
skipasmið, borðfána Landssambandsins. Þeir Páll og Kristján hafa
unnið mikið og heilladrjúgt starf f þágu iðnaðarmála á Akureyri.
SE Starfsstúlkur
hreppsins komn-
ar í setuverkfall
Hveragerði — 22. október
SKRIFSTOFUSTUKUR hjá
Hveragerðishreppi eru nú f setu-
verkf alli, þannig að þær taka nú
ekki við neinum greiðslum frá
þorpsbúum sem komið hafa á
skrifstofuna f þeim erinda-
gjörðum né svara f sfma.
Stúlkurnar tjáðu fréttaritara
Mbl. að hinn 23. september f fyrra
hefði félag opinberra starfs-
manna ritað hreppsnefnd Hvera-
gerðis bréf, þar sem farið hefði
verið fram á viðræður um röðun f
launaflokka. Þvi bréfi hefði þá
ekki verið svarað en siðan hefði
verið ritað annað bréf nú í
september — ári seinna — þar
sem komið hefði fram krafa um
niðurröðun f flokka til samræmis
við önnur sveitarfélög f kring.
Það bréf var lagt fyrir hrepps-
nefnd hinn 28. september sl. og á
þeim fundi hreppsnefndar hefði
verið kosin samninganefnd til við-
ræðna við félag opinberra starfs-
manna. Á viðræðufundi i kjölfar
þessa hefði hreppsnefndin ekki
sett fram neitt tilboð en hins
vegar heitið þvf að tilboð skyidi
liggja fyrir hinn 9. október sl.
Ekkert slikt tilboð hefði hins
vegar enn komið fram, og þess
vegna kváðust stúlkurnar nú sitja
á skrifstofunni og hafast ekkert
að.
Sjómannasambandsþingið:
Formannskjör í dag
FORMANNS- og stiórnarkjör til
Sjðmannasambands Islands fer
væntanlega fram f dag, en stefnt
er að þvf að þingi sambandsins,
sem stendur yfir f Lindarbæ,
Ijúki f dag.
Uppstillinganefnd hóf störf sið-
degis I gær. Vitað er að Jón Sig-
urðsson, sem gegnt hefur for-
mannsstörfum f sambandinu um
árabil, hefur hug á að draga sig I
hlé. Ljóst er að Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannafélags Hafn-
arfjarðar, nýtur fylgis margra
sem eftirmaður Jóns Sigurðsson-
ar en einnig hefur verið rætt um
Karl Steinar Guðnason úr Kefla-
vfk og Pétur Sigurðsson frá
Reykjavik I þessu sambandi. Þá
er einnig hugsanlegt, að þingið
muni skora á Jón Sigurðsson að
gegna formennsku áfram.
I gær voru nefndarstörf árdegis
en eftir hádegi var venjulegum
þingstörfum haldið áfram og kom
þá á þingið fulltrúi frá frska sjó-
mannasambandinu, sem sérstak-
lega var til þess boðið.
Dr. Magnús Már Lárusson:
Sk jalaleit í Vatikaninu
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá dr. Magnúsi Má Lárus-
syni f tilefni fréttar f Morgun-
blaðinu:
Vegna erindis Þórarins Þór-
arinssonar, fyrrum skólastjóra,
um skjalasafn Vatfkansins hinn
19. þessa mánaðar óska ég eftir að
taka fram, að síra Frank J. Bulli-
vant, O.M.I., kom til min í skrif-
stofu rektors Háskóla Islands kl.
10:30 hinn 6. júnf 1972. Hann
hafði þá verið aukakennari í
ensku við heimspekideild um
veturinn. Erindi hans var að
spyrja mig, hvort hann gæti
endurlaunað mér greiða frá því á
árunum 1953—4. Hannn væri á
förum til Rómar. Eg sagðist vera
honum þakklátur, ef hann fyndi
texta bréfs Páls páfa III. til Jóns
biskups Arasonar, 9. marz 1549 I
bréfabókum páfa, og stóð ekki á
því eftir minni tilsögn, þar sem
allar kópiubækurnar eru til. Það
fannst I fyrstu atrennu þrátt fyrir
það, sem segir i bók Guðbrands
Jónssonar: Jón Arason, Rvík
1950, bls. 215 o.áfr., en þar segir,
að leit hafi verið gerð að þvi þrí-
vegis án árangurs. Að sjálfsögðu
þótti mér vænt um þessa komu
síra Franks, þar sem ekki var vist,
að ég héldi sjón, en vildi vita,
hvort ég í framtfðinni gæti orðið
að liði í fræðunum. Nú er ég ein-
eygður og þó truflaður á sjón.
Með hjálp og meðmælum
menntamálaráðherra og sterkum
meðmælum dr. Frehens biskups í
Reykjavík tókst mér að komast til
Rómar I nóvember 1974 til að
huga nánar að skilyrðum og horf-
um I skjalaleit. Varð það til þess,
að munnlegt samkomuleg varð á
milli Antonio kardinála Samoré
og min á þá lund, að ég hefði
fullan og óskoraðan aðgang að
Archivio Segreto Vaticano,
leyndarskjalasafni páfa og myndi
njóta þar allrar aðstoðar og fyrir-
greiðslu án takmarkana, m.a. ljós-
myndunar, hvenær, sem ég kæmi
þangað aftur, eða beiddist þess
skriflega. Var það staðfest með
bréfi 1975. Auk þess varð hin allt
of stutta ferð til þess, að ég gat
gengið frá útgáfutexta bréfs páfa,
sem birtist I Arbók Landsbóka-
safns 1973, en kardinálanum var
starsýnt á, hversu mjög var lagt
upp úr textaútgáfu þessari í Ar-
bókinni.
Það er von mín, að ríkisstjórnin
verði við ósk minni um að setjast
að í Rómarborg um tíma vegna
handrita og bréfa Vatikansins
o.fl., svo sem farið hefur verið
frarruá.