Morgunblaðið - 24.10.1976, Qupperneq 48
AUGLÝSINGASÍMÍNN ER:
22480
3M*r0wiiilabife
SUNNUDAGUR 24. OKTÓBER 1976
Gripnir á rauðu
ljósi með þýfið
Það sýndi sig vel ( fyrrinótt að
ekki er heppilegt að aka yfir götu
á rauðu sjósi. Þetta gerði þó ung-
ur piltur, sem var að koma til
borgarinnar og er hann náðist
kom ( Ijós, að hann og félagar
hans voru með ýmislegt f bdnum,
sem ekki gat talizt eðlilegt. Við
yfirheyrslur kom ( Ijós, að þeir
höfðu brotizt inn f veitingasöluna
aðHálsi f Kjós.
Interpol
kannar
hvarf
Gunnars
ALÞJÓÐALÖGREGL-
AN Interpol kannar nú
hvarf Gunnars Elíssonar
í Frankfurt, að því er
Níels P. Sigurðsson
sendiherra fslands i
Bonn tjáði Morgunblað-
inu í gærmorgun.
Sem kunnugt er hvarf
Gunnar frá hóteli sinu í
Frankfurt fyrir tæpum
tveimur vikum og síðan
hefur ekkert til hans
spurzt.
Lögreglan í Frankfurt hefur
ekkert fundið, sem bendir til
hvarfs hans, og ( fyrradag setti
hún sig í samband við Interpol
f þv( tilviki að Gunnar hefði
haldið frá V-Þýzkalandi.
Að sögn var Gunnar með 20
þús. mörk í reiðufé á sér þegar
hann hvarf frá hótelinu, en
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur aflað
sér, þá fékk hann aðeins
venjulegan ferðamannagjald-
eyri þegar hann fór frá ís-
landi.
Þrennt á slysa-
deildina eftir
umferðaróhapp
Á ÞRIÐJA tímanum í
fyrrinótt ók bifreið útaf við
Þverholt í Mosfellssveit.
Þrennt sem var í bílnum var
flutt á slysadeild Borgarsjúkra-
hússins og reyndist einn farþega í
bílnum nokkuð siasaður.
Lögreglumenn, sem voru á
eftirlitsferð í austurhluta borgar-
innar í fyrrinótt, tóku skyndilega
eftir því hvar bíll fór á miklum
hraða yfir götu á rauðu ljósi. Eltu
þeir bílinn og náðu honum, þar
sem hann stanzaði fyrir framan
hús eitt í Fossvogi. ökumaður
bílsins lagði á flótta, þegar hann
varð var við lögrelgumennina, en
félagi hans í bílnum sat hins veg-
ar kyrr. Lögreglumennirnir náðu
ökumanni strax Þegar kíkt var i
bílinn kom þar í ljós peninga-
kassi, mikið af sælgæti og ýmis-
legt smádót. Játuðu piltarnir að
þeir hefðu brotizt inn í veitinga-
söluna að Hálsi I Kjós.
1 fyrstu ætluðu þeir að halda til
Akureyrar með ránsfenginn en
urðu að snúa við, þegar í ljós kom,
að svo til engir peningar voru í
peningakassanum og þeir með
ekkert á sér. Við athugun kom í
ljós, að ökumaður bdsins var
einnig ölvaður.
Gengið eftir Grandanum.
Ljósm. Mbl.: Friðþjófur
Alþýðuflokkurinn:
Skuldar um 8,5 milljónir kr.
vegna útgáfu Alþýðublaðsins
SKULDIR Alþðuflokksins vegna
útgáfu Alþýðublaðsins fram til
ársins 1966, er gripið var til þess
ráðs að mynda sérstakt útgáfu-
félag um útgáfu blaðsíns nema
nú tæplega 8,5 milljonum króna
en á tveimur sfðustu árum hafa
um 4 milljónir króna verið
greiddar upp ( skuldir flokksins
vegna blaðaútgáfunnar með fjár-
munum sem fengizt hafa fyrir
tilstilli Happdrættis Aiþýðu-
flokksins. Þetta kom fram f ræðu
sem Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins, flutti á flokks-
þingi Alþýðuflokksins ( fyrra-
kvöld. Hann greindi jafnframt
frá eignarhlut Alþýðuflokksins f
nokkrum fyrirtækjum, sem hann
kvað vera Iftinn hlut I Alþýðu-
húsinu, 15—20% af hlutafé
Alþýðubrauðgerðarinnar og
þriðjung af hlutafé Alþýðuprent-
smiðjunnar auk hlutdeildar f
Blaðapienti og minningarsjóðs
sem flokkurinn hefur umráð yfir.
Nema eignir flokksins alls liðlega
6.2 milljónum króna, samkvæmt
reiningsyfirliti sem dreift var á
þinginu.
í ræðu Benedikts kom fram, að
Eignir félagsins í ýmsum félögum
og fyrirtækjum liðlega 6,2 milljónir
allt fram til ársloka 1966 hafi
blaðið verið undir stjórn blað-
stjórna, sem fiokksþing eða mið-
stjórn flokksins kusu, og urðu
blaðstjórnir á hverjum tíma að
tryggja það fé sem á þurfti að
halda. I árslok 1966 var blaðið
orðið svo stórskuldugt að ekki
varð lengur haldið áfram á þeirri
braut. Samið var um skuldirnar
og komu þar fjórir bankar við
sögu. Samkvæmt reikningsyfirliti
yfir skuldir flokksins nú er 2,7
milljon kr. skuld við Búnaðar-
banka Islands, 3 milljon kr. skuld
við Útvegsbanka Islands, 270
þúsund kr. skuld við Iðnaðar-
banka islands. 637.500 kr. skuld
við Verzlunarbanka islands og
1.872.000 kr. skuld við Lands-
banka íslands.
