Morgunblaðið - 20.11.1976, Side 1
32 SIÐUR OG LESBOK
270. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR, 20. NÓVEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hearst
sleppt
Los Angeles, 19 nóvember.
Reuter.
PATRICIA Hearst var sleppt
úr fangelsi I San Diego I dag.
Alrfkisdómari I San Francisco
ákvað að hún skyldi lðtin laus
gegn tryggingu. Hún verður í
umsjá f Jölskyldu sinnar.
William Orrick dómari lét
Patty Hearst lausa gegn einnar
milljón dollara tryggingu.
Faðir hennar, blaóakóngurinn
William Hearst, greiddi
trygginguna áður en Patty var
látin laus.
Verjandi hennar segir að
hún verði undir stöðugravernd
Framhald á bls. 19
Evensen
vongóður
Brlissel, 19. nóvember. Reuter.
NTB.
LlTIÐ miðaði áfram f viðræðum
Norðmanna og Efnahagsbanda-
lagsins i dag, en aðalsamninga-
maður Norðmanna, Jens Evensen
hafréttarráðherra, lét f Ijós þá
von f dag að samkomulag tækist
fyrir áramót.
Evensen sagði blaðamönnum að
ekki væri fráleitt að ílfta að nást
mundi samkomulag, sem tryggði
Norðurmönnum veiðar f Norður-
Framhald á bls. 19
Samúð með Biermann
í Austur-Þ' ’ '
Köln, 19. nóvember. AP.
SÖNGVARINN og andófsmað-
urinn Wolf Biermann spáði þvf
f dag að austur-þýzk yfirvöld
mundu láta undan vaxandi
kröfum aimennings og leyfa
honum að snúa aftur til Austur-
Þýzkalands.
Hann kvaðst ekki geta unað
því að vera neyddur f útlegð
þar sem hann hefði gilt vega-
bréf og fengið nauðsynlegar
vegabréfsáritanir til að fara úr
landi og koma aftur.
Samkvæmt heimildum i
Berlin I dag hafa 20 leikarar
lýst yfir stuðningi við opið bréf
annarra austur-þýzkra lista-
manna þar sem útskúfun Bier-
manns og borgararéttarsvipt-
ingu hans er mótmælt.
Biermann talaði sjálfur á
blaðamannafundi um „öldu
samstöðu" menntamanna og
verkamanna sem hvettu stjórn-
ina til að veita honum aftur
borgararétt.
Hann kvaðst hafa talað við
konu sína í sfma og hún hefði
sagt að hún ætlaði að vera um
kyrrt I Austur-Berlfn ásamt sex
mánaða gömlum syni þeirra.
Hann sagði að sfmanum i fbúð
þeirra hefði verið lokað en
„nóg væri af "öðrum sfmum f
Austur-Berlfn til að ná sam-
bandi við konu sína“.
Vestur-þýzka sjónvarpið
hyggst sýna upptöku frá hljóm-
leikum Biermanns í Köln og
beina sjónvarpsgeislanum til
Framhald á bls. 19
Vfsnasöngvarinn Wolf Biermann gagnrýnir á blaðamannafundi f
Köln þá ráðstöfun austur-þýzkra stjórnvalda að gera hann
útlægan.
PÓLITlSKIR FANGAR í Tres Alamos-fangelsi í Santiago, Chile,
faðmast áður en þeim er sleppt úr haldi.
Símamynd AP
Thatcher
hreinsar
London, 19. nóv. AP. Reuter.
MARGARET Thatcher, leiðtogi
brezka thaldsflokksins, vék Reg-
inald Maudling úr stöðu tals-
manns flokksins f utanrfkismál-
um f dag og gerði fleiri breyting-
ar á „skuggaráðuneyti** sínu til
undirbúnings harðri sóknarlotu
gegn fallvaltri stjórn Verka-
mannaf lokksins.
