Morgunblaðið - 24.10.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 24.10.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÖBER 1976 Dr. Magnús Már Lárusson: Sk jalaleit í V atikaninu BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi frá dr. Magnúsi Má Lárus- syni f tilefni fréttar f Morgun- blaðinu: Vegna erindis Þórarins Þór- arinssonar, fyrrum skólastjóra, um skjalasafn Vatíkansins hinn 19. þessa mánaðar óska ég eftir að taka fram, að sfra Frank J. Bulli- vant, O.M.I., kom til mín í skrif- stofu rektors Háskóla íslands kl. 10:30 hinn 6. júní 1972. Hann hafði þá verið aukakennari i ensku við heimspekideild um veturinn. Erindi hans var að spyrja mig, hvort hann gæti endurlaunað mér greiða frá því á árunum 1953—4. Hannn væri á förum til Rómar. Ég sagðist vera honum þakklátur, ef hann fyndi texta bréfs Páls páfa III. til Jóns biskups Arasonar, 9. marz 1549 í bréfabókum páfa, og stóð ekki á því eftir minni tilsögn, þar sem allar kópíubækurnar eru til. Það fannst í fyrstu atrennu þrátt fyrir þaó, sem segir i bók Guðbrands Jónssonar: Jón Arason, Rvík 1950, bls. 215 o.áfr., en þar segir, að leit hafi verið gerð að þvi þrf- vegis án árangurs. Að sjálfsögðu þótti mér vænt um þessa komu síra Franks, þar sem ekki var vfst, að ég héldi sjón, en vildi vita, hvort ég í framtíðinni gæti orðið að liði í fræðunum. Nú er ég ein- eygður og þó truflaður á sjón. Með hjálp og meðmælum menntamálaráðherra og sterkum meðmælum dr. Frehens biskups í Reykjavík tókst mér að komast til Rómar f nóvember 1974 til að huga nánar að skilyrðum og horf- um f skjalaleit. Varð það til þess, að munnlegt samkomuleg varð á milli Antonio kardinála Samoré og mfn á þá lund, að ég hefði fullan og óskoraðan aðgang að Archivio Segreto Vaticano, leyndarskjalasafni páfa og myndi njóta þar allrar aðstoðar og fyrir- greiðslu án takmarkana, m.a. ljós- myndunar, hvenær, sem ég kæmi þangað aftur, eða beiddist þess skriflega. Var það staðfest með bréfi 1975. Auk þess varð hin allt of stutta ferð til þess, að ég gat gengið frá útgáfutexta bréfs páfa, sem birtist í Arbók Landsbóka- safns 1973, en kardinálanum var starsýnt á, hversu mjög var lagt upp úr textaútgáfu þessari f Ar- bókinni. Það er von mfn, að ríkisstjórnin verði við ósk minni um að setjast að í Rómarborg um tfma vegna handrita og bréfa Vatikansins o.fl., svo sem farið hefur verið fram_á. Ljósm : Sv. P. A degi iðnaðarins, á föstudaginn, í Akureyri, voru tveir akureyrsk- ir iðnaðarmenn heiðraðir. Sigurður Kristinsson forseti Landssam- bands iðnaðarmanna afhenti þeim Pál Friðfinnssyni bygginga- meistara til vinstri á myndinni, og Kristjáni Nóa Kristjánssyni skipasmið, borðfána Landssambandsins. Þeir Páll og Kristján hafa unnið mikið og heilladrjúgt starf I þágu iðnaðarmála á Akureyri. EINS og frá var skýrt f blaðinu í gær eru allar horfur á að Sútunar- verksmiðjan Loðskinn h.f. á Sauðárkróki verði að draga mjög úr framleiðslu sinni á næsta ári vegna skorts á hráefni. Jón Asbergsson, framkvæmdastjóri Loðskinns, sagði í gær að allt útlit væri fyrir að verksmiðjan yrði að hætta starfrækslu sinni f desember n.k. ef hún fengi ekki meira hráefni en nú stæði til boða. Sagði Jón það ætlun I.oðskinns að reyna fyrir sér hjá sláturleyfishöfum og bjóða þeim hærra verð fyrir gærurnar og kanna þannig hvort unnt væri að fá meira