Morgunblaðið - 03.11.1976, Side 3

Morgunblaðið - 03.11.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 3 r Islenzkt ljóðasafn 1. bindí hjá bókaklúbbi AB UT ER komið hjá bókaklúbbi AB Islenzkt Ijóðasafn I. Bindi ( um- sjá Kristjáns Karlssonar. Þetta er sjötta bók bókaklúbbsins I ár og þriðja bókin sem út kemur af lslenzku Ijóðasafni. Áður eru komin út II. bindi, sem nær frá Hallgrími Péturssyni til Steingrfms Thorsteinssonar og III. bindi frá Matthíasi Jochums- syni til Jakobs Thararensens. Ökomin eru 2 bindi, þ.e. IV. bindi sem mun ná fram um 1960 og V. bindi, sem verður þýðingar er- lendra ljóða á islenzku. Hið ný- komna bindi nær frá upphafi ís- lenzkra bókmennta og hefst á Völuspá og endar á Bjarna Jóns- syni Borgfirðingaskáldi, sem lézt árið 1640, — alls 23 nafnkunnir höfundar og sfðan fjöldi kvæða og vísna eftir ókunna höfunda allt frá Eddukvæðum til vikivaka og Þjóðkvæða. Kristján Karlsson sem séð hef- ur um þetta bindi að öllu leyti ritar formála fyrir því og segir þar m.a. um kvæðavalið: „Það er alltaf freisting að velja kvæða, sem lítið eru þekkt og hafa sjaldan verið prentuð fram yfir önnur jafngóð en þekktari; en engin nýjungagirni réttlætir hitt að sniðganga gott kvæði á þeirri forsendu, að það sé öllum kunnugt. Eitt hlutverk almenns ljóðasafns getur verið það að vekja erftitekt vora á gleymdu kvæði eða draga fram kosti skálds, sem hefir verið vanmet- ið“. Happdrætti SjáJf- stæðisflokksins HAUSTHAPPDRÆTTI Sjálf- stæðisflokksins er nú f fullum gangi. Hafa miðar verið sendir til flokksmanna og annarra stuðningsmanna flokksins og væntir stjórn happdrættisins þess, að þessir aðilar bregðist vel við og geri skil hið fyrsta og auð- veldi með þvf hið mikla starf, sem skrifstofan þarf að vinna. Skrifstofa happdrættisins er I Sjálfstæðishúsinu, Bolholti 7, sími 82900 og er hún opin virka daga kl. 9 til 22. Skrifstofan sér um að senda miða og sækja greiðslur, ef fólk óskar. Vinningar f happdrættinu eru 8 talsins: Austin Allegro fólksbif- reið, Úrvalsferðir til Ibiza, Kenwood hljómflutningstæki og fimm Sanyo útvarps- og kassettu- tæki. Þýðingarmikið er, að fólk taki þátt í hausthappdrætti Sjálf- stæðisflokksins og styðji þannig mikilvægt þjóðmálastarf flokks- ins um leið og hver miði er mögu- leiki til vinnings. Dregið verður 13. nóvember n.k. Innsveitir Skagafjarðar: Veðrið er svo gott að fólk fer enn til berja... Bæ, Höfðaströnd. 2. nóv. NÚ ER orðið haustlegt og óstillt í útsveitum en óvenjulegt tíðarfar í innsveitum. Eru það góðviðri svo að sums staðar eru kýr látnar út ennþá, þar sem tún eru víða græn og jafnvel gróandi. 8—9 október, þegar smáhret gerði og snjór féll, er eina hretið á þessu hausti og nú er sá snjór horfinn. Heyrt hef ég að fólk hafi jafnvel farið til berja síðast i október og fengið sæmileg ber, sem má telja mjög óvenju- legt. Stórgripaslátrun stendur yfir og gengur vel. Hrossaslátrun er rétt að byrja. Sagt er að jafnvel þeir, sem taldir eru eiga 2—300 hross séu ekki áfjáðir að fækka Óstillt er til sjávar og hafa því togarar aflað með minna móti nú um skeið Félagslíf er