John Davies var skipaður tals-
maður í utanríkismálum í stað
Maudlings sem hefur ekki þótt
nógu atkvæðamikill. Edward
Heath, fyrirrennari Thatchers,
Framhald á bls. 19
Flugvöll-
urinn í
Beirút
dögum skammt frá hafnarborg-
inni Tripoli en 'ráðgert er að ara-
bfska friðargæzluliðið hertaki
borgina eftir nokkra daga.
Madrid, 19. nóvember. Reuter
STJORN Adolfo Suarez kom
saman f dag til að ákveða hvenær
efnt skuli til þjóðaratkvæða-
Bretar ráðgast
við Gundelach
Frá fréttarritara Mbl. í Hull f
gær
FINN Olav Gundelach, samninga-
maður Efnahagsbandalagsins,
hefur boðizt til að hitta að máli
nefnd frá brezku hafnarbæjunum
f Briissel f næstu viku.
Héraðsráð Humberside og
togaraeigendur í Fleetwood
sendu Gundelach skeyti í gær,
létu í ljós ugg vegna þess að Efna-
hagsbandalaginu ætlaði ekki að
takast að komast að samkomulagi
við tslendinga fyrir 1. desember
og fóru þess á leit að hitta hann að
máli til að gera honum grein fyrir
sjónarmiðum sínum.
1 morgun var forseta héraðs-
ráðs Humberside, Harry Lewis,
tilkynnt frá BrUssel að nefnd frá
Framhald á bls. 19
greiðslu um umbótaáætlun
stjórnarinnar, sem hefur verið
samþykkt f þinginu, Cortes.
Gert er ráð fyrir að þjóðarat-
kvæðagreiðslan fari fram 15. til
19. desember og samkvæmt opin-
berri skoðanakönnun styðja 66%
þjóðarinnar umbótaáætlunina.
Frjálsar kosningar verða Ifklega
haldnar f maf.
Heimildir í stjórnarand-
stöðunni herma að hún bíði
átekta og voni að stjórnin sé fús
til viðræðna um heiðarlega
kosningabaráttu. Vinstrisinnar
hóta að taka ekki þátt I þjóðarat-
kvæðinu ef kommúnistaflokkur-
inn verður ekki gerður löglegur
og ef ekki verður gengið að fleiri
kröfum.
Lögregla hefur verið á verði f
Madrid vegna atkvæðagreiðsl-
unnar I þinginu sem er talin
mikill sigur fyrir Suarez og jafn-
vel „kraftaverk". 80% þing-
manna voru skipaðir af Franco
hershöfðingja og áætlunin var
samþykkt með 425 atkvæðum
gegn 59. Þar með hefur mikil-
vægasta skrefið verið stigið í lýð-
ræðisátt siðan Franco lézt.
Eitt ár verður liðið frá láti
Francos á morgun og hópar
hægrisinna hafa hvatt almenning
að mæta á fjöldafundi á Plaza
Framhald á bls. 18
opnaður
Beirút, 19. nóvember. AP.
Reuter.
FLUGVÖLLURINN í
Beirút var opnaður að nýju
f dag fimm mánuðum eftir
að honum var lokað vegna
styrjaldarátaka og margir
Lfbanir töldu það merki
þess, að 19 mánaða
borgarastrfði væri lokið.
Flugvallarstarfsmenn klöppuðu
þegar fyrsfca flugvélin lenti. Flug-
vélar komu frá Jedda, París, Genf
og Róm og fóru til Kuwait,
Bahrain, Parfsar og Dubai.
„öllu er lokið," sagði fyrsti far-
þeginn sem kom út úr Boeing
breiðþotu Miðausturlandaflug-
félagsins er kom frá Jedda. „Það
er dásamlegt að vera kominn
aftur heim.“
Flugvöllurinn var umkringdur
sýrlenzkum hermönnum arabfska
friðargæzluliðsins og
óviðkomandi var bannaður
aðgangur. Opnun flugvallarins er
talið mikilvægt skref í þá átt að
færa lífið f Lfbanon I eðlilegt horf
á ný.
Kristnir menn og múhameðs-
trúarmenn halda áfram skotbar-
Þjóðaratkvæði á
Spáni 1 desember