Morgunblaðið - 03.11.1976, Side 32
AlitiLÝSINGASÍMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
IWorcxmbln&iti
MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER 1976
Yfir 80% bamakenn-
ara taka þátt í aðgerð-
unum á mánudaginn
Nt' IJGGUR Ijóst fyrir ad yfir
80% barnakennara I landinu
munu ekki mæta til kennslu á
mánudaginn f mótmælaskyni við
ástandið ( launa- og réttindamál-
um stéttarinnar. Þessar upplýs-
ingar fékk Mbl. í gærkvöldi hjá
Valgeir Gestssyni, formanni Sam-
bands fslenzkra barnakennara.
Sagði Valgeir að þessar aðgerðir
væru ekki á vegum sambandsins,
heldur einstakra félaga og þær
væru „algerlega neðan frá“ eins
og hann orðaði það og sýndi það
hve óánægja kennara væri mikil.
Morgunblaðið spurði Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra um það í gær, hver yrðu
viðbrögð ráðuneytisins við þess-
um aðgerðum. Sagði ráðherrann
að ráðuneytið gæti ekki mikið
gert f slfkum tilvikum, það myndi
skrifa kennarasamtökunum bréf
og brýna fyrir félagsmönnum þar
að virða lög og reglur.
Valgeir Gestsson formaður SlB
sagði við Mbl., að ljóst væri að
aðgerðirnar næðu til Stór-
Reykjavíkursvæðisins, Reykja-
ness, Vesturlands og Austur-
lands, en á þessum svæðum væru
Framhald á bls. 18.
N orðurs j ávarskipin:
Seldu fyrir 92 millj.
kr. á tveimur dögum
SEXTAN fslenzk sfldveiðiskip
seldu sfld fyrir tæpar 92 milljónir
kr. f Danmörku f gær og f fyrra-
dag. Aldrei áður hafa sfldveiði-
skipin selt fyrir jafnháa upphæð
á tveimur dögum. 1 fyrradag
seldu 12 skip rúmar 1000 lestir
fyrir 70.5 millj. kr. og var þá
meðalverðið kr. 67.90 og f gær
seldu 4 skip 305 lestir fyrir 21.4
millj. kr., meðalverðið var þá
67.90 kr.
Sflveiði fslenzku skipanna hef-
ur gengið vel f Norðursjó undan-
farnar vikur, og þakka sjómenn
það hagstæðri veðráttu fremur en
mikilla sfld. Undanfarin þrjú
haust var veðráttan með eindæm-
um slæm f Norðursjó og hafa sfld-
veiðiskip oft á tfðum þurft að
liggja eina til tvær vikur sam-
fleytt f höfn vegna veðurs.
Eftirtalin skip seldu í fyrradag:
Rauðsey AK seldi 86.5 lestir fyrir
5.9 millj. kr., Skírnir AK seldi
82.1 lest fyrir 5.6 millj. kr., Árni
Sigurður AK selda 66 lestir fyrir
Framhald á bls. 18.
Framhaldsskólanem-
ar fara í setuverkfall
MIKIL óánægja rfkir meðal
námsmanna vegna nýrrar
skipunar námsaðstoðar, einkum
nýrra reglna um úthlutun náms-
lána.
A fundi, sem kjarabaráttu-
nefnd námsmanna hélt f gær,
kom fram að nemendur fjöl-
margra framhaldsskóla hyggjast
fara f setuverfall á næstu dögum,
ekki allir f senn, heldur einn eða
nokkrir hvern dag. Með þessu
vilja þeir mótmæla ýmsum
Hækkun á út-
seldri vinnu
iðnaðarmanna
RlKISSTJÖRNIN staðfesti á
fundi f gær samþykkt verðlags-
nefndar um 3,1% hækkun á út-
seldri vinnu iðnaðarmanna. Þá
var ennfremur staðfest 6%
hækkun á texta efnalauga.