hráefni fyrir verksmiðjuna Agnar Tryggvason, fram- kvæmdastjóri Búvörudeildar SÍS, sagói í samtali við blaðið í gær, að það væri rétt að Iðnaðardeild SlS hefði óskað eftir því að auka kaup sín á hrágærum og Búvörudeildin gæti af þeim ástæðum ekki ráð- stafað til Loðskinns h.f. nema hluta af þeim gærum, sem fyrir- tækið hefði óskað eftir að fá keypt. — Búvörudeildin getur erfiðlega neitað Iðnaðardeildinni um þær gærur sem þeir óska eftir og geta borgað verðlagsgrundvall- arverð fýrir. Að mínum dómi er það eðlilegt að þar sem kaupfélög- in sjá okkur fyrir hráefni þá fari það hráefni til vinnslu hjá fyrir- tækjum Sambandsins, sagði Agnar. Hjörtur Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar SÍS, sagði að þegar Sútunarverk- smiðja Sambandsins hefði verið endurbyggð á Akureyri hefði ver- ið gert ráð fyrir því að verksmiðj- an ynni úr milli 500 og 600 þús- und skinnum árlega. Um ástæðu þess að Iðnaðardeildin ætlar nú að auka kaup sín á hrágærum úr 350 þúsund gærum f 550 þúsund, sagði Hjörtur, að Iðnaðardeildin ætlaði bæði að auka framleiðslu sína á fullunnum gærum f fatnaö og auka sölu sína á forsútuðum og klipptum gærum til erlendra að- ila. — Það hefur verið stefna Iðn- aðardeildarinnar að fullvinna sem mest af gærum hér heima en við höfum selt saltaðar gærur til Póllands siðustu 30 ár. Pólverj- Arangur af gróðursetningu er vfða farinn að setja svip á landið. arnir notuðu þessar gærur í fatn- að, sem þeir sendu á Evrópumark- að eða þann sama markað og við vorum að reyna að komast inn á. Þeir greiða gott verð fyrir gær- urnar en hafa nú ákveðið að flytja sig yfir á Bandaríkjamarkað með sína vöru, sagði Hjörtur. Hjörtur tók fram að Pólverjar hefðu gert það að skilyrði að fá 150 þúsund saltaðar gærur en hefðu aðeins fengið 100 þúsund. Iðnaðardeildin ætlar að selja Pólverjum 150 þúsund þvegin og klippt skinn og Loðskinn hefur einnig undirritað samninga um sölu á 200 þúsund sams konar skinnum til Póllands. — Það skiptir miklu fyrir okkur að geta fullnýtt verksmiðjuna á Akureyri og þegar ákveðið var að byggja hana upp með þessum hætti var gengið út frá því að Búvöru- deíldin skyldi sjá verksmiðjunni fyrir því hráefni, sem hún þyrfti og Búvörudeildin hefði umráð yfir. Það er ekki tilgangur okkar að kippa fótum undan einu eða neinu fyrirtæki, sagði Hjörtur að lokum. Jón Ásbergsson, framkvæmda- stjóri Loðskinns h.f. sagði að i fyrra hefði verksmiðjan unnið úr alls 272.000 gærum og hefði fyrir- Framhald á bls. 47. Skógræktarfélag Reykjavlkur 30 ára 1 dag, sunnudag, á Skógræktar- félag Reykjavfkur 30 ára afmæli. Miðstöð Skógræktarfélagsins er „Myndir úr mannlífinu og ríf- andi stemmning” Sýningu Einars Hákonarsonar ad ljúka á Kjarvalsstöðum „Myndirnar eru úr mannllf- inu, af fólki við alls konar iðju, við störf til lands og sjávar og að sjálfsögðu við leik, sem sagt þvf sem viðkemur mannlffinu," sagði Einar Hákonarson list- málari í rabbi um sýningu hans. Það eru 88 myndir á sýning- unni, en hún er opin fram á I Fossvogi og þar eru aldar upp trjá- og runnaplöntur I hundruða þúsunda tali árlega. Athafna- svæði félagsins eru mörg, en þeirra vlðáttumest er Heiðmörk. Þar hafa hin sfðustu ár verið gróðursettar um 100 þúsund trjá- plöntur árlega og er það starf að mestu unnið af unglingum f Vinnuskóla Reykjavfkurborgar. önnur athafnasvæði félagsins eru