Morgunblaðið - 03.11.1976, Síða 12

Morgunblaðið - 03.11.1976, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976 Heildarútgáfu á verkum Guðm. Böðvarssonar lokið HÖRPUÍJTGAFAN á Akranesi hefur sent frá sér Safnrit Kosningavaka í Menning- arstofnun Bandaríkjanna ÞAÐ ER orðin hefð hjá Menningarstofnun Banda- ríkjaanna, þegar forseta- kosningar fara fram vest- anhafs að bjóða blaða- mönnum og fólki sem fæst við fjölmiðlun á kosninga- vöku i húsakynnum stofn- unarinnar. Slík kosninga- vaka var í nótt, þar sem fréttir af talningu og kosn- ingaspám birtust jafnóðum á töflu í Menningarstofn- uninni. Á sama staö gafst gestum einn- ig kostur á að kynna sér ýmsar upplýsingar um þá frambjóðend- ur Carter og Ford, kosningabar- áttuna og þróun stöðunnar frá upphafi til kjördags. Sýnd voru sjónvarpsdagskrá úr kosningabar- áttunni, frá forkosningum að lokasprettinum, þar sem markið var sjálft Hvíta húsið. A meðfylgjandi myndum er starfsfólk stofnunarinnar að und- irbúa kosningavökuna í nótt. Framan við töfluna, þar sem kosningatölur verða skráðar stendur Mik Magnússon, blaða- fulltrúi Menningarstofnunar Bandaríkjanna, en hin myndin sýnir starfsstúlkur Menningar- stofnunarinnar undirbúa það að smyrja brauð svo að gestirnir hafi eitthvað að gæða sér á meðan þeir fylgjast með kosningatölum. Þá má geta þess að gestum Menningarstofnunarinnar mun gefast kostur á að greiða í gamni atkvæði í Menningarstofnuninni og því ætti að koma í ljós, hvorn frambjóðandann íslenzkir blaða- menn veðja á í baráttunni um Hvíta húsið. Helgafellið lá bil- að á Seyðisfirði í tæpan mánuð Seyðisfirði 2. nóv. M.S. HELGAFELL sigldi héðan f nótt. Helgafellið bilaði útaf Aust- urlandi fyrir tæpum mánuði og var þá dregið inn á Seyðisfjörð. Þrjár Ijósvélar skipsins voru bil- aðar. Vélstjórar skipsins pöntuðu varahluti f vélarnar og gerðu við þær með aðstoð vélvirkja frá Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Við- gerðin gekk tiltölulega vel eftir að varahlutarnir komu. Sveinn. Guðmundar Böðvarssonar VI—VII. 1 þessum lokabindum eru m.a. „Saltkorn f mold I og II ásamt ljóðabókinni „Blað úr vetrarskógl", sem ekki hefur áður komið á prent. 1 formála fyrir þeirri bók segir Böðvar Guðmundsson m.a.: „Þegar Guðmundur Böðvarsson andaðist 3. apríl 1974, átti hann í fórum sfnum ófrágengið handrit að ljóðabók. Frá því síðasta ljóðabók hans, „Innan hringsins“, kom út (1969) hafði hann látið birta eftir sig nokkur kvæði í tímarit- um, og eins og kunnugt er, entist honum rétt aldur til að ljúka við Þjóðhátíðarkvæði sitt 1974, sem Þjóðhátfðarnefnd Borgarfjarðar gaf út þá um vor- ið. En auk þess átti hann í fór- um sínum nokkur fullfrágeng- in kvæði, sem koma nú, ásamt þeim sem áður getur, fyrir almennings sjónir. Með þessum bókum lýkur heildarútgáfu á verkum Guðmundar Böðvarssonar. Borgfirðingar hafa í verki heiðrað minhingu hans, sem öðrum fremur hefur haldið á lofti merki síns héraðs. Ritverk hans eru sprottin úr fslenskum jarðvegi. „Skáldskapur hans er jafn náttúrlegur og grasið sem vex á jörðinni ...