ákvæðum hinna nýju laga um
lánasjóð fslenzkra námsmanna
sem þeir telja skerða kjör náms-
manna mjög. A þriðjudag f næstu
viku ráðgera námsmenn sfðan
fjöldafund á Austurvelli, þar sem
þessi mál verða til umræðu.
Fulltrúar námsmanna bentu á
ýmis atriði á fundinum, sem
einkum valda þessari ánægju. Er
þar fyrst að nefna að nú fá hjón
ekki viðurkenndan neinn kostn-
aðarauka vegna barna, en fram til
þessa hefur hvor aðili fengið 25%
hækkun á láni vegna fyrsta barns
og 12.5% vegna annars. Einstætt
foreldri fær hins vegar lánsbót,
sem nemur sömu prósentum.
Námsmenn benda hins vegar á að
það kostar hjón jafnmikið og ein-
stæð foreldri að framfleyta barni.
Ekkert tillit er heldur tekið til
kostnaðar vegna framfærslu
maka, sem námsmaður kynni að
bera, en hins vegar er tekið tillit
til þess ef maki hefur tekjur fram
Framhald á bls. 18.
Ólympíumótið:
ÍSLAND stend-
ur ver að vígi á
móti Filipseyjum
ISLENZKA Ólympfuskáksveitin
mætti sveit Filipseyja f gær f 7.
umferð Olympfuskákmótsins.
Þremur skákum lauk f gærkvöldi,
Ilelgi Ólafsson og Margeir Péturs-
son gerðu jafntefli en Magnús
Sólmundarson tapaði sanni skák.
Björgvin Vfglundsson á tvfsýna
biðskák. Hollendingar eru f efsta
sæti f mótinu með 22 vinninga en
tslendingar eru f 12—15 sæti með
17 vinninga og eina biðskák. Sjá
nánari fréttir af mótinu og skákir
á bls. 13.
„Fokkerar” í nýjum litum
ALLT frá árinu 1965, er fyrsta
Fokker Friendship skrúfuþota
Flugfélags lslands kom til lands-
ins, hefur útlit flugvélanna verið
mjög svipað, þ.e.a.s. málning og
merki hafa litlum breytingum
tekið. Nú hefur verið ákveðið að
breyta útliti flugvélanna og er
„Snarfaxi" sú fyrsta sem fær nýtt
útlit.
Eins og áður verða Friendship
skrúfuþoturnar, sem eru fimm að
tölu, gráar að neðan og hvftar að
ofan en í stað fánaborðans eftir
endilangri flugvélinni kemur
breið blá rönd með mjórri rauðri
rönd fyrir ofan. Það sem mesta
athygli mun þó vekja við Friend-
ship skrúfuþoturnar verður að nú
verða ,,stél“ þeirra í mismunandi
litum. I gær kom „Snarfaxi" út
með rautt stél, en síðan koma þær
hver af annarri með blátt, appel-
sínugult, grænt og gult.
Myndin sýnir „Snarfaxa" f nýjum
litum, stélið er rautt.
Ljósm. Mbl. Friöþjófur.
Gat selt tékka
sýnishorn úr
kennslubók á
7 þúsund kr.
fiANNSÓKNARLÖGREGLAN
þurfti f vikunni að hafa afskipti
af 16 ktii unglingspilti, sem hvað
eftir annað hefur verið staðinn að
ýmiss konar falsi. Hefur piltur-
inn setið f gæzfuvarðhaldi sam-
tals f 107 daga á þessu ári, en
hann hefur tekið upp fyrri iðju,
nær jafnharðan og hann hefur
losnað úr fangelsinu.
Þegar lögreglan náði piltinum á
mánudagsmorguninn, var hann
að reyna að selja ávfsun úr stolnu
tékkhefti í Búnaðarbankanum.
