Morgunblaðið - 03.11.1976, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976
Fagna ákvörðun
iðnaðarráðherra
„ÉG fagna þessari ákvörðun iðn-
aðarráðherra og verð að segja að
ág er ánægður með hana, enda er
hún f anda þess sem sveitarfélög-
in á Austurlandi hafa sagt f mót-
mælum sínum við ákvörðun Rarik
— sagði Erling Garðar Jónasson,
rafveitustjóri og oddviti Egils-
staðakauptúns.
Erling Garðar kvað stjórnvöld
nú þurfa að tryggja að framhald
yrði á virkjunarframkvæmdum.
Eins og þegar hefur komið fram
í fréttum hafði Rarik samþykkt
að banna rafhitun húsa á Austur-
landi, þar sem fjárhagslega óhag-
kvæmt væri að selja rafmagn til
slíkra nota. Framleiðslukostnaður
á kílówattstund var alltt að 20
krónum, en gjaldskrárverð innan
við 3 krónur. Ráðherra nam þessa
ákvörðun úr gildi nú fyrir helg-
ina.
Emil Als aðstoðar-
yfirlæknir í Malmö
EMIL Als hefur verið veitt staða
aðstoðaryfirlæknis hjá próf.
Bernt Ehringer við augnsjúk-
dómadeild háskólaspítalans í
Malmö.
Meðal starfa Emils verður
fyrirlestrahald fyrir sænsk lækn-
isefni. Umsækjendur um stöðuna
voru 5.
Gardínuhúsið
Ingólfsstræti 1
FLYTUR
í Iðnaðarhúsið
Ingólfsstræti/Hallveigarstíg
Erum
TlUtt
lonaoarmannahúsið
Gardinuhusið
Ingolfsstræti/Hallveigarstig
INGOLFS Str
BERGSTstr,
SIGURVEGARAR I meistarakeppni Birdgefélags Kópavogs,
Ragnar Björnsson (lengst til vinstri) og Haukur Hannesson eiga
hér I höggi við feðginin Valgerði Báru Guðmundsdóttur og
Guðmund Jakobsson en þau höfnuðu I sjöunda sæti I meistara-
keppninni. Haukur og Ragnar hófu að spila saman f sumar og hafa
verið mjög sigursælir.
Einar og Logi
sigurvegarar í
Danivalsmótinu
Frá bridgefélagi
Suðurnesja.
Danivalsmótinu, sem er tví-
menningskeppni með baro-
meterfyrirkomulagi, er nú lok-
ið og tóku 20 pör þátt í keppn-
inni. Sigurvegarar urðu Einar
Jónsson og Logi Þormóðsson og
sigruðu þeir örugglega, hlutu
250 stig eða meira en helmingi
fleiri stig en parið sem hafnaði
í öðru sæti.
Röð efstu para varð annars
þessi:
Alfreð G. Alfreðsson
— Guðmundur Ingólfsson 103
Guðjón Einarsson
— Óskar Gíslason 96
Brldge
Umsjón:
Arnór Ragnarsson
Kjartan Ólafsson
— Valur Símonarson 93
Karl Einarsson
— Sveinbjörn Berentsson 76
Gestur Auðunsson
— Högni Oddsson 73
Maron Björnsson
— Gunnar Jónsson 72
Helgi Jóhannsson
— Jóhannes Sigurðsson 60
Næsta keppni félagsins er
J.G.P.-mótið, sem er sveita-
keppni. Spilað er í Tjarnar-
lundi og hefst keppnin í kvöld
klukkan 20.
Ragnar og Hauk-
ur tvímennings-
meistarar BK
Frá Bridgefélagi
Kópavogs
Meistarakeppni félagsins í
tvímenningi er nú lokið með
sígri þeirra Hauks Hannesson-
ar og Ragnars Björssonar, og
fengu þeir 760 stig röð næstu
manna var annars þessi:
Grímum Thorarensen
— Guðmundur Pálsson 729
Óli Andreasson
— Guðmundur
Gunnlaugsson 698
Jónatan Lindal
— Þórir Sveinsson 694
Ármann J. Lárusson
— KáriJónasson 688
Karl Stefánsson
— Birgir Isleifsson 669
Valgerður Bára Guðmundsd.
— Guðmundur Jakobsson 668
Böðvar Magnússon
— Rúnar Magnússon 662
Arnar Guðmundsson
— Björgvin Ólafsson 661
Sæmundur Rögnvaldsson
— Bjarni Sveinsson 649
Meðalskor 624.
Fimmtudaginn 4. nóv. hefst
hraðsveitakeppni, og verða úr-
slit í henni látin ráða hvaða
sveitir spila í meistaraflokki í
aðal sveitakeppni félagsins eft-
ir áramót, og eru þeir sem ekki
eru búnir að láta skrá sig til
keppni beðnir um að mæta
tímanlega á fimmtudagskvöld.
Þjóðviljinn kom-
inn í Síðumúlann
UM helgina átti Þjóðviljinn 40
ára afmæli og flutti þá starfsemi
slna aðra en prentun I nýtt hús að
Sfðumúla 6.
Á sunnudaginn fór fram
afmælishátfð í hinu nýja húsi og
voru þar flutt ávörp og skémmti-
atriði.
Otgáfa Þjóðviljans féll niður f
gær.
Myndin hér að ofan er af hinu
nýja húsi við Siðumúla, en i
leiðara afmælisblaðs Þjóðviljans
kemur fram, að húsið kostaði
rúmar 40 milljónir. Hafi þegar
safnazt 33 milljónir, og segir i
leiðaranum, að ekki eitt einasta
fyrirtæki hafi lagt fé f þann sjóð,
enda hafi ekki verið eftir þvf leit-
-að.