að byrja eftir sumar- hvíld. Lions, Rotary, söngfélög, leik- starfsemi, allt er þetta að hefja sína vetrardagskrá og litur út fyrir mikla grósku í samkvæmisiífi Skagfirðinga á komandi vetri. Á Hólum í Hjaltadal er skólahald byrjað fyrir nokkru. Skóli er þar fullsetinn og kennslu- fyrirkomulagið svipað og áður. Sláturfé reyndist þar mjög sæmilegt i haust og ásetningur í vetur er rúmlega 500 fjár, 30 kýr mjólkandi auk ungviða og eitthvað á annað hundrað hross. Þar virðist einnig gott félagslif. Heilbrigði er talin sæmileg i héraðinu — Björn. Jón Brynjólfs- son er látinn JÓN BRYNJÓLFSSON endur- skoóandi varð bráðkvaddur ( Reykjavlk sl. mánudag, 74 ára að aldri. Jón rak endurskoðunar- skrifstofu f Reykjavfk frá árinu 1957 undir eigin nafni. Jón var fæddur að Hvoli í ölfusi 15. júní 1902. Hann tók loftskeytapróf árið 1926 en starf- aði við embætti bæjarstjóra á ísa- firði 1930 til 1934 og var oft settur bæjarstjóri. Skrifstofustjóri Mjólkursamsölunnar í Reykjavik var hann á árunum 1935—41 en gegndi næstu tvö ár starfi fram- kvæmdastjóra Alþýðublaðsins. Frá 1942 til 1957 gegndi Jón ýmsum störfum, s.s. starfi aðal- bókara hjá raforkumálsskrifstof- unni 1945—50. Jón tók virkan þátt f starfi ýmissa félagssamtaka og starfaði m.a. um árabil að félagsmálum hestamanna. Jón Brynjólfsson var tvíkvænt- ur. Fyrri kona hans var Guðrún Sigurborg Halldórsdóttir frá Gröf í Miklaholtshreppi en hún andað- ist árið 1960. Seinni.kona Jóns, Guðrún Sigurðardótíir frá Sleitu- stöðum í Skagafirði, lifir mann sinn. „Eldur” Jórunnar Við- ar á sinfóníutónleikum Kristján Karlsson Islenzkt ljóðasafn I. bindi er 373 bls. að stærð að meðtöldu efn- isyfirliti, formála, kvæðaskrá eft- ir upphafi og heitum kvæðanna oe æviáerÍDum höfundanna. ÞRIÐJU tónleikar Sinfónfu- hljómsveitar tslands á þessu starfsári verða haldnir f Háskóla- bfói annað kvöld kl. 20.30. Stjórn- andi verður Karsten Andersen og einleikarar þeir Einar Grétar Sveinbjörnsson fiðluleikari og Ingvar Jónasson vióluleikari. A efnisskránni eru eftirtalin verk: Eldur eftir Jórunni Viðar, Sinfonia concertante f Es-dúr fyrir fiðlu," viólu og hljómsveit eftir Mozart og Sinfónía nr. 9 op. 70 eftir Sjostakovitsj. Þetta er í fyrsta skipti sem Sinfóníuhljómsveit íslands leikur verk eftir Jórunni Viðar, en ,,Eldur“ var upphaflega flutt sem balletttónlist í Þjóðleikhúsinu. Einleikararnir, Einar Grétar Sveinbjörnsson og Ingvar Jónas- son, eru báðir starfandi f Svfþjóð um þessar mundir. Þeir námu báðir fiðluleik hjá Barni Ölafssyni f Tónlistarskólanum í Reykjavík, en héldu síðan til framhaldsnáms. Báðir léku þeir í Sinfóníuhljóm- sveit Islands áður en þeir fluttust til Svíþjóðar. Einar Grétar er fyrsti konsertmeistari við Sinfóníuhljómsveit i Malmö og hefur gegnt því starfi um árabil. Ingvar hóf fyrst starf í Svíþjóð sem fyrsti víóluleikari við sömu hljómsveit, en starfar nú sem ein- leikari og kennari. Báðir eru þeir eftirsóttir einleikarar, og sést beirra vfða eetið. Palmolivesápan meá olífuolíu heldur hubybar ungri á eðlilegan háít.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.