“ segir Halldór Kiljan Laxness. Safnrit VI er 168 blaðsíður ásamt myndaörk og Safnrit VII er 180 bls. 1 því er bindaskrá yfir öll sjö bindin, einnig kvæðaskrá. Bækurnar sjö eru allar unnar f Borgarfjarðarhéraði. Þær eru prentaðar f Prentverki Akraness hf. og útgefnar af Hörpuútgáfunni á Akranesi. w Ahugi á þátttöku í ylræktarverinu Rætt vid forsvarsmenn 5 fyrirtækja EINS og sagt hefur verið frá í Morgunblaðinu kallaði Birgir Is- leifur Gunnarsson borgarstjóri á sinn fund forsvarsmenn nokk- urra fyrirtækja f Reykjavík til þess að kanna áhuga þeirra á þátt- töku í rekstri ylræktarvers I sam- vinnu við Ilollendinga, en öll þessi fyrirtæki kynnu að eiga hagsmuna að gæta I sambandi við rekstur ylræktarvers og útflutn- ing á vegum þess. Nefnt hefur verið, að Reykjavfkurborg annars vegar og Hollendingar hins vegar ættu um 25% f fyrirtækinu hvor aðili, en alls er reiknað með um 150 millj. kr. I hlutafé. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við forsvarsmenn þeirra fyr- irtækja sem borgarstjóri kallaði á sinn fund og innti þá frétta af viðbrögðum þeirra: Indriði Pálsson forstjóri Olíufé- lagsins Skeljungs sagði „Miðað við þær forsendur, sem fyrir okk- ur voru lagðar, þá höfum við áhuga, en hins vegar tel ég að stofna eigi undirbúningsfélag til betri athugunar á þessum mál- um.“ Þess má geta að Skeljungur mun mögulega selja ylræktarveri gas. Agnar Kristjánsson, forstjóri Kassagerðar Reykjavfkur, sagði að þeir hefðu ekki tekið neina ákvörðun í málinu. „Hvað okkur varðar er um að ræða mögulega Björn Bjarnason, formaður Landssambands iðnverkafólks: „Hættan af stóriðju er ekki yfirþyrm- andi eins og ýmsir vilja vera láta” „EG hefi hér rætt nokkuð um vandamál iðnaðarins f dag, eins og þau koma mér fyrir sjónir. Eg hefi ekki komið að þeim þætti iðnaðar sem kallaður er stóriðja, og sem virðist tæplega mega nefna á nafn, án þess að stór hópur manna ætli að ganga af göflunum, æpi sig hása um mengun og telji að landið með öllu kvaku sé ofurselt glötun- inni. Vfst er, að margar hættur geta verið samfara stóriðju, en að þær séu svo yfirþyrmandi eins og ýmsir vilja vera láta, get ég ekki fallizt á, ef fyllsta aðgát er höfð.“ Þannig komst Björn Bjarna- son, formaður Landssambands iðnverkafólks, að orði í ræðu, sem hann hélt á degi iðnaðarins á Egilsstöðum um sfðustu helgi. Björn sagði þar ennfremur: „Framleiðsla okkar er það ein- hæf, að mér finnst fyllsta þörf á að bæta undir hana ýmsum nýj- um stoðum, en vitanlega þarf þar sem annars staðar að fara að öllu með gát f samskiptum okkar við eigin náttúru, og aðra þá aðila, er málið snertir. Sé um erlent fjármagn að ræða, verð- um við að halda hlut okkar gagnvart því og gefa því engar rasgjafir, hvorki í orkumálum né á öðrum sviðum. Gætum við þessara atriða, tel ég síður en svo að stefnt sé f einhvern voða með stóriðjuframkvæmdum." I ræðu sinni ræddi Björn Bjarnason einnig um iðnaðinn sjálfan og vandamál hans. Hann sagði að frá fyrstu tfð hefði iðnaður á íslandi átt víð margháttaða erfiðleika að etja. Skilningsleysi neytendanna á getu iðnaðarins til þess að framleiða góða vöru hefði verið mikið og hann hefði verið van- metinn i samanburði við erlendan