öskjuhlfð og Rauðavatnsstöð. Félagar f Skógræktarfélaginu eru nú um 1300, en stjórn félags- ins skipa: Björn Ófeigsson, Guð- mundur Marteinsson, Jón Birgir Jónsson, Lárus Blöndal Guð- mundsson og Sveinbjörn Jónsson. Framkvæmdastjóri er Vilhjálm- ur Sigtryggsson. Eldfærin á Kjarvalsstöðum Brúðuleikhúsið sýnir hið vinsæla leikrit Eldfærin í dag, sunnudag, á Kjarvalsstöðum kl. 15 og 17. geX Starfsstúlkur hreppsins komn- ar í setuverkfall Hveragerði — 22. október SKRIFSTOFUSTUKUR hjá Hveragerðishreppi eru nú f setu- verkfalli, þannig að þær taka nú ekki við neinum greiðslum frá þorpsbúum sem komið hafa á skrifstofuna f þeim erinda- gjörðum né svara f sfma. Stúlkurnar tjáðu fréttaritara Mbl. að hinn 23. september í fyrra hefði félag opinberra starfs- manna ritað hreppsnefnd Hvera- gerðis bréf, þar sem farið hefði verið fram á viðræður um röðun i launaflokka. Þvf bréfi hefði þá ekki verið svarað en síðan hefði verið ritað annað bréf nú I september — ári seinna — þar sem komið hefði fram krafa um niðurröðun f flokka til samræmis við önnur sveitarfélög í kring. Það bréf var lagt fyrir hrepps- nefnd hinn 28. september sl. og á þeim fundi hreppsnefndar hefði verið kosin samninganefnd til við- ræðna við félag opinberra starfs- manna. A viðræðufundi í kjölfar þessa hefði hreppsnefndin ekki sett fram neitt tilboð en hins vegar heitið því að tilboð skyldi liggja fyrir hinn 9. október sl. Ekkert slíkt tilboð hefði hins vegar enn komið fram, og þess vegna kváðust stúlkurnar nú sitja á skrifstofunni og hafast ekkert að. Sjómannasambandsþingið: Formannskjör í dag FORMANNS- og stjórnarkjör til Sjómannasambands Islands fer væntanlega fram f dag, en stefnt er að þvf að þingi sambandsins, sem stendur yfir f Lindarbæ, ljúki f dag. Uppstillinganefnd hóf störf sfð- degis f gær. Vitað er að Jón Sig- urðsson, sem gegnt hefur for- mannsstörfum í sambandinu um árabil, hefur hug á að draga sig I hlé. Ljóst er að Óskar Vigfússon, formaður Sjómannafélags Hafn- arfjarðar, nýtur fylgis margra sem eftirmaður Jóns Sigurðsson- ar en einnig hefur verið rætt um Karl Steinar Guðnason úr Kefla- vík og Pétur Sigurðsson frá Reykjavík í þessu sambandi. Þá er einnig hugsanlegt, að þingið muni skora á Jón Sigurðsson að gegna formennsku áfram. I gær voru nefndarstörf árdegis en eftir hádegi var venjulegum þingstörfum haldið áfram og kom þá á þingið fulltrúi frá frska sjó- mannasambandinu, sem sérstak- lega var til þess boðið. Lodskinn hf. ætlar að bjóða hærra verð fyrir gærurnar Ljósmynd Mbl. Friðþjófur. Sérstæð altaristöflumynd er á sýningu Einars. „Já. það er gott að þið takið mynd af altaristöflunni, fer vel á þvf að trekkja upp á trúna þvf við erum svo trúaðir og það fvlgir mikil blessun þessari mvnd.“ Einar Hákonarson. mánudagskvöld milli kl. 2 og 10. Einar sagðist hafa málað þessar myndir á síðustu 5 árum, en hann kvaðst vonast til að sjá fleira fólk á sýningunni um helgina. „Aðsóknin hefur verið sæmileg," sagði hann, „en það er nóg pláss fyrir fleiri gesti, nóg af myndum og rífandi stemmning úr ýmsum áttum, enda jafnvel smá landslags- rómantík hér og þar. Nú eru haustlitirnir í landinu, gott fyr- ir fólk að teygja úr sér og upp- lagt að líta við á Kjarvalsstöð- um um helgina þar sem Magnús Á. Árnason er einnig með sýn- ingu.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.