Morgunblaðið - 03.11.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976
5
Ólafur E. Stefánsson ráðunautur stendur hér viS málverk af Huppu sem
Halldór Pétursson listmálari hefur málað og BúnaSarfélag fslands ætlar
að gefa Nautgriparæktarfélagi Hrunamannahrepps.
Fimmtíu ár frá fæð-
ingu Huppu á Kluftum
FIMMTÍU ár eru I dag liðin frá þvi
að kýrin Huppa 12 á Kluftum í
Hrunamannahreppi í Árnessýslu
fæddist að Gróf í sömu sveit.
Huppa er sú kýr, sem haft hefur
víðtækust áhrif á nautgriparækt
landsmanna en synir hennar voru
notaðir til kynbóta á nokkrum
stöðum á landinu og siðar sonar-
og dætra synir hennar. Eftir að
sæðingar nautgripa hófust og
einkum eftir að djúpfrystingartæki
voru tekin i þágu nautgriparæktar,
hefur útbreiðsla Kluftakynsins
enn aukist og má nú telja vist, að
þorri islenskra kúa eigi ætt sina að
rekja að einhverju leyti til Huppu.
í tilefni af hálfrar aldar afmæli
Huppu fékk Búnaðarfélag íslands
Halldór Pétursson listmálara til að
mála málverk af Huppu og verður
málverkið gefið N: utgriparæktar-
félagi Hrunamanna. Verður málverk-
ið afhjúpað við athöfn að Flúðum í
dag, afmælisdaginn. Formaður
Búnaðarfélagsins, Ásgeir Bjarnason,
mun afhenda málverkið en meðal
gesta verður Margrét Andrésdóttir,
sem átti Huppu en Margrét varð
níræð nú í haust.
Á blaðamannafundi í gær gerði
Ólafur E. Stefánsson, nautgripa-
ræktarráðunautur Búnaðarfélagsins
grein fyrir ástæðum þess að Huppa
hefur haft jafn víðtæk áhrif á naut-
griparæktina í landinu og raun ber
vitni. Fyrst nefndi Ólafur að
eigendur Huppu hefðu verið þátt-
takendur í starfi nautgriparæktar-
félagsins, sem starfandi var i
hreppnum og haldið skýrslur yfir
afurðir hennar. Huppa skaraði fram
úr sem einstaklingur í afurðasemi.
Huppa varð 1 7 vetra og mjólkaði
alls um ævina um 62 tonn af mjólk
og fitumagnið í mjólkinni var óvenju
hátt, 4,12% af meðaltali. Svara
þessar afurðir hennar til þess að hún
hafi um ævina skilað um 3 tonnum
af smjöri.
Erfðaeiginleikar Huppu voru þó
það sem mestu skipti fyrir naut-
griparæktina og hafa þeir komið vel
fram í gripum þeim, sem eiga ættir
sínar að rekja til hennar. Hinn hái
aldur, sem hún náði, ásamt ágætri
frjósemi varð til þess, að hún
eignaðist óvenju marga kálfa eða
alls 16. Voru það 10 nautkálfar og
voru 8 þeirrar settir á. Kvígurnar
voru 6 en ein þeirra, tvikelfingur
móti nauti, varð ófrjó.
Mikil afurðasemi Huppu leiddi til
þess að naut undan henni voru valin
til notkunar í Nautgriparæktarfélagi
Hrunamannahrepps og var einn
sonur Huppu, Máni, látinn lifa þar
til sýnt var hver yrði afurðasemi
dætra hans. Árið 1938 er Huppa
sýnd ásamt Mána, sem þá var á
þriðja ári og fékk 1. verðlaun.
Frásagnir um afurðasemi Huppu og
gripa, sem ætt sína áttu að rekja til
hennar, fóru að berast um landið og
í kjölfarið fylgdu naut ýmist undan
Huppu eða sonar- eða dætrasynir.
Huppa fæddist að Gróf og þar hóf
framhald á bls. 20
'ISIJLi
Sóluð
og ,
ny
Solaðir
snjóhjólbarðar
í flestum stærðum.
Mjog hagstætt verð
Nýir amerískir
1 I snjóhjólbarðar
með hvítum hring Gott verð
Hjólbarðaþjónustan opin kl
22
Smiðjuvegi 32—34
Simar 4-39-88 & 4-48-80
Allir krakkar vilja verða stórir og §HHg
sterkir. Hver vill annars láta lemja *
og fisk? Já, við skulum boröa þaÖ
sig eins
hollasta, sem til er. ÞaÖ má halda langa ræöu um (
vítamínin, próteinin, kalkið, allar þessar orkulindir.
sem osturinn geymir. En það er nóg að vita, aö
ostur gerir mann sterkan.