Pilturinn hafði ýmislegt á sam-
vizkunni, m.a. játaði hann að hafa
kiippt tékkasýnishorn út úr
kennslubók fyrir gagnfræðaskóla-
nema, fyllt það út og selt í verzlun
fyrir 7 þúsund krónur, jafnvel
þótt stæði skýrum stöfum að um
sýnishorn að ræða. Að sögn rann-
sóknarlögreglunnar, eru alltof
mikil brögð af því að fólk sé
kærulaust fyrir ávísunum og
kaupi þær jafnvel þótt augljós-
lega mega sjá að ekki sé allt með
felldu.
37 járnbindingamenn fóru heim:
Starfsmenn leiðir á
stjórnleysi við Sigöldu
- segir talsmaður verkalýðs-
félagsins í Rangárvallasýslu
ÞRJATlU og sjö járnabindinga-
menn, sem verktakinn f Sigöldu
hafði sagt upp frá og með 1. nóv-
ember, höfnuðu endurráðningu f
18 daga og fóru þessir menn af
svæðinu f fyrrinótt. Eftir er þá
harðsnúið lið um 10 manna, og að
sögn Sigurðar Öskarssonar, fram-
kvæmdastjóra fulltrúaráðs verka-
Systkin slas-
ast alvarlega
SYSTKINT 19 og 20 ára,
slösuðust alvarlega á
Skúlagötunni klukkan
rúmlega 22 f gærkvöldi.
Þau voru tvö á mótorhjóli og
óku austur Skúlagötu, en á móti
þeim kom bifreið. Hún sveigði
upp Vatnsstíginn, þvert fyrir
hjólið og skall það harkalega
framan á bflinn. Bæði pilturinn
og stúlkan hentust af hjólinu og
skullu harkalega á gangstétt og
Framhald á bls. 18.
lýðsfélaganna f Rangárvallasýslu,
geta aðgerðir þessar haft hinar
afdrifarfkustu afleiðingar og að
ekki takist fyrir vikið að gang-
setja orkuverið á tilsettum tfma,
en Halldór Jónatansson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Landsvirkjun-
ar, sagði f gær að ákvörðun þess-
ara manna um að hverfa á brott,
myndi engu breyta, enda hefði
verið endurráðið f þeirra stað. I
sama streng tók Pétur Pétursson,
starfsmannastjóri verktakans f
Sigöldu, Energoprojekt.
Sigurður Óskarsson sagði að
þessi breytni mannanna, að fara
og hafna endurráðningu, væri að
sínu mati að nokkru afleiðing
stjórnleysis á staðnum. Hann
kvað slæma stjórn hafa verið á
svæðinu og mjög mikinn mismun
á launum manna. Hefði hann
valdið óróa á svæðinu og kvað
hann afleiðinguna vera þreytu f
fólkinu, sem vissi ekki fyrir víst,
hvar það stæði.
Júgóslavarnir hafa haft til-
hneigingu til þess að vera með
allra handa hliðarspor, sem ekki
eru í tengslum við neina venju-
lega samninga. Hafa menn á
svæðinu náð tekjum, sem eru
ekki í samræmi við neinar venju-
legar tekjur og byggjast ekki á
samningum verkalýðsfélaga.
Sagði Sigurður sem dæmi að bent
Framhald á bls. 18.
Hitaveitan:
Ný aðalæð í
Vesturbæinn
næsta sumar
NÆSTA sumar verður byrjað á
nýrri aðafæð hitaveitu f Vestur-
bænum, að sögn Jóhannesar
Zoéga hitaveitustjóra borgarinn-
ar.
Helmingur hinnar nýju aðalæð-
ar verður lagður á næsta ári eða
frá Melatorgi eftir Hringbraut
endilangri niður að sjó og þaðan
eftir Ánanaustum að Granda-
garði. Lagnir í fbúðarhverfum
verða sfðan tengdar í nýju æðina.
Aðalæðin nýja verður 25—30 cm í
þvermál. Aætlaður kostnaður er
50"—60 milljónir króna.