Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1976
Þær guðfræðideilur, sem fram
hafa farið hér á landi að undan-
förnu, hafa í megindráttum verið
átök milli tveggja höfuðstefna, sem
við getum nefnt nýrétttrúnað og
frjálshyggju. Fyrr nefnda stefnan
leggur mikið upp úr ákveðinni trúar-
legri reynslu svonefndri endurfæð-
ingu eða frelsun á stað og stund.
Þessi stefna leggur mikla áherzlu á
ýmis guðfræðileg hugtök svo sem
friðþægingu, endurlausn og endur-
fæðingu. í orðinu rétttrúnaður felst
eðlilega, að frjáls skoðanamyndun
er ekki í hávegum höfð, heldur lögð
mest áherzla á ákveðið kenninga-
kerfi.
Hin stefnan, hin frjálslynda, hefur
aftur á móti lagt á það höfuðáherzlu,
að hver einstaklingur taki persónu-
lega afstöðu til trúaratriða útfrá
sinni eigin samvisku. Hún er út-
hverfari í afstöðu sinni en hin stefn-
an, leggur ekki mikla áherzlu á flók-
in guðfræðihugtök, en vill brýna
fyrir fólki að það sýni trú sína í
verkum sínum, þannig að sú trú
sem starfar í kærleika sé hin eina
sanna trú.
Ýmislegt fleira hefur komið inn í
þessar deilur, s s. um lífið eftir
dauðann o.fl.
Þvi heyrist nú oft haldið fram, að
stefna frjálshyggjunnar sé að verða
úrelt á vettvangi heimskirkjunnar og
jafnvel er talað um „staðnaða hugs-
un". Þess vegna langar mig til að
draga hér fram nokkrar hlutlausar
staðreyndir lesendum minum til
íhugunar.
Samtök flestra kirkjudeilda heims
annarra en hinnar rómversk-
kaþólsku, (sem þó hefur nána sam-
vinnu við samtökin), nefnast
Alkirkjuráðið eða Heimsráð kirkn-
anna. Það hélt 5 þing sitt í Nairobi
s I. vetur. Þar mætti 741 fulltrúi frá
2 71 kirkjudeild, fólk af öllum kyn-
þáttum, og það var áberandi, hve
þarna var margt af ungu fólki, kon-
um og körlum Þetta fólk var full-
trúar um 500 milljóna safnaðar-
manna. Yfirskrift þingsins var:
Jesús Kristur frelsar og sameinar.
Og það var verkefni þingsins að
skilgreina, hvað slíkt merkti á raun-
verulegan, jarðneskan hátt í
nútímanum.
Niðurstöðurnar hafa vakið mikla
athygli Frummælandinn varekki
guðfræðingur, heldur liffræðingur.
Hann taldi kirkjuna ekki mega beita
sér að hinum hefðbundnu andlegu
málum einum og því hjálparstarfi,
sem þegar hefur unnið sér sess.
Kirkjan á líka að sinna vandamálum
mannfjölgunar, mengunar og
mörgu öðru. Hún verður að átta sig
á, að hér í þessum heimi eru ekki
tvær hæðir önnur andleg og hin
jarðnesk. Hér er allt á sömu hæð.
Maðurinn og umhverfi hans verald-
legt og andlegt, eru, þegar dýpst er
skyggnst, ein heild.
Og vandamálin eru að verða risa-
vaxin sagði líffræðingurinn. Hann
líkti mannkyninu við skipið Titanic.
Það stefnir óðfluga á Isjakann.
Stefnubreyting er lífsnauðsyn, en
ennþá dansa leiðtogar þjóðanna á
þilfarinu.
Mannkynið stefnir til tortímingar,
ef ekki verður breytt um stefnu.
Hungur og mengun verða þar sterk-
ir þættir og þar við bætast kúgun'og
margskonar óréttlæti annað
Kirkjan verður þvi að leggja
áherzlu á að endurtúlka stöðu
mannsins i heiminum, sagði ræðu-
maður. Frelsun jarðarinnar og ibúa
hennar er eitt heildarátak, sem felur
í sér frelsun frá mengun og hungri,
frá kúgun og fátækt, frá misrétti
kynja og kynþátta
Þess vegna verða guðfræðingar
að beita sér að hinu lifanda lifi Til
þess gefa guðspjöllin þeim nægar
fyrirmyndir úr lífi Krists sjálf. —
Rikjandi guðfræði dagsins i dag
þótti I Nairobi of mikil pappírsguð-
fræði, beita sér of mikið að fræðileg-
um, ólífrænum vandamálum, en láta
sig of litlu skipta hið lifanda lif og
heill þess.
I Nairobi var rætt um, hvernig menn
gætu elskað náungann með áhrifarík-
ustum hætti, með þvi að vera gjörend-
ur orðsins, með þvi að framkvæma
vilja Guðs, að orð hans verði raun-
verulegt hold á okkar höndum
Trúin á ekki að vera bara persónuleg
einkaupplifun, hið innra, heldur einnig
samfélagslegt kirkjulegt átak hið ytra.
Að feta í fótspor Krists er að koma til
hinna sjúku og hrjáðu og boða von-
lausum raunverulega von i þessum
heimi. — Það er svo lítill hluti mann-
kynsins, sem hefur nóg í sig og á Á
meðal okkar, sem svo erum þó settir
og frekar líðum fyrir ofnægtir en hitt,
þá er kannski nægur tími til að glíma
við lausn ólífrænna verke/na, en þar
sem neyðin kallar, þar er allt annað
uppi á teningnum. Þar er líkamleg
neyð mannsins stærsta vandamálið
Allt mannlegt lif á að vera kirkjunni
viðkomandi. Hún er ekki kölluð til að
boða trúna i einhverjum óræðum skiln
ingi eingöngu Hún er miklu fremur
kölluð til að starfa, vinna þau verk,
sem húsbóndi hennar, Kristur, kallar
hana til á hverjum tíma, og þau verk
eru einmitt hvarvetna þar sem neyðin,
misréttið, kúgunin, hatrið og vonleysið
er.
Þannig er í sem stærstum dráttum
boðskapur 5. þings Heimsráðs kirkn-
anna. Hann segir allt annað en þær
raddir, sem vilja halda því fram að hin
frjálslynda boðun í Islenskri kirkju sé
úrelt orðin og úr takt við tímann.
Starfrænn kristindómur er það sem
heimurinnhróparmest á í dag. Hitt má
og að sjálfsögðu aldrei gleymast, að
hjálparstarfið á sina rót i bæn og
trúarlifi einstaklingsins og guðsþjón-
ustulífi safnaðarins Á þá rót má ekki
skera, þá deyr kærleiksandinn.
Því er ekki að neita, að innan Heims-
ráðs kirknanna var ekki ein rödd Þótt
þetta yrði ofan á, þá eru ýmsar ihalds-
samari raddir þessari stefnu ósammála
og tala um að kljúfaheimsráðið vegna
of mikils frjálslyndis. Þar hefur m a.s
verið rætt um að taka upp viðræður við
önnur æðri trúarbrögð, virða og meta
það sem þar er best og heillavænlegast
til hjálpar að sameiginlegu marki, sem
er frelsun og sameining manns og
heims
Jesús Kristur gekk alltaf i berhögg
við mannlega neyð, hver sem hún var,
hverrar trúar eða þjóðar sá var, er
þjáðist. Hann skóp ekki mikla guð-
fræði, en hann skóp nýja afstöðu til
Guðs og hann skóp nýtt mannlif Hann
gerði Guð að elskandi föður og gaf þes
vegna kærleikanum forgang á öllum
sviðum lífsins Og af því að allir menn
eru börn föðurins, eiga þeir allir sama
rétt til lifsins á þessari jörð
Þess vegna getur sú guðfræði sem
leggur höfuðáherzlu á trú sem starfar i
kærleika aldrei staðnað eða steinrunn-
ið Orð Jakobsbréfsins „Verið gjörend-
ur orðsins og eigi aðeins heyrendur,
svikjandi sjálfa yður ', þau munu eiga
sitt erindi við hverja einustu kynslóð
Hin frjálslynda boðun á íslandi, hef-
ur oft, af andmælendum sinum, verið
sökuð um faríseisma, þegar hún legg-
ur áherslu á góðverkin, starfsrænan
kristindóm. Mór finnst slík á ásökun
mjög ósanngjörn. Faríseismi felst í þvi
að reyna að afla sjálfum sér sáluhjálp-
ar, frelsa sjálfan sig, með hinum góðu
verkum. Einhvern veginn finnst mér
hitt liggja miklu nær, að með viðleitni
okkar til hins kærleiksrika lifs erum við
að leggja okkar litla lóð á vogarskál
hins góða afls i heiminum Og við
gerum það með gleði, af þvi fyrst og
fremst, að við erum að vinna fyrir
hann, sem er vegurinn, sannleikurinn
og lifið Við erum að uppfylla hans ósk
og við gerum þetta fyrir hann, af þvl að
okkur þykir vænt um hann, við elskum
hann og vitum að hann, breytni f hans
anda, er eina von mannkynsins á
hvaða sviði lífsins sem er.
Þess vegna er það breytni að vilja
hans, sem alltaf er aðalatriðið i lífi
mannanna, að vera gjörendur orðsins
og eigi aðeins heyrendur Með þeim
hætti fyrst og fremst verðum við trúir
Jesú Kristi.
i-r V •>•’».. . ' 1 .r..?.-ZY- ^'1-V ;••,
-t •••: * > •• ■%>. % ■ . • . V:' ' >■'. .? ;*••- . :>*. v • . .•
..V. '• - •• ■ .-i.-'tT’x -. ••.: ■•• t" •••■--•■
AFGREIÐSLU
i sunnuw í bFRRARI VIKLJ:
I ÞESSARI VIKU:
UNGBARN AFATN AÐUR:
Bleiur 70x70cm ...........................Centrotex.
Bleiubuxur .................................. P'PPV-
Néttföt, St. 80—86—92 ........................Pippy.
Hosur ........................................ Pippy.
Sokkar......................................... K.T.
Velúrsamfestingar ......................... Stummer,
Frottie samfestingar ........................Stummer.
Smekkir ..................................... Pippy.
Skór ........................................P;ppy..
Hettuhandklæði .............................,. Pippy.
Peysur, St. 74—80 ........................ Chica Loo
Frottie peysur St. 68—86 Stummer
Bómullarbolir St 0—4 ....................... Pippy.
Vettlingar ................................... N.M.,
Ulpur. St. 1—4 ................................Teddy.
Útigallar St. 84—91—98 ................. D.K. Style.
TELPU OG DRENGJAFATNAÐUR:
Undirbuxur.................................. Pippy,
Sokkar ....................................... K.T.
Röndóttirbómullarbolir ..................... Lyhne,
Velurpeysur St. 6—16 ....................... Pippy.
PeysurSt. 116—140 .......................Chica Loo,
Flauelsbuxur St. 4—16 ......................Skippy,
Denimbuxur St. 4—16 ........................Skíppy,
Denim vesti St. 4—16 ...................... Skippy,
Terlinbuxur St. 4—16....................... Pardus,
Telpnapils + vesti ......................... Hotex.
ÚlpurSt. 4—10................................Teddy,
ÚlpurSt. 6—12 ..............................Unidex,
Vettlingar ................................... N.M.
KVENFATNAÐUR:
Sokkar ...................................... K.T.
Sokkabuxur................................Tauscher,
Nðttkjólar .................................. jris,
Rúllukragabolir hvitir ...................... íris,
Bómullar-bolir ............................ Holtas,
Blússur, .................................. Holtas,
Terlinbuxur teinóttar................... Fashion,
Flauelsbuxur............................... Pardus,
Denimbuxur..............................:.. Pardus.
HERRAFATNAÐUR:
Sokkar ....................................... K.T.
Denimbuxur .............,................... Pardus,
Denimvesti................................. Pardus.
Terlinbuxur .............................. Pardus,
HEIMILISDEILD.
Handklæði einlit og mynstruð .............. Ashton,
Pvottapokar ................................Ashton,
Teppi 150X 200 cm ........................Centrotex.
Sturtuhengi ................................ P.E.& C.
Dúkaefni..................................... Herose
GARDÍNUEFNI:
Tilbúnar eldhúsgardinur
1 2 gerðir ................................ Gena,
Velour-efni ...............................Viersen,
Viscose-efni ............................ G.H Export,
Dralon efni ............................. G.H. Export,
Gardinubönd ................................ Gester,
Kögur........................................Gester.
BUXNA OG FATAEFNI:
45% Pol. 55% Ull 5 litir ............... Centrotex.
70% Pol. 30% Vis. 4 litir................. Hammerle,
Grófriflað flauel 5 litir ............... Centrotex,
Finriflað flauel .......................... Centrotex,
Denim 4 gerðir ............................. Hammerle,
Minstrað Denim ...........................Texoprint.
Úlpuefni 4 litir ............................ Norion.
KJÓLAEFNI:
Mynstruð prjónaefni .................. Schwarzenbach
Einlit prjónaefni .................... Schwarzenbach
Rifluð prjónaefni Marratex,
Mynstruð bómullarefni ......................Texoprint,
Kjólavelour ............................... Jenning,
Kjólaterelinefni ...........................Jenning,
Kjólafóður Japonette ................-..... Colsman.