Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 24.10.1976, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1976 SIGUROUR SVERRIR PÁLSSON NOVA — eftir Fellini Bugsy Malone jólamynd Þ6 enn séu tveir mánuir til jóla, er ekki úr vegi að fara að leiða hugann aðeins að jóla- kvikmyndunum. Háskólabfó stefnir að þvf að sýna Bugsy Malone, en áður hefur aðeins verið minnst á þá mynd hér. Við munum segja frá fléiri jólamyndum mjög bráðlega. Spænska flugan Spanish Fly, bresk, 1975. Leikstjóri: Bob Kellett. Þar sem þetta er eina nýja kvikmyndin sem hefur komið fram í sfðustu viku (frá fimmtudegi til fimmtudags), hlýtur hún þann óverðskuldaða sess að vera tekin hér til um- fjöllunar. Terry-Thomas leikur sinna vanabundna enska séntil- mann og er nú staddur á sólrík- um stað í suðri (Minorca!) og stendur í vafasömum viðskipt- um f augnablikinu. Hann hefur keypt 100.000 gallon af ódýru vfngutli, sem hann ætlar síðan að pranga á margföldum prfs inn á einhverja auðtrúa aula- bárða, með þvf að setja nógu ffna miða á flöskurnar. Eina vandamálið er það að gutlið er svo hroðalegt að enginn getur komið þvf niður. Hann skipar þjóni sfnum að blanda ein- hverju í gutlið til að bragðbæta það og atburðirnir reka sig sfðan nokkuð sjálfir, þegar þjónninn bætir „spánsku flugunni" út í vínið. Við það verður það að ástarlyfi og þar sem svo vel vill til að kunningi Terry-Thomas, forrákur en getulaus nærbuxnafram- leiðandi er einmitt staddurá Minorca með 4 bráðfallegum fyrirsætum f ljósmynda- leiðangri er þarflaust að rekja framhaldið. En því miður hefur þessi kjarnorkudrykkur í för með sér aukaverkanir, sem framleiðandanum sást yfir að kynna sér f bráðlætinu en ef til vill er sumum þetta nokkur bragðbætir á : nnars lélegan og ófrumlegan endi. Að frátöldum einstaka atriðum með Terry- Thomas og þjóninum (Gramham Armitage) er þessi gamanmynd lftt brosleg og atriði yfirleitt of langdregin. A.m.k. átti myndin í harðri samkeppni við sætið sem ég sat, í um athygli mfna og í lokin mátti vart milli sjá hvort hafi betur. " Á VEGG í búningsherbergi Donalds Sutherlands, sem leikur Casanova, hékk teikn- ing éftir skopteiknarann Fell- ini. Þar mátti sjá leikstjórann og leikarann á harðahlaupum og benda ásakandi hvor á annan en út úr skýjaþykkni ryðst sótvondur Casanova, veifandi sverði og öskrar á þá: „Bastarðar". Sennilega lýsir þessi litla skopmynd betur en orð fá lýst, afstöðu Fellinis til hins upphaflega Casanova. í mynd sinni um Casanova skiptir Fellini sér lítt af sögu- legum „staðreyndum", en skapar þessa frægu persónu algjörlega i sinni mynd. Eins og áður hefur komið fram í fréttum lenti Fellini í nokkrum vandræðum fyrir um það bil ári síðan, þegar 2 kvikmyndaspólum var stolið, rétt eftir að upptökur hófust. í desember síðastliðnum hót- aði síðan framleiðandi mynd- arinnar, Alberto Grimaldi, að hætta við Casanova í miðjum klíðum, vegna eyðslusemi Fellinis: 7 milljón dollurum hafði verið eytt og aðeins höfðu verið kvikmyndaðir % af myndinni. Fellini stefndi Grimaldi og ítalski dómarinn komst :ð þ^,-irí niðurstöðu, að Fellini hefði ekki verið of eyðslusamur (skilningsríkur dómari það). Annars er sltkur málarekstur ekki nýr fyrir Fellini, því hann hefur nær því í hverri mynd, allt frá Hvíta furstanum, lent í úti- stöðum við framleiðendur sina. Siðastliðið vor var kvik- myndatakan aftur komin i fullan gang og í sumar hefur verið unnið að klippingu og frágangi myndarinnar. Frum- sýningin hefur verið ákveðin eftir um það bil mánuð, og verður myndin fyrst sýnd á Mánudagsmyndin MÁNUDAGSMYNDIN næstu þrjá mánudaga nefnist Over- lord. Þetta er bresk mynd, gerð á síðastliðnu ári í samvinnu við Imperial War Museum, breska varnarmálaráðuneytið og her- inn. I myndinni er sagt frá ung- um manni, Tom, sem kallaður er til heræfinga 1944, skömmu fyrir hinn svonefnda D-dag, en hann er einn af mörgum sem á að taka þátt I innrásinni. Inn f leikin atriði myndarinnar er blandað heimildarmyndaefni frá 'stríðsárunum. Leikstjóri er Stuart Cooper, og eins og efnið gefur til kynna fjallar hún um þær hörmungar sem stríð í rauninni er, persónulegur harmleikur fjölda einstaklinga. Overlord: Tom (Bria: Stirner) bfður prúðbúan eftir lestinni, sem flytv hann til æfingabúðanna. kvikmyndahátíðinni í Teheran síðast í nóvember. Hún verður sýnd þar utan keppni, sem kallað er, og tekur þar af leiðandi ekki þátt I verðlaunakapphlaupinu. Þegar Fellini las hina frægu sjálfsævisögu Casa- nova, viðurkennir hann að hafa tætt sig í gegnum síð- Fellini f höndum Sandy Allen sem leikur risakvendi. aðeins eins og ímynd af sjálf- um sér og endurspeglast að- eins í mismunandi aðstæð- um. Að minu áliti er Casa- nova fremur afsprengi hinna andkirkjulegu umbóta en skynsemisstefnunnar. Hinar dýrslegu ungæðishvatir ráku hann til mótþróa við bönn þjóðfélagsins, en þar sem hann var alinn upp við ótryggja kaþólsku, hefti það þróun hans sem persónu. Að þessu leyti var hann ná- kvæmlega eins og aðrir ítal- ir." En þó Fellini fari frjálslega með frumheimildir gengur hann ekki svo langt, að sleppa ástamálum Casanova. Að sögn eru í myndinni ein- hverjar hrikalegustu rúmsen- ur, sem um getur: Casanova og keppinautur hans í karl- mennsku með tvær vændis- konur hvor í rúmi, sem hrist- ist fram og aftur og fer að lokum af stað út úr herberg- inu; Casanova í ástaleik með vélbrúðu, sem hringsnýr höfðinu af fullum krafti, þeg- ar leikurinn æsist; og sam- skipti Casanova við veraldar- vana nunnu, sem er sérfræð- ingur í 39 aðferðum. í lokaatriði myndarinnar gengur deyjandi Casanova út á ísilagðan Grand Canal i Feneyjum (stúdíó), hugsandi um borg æsku sinnar. Hann gengur hægt yfir ísinn, svart herðasláið bylgjast í andvara næturinnar. Hann nemur staðar, leggst á hnén, nefið í prófil líkt og á ránfugli Allt i einu birtist vélbrúðan fyrir framan hann og saman dansa þau tvö ein yfir ísinn, tiplandi sinn lokadans í leik lífsins. Þegar þetta atriði fór að taka á sig mynd brosti aðstoðarleikstjóri Fellinis lítil- lega: „Svona það er þá þetta, sem Fellini telur vera niður- Federico Fellini stöðuna — innantóman mann, dansandi við vél- brúðu. Aðeins miðaldra mað- ur, sem er orðinn bitur og háðskur gæti gefið slíka yfir- lýsingu. Dapurlegt — en hreinskilið." Casanova (Donaid Sutherland) á sinni vanabundnu göngu — til rekkju. urnar af reiðí. „Þvi miður hafði ég þá þegar gert samn- ing um að gera myndina. Engin náttúra, dýr, börn, tré. Tuddinn þvældist um alla Evrópu og það er eins og hann hafi aldrei stigið fram úr rúminu." Þrátt fyrir reiði sína í fyrstu yfir hinni gagnslausu frum- heimild, Memoirs, hefur Fell- ini lagt óhemju vinnu í þessa mynd. Innan kostnaðar, sem nemur 10 milljónum dollara (rúml. 188 milljörðum kr.) leyfir Fellini ímyndunaraflinu að njóta sín og iðnaðarmenn- irnir eru á þönum við að holdga hugsýnir meistarans. Danilo Donati, hinn þekkti sviðsmyndateiknari, gerði 54 sviðsmyndir fyrir Casanova, 3.000 búningar voru saum- aðir og 400 hárkollur voru útbúnar, auk þess sem 500 aukaleikarar voru kallaðir inn til aðstoðar. Fellini eyddi nær 1 50 dögum í upptöku i kvik- myndaverinu Cinecittá. Um Casanova segir Fellini: „Sutherland tekst vel að koma til skila hugmyndinni um Casanova, sem þekkir ekki gildi hluta og sem lifir kvik fflund /löon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.