varning. Þá hefðu valdhafar ekki siður vanmetið iðnaðinn og segja mætti að hann hefði verið hálfgerð horn- reka alla tfð. Þetta hefði dregið úr eðlilegum vexti islenzks iðnaðar og rýrt getu hans til samkeppni um vinnuafl við gömlu atvinnuvegina. Vöxtur og viðgangur atvinnugreinar byggðist ekki sfzt á því að hon- um tækist að laða að sér gott vinnuafl. Síðan sagði Björn: „En þrátt fyrir alla erfið- leikana, sem iðnaðurinn hefur orðið að mæta, er þó svo komið málum nú, að röskur fjórð- ungur landsmanna lifir á iðnaði, hlutur hans í þjóðar- framleiðslunni er meiri en þriðjungur og útfluttar iðnaðarvörur nema um 20% af vöruútflutningnum. Gjaldeyris- tekjur og gjaldeyrissparnaður vegna iðnaðarframleiðslu nema mörgum tugum milljóna árlega. Má því segja með nokkru stolti, að olnbogabarnið sé að rísa úr öskustónni, enda er nú svo komið að allir eru farnir að viðurkenna mikilvægi iðnaðarins, að minnsta kosti f orði, þó að því miður finnist manni að meira samræmi mætti vera milli orða og athafna. Flestir virðast sammála um að iðnaðurinn einn atvinnuvega okkar sé fær um að taka við því nýja vinnuafli, sem á vinnu- markaðinn kemur á næstu ár- um, en þvf aðeins getur hann það, og með því forðað okkur frá böli atvinnuleysisins, að al- ger stefnubreyting verði af Framhald á bls. 20 framleiðslu á kössum fyrir yl- ræktarver og við munum fylgjast með þróun mála út frá þvf. Það hefur verið minnzt á 5% hluta- fjár, en við höfum ekki peninga að neinu ráði, nema þá ef þetta getur gengið viðskiptalega". Sigurður Helgason, forstjóri Fjárfetingafélags Islands sagði: „Það liggur fyrir ákvörðun hjá Fjárfestingafélaginu í þessu sam- bandi, en á þessu stigi málsins get ég ekki skýrt frá henni. Það á eftir að ræða málið endanlega við borgarstjóra og aðra þá aðila sem málið varðar.“ Örn O. Johnson, forstjóri Flug- leiða h.f., sagði að félagið hefði enga ákvörðun tekið f málinu og að væri því ennþá óvisst hvort félagið tæki þátt f fyrirtækinu, en hins vegar væri verið að kanna þessi mál nánar. Rafn Johnson, forstjóri Heimil- istækja h.f., sagði um skoðun þeirra á málinu: „Þetta er mjög áhugaverður nýr iðnaður, og við erum mjög bjartsýnir á að þetta geti orðið arðvænlegt á Islaildi og byrjun á nýrri atvinnugrein. Mið- að við íslenzka orku stöndum við vel að vígi gagnvart öðrum þjóð- um og einnig vegna loftslagsins þvf hér er frá náttúrunnar hendi margs konar vörn gegn alls konar jurtasjúkdómum. Dr. Björn Sigurbjörnsson og fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa unnið mikið undirbúningsstarf f þessu sambandi, en við komum inn i myndina sem umboðsmenn Philips og mögulega myndum við útvega lampana sem nota verður í ræktun í ylverinu. Við erum mjög bjartsýnir í þessu sambandi og höfum áhuga á málinu miðað við þær forsendur sem við höfum." Skarðsvík í loðnuleit RANNSÖKNASKIPIÐ Bjarni Sæmundsson, sem verið hefur við loðnuleit, hverfur nú frá þeim verkefnum og fer í önnur. í þess stað hefur verið ákveðið að Skarðsvíkin verði leigð til loðnu- Teitar og mun skipið að öllum lík- indum halda í leiðangur í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.