Að sögn Benedikts gengu rúm-
lega 20 forustumenn flokksins I
persónulega ábyrgð fyrir skuld-
um. í áratug hefur verið barizt
við að greiða niður þessar gömlu
skuldir en gengið misjafnlega, að
þvf er Benedikt sagði þar eð sum
árin hafi ekkert verið hægt að
greiða og þá komið til refsivextir.
Happdrætti Alþýðuflokksins
hefur hins vegar greitt um 4
milljonir króna upp I skuldirnar á
slðustu tveimur árum.
Þá vék Benedikt að Nýja út-
gáfufélaginu h.f en það var stofn-
að I ársbyrjun 1967 í þvf skyni að
reyna að tryggja rekstur blaðsins
áfram. Hluthafar voru einstakir
flokksmenn og lagði hver fram
25—50 þús. krónur og söfnuðust
þannig yfir 3 milljónir kr. Þetta
félag annaðist reksturinn um 3ja
ára skeið en að því er Benedikt
sagði tók að halla á ógæfuhlið og
félagið safnaði skuldum. Hann
kvað félagið þó hafa hreinsað upp
skuldir sfnar að undanskildum
tveimur skuldum, sem væru um-
deilanlegar en I sambandi við þær
hefði nú komið fram gjaldþrots-
krafa. Benedikt taldi að þessar
skuldir yrðu innan við ein milljon
króna áður en yfir lyki en sagði að
af hálfu Alþýðuflokksins yrði
ekki látið til gjaldþrots koma.
Varðandi hlutdeild flokksins f
ýmsum fyrirtækjum kom fram f
Framhald á bls. 47
Loðnuskipum fjölgar á ný -
Bræla á miðunum í 5 daga
BRÆLA hefur verið á loðnumið-
unum vestur af landinu svo til
alla sfðustu viku. 1 fyrrakvöld
héldu menn að veður myndi
Borgarstjóri heldur
sex hverfafundi med
íbúum Reykjavíkur
— Fjallar m.a. um þróun Reykja-
víkur næstu 20 árin —
A NÆSTUNNI heldur Birgir
Isleifur Gunnarsson, borgar-
stjóri, sex hverfafundi með fbú-
um Reykjavfkur og verður
fyrsti fundurinn haldinn (
Glæsibæ 30. október n.k. með
fbúum Laugarness- og Lang-
holtshverfis.
Birgir Isieifur sagði ( samtali
við Morgunblaðið f gær, að á
þessum fundum myndi hann
ræða um lfklega þrónn Reykja-
vfkur næstu 20 árin og þær
hugmyndir sem uppi eru um
aðalskipulag á þeim tlma.
„Þá mun ég sérstaklega ræða
málefni viðkomandi hverfa og
svara fyrirspurnum og athuga-
semdum fundarmanna að lok-
inni framsöguræðu minni.
Þessir fundir eru fyrst og
fremst haldnir til að gefa mér
kost á að ræða við íbúa Reykja-
vfkur og þeim við mig. Ég vænti
þess að íbúar borgarinnar mæti
vel á fundina," sagði borgar-
stjóri.
Eins og fyrr segir, verður
fyrsti fundurinn haldinn (
Glæsibæ laugardaginn 30.
október kl. 14 með Ibúum Laug-
arness- og Langholtshverfis.
Fundarstjóri verður. Hulda
Valtýsdóttir húsfrú og fundar-
ritari Garðar Ingvarsson hag-
fræðingur. Sunnudaginn 31.
október verður fundur með íbú-
um Austurbæjar, Norðurmýr-
ar, Hlfða- og Holtahverfis í
Domus Medica og hefst sá fund-
Framhald á bls. 47
batna og héit leitarskipið Bjarni
Sæmundsson þá á miðin vestur af
Hala. Ekki var skipið fyrr komið
á miðin, en vonzkuveður gerði á
norðan og varð skipið þvf að
hætta leit. 1 gær leit hins vegar út
fyrir að veður færi batnandi.
Að sögn Andrésar Finnboga-
sonar, þá fer loðnuskipum nú aft-
ur fjölgandi. Fyrir eru á loðnu-
veiðum Guðmundur, Hrafn og Ár-
sæll Sigurðsson, en vitað er að
Helga Guðmundsdóttir og Gísli
Arni eru tilbúin að halda á miðin
um leið og veður lægir, þá er og
vitað að Börkur mun fljótlega
halda á þessar veiðar á ný.
Hjólaði fyrir
strætisvagn
UM KL. 9.30 f gærmorgun varð
það óhapp á Kópavogsbraut f
Kópavogi að piltur hjólaði á
strætisvagn. Pilturinn féll í göt-
una og missti meðvitund. Var
hann fluttur á Borgarsjúkrahúsið
og var kominn til meðvitundar